Dagblaðið - 23.02.1977, Side 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1977.
7
UGANDA:
FORDÆMINGAR BERAST ALLS STAÐAR AÐ:
CARR VILL AÐ LÍKIN
ÞRJÚ VERDISKODUÐ
Utanrikisráóherra Uganda,
Oris Juma, sagði á fundi með
fulltrúum Einingarsamtaka
Afríkuríkja, að land hans væri
fórnarlamb „yfirgangs heims-
valdastefnu," sagði talsmaður
samtakanna i gær.
Samkvæmt því, sem aðalrit-
ari samtakanna sagði í gær.
mun Juma hafa haldið því fram
á fundi samtakanna að nokkur
lönd, sem hann nefndi ekki sér-
staklega, leyfðu andstæðingum
Úganda að ferðast um Iand-
svæði sín með vopn.
Þá réðist ráðherrann gegn
vestrænum fjölmiðlum fyrir
villandi fréttaflutning af at-
burðunum í Úganda í síðustu
viku, er biskupinn og tveir ráð-
hcrrar létu lífiö.
Útvarpið í Úganda hefur í
fyrsta sinn viðurkennt að ein-
hver stuðningur hafi verið við
uppreisnartilraun sem þar
mun hafa verið gerð innan
hersins. Þá sagði útvarpið í
fyrsta sinn í gærkvöldi frá því
að nokkrir hefðu látið lífið í
sambandi við uppreisnartil-
rauniná en þá lét erkibiskup
anglíu-kirkjunnar, Janani
Luwum, lífið.
Alþjóðlegar fordæmingar á
stjórnvöldum í Úganda héldu
áfram að berast í gær, þar á
meðal frá Bretlandi og Banda-
ríkjunum þar sem þess var
krafizt að fylgzt yrði með, af
alþjóðasamtökum. að dauði
erkibiskupsins og tveggja ráð-
herra í stjórn Úganda yrði
rannsakaður nánar.
Canon Carr, aðalritari
kirkjusamtaka Afríku. krafð-
ist þess að alþjóðasamtökum af
einhverri gerð yrði leyft að
skoðá lík hinna látnu. Carr,
sem er frjálslyndur í skoðun-
urn. varð fyrstur til þess að
saka Idi Amin um að hafa látið
myrða mennina.
Sagði í fréttum útvarpsins í
Kampala í gær að um tíma
hefðu „uppreisnaröfl. í nánu
sambandi við útlaga, zíonista
og heimsvaldasinna haft yfir-
tökin í her landsins en þeim
hefði ekki tekizt að skapa
ók.vrrð í landinu."
Þetta er mynd, sem yfirvöld i Úganda hafa sent frá sér og á að sýna
bifreið þá er Luwum biskup og ráðherrarnir tveir áttu að hafa reynt
að flýja í.
Velfórámeð
Badran og PLO
Forsætisráðherra Jordaníu,
Modar Badran, hitti sendinefnd
frá frelsissamtökum Palestinu-
manna, PLO að máli í þrjár
klukkustundir í gærkvöldi og
voru viðræðurnar sagðar hinar
vinsamlegustu.Er almennt talið
að ef ur rætist seu þessar vió-
ræður þær þýðingarmestu urn
lausn vandamálanna fyrir botni
Miðjarðarhafs sem fram til
þessa hafa verið haldnar.
Viðræðurnar áttu að halda
áfram í dag.
íranskir stúdentar mótmæla
íFrelsisstyttunni íNew York
„Niður með keisarann" og „Gefið þeim 18 frelsi“, stendur á
borðum þessum er hengdir voru út um útsýnisglugga á Frelsis-
styttuna í New York, þar sem hópur íranskra stúdenta hlekkjaði sig
fasta við handrið inni í styttunni.
Vildi fólkið með þessu mótmæla stjórnmálaástandinu í Iran og
„umfangsmiklu valdi leynilögreglunnar þar í landi“, eins og sagði í
tilkynningu stúdentanna. „Hinir 18“ eru, að því er talið er, hópur
stjórnmálalegra fanga, sem nú situr í fangelsi í íran.
Styttunni var lokað fyrir umferð ferðamanna tveimur klukku-
stundum fyrr en vanalegt er vegna þessa atburðar.
ísrael:
Verkamannafíokkurinn
ve/ur á milli YHzhak
Rabins ogSimon Peres
Stjórnarflokkurinn í ísrael,
Verkamannaflokkurinn. mun í
dag taka ákvörðun um það hvor
muni leiða flokkinn fram til
kosninga þar í landi 17 maí n.k.
— Yitzhak Rabin, forsætisráð
herra, eða Simon Peres, varnar-
málaráðherra.
Stuðningsmenn hvors fram-
bjóðanda um sig héldu því
fram, á þingi flokksins í gær-
kvöldi, að hvor um sig nyti
stuðnings meirihluta hinna
3000 þingfulltrúa sem greiða
munu atkvæði sitt í leynilegri
atkvæðagreiöslu.
Niðurstaða atkvæða-
greiðslunnar verður varla kom-
in í ljós fyrr en seint í kvöld,
eða í fyrramálið.
Almennt er talið að sá sem
flokkurinn velur verði forsætis-
ráðherra í ísrael næsta kjör-
tímabil.
Keppinautarnir á þingi: Peres varnarmálaráðherra og Rahin forsætisráðherra.
Ekki eins Ijúft og hann lætur?:
Carter bannar aögang að leyndarskjölum
Carter forseti Bandarikjanna
virðist ætla að feta í fótspor
f.vrirrennara sinna í því tilliti
að vernda le.vndarmál því hann
hefur nú fyrirskipað að einung-
is fimm menn fái fullan aðgang
að leyndarskjölum. Ekki var til-
greint hverjir þessir fimm
menn verða en fyrirskipun
þessi kemur í kjölfar þeirrá
uppljóstrana aó CIA hefði
greitt milljónir dollara i mútur'
til ýinissa þjóöarleiðtoga um
heim allan.