Dagblaðið - 09.02.1977, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 09.02.1977, Blaðsíða 12
Stórskyttan Klempe! er meðal leikmanna Slask — Hann lék hér í nóvember gegn FH og skoraði 13 mörk. Hér skorar hann eitt, sendir knöttinn yfir tvo Hafnfirðinga. DB-mynd Bjarnleifur. Slask og lands- liðið leika víða — Pólska meistaraliðið kemur íkvöld. LeikuríReykjavík, Hafnarfirði ogá Akureyri og Akranesi við íslenzka landsliðið yfir B-keppnina. Ekki aðeins opinberu starfsmennina í liðinu — og þetta gengur allt ljómandi vel fyrir sig. Við bíðum spenntir eftir heimsókn pólsku meistaranna og vikudvöl liðsins hér ætti að verða mikil lyftistöng. Það mun haga leikaðferðum sínum hér samkvæmt ósk- um Januszar — og allt kapp lagt, á að heimsóknin nýtist íslenzka landsliðinu sem bezt, sagði Sigurður Jónsson að lok- um. HSÍ berast enn gjafir. í gær var hringt frá Seyðisfirði. Það var Theódór Ölafs- son á Sæbjörgu frá Vestmannaeyjum, og hann tilkynnti 50 þúsund kr. gjöf frá skipshöfninni. DAGBLAÐIÐ. MXÐVIKUDAGUR 9. FEBRUAR 1977. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Það var B-landslið Vest ur-Þjódverja! —skrifa þýzku blöðin um landsleiki íslands og Þýzkalands. Axel og Ólafur ístappi ívegabréfaskoðun í Frankfurt. Það hefur lítið verið skrifað í þýzku blöðin um landsleiki Is- lands og Vestur-Þýzkalands í handknattleiknum — smáfréttir í flestum blöðuin, þar sem aðal- áherzlan er lögð á, að B-lið Vestur-Þýzkalands hafi tapað á Íslandi. Gummersbach- leikmennirnir Brand og Deckarm hefðu ekki getað farið til ísiands og auk þess Ehret, sagði Axel Axelsson, þegar við ræddum við hann í gær í Minden. Þrátt fyrir töpin kemur sums staðar fram, að margt gott hafi komið fram hjá vestur-þýzka liðinu og markvarzla Rauer hafi verið hreint frábær. Die Welt segir, að íslenzka landsliðið með Dankersen-leikmennina Axelsson og Jónsson hafi leikið vel, beinlín-j is gosið — blómstrað. Annars gekk ferðin hjá okkur Ólafi ekki of vel heim á mánudag, þar sem við áttum að mæta á þýðingarmikla æfingu hjá Dankersen þá um kvöldið vegna Evrópuleiksins í Moskvu. Við fórum frá Reykjavík á mánudags- morgun ásamt leikmanni Danker- sen, sem lék með vestur-þýzka landsliðinu í Reykjavík, og flogið Luxemborg-Frankfurt, sagði Axel ennfremur. Vegna leiksins í Byggung s/f Vegna fyrirhugaðra framkvæmda félagsins á Eiðs- granda óskar félagið eftir að kaupa eða leigja: 1. Byggingakrana, notaðan eða nýjan. 2. Steypumót (stál) fyrir veggi og loft, notuð eða ný. Byggjum ódýrt— Byggjum með Byggung Byggung s/f — Furugerði 19, Rvík —■ Sími 30121 Moskvu voru vegabréf allra leik- manna Dankersen lögð inn í sendiráð sovézkra í Bonn, en tals- verðan tíma tekur að fá vega- bréfsáritun til Sovétríkjanna eins og allir vita. Þegar við fórum frá Þýzkalandi til íslands fengum við Ólafur áritað bréf frá íslenzka sendiráðinu í Bonn um það hverjir við værum, en þar voru ekki myndir. Þetta gekk vel í sam- bandi við förina til íslands — en snurða hljóp á þráðinn, þegar við komum til Frankfurt á mánudag. Þýzki leikmaðurinn komst þar einfaldlega í gegn, erí við ölafur vorum stöðvaðir í vegabréfaskoð- uninni. Þeir tóku þar ekki bréfið frá íslenzka sendiráðinu gilt — og vildu heldur ekki hringja í það. Sögðu að hver sem er gæti búið til slík bréf. Flugvélin til Dankersen átti að fara innan skamms — og við misstum af henni. Stóðum þarna i stappi á flugvellinum í Frankfurt fram eftir öllum degi. Komumst loks af stað um kvöldið og vorum komnir heim til Minden um miðnættið, þreyttir og svekkt- ir eftir 18 tíma ferð frá Islandi. Ekkert varð því af, að við kæmumst á æfinguna þýðingar- miklu — og ég var ekkert of ánægður með það vegna atvik- anna, sem áttu sér stað í sam- bandi við mig hjá Dankersen, þegar ég fór í íslandsförina, sagði Axel. En við mættum svo á æfingu hjá liðinu í kvöld, þriðjudags- kvöld, og þar var fyrst aðalum- ræðuefnið stirfnin í vegabréfs- skoðuninni í Frankfurt. Allir voru ánægðir, að við vorum komnir aftur og höfðum sloppið við meiðsli. Þjálfarinn í ljómandi skapi og ekkert minnzt á at- burðina fyrir íslandsförina. Það var síðan æft stíft og lengi, m.a. leikið við lið úr 2. deild. Á fimmtudag heldur Dankersen- liðið til Moskvu og síðari Evrópu- leikurinn við Mai verður á föstu- dagskvöld, sagði Axel að lokum, en þess má geta, að í fyrri leikn- um í Minden sigraði Dankersen með fimm marka mun. Pólska meistaraliðið Slask er væntan- legt hingað til lands í kvöid og sam- kvæmt símtali, sem Janusz Czerwinski átti við Pólverja í gær, munu Siaskmenn styrkja lið sitt með þremur mönnum. Meðal þeirra verður „bezti markvörður heims“, sem ekki hefur tima til að leika með pólska landsliðinu og tveir aðrir iandsliðsmenn. Ekki er vitað um nöfn þeirra. Það er því mjög sterkt lið, sem við erum að fá hingað í heimsókn til æfinga og leikja með íslenzka lands- liðinu, sagði Sigurður Jónsson, for- maður HSÍ, þegar blaðið ræddi við hann í morgun. Við höfum ákveðið dagskrá fyrir pólska liðið og íslenzka landsliðið á meðan á heimsókninni stendur. Þar verða fímm opinberir leikir — fjórir úti álandi. Annað kvöld, fimmtudag, mun íslenzka landsliðið leika við Slask í Laugardals- höll. Leikurinn hefst kl. 8.30. Á föstudag fer Slask til Akureyrar og leikur við KA þá um kvöldið, en svo við íslenzka lands- liðið á laugardag á Akureyri. Á sunnu- dag verður leikið í Hafnarfirði og á mánudag á Akranesi og í báðum leikjunum leikur landsliðið við Slask. Við vonum að þetta mælist vel fyrir á landsbyggðinni, sagði Sigurður enn- fremur. Æfingar verða svo alla dagana með leikmönnum Slask. Nú byrja æfingarnar ihjá íslenzka landsliðinu kl. 10 á morgnana og við höfum fengið fri fyrir alla leikmenn landsliðsins fram Dundee leikur við Aberdeen — i skozku bikarkeppninni Síðasta leiknum í þriðju um- ferð skozku bikarkeppninnar í knattspyrnu tókst að ljúka í gær. Þá sigraði Dundee St. Johnstone Newcastle kaupir Newcastle keypti í gær Ralph Callaghan frá skozka liðinu Hearts -fyrir 80 þúsund sterlings- pund. Callaghan hefur leikið með Hearts í fimm ár við góðan orð- stír. Talið er öruggt að hann leiki með Newcastle gegn Middiesbro á laugardag, en tveir framverðir Newcastle eiga nú við meiðsli að stríða. Það eru þeir Tommy Craig og Tommy Cassidy. Báðir lands- iiðsmenn. Craig skozkur, Cassidy írskur. með 4-2. Laugardaginn 20. október verður f jórða umferð háð og þá leika þessi lið saman. Queen of South — Alloa Dundee — Aberdeen Motherwell — St. Mirren Hearts — Clydebank East Fife — Albion Arbroth — Hibernian Rangers — Elgin City Celtie — Ayr United Nokkrir leikir voru háðir í ensku knattspyrnunni í gær, en þó varð enn einu sinni að fresta leik hjá Orient. Liðið átti að leika við Blackpool í 2. deild, en völlur Orient í Lundúnum var ekki tal- inn í leikhæfu ástandi frekar en 'svo oft áður í vetur. Úrslit í öðrum leikjum urðu þessi: 3. deild Preston — Swindon 2-0 4. deild Halifax —Torquay 2-0 Scunthorpe — Barnsley 1-2 GÓLFTEPPI fyrir heimili—stigahús—skrifstofur AXMINSTER Grensásvegi 8 — Sími 30676 KR vann Ármann KR sigraði Armann 9-5 í Reykjavíkurmótinu í sundknatt- leik í gærkvöld. Ólafur Þ. Gunn- iaugsson skoraði sex af mörkum KR. Hafþór Guðmundsson tvö og Vilhjálmur Þorgeirsson eitt. Hjá Ægi var Guðjón Ólafsson marka- hæstur. Næsti leikur mótsins verður annan miðvikudag. Þá leika KR — Armann og þá lýkur f.vrri umferð mótsins. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRUAR 1977. 13 Iþróttir íþróttir íþróttir Iþróttir KERFIÐ ER ÞUNGTIV0FUM: 9 Enn hefur ekki verið ráðið f stöður landsliðsmannanna Okkur — fjórum skólastjórum — var tilkynnt formlega frá menntamálaráðuneytinu sl. sunnudagskvöld, að f jórir íþrótta- kennarar, sem leika með islenzka landsiiðinu í handknattieik, hefðu fengið leyfi frá störfum fram yfir B-keppnina í Austur- ríki, sagði Asgeir Guðmundsson, skólastjóri Hiíðaskóla, við blaðið í morgun — og gat þess jafn- framt, að engar ráðstafanir hefðu verið gerðar til að ráða aðra íþróttakennara í þeirra stað. Hefði því íþróttakennsia fallið niður í sumum þeirra skóla, sem umræddir landsliðsmenn starfa við. Eg hafði samband við fræðslu- máladeild menntamálaráðuneyt- isins, sagði Ásgeir ennfremur, og deildarstjóri þar og íþróttafull- trúi ríkisins tjáðu mér, að þeir hefu ekki fengið fyrrmæli um að gera tilraun til að leysa þetta vandamál. Hjá mér í Hlíðaskóla hefur orðið að fella niður alla íþróttatíma drengjanna — og í öðrum skólum, sem hlut eiga að máli, hafa leikfimitímar fallið niður, en tekizt hefur að leysa vissa hluti í kennslunni. Þetta ástand er óviðunandi, sagði Áseeir að lokum, en tók skýrt fram, að hann væri engan veginn á móti því, að mönnum væri gefið leyfi frá störfum til að geta undirbúið sig betur fyrir þýðingarmikla keppni. Hins vegar finnst skólamönnum kulda- lega að farið að gera engar ráð- stafanir til að ráða menn í þeirra stað. Þess má geta, að þeir fjórir, landsliðsmenn, sem eru íþrótta-' kennarar að atvinnu og hafa fengið leyfi frá störfum, eru Geir Hallsteinsson, Viðar Símonarson, Þórarinn Ragnarsson og Viggó Sigurðsson. Geir kennir í Hafnar- firði og þar hefur íþróttakennsla ekki fallið niður — en hinir þrír eru íþróttakennarar í Reykjavík. við Hagaskóla, Hlíðaskóla og Breiðholtsskóla. I þessum þremur skólum hefur skapazt vandræða- ástand í íþróttakennslunni — og virðist þeim í menntamálaráðu- neytinu alveg hafa yfirsézt sú hlið málsins. Okkur hér á Dagblaðinu finnst að létt ætti að vera að bæta úr því. Fá aðra íþróttakennara til að taka að sér kennsluna þessar fjórar vikur — og reyndar skrítið að yfirmenn í menntamálaráðu- neytinu skuli ekki hafa kippt málinu í liðinn án þess, að menntamálaráðherra gefi út ein- hverja skipun í málinu. Það liggur svo ljóst fyrir. Samþ.vkkt ríkisstjórnarinnar að gefa opin- berum starfsmönnum í landslið- inu leyfi frá störfum fram yfir B-keppnina. En gamla sagan virðist alltaf endurtaka sig. Kerf- ið er þungt í vöfum. Til viðbótar framanskráðu má geta þess að síðar í morgun frétti blaðið að tveir umræddra íþrótta- kennara, Geir Hallsteinsson og Viggó Sigurðsson, hefðu útvegað íþróttakennara í sinn stað við þá skóla, sem þeir kenna. -h sím. FIMM BREYTINGAR A ENSKA LANDSLIÐINU - EINN NÝLIÐI —en England og Holland leika landsleik íknattspyrnu á Wembley íkvöld Enski landsliðseinvaldurinn, Don Revie, valdi í gær enska landsiiðið í knattspyrnu, sem ieikur við Holland á Wembley í kvöld. Hann gerði fimm breytingar á liði sínu frá HM- leiknum við Ítalíu og valdi einn nýliða, Trevor Francis hjá Birmingham. Það vai kom á' óvart, því á mánudag var tilkynnt að Francis gæti ekki leikið vegna meiðsla á tá. A æfingu í gær- morgun gat Francis hins vegar leikið eins og ekkert hefði í skorizt og var því valinn. Revie sagði. Ég hef oft áður valið Francis í iandsiiðshópinn, en hann hefur ailtaf fallið út vegna meiðsia þar til nú. Francis er 22ja ára og hefur leikið með Birming- ham um langt árabil. Sýnt snilld- arleiki að undanförnu. Enska liðið verður þannig skipað: — Clemence, Liverpool, Clement, QPR, Beattie, Ipswich, Watson og Doyle, Manch. City, Brian Greenhoff. Manch. Utd.. Brooking, West Ham, Madeley. Leeds, Francis, Birmingham, Bowles, QPR og Keegan, Liver- pool. Hollenzka liðið verður þannig skipað — Schrivers, Ajax, Suurbier, Ajax, Kroll, Ajax, Rijs- bergen, Fejenoord, Hovenkamp, AZ ’67, Neeskens, Barcelona, Pet- ers, NEC, Kerkhof, PSV, Cruyff. Barcelona, Rep, Valencia og Rensenbrink, Anderlecht. Þeir Roy McFarland, Derby, og Trevor Cherry, Leeds, voru ekki valdir í enska liðið, þar sem þeir eiga við meiðsli að stríða. Hins vegar missti Mike Channon stöðu sína til Francis, Mick Mills. Ipswich, var látinn víkja fyrir Beattie og Emlyn Hughes, Liver- pool, missti einnig stöðu sína sem miðvörður. Þar sem McFarland datt úr ákvað Revie að velja báða miðverði Manch. City. Watson og Doyle. Watson leikur nú í fyrsta sinn í landsliði síðan í nóvember 1975, en hafði þá verið fasta- maður nokkuð lengi. Manch. City er það liðið í 1. deild, sem fengið hefur á sig fæst mörk — aðeins 16 í 23 leikjum — og því valdi ég miðverði liðsins, sagði Revie við blaðamenn. Mike Channon stóð sig illa í leiknum á Ítalíu — en hann er markhæstur þeira leik- manna i landsleikjum, sem leikið hafa að undanförnu í enska lands- liðinu með 17 mörk í 38 lands- leikjum. Varamenn í enska landsliðinu verða þeir Shilton, Stoke, Hugh- es, Liverpool, Todd, Derby, Pear- son, Manch. Utd. og Tueart, Manch. City. RITSTJORN: HALLUR SiMONARSON ■ |HE . > •. . , * á moféun _ Stóra bíiablaöid 77 módelin af flestum helztu tegundunum 30 litmyndir og upplýsingar Einkaviðtal við rally-kapþann RogerClark

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.