Dagblaðið - 16.02.1977, Page 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 16. FEBRUAR 1977. s
..... 1
Gæzlan að kaupa eina af fullkomnustu þyrlum heims:
Sannkallað
tryllitæki
—er álit sérf ræðinga og f ramleiðenda
Nýja þyrlan sem Landhelgis-
gæzlan hefur hug á að kaupa,
eins og fram kom í frétt í DB á
miðvikudaginn var, virðist vera
sannkallað tryllitæki af þyrlu
að vera. I World Airnews var
fyrir skömmu grein um þessa
tegund, sem nefnist Sikorsky
S-76. Þrátt fyrir að vélin er ekki
komin í framleiðslu, eru 24
rekstraraðilar þegar búnir að
tryggja sér samtals 84 vélar,
þ.á m. Gæzlan eina.
Þyrlur eru dýrar í innkaup-
um og dýrar í rekstri, þótt þar
sé að sjálfsögðu stundum mun-
ur á. Það sem ræður hvað mest
þessum góðu undirtektum við
S-76 mun fyrst og fremst vera
að Sikorsky-verksmiðjurnar
hafa einkum hannað hana fyrir
Eins og sjá má dregur þyrlan
upp hjólin á flugi til að draga
úr loftmótstöðu og spara elds-
neyti.
almennt flug en ekki herflug,
eins og flestar þyrlur. í kjölfar
þessa hefur höfuðáherzlan ver-
ið lögð á mikla nýtingu pláss
um borð, burðarþol og sem
allra lægstan rekstrar- og við-
haldskostnað.
Verksmiðjurnar fullyrða að
S-76 geti borið meiri þunga
lengri leið fyrir minni kostnað
en nokkru önnur þyrla í hennar
flokki. Unnt verður að fá vél-
arnar í ýmsum útfærslum eftir
óskum kaupenda.
Sem dæmi um getu vélarinn-
ar getur hún borið 12 farþega
auk tveggja manna áhafnar eða
tæplega 1,2 tonn með áhöfn
einni, 400 sjómílna leið á 125
hnúta meðalhraða og á þá hálfr-
ar klukkustundar varaeldsneyt-
isbirgðir eftir. Eru þessar tölur
miðaðar við 32 stiga hita á
Celcius en í veðráttu eins og
hér kæmist vélin talsvert
lengra.
Sem dæmi um frekari eigin-
leika má nefna að þyrlan getur
klifrað 150 fet upp á minútu
fullhlaðin, með aðeins annan
skrúfuþotuhreyfilinn í gangi.
Hreyflarnir gefa 700 hestöfl
hvor og léttleiki vélarinnar og
straumlínulag sparar verulega
eldsneyti. Aðalskrúfan er fjög-
urra blaða, sérstaklega byggð
þannig að lítill sem enginn titr-
ingur er í þyrlunni.
Unnt er að fá hvers kyns
björgunar- og vinnubúnað i vél-
ina jafnframt því sem hægt er
Ein failega máiuð og óvenju snyrtileg af þyrlu að vera, enda er framleiðsian m.a. hugsuð með það fyrir
augum að fara inn á einkaflugvélamarkað auðkýfinga.
að fá lúxusinnréttiegu. Þá er
hægt að fá. hana búna þotu-
hreyflum til að auka hraða,
fleiri eldsneytisgeymum til að
auka fluglengd o.s.frv. Auk
þess sem Sikorsky-
verksmiðjurnar bandarísku eru
einhverjar oeztu þyrluverk-
smiðjur í heimi er þetta talin
einhver fullkomnasta smíði
verksmiðjanna til þessa, hvað
ótal tækniatriði og hagkvæmni
snertir.
Það kom fram f viðtali við
Pétur Sigurðsson forstjóra
Landhelgisgæzlunnar í DB
fyrir skömmu, að áætlað kaup-
verð þyrlunnar hingað væri
eitthvað um 250 milljónir
króna. Er hún væntanleg eftir
„Þýðir ekki
að deila við
dómarann”
— sagði bæjarfógeti
sem vildi fá
verðlaunaíbúðarhiísið
undir lögreglustöð
„Bæjarfógetinn, Jón Eysteins-
son skrifaði bæjarstjórn bréf, þar
sem hann sagðist ekki hafa fund-
ið annað betra hús undir lögreglu-
stöð en húsið að Hringbraut 57,“
sagði Karl Steinar Guðnason bæj-
arstjórnarmaður í Keflávík. Hann
bætti við að eftir að málið hafði
verið reifað í bæjarstjórn hefðu
allir verið sammála því að þetta
kæmi ekki til greina. Ölafur
Björnsson útgerðarmaður og bæj-
arstjórnarmaður lét þau orð falla
að það væri illt að missa hús sem
svo mikillar fyrirgreiðslu hefói
notið. sem leiguíbúðahús. til .þess
að yfirvöld gætu nú rifið innan úr
því innréttingarhar og breytt því í
lögreglustöð.
Þá kom það og upp á fundi
Landspítalanum
gefið málverk
Nyju málverki hefur nú
verið komið fyrir á dagstofu
sængurkvennagangs
Kvennadeildar Landspítal-
ans. Er þetta málverk eftir
Sigurð Kristjánsson, en frú
Hólmfríður Löwe afhenti
spítalanum það að gjöf hinn
9. þ.m. Málverkið er gefið til
minningar um móður Hólm-
fríðar, Pálínu Sæmundsdótt-
ur ljósmóður, sem hefði orð-
ið 90 ára þennan dag.
Þetta hús fékk verólaun
fyrir að vera fallegasta íbúð-
arhús í Kefiavík í fyrra. Jón
Eysteinsson bæjarfógeti
vildi fá það sem lögreglu-
stöð.
DB-mynd Emm
bæjarstjórnar að hús þetta væri
inni í miðju íbúðarhverfi og var
málinu vísað til byggingarnefnd-
ar. Sagði Karl að þar hefði málið
fengið sömu afgreiðslu og hjá
bæjarstjórn.
Karl sagði að lóð undir nýja
lögreglustöð væri fyrir hendi rétt
við slökkvistöðina í bænum, það
væri samt vafasamt að lögreglan
fengi að byggja vegna fjárskorts.
„Farið var fram á að lögreglan
fengi Hringbraut 57 i 3 ár, en það
er mitt mat að það yrðu nokkuð
löng 3 ár,“ sagði Karl Steinar.
„Það þýðir ekki að deila við
dómarann,“ sagöi Jón Eysteins-
son bæjarfógeti. „Við erum hætt-
ir við.“ Hann bætti við að þeir
myndu auðvitað halda áfram að
leita aó húsnæði, því að lögreglu-
stöðin er orðin afar ófullnægjandi
og fangaklefar nánast ónothæfir.
Hann sagði að þeir hefðu verið
að reyna það undanfarin 3-4 ár að
fá fjárveitingu til þess að byggja
nýja lögreglustöð, en án árangurs.
Jón sagðist auðvitað hafa orðið
fyrir miklum vonbrigðum með
þessi málalok. Þetta væri óþarfa
viðkvæmni í sambandi við húsið.
Sáralitlu þyrfti að breyta í þvi,
þótt lögreglan flytti þar inn.
Margar lögreglustöðvar á landinu
væru svipað staðsettar, húsið
væri við aðalumferðargötu bæjar-
ins og verzlun væri þar beint á
móti.
r GOLFTEPPI ^
f fyrir y
heimili — stigahús — skrifstof ur
AXMINSTER
Grensásvegi 8 — Sími 30676
MORGUNSTUND GEFUR GULL í MUND
MEÐ JKG - H VÍ LDARKOD DA
3
ÚTSÖLUSTAÐIR;
HJÁLPARTÆKJBANKINN
SKIPHOLTI 21
Fatabúdin, Skólavördustíg
EVI