Dagblaðið - 08.02.1977, Side 13
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 1977.
13
Iþróitir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Jóhannes í baráttu við Jarvie. Aberdeen.
Aftur kom Búbbi
Celtic á bragðið
— skoraði fyrsta markið Í5-1 sigri Celtic gegn Hearts
Jóhannes Eðvaldsson var aftur
á skotskónum i gærkvöld þegar
Celtie mætti Hearts í aðal-
deildinni skozku. Jóhannes
skoraði fyrsta mark leiksins í 5-1
sigri Glasgowliðsins og virðist
heldur en ekki hafa gripið
tækifæri sitt með aðalliðinu — en
hann kom inn á laugardag og
skoraði einnig þá fyrsta mark
leiksins.
Celtic hefur nú örugga forustu
aðaldeildinni — hefur hlotið
tveimur stigum meira en Aber-
deen og á tvo leiki til góða.
,,Já, það var ánægjulegt að sjá
knöttinn hafna í markinu — ég
skoraði af stuttu færi innan mark-
teigs,“ sagði Jóhannes þegar við
ræddum vi$ hann.
,,Ég er í góðri-þjálfun og hef
undanfarið spilað með varaliðinu.
A laugardag fekk ég sjensinn —
en liðið hafði ávallt unnið áður og
eðlilegt að Jock Stein breyti ekki
viningsliði. Roddy McDonald
meiddist fyrir um viku — og
meiðslin tóku sig upp á laugar-
dag. Það var í raun vitleysa að
láta McDonald spila á laugardag
— meiðslin tóku sig upp og urðu
verri fyrir vikið.
En hvað um það — nú er undir
sjálfum mér komið að halda stöðu
minni í liði Celtic. til þess þarf
mikla vinnu og lukku að
sjálfsögðu.
Annars var bjarga.; á línu
frá mér i gærkvöld — Joe Craig
skallaði knöttinn til mín. Ég tók
hann á brjóstið og skaut. Mark-
vörðurinn hálfvarði og knöttur-
inn á leið í netið, þegar bjargað
var á línu,“ sagði Jóhannes að
lokum.
Auk Jóhannesar skoruðu Joe
Craig, Ronnie Glavin, Kenny
Dalglish og Andy Lynch fyrir
Celtic.
Urslitin á Skotlandi urðu í gær-
kvöld:
Aberdeen—Kilmarn. 2-0
Ayr—Dundee United Í-4
Celtic—Hearts 5-1
slö Slask út
V-Þýzku meistararnir Gumm-
ersbach láta ekki að sér hæða — i
gærkvöld lék v-þýzka liðið við
meistara Póllands — slask frá
Wroslow, sem sló út FH. Gumm-
erbach sigraði 23-20 eftir að hafa
haft yfir 12-7 í leikhléi. Gumm-
ersbach vann f.vrri leikinn í
Þýzkalandi með 2 mörkum.
Sennilega hefur stórskyttan
Klempel ekki leikið með liði sínu
— hann bvrjaði mjög vel í fyrri
leiknum — skoraði 3 mörk en
meiddist þá — já, Gummersbach
bregzt hart við hlutunum. Feld-
hoff 6 og Deckarm 5 voru mark-
hæstir í liði Gummersbach — en
ekki var getið um hvernjir voru
drýgstir í liði Siask.
KA bar hærri
hlut gegn Þór
Akureyri, 6. febrúar 1976.
islandsmótiö, 2. deild. KA-Þór.
Síðari leikur Akureyrar-
félaganna, KA og Þórs var
háður á laugardaginn að við-
stöddu fjölmenni. Leikur þessi
var þaó ömurlega slakur af
beggja hálfu að bezt er að gleyma
honum sem fyrst. En liði KA tókst
að sigra eftir mikinn barning,
gerðu 17 mörk gegn 16 mörkum
Þórs. Leikurinn var mjög jafn
allan leiktímann nema á kafla í
fyrri hálfleik en þá hafði KA náð
fimm marka forskoti. Þórsarar
eða öllu heldur Sigtryggur Guð-
laugsson náðu að minnka muninn
niður í tvö mörk, en Sigtryggur
gerði þá f jögur mörk í röð.
Staðan í leikhléi var 11-9 KA í
vil.
Á 12. mín. síðari hálfleiks hafði
liðsmönnum Þórs tekist að jafna,
13-13. Munaði síðan aldrei nema
einu marki allt til leiksloka. Á
örlagaríkri stundu í síðari. hálf-
leik mistókust tvö víti hjá KA-
liðinu með stuttu millibili. Annað
fór í stöng en hitt fór framhjá.
Sem fyrr sagði var þessi leikur
mjög slakur og þá sérstaklega hjá
KA. Hafa þeir vart sýnt verri leik
í langan tíma. Aragrúi sókna fór
forgörðum og skothæfni leik-
manna var í lágmarki. Markverðir
liðanna vörðu nokkuð vel og það á
réttu augnabliki. Mörk Þórs
gerðu eftirtaldir: Sigtryggur
Guðlaugsson 7 (2 víti), Þorbjörn
Jensson 6, Einar Björnsson, Ragn-
ar Sverrisson og Elías Jónasson
gerðu eitt mark hver. Beztu menn
liðsins voru þeir Sigtryggur og
Tryggvi Gunnarsson í markinu.
Mörk KA gerðu þeir .Hörður
Hilmarsson 5, Sigurður
Sigúrðsson 3 (2 víti), Þorleifur
Ananíasson 3, Armann Sverrisson
2 (1 víti), Guðmundur Lárusson 2
og þeir Albert Ágústsson og Al-
freð Gíslason gerðu eitt mark
hvor. Liðið var nokkuð jafnt.
Magnús Gauti varði vel, þeir Jó-
hann, Hermann og Alfreð voru
góðir í vörn og Þorleifur stendur
alltaf fyrir sínu. Höröur var nokk-
uð góöur og gerði mjög lagleg
mörk.
Dómarar voru þeir Björn
Kristjánsson og Öli Ölsen. Voru
þeir ekki eins góðir og undir-
ritaður hafði búizt við, slepptu oft
alvarlegum brotum og voru ekki
sjálfum sér samkvæmir.
-STA.
Elías hættur
hjá Þór
Elías Jónasson, fyrrum leik-
maður með Haukum, er hættur
þjálfun og leik með liði Þórs frá
Akureyri.
Hann hefur sem kunnugt er
þjálfað annarrardeildarlið
félagsins og 1. deildarlið kvenna
og gert þar margt vel. Leikurinn
gegn KA á laugardaginn var hans
síðasti leikur.
Eftir því sem undirritaður
kemst næst kom upp missætti
milli hans annars vegar og stjórn-
ar handknattleiksdeildar hins
vegar. -STA.
Cryuff f ékk
reisupassann
Johan Cryuff fékk reisupass-
ann í leik Barcelona og Malaga í
spánsku deildakeppninni á laug-
ardag. Þetta er í annað sinn sem
Cryuff er rekinn af velli — í bæði
skiptin i liði Bareelona og bæði
skiptin gegn Malaga. Þrátt fyrir
að Cryuff værí rekinn af velli
sigraði Barcelona 2-1 — en
Cryuff var rekinn af velli á 83.
mínútu — þá hafði hann skorað
að því er virtist gott mark — en
dómarinn dæmdi það af. Þetta
átti hinn snjalli leikmaður erfitt
með að sætta sig við — maidaði í
móinn og fékk rauða spjaldið.
Staða efstu liða á Spáni er nú
eftir 21 umferð. Barcelona 30 stig
— Atletico Madrid 29 — Valencia
25 og Real Sociedad 25.
Cryuff mun annað kvöld leika
með hollenzka landsliðinu á
Wembley — ásamt frægum
köppum — 8 úr liðinu er varð
annað i HM ’74. Það má nefna
Neeskens, Rep, Rensenbrink,
Krol og Suurbier.
Englendingar hafa átt í erfið-
leikum með lið sitt — þeir Phil
Thompson og Trevor Francis hafa
orðið að draga sig til baka vegna
meiðsla. í þeirra stað hefur Don
Revie valið Dave Watson frá
Manchester City og Paul
Madele.v, Leeds.
Auglýsinga-
skrifstofa
óskar að ráða starfsfólk sem fyrst.
Æskileg er starfsreynsla við gerð aug-
lýsinga.
Einnig kemur til greina ráðning
starfskrafts sem hefur góða vélrit-
unar- og íslenzkukunnáttu.
Umsóknir, sem greini aldur, mennt-
un og fyrri störf, sendist afgreiðslu
Dagblaðsins, Þverholti 2, merkt
„Strax 123“.