Dagblaðið - 08.02.1977, Blaðsíða 15
15
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 8. FEBRUAR 1977.
MAÐURINN GETUR EKKI
VERIDQNN
TIL LENGDAR
Peter Falk búinn að ná sér í
eina ungaogsæta,
en hann gerði vel við fyrri konuna
þegar þau skildu
Peter Falk, sem við þekkjum
kannske betur undir nafninu
Colombo, samþykkti að greiða
fyrrverandi konu sinni 2,4
milljónir dala (rúml. 480 millj-
ónir ísl. kr.) meðlagsgreiðslu
aðeins fáeinum dögum áður en
hún gekk i hjónaband á nýjan
leik.
Peter Falk er talinn hafa
gert mjög vel við fyrrverandi
eiginkonu sína Alyce eftir að
hann fékk skilnað frá henni
Hún fékk 650 þúsund dali strax
(rúml. 130 millj. ísl. kr.), stór-
hýsi þeirra hjóna í Beverly
Hills sem metið er á 500 þús.
dali, annað stórhýsi í New
Jersey en þar eru foreldrar
hennar nú búsettir. Alyce á
einnig að fá helminginn af arð-
inum af þremur sjónvarpskvik-
myndum fyrrverandi eigin-
mannsifls.
Alýce er einnig nefnd í erfða-
skrá Peters, þar sem hann
ánafnar henni eina milljón
dala. Falk hjónin áttu tvær
dætur, Jacqueline sem er tíu
ára og Catherine sex ára.
í ljós kom að Peter Falk átti
útistandandi 80 þúsund dali
sem vinir hans skulduðu
honum. Meðal þeirra var leikar-
inn og leikstjórinn John Cassa-
vetes sem skuldar honum 55
þúsund dali. Þeir Cassavetes og
Peter Falk hafa nýlega leikið
saman í kvikmynd, sem nú er
verið að sýna um gjörvöll
Bandaríkin.
Myndin fjallar um tvo glæpa-
menn sem sátu á svikráðum
hvor við annan.
Nú er liðið um það bil ár
síðan Peter skildi við Alyce.
Þegar hann flutti að heiman
lýsti hann því yfir að hann
hugsaði sér gott til glóðarinnar
stóðu,“ sagði hún. ,,Mér datt í
hug að það kæmi honum kann-
ske illa að við sæjumst saman á
almannafæri en þetta fór allt
Ijómandi vel.“
Leiðir Sheru og Peters liggja
einnig saman annars staðar en í
einkalífinu því hún hefur
fengið það hlutverk að leika á
móti honum í sjónvarpsmynd
sagði Shera.
„Hann hefur ekki trú á því
að eyða tima sínum í að ræða
við fólk sem honum líkar ekki
við. Hann tekur sér aldrei neitt
fyrir hendur végna þess eins að
honum sé sagt að gera það.
Hann er mjög einlægur í öllu
tilliti og fer sínar eigin leiðir.“
Shera, sem er fyrrverandi
Peter Falk — alias Columbo — með nýju vinkonu sinni Shera
Danese.
Peter og Shera koma á frumsýningu f Hollywood...
Hún er yfir sig ástfangin í Peter...
og tilbúin að dansa með honum í gegnum lifið.
að vera algerlega frjáls og
óháður, en ekkert löngu síðar
kynntist hann ungri stúlku.
Það er Shera Danese tuttugu
og sex ára gömul leikkona og
fyrrverandi fegurðardrottning.
Peter og Shera eru saman
öllum stundum og hann fékk
sér íbúð sem er ekki nema tvö
hundruð metra frá íbúð
hennar. Nánir vinir Peters hafa
sagt að hann virðist nú ham-
ingjusamur í fyrsta sinn siðan
hann skyldi við Alyce, en þau
voru gift í sextán ár.
„Hann er dásamlegur
maður,“ sagði Shera í viðtali
við bandariskt blað á dögunum.
„Ef ég hugleiddi að ganga í
hjónaband væri Peter eini
maðurinn sem kæmi til greina
sem eiginmaður fyrir mig.“
Peter hefur aftur á móti
harðneitað að gefa nokkrar
upplýsingar varðandi einkalíf
sitt.
„Það má vel vera að hann
sýnist vera óvingjarnlegur við
þá sem hann ekki þekkir. En
Peter er þannig að hann er
sannkallaður vinur vina sinna,“
fegurðardrottning frá Pennsyl-
vaniu hitti Peter dag nokkurn
þegar hún var að bíða eftir
reynslumyndatöku i Holly-
wood.
„Ég man ekki greinilega um
hvað við töluðum þegar við hitt-
umst fyrst en ég fann strax að
það var eitthvað milli okkar og
ég féll fyrir honum á stund-
inni,“ sagði Shera.
Það liðu nokkrir mánuðir þar
til hún heyrði frá honum og þá
hafði hann fengið skilnaðinn
frá Alyce.
„Hann hafði upp á símanúm-
erinu mínu og dag nokkurn
hringdi hann til mín og bauð
mér út að borða um kvöldið."
Shera sagði að hann hefði
verið frekar druslulega til fara
þegar hann kom í óhrjálegum
bil sínum, sem er Mercedes
Benz. Þau snæddu á rólegum
veitingastað í San Fernando
dalnum.
„Ég var hálf taugaóstyrk á
þessu fyrsta stefnumóti okkar
því mér var ekki alveg ljóst
hvernig hjónabandsmál hans
„Það var búið að ráða aðra
leikkonu í hlutverkið, en hún
boðaði forföll á síðustu stundu.
Þá var það einhver sem stakk
upp á mér í hlutverkið en ég
hef frétt fyrir víst að það var
ekki Peter sem átti hugmynd-
ina um að ráða mig f hlut-
verkið,“ sagði Shera.
Hún hefur sagt að þar til hún
hitti Peter hafi leiklistin átt
allan hug hennar.
„En síðan ég hitti Peter
finnst mér að mesti glansinn
hafi farið af leiklistinni. í öllu
falli þá er Peter eini maðurinn
sem ég gæti hugsað mér að vera
með — og reyndar sá eini sem
gæti fengið mig til þess að
leggja leiklistina á hilluna.“
Shera sagði i þessu blaðavið-
tali að Peter væri ekki mikið
fyrir að stunda næturklúbbalíf.
„Við erum hamingjusömust
þegar við erum tvö saman og
gerum hversdagslega hluti sem
venjulegt fólk tekur sér fyrir
hendur, svo sem að fara í
gönguferðir, lesa góðar bækur
og horfa á sjónvarpið.“
Forsætisráðherrafrú íhungurverkfalli
Sólveig Fálldin, eiginkona sænska forsætisráðherrans, fór í hungurverkfall um
daginn. Hún var að mótmæla því að sænska ríkið hefur látið undir höfuð leggjast að
styrkja listir í Norrland. Þarna er hún að fá sér sopa af ávaxtasafa eftir að
hungurverkfallinu lauk heima í eldhúsinu hjá sér.
Náttúran býr til listaverk
Náttúran á það til að skáka manninum þegar um er að ræða listaverk. Þessar
skemmtilegu vetrarmyndir fengum við frá Noregi en þar hefur verið mikið
fannfergi og vetrarríki eins og annars staðar í hinum vestræna heimi. Veturinn
virðist ekki gera það endasleppt og verður líklega einhver mcsti fimbulvetur sem
um getur í manna minnum. Enn virðist ekkert lát vera á kuldanum.