Dagblaðið - 16.02.1977, Síða 15
DAGBLADTf). MIDVTKUDAOITR Ifi FKRRÚAR 1977.
§
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
ÞorDergur skorar eitt af sex mörkum sfnum i leiknum.
Hlutverkum snúið við. Klempei horfir á Viggó skora.
Stórleikur ungu piltanna
tryggði sigur gegn Slask
— Gunnar Einarsson varði betur en „bezti markvörður heims” — Þorbergur
Aðalsteinsson lék eins og herforingi—st jórnaði
spilinu og skoraði mest og Viggó Sigurðsson sá um Klempel
Frábær frammistaða þriggja af
yngstu strákunum í íslenzka
landsliðinu í handknattleiknum
— pilta, sem lítil tækifæri hafa
fengið í landsieikjunum undan-
farið, Gunnars Einarssonar,
Haukum, Þorbergs Aðalsteins-
sonar og Viggós Sigurðssonar,
báðir úr Vikingi, var öðru fremur
ástæðan tii þess að pólska
meistaraiiðið Siask fór ekki
ósigrað heim. i gærkvöid sigraði
íslenzka landsiiðið Slask með 19-
17 i fimmta og síðasta æfingaleik
liðanna. Leikið var í Laugardals-
höll.
Mikil forföll voru í íslenzka
liðinu, Geir Hallsteinsson var á
varamannabekkjum, en lék ekki
— og þeir Jón Karlsson, fyrirliði,
Viðar Símonarson og Ölafur
Benediktsson, markvörður, léku
ekki vegna smámeiðsla. Það kom
því í hlut yngri leikmannanna að
halda uppi merki Islands, og það
gerðu þeir svo sannarlega. Nutu
auðvitað til þess aðstoðar leik-
reyndra kappa, einkum þó Björg-
vins Björgvinssonar, sem var
frábær að venju.
Þetta var ekki neinn stórleikur
— og þreyta talsvert einkennandi
hjá ýmsum. Það kom einnig fram
hjá pólsku leikmönnunum. Fimm
leikir á örfáum dögum — auk
æfinganna — settu einnig mörk
sín á leik þeirra. En spenna var
allmikil í síðari hálfleiknum og
örfáir áhorfendur þá vei með á
nótunum.
En það gleðilega í ieiknum var
frammistaða piltanna ungu sem
áður er minnzt á. Þar var enga
þreytu að sjá — og þeir sönnuðu
vel að þeir geta orðið áhrifamiklir
í leik íslenzka landsliðsins, þegar
tækifæri gefst
Markvarzla Gunnars Einarsson-
ar var hreint frábær allan
leikinn, sjaldan hefur sézt betri
markvarzla á fjölum Laugardals-
haliarinnar. Hann skyggði á
Czymczak í pólska markinu —
markmann sem talinn er sá bezti í
heimi. Hreint undravert var hve
Gunnar varði oft frá
Pólverjunum fríum á línu eða
eftir hraðupphlaup. Þá sló Þor-
bergur í gegn í leik með lands-
liðinu en þessi kornungi Víkingur
er einnig í unglingaiandsliði
Islands. I fjarveru Geirs stjórnaði
hann spili íslenzka liðsins með
miklum ágætum, það svo að um
tíma höfðu pólsku leikmennirnir
hann í mjög strangri gæzlu.
Nánast tekinn úr umferð. Og
hann skoraði einnig flest mörk
íslenzka liðsins — sex — og tiest
þeirra hjá markverðinum fræga.
Auk þess varði Czymczak
stundum snilldarlega frá honum.
Viggó Sigurðsson fékk það
hlutverk, að hafa leikmanninn
fræga, Klempel, í gæzlu. Það tókst
Viggó mjög vel, Klempel skoraði
aðeins tvö mörk meðan Viggó
gætti hans — en þegar Viggó fór
út af i smátíma gerði Klempel sér
lítið fyrir og skoraði þrjú mörk,
eitt þeirra úr vítum. Auk þess var
Viggó mjög virkur í sóknarleikn-
um — en var þó heldur óheppinn
með markskot. Reyndi fjórum
sinnum. Skoraði eitt mark en
þrisvar small knötturinn í
stöngum pólska marksins Þar
munaði aðeins millimetrum. Þá
átti Viggó nær allar þær línu-
sendingar á Björgvin sem gáfu
mörk eða vítaköst. Hlutur Gunn-
ars, Þorbergs og Viggós yijaði oft
í Laugardalshöllinni í gær.
Það var mikið jafnræði með
liðunum framan af — og mikið
um villur. Allar jafnteflistölur
upp í 6-6 og íslenzka liðið yfirieitt
á undan að skora. En þá tóku
Slaskarar kipp og komust tvö
mörk yfir, 8-6, síðan 9-7 og 10-8,
en staðan í leikhléi var 10-9 fyrir
Slask.
FRAM MEISTARI
Fram-stúlkurnar komu
ákveðnar og sterkar til leiks gegn
Val í úrsiitaleik Reykjavíkur-
mótsins í handknattleik i Laugar-
dalshöll í gærkvöld. Það var
þriðji leikur í aukaúrslitum
mótsins og Fram sigraði Val 11-8.
Þegar keppninni lauk í vetur
voru þrjú lið efst, Fram, Valur og
KR — en í aukaúrslitum sigraði
Fram bæði KR og Val og varð því
Revkjavíkurmeistari kvenna
1976.
Fram-liðið byrjaði leikinn mjög
vel, skoraði þrjú fyrstu mörkin,
og það var þessi byrjun sem öðru
fremur tryggði Framstúlkunum
sigur. Guðríður Guðjónsdóttir —
dóttir Guðjóns þjálfara Fram,
Jónssonar og landsliðsmanns hér
áður fyrr og Sigríðar Sigurðar-
dóttur, fyrirliða íslenzka liðsins,
sem sigraði á NM hér á árum áður
og var kjörinn „íþróttamaður
ársins" — skoraði fyrsta mark
Fram og einnig það 3., en
Jóhanna Halldórsdóttir annað.
í hálfleik var staðan 4-3 fyrir
Fram — og tvívegis misnotaði
Fram vítaköst í fyrri hálfleikn-
um. í siðari hálfleiknum tókst
Valsstúlkunum að jafna í 5-5 og
einnig var jafnt 6-6. Þá náði Fram
góðum leikkafla á ný, skoraði
fjögur mörk í röð án þess aó
Valur svaraði fyrir sig, 10-6, og
úrslit voru ráðin. Lokatölur 11-8.
Flest mörk Fram skoraði
Oddný Sigsteinsdóttir, 5 — eitt
víti — Guðríður og Jóhanna
skoruðu tvö hvor, Kristín Orra-
dóttir og Bergþóra Asmunds-
dóttir eitt hvor. Fyrir Val skoraði
Ragnheiður Blöndal mest, 3 —
eitt víti — Harpa Guðmundsdóttir
og Björg Jónsdóttir 2 hvor og
Halldóra Magnúsdóttir eitt —
víti.
Klempel skoraði fyrsta markið í
síðari hálfleik, 11-9, en síðan
lokaði Gunnar algjörlega
markinu hjá sér í langan tíma;
sama hvað Pólverjarnir reyndu
næstu 12 mínúturnar. Gunnar
varði allt — og auk þess misnotaði
Pólverji víti. Hinum megin
skoraði Þorbergur þrívegis,
Björgvin og Viggó sitt markið
hvor og staðan breyttist úr 11-9
fyrir Slaks í 14-11 fyrir Island.
Þetta var góður kafli — og síðari
hálfleikurinn var miklu betur
leikinn. Pólsku leikmennirnir
voru engan veginn hrifnir hvern-
ig til gekk — og reyndu allt þeir
máttu til að jafna leikinn. Það
tókst þeim líka. Jöfnuðu I 15-15
en Þorbjörn, víti, og Þorbergur
með tveimur mörkum náðu aftur
þriggja marka forustu. Þá voru 6
mín. til leiksloka og þegar þrjár
mín. voru eftir var eins marks
munur, 18-17. En tveimur mín.
fyrir leikslok skoraði Þorbjörn
Guðmundsson 19. mark tslands,
sem jafnframt var siðasta markið
í æfingaleikjunum við Slask. I
morgun héldu Pólverjarnir til
Póllands eftir vel heppnaða för
hingað. Það var mikið hægt af
þessum frábæru leikmönnum að
læra — og liðið með iánsmönnun-
um þremur ekki siðra en pólska
landsliðið, en samspilaðra.
Mörk tslands f leiknum
skoruðu Þorbergur 6, Þorbjörn 5
— tvö víti — Björgvin 3, Agúst
Svavarsson 2, Ólafur Einarsson 2
— bæði víti — og Viggó
Sigurðsson 1. Auk þessara leik-
manna iéku Þórarinn Ragnarsson
og Bjarni Guðmundsson. Hjá
Slask skoruðu þeir Klempel og
Sokotowski fimm mörk hvor, og
eitt marka Klempels var úr víti.
Maczuiski skoraði fjögur.
Dómarar voru Björn Kristjánsson
og Óli Olsen.
•hsfm.
Helga Magnúsdóttir og Jóhanna Haiidórsdóttir með verðlaunagrip
Reykjavíkurmótsins á höfði Guðjóns þjáifara. DB-mynd Bjarnieifur.