Dagblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR 1977. Smith forsætisráðherra Ródesiustjórnar reynir að halda völdum með því að etja safnaðarmeðiimum saman. í prentaðri yfirlýsingu, sem biskupinn sendi frá sér í síðustu viku, sagði hann, að stefna ríkisstjórnarinnar væri í engu frábrugðin stefnu nasista í Þýzkalandi hér um árið, aðeins aðferðirnar væru frábrugðnar. Vilja að pófinn skerist í leikinn Ummæli þessi vöktu mikla reiði hvítra kaþólikka og einn áhrifamikill klúbbur þeirra, Cihcester-klúbburinn, sendi skeyti til Páfagarðs, þar sem þess var krafizt, að páfinn kallaði biskupinn heim. Að sögn fréttaskýrenda virðist eins og stefna biskups- ins eigi sér formæléndur fáa í fjölmiðlum og meðal venju- legra hvítra Ródesiumanna. Hvað hvítum mönnum í Ródesíu viðvíkur eru þeir í stríði gegn hverjum þeim sem veitir „óvininum" aðstoð og hver sá, sem það gerir, á ekki meðaumkun þeirra í vændum. Nýjasta dæmið um óvildar- hug venjulegra kirkjugesta gagnvart trúarleiðtogum sín- um kom i ljós við minningar- hátíð um hvítu trúboðana sjö, sem myrtir voru í árás á trúboðsstöð þeirra nú fyrir skömmu. Við messuna hóf svartur prestur, Isadore Chikore, að ráðast á ríkisstjórnina í ræðu, þar sem hann sagði m.a., að ríkisstjórnin „neitaði þeim um rétt“, sem væru í meirihluta í landinu. Hópur hvítra manna yfirgaf kirkjuna um leið. Er þeir géngu út mátti heyra einn þeirra segja: „Af hverju handtaka þeir ekki þennan svarta hóru- unga??“ Skœruliðar myrtu Ríkisstjórnin i Ródesíu og eini eftirlifandi trúboðinn, sem lenti í árásinni, hafa sagt, að skæruliðar hafi myrt trúboðana. Skæruliðaleiðtoginn Robert Mugaba, sem stjórnar þjóð- frelsishreyfingu Zimbabwe í Mósambique og er einnig kaþólskur, sagði eftir árásina, að Selous, sérstök deild innan Ródesiuhers, hefði framið ódæðið. Lamont biskup sendi frá sér yfirlýsijigu, sem var berorð eins og venjulega. Sagði hann, að hann vissl ekki hverjir hefðu framið verknaðinn, en hann sagði að ríkisstjórnin bærióbeinaábyrgð £ öllu saman, þar eð hún neitaði svörtum mönnum um eðlileg mann- réttindi. Sjólfhelda Um leið og átökin i landinu hafa aukizt undanfarin ár. hefur kirkjan lent í sjálfheldu á milli þjóðernistilfinningar svartra og hvítra manna. Skæruliðar hafa margsinnis leitað til trúboðsstöðvanna um mat, klæði og sjúkrahjálp, sér- staklega í afskekktari héruðum landsins. Er Lamont biskup neitaði að gefa upplýsingar um slikt, var honum stefnt fyrir rétt. Annar kaþólskur prestur, séra Paul Egli, hefur nýverið áfrýjað fimm ára fangelsis- dómi, sem hann hlaut fyrir að neita að gefa upplýsingar um ferðir skæruliða. Fjöldi trúboðsstöðva St. Pauls-trúboðsstöðin, um 65 km frá Salisbury, er einkennandi fyrir 133 meiri háttar miðstöðvar kirkjunnar, sem eru dreifðar um allt landið, mestur hlutinn þó í ættbálka- héruðum svartra manna. Eins og aðrar trúboðsstöðvar lætur St. Pauls-trúboðsstöðin lítið yfir sér. Hún er tilkomu- lítil, ógirt og óvarin og nemendur og kennarar búa við þröngan kost. í flestum tilfellum verða stöðvar þessar miðstöðvar menningar- og heilsugæzlu i héruðunum og gegna því þýðingarmiklu hlutverki. Kaþólski söfnuðurinn er nú allt að 550 þúsund manns á móti 150 þúsund í anglíakirkju Afríkana. Dunstan Meyerscogh, eini eftiriifandi trúboðinn i trúboðsstöðinnl eftir ðrásina, reynir að hugga sóknarbörn sín. boðstólum leikir sem ekki sjást að jafnaði annarstaðar og í senn við hæfi leikendanna og á valdi þeirra að fara með þá að eigin hætti. Af skólaleikjum í vetur hef ég ekki séð nema Drekann sem Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð er að sýna um þess- ar mundir. Evgeni Schwarts er rússneskur höfundur, Drekinn, að mér skilst saminn í stríðslok- in, felur í sér ádeilu á einræði og ofbeldi sem þá var hentugt að beina eða þykjast beina gegn þjóðverjum. Ekki dugði það Schwarts þó betur en 'svo að verk hans voru víst i meira eða minna banni mestallan stalíns- tímann. Aður hefur Drekinn verið fluttur i útvarpið. Drekinn er að ýmsu leyti hag- anlegur skólaleikur, efnið sótt til ævintýra, mannlýsingar ein- faldir persónugervingar, at- burðarásin ljós og skýr. Og sýn- ingin var ánægjuleg: skólinn á augljóslega á að skipa ýmsu hæfileikafólki í leiklist og myndlist og tónlist, góðum leik- sal sem vel nýttist í sýningunni og sýnilega hafði þátttakendum notast vel leiðbeining Þórunn- ar Sigurðardóttur. Af leikend- um fannst mér kveða mest að Karli Ágústi Olfssyni: drekan- um sjálfum, sem ég gat ekki betur séð en hefði eiginlega leiklistargáfu til að bera og Jakob S. Jónssyni sem sýndi ansi skopleg tilþrif í gervi hins sefasjúka borgarstjóra. Og líka má nefna Björn Guðbrand Jónsson: Lanselot drekabana, Eirik' Guðjónsson: hljóðfærasmiðinn og Hrafnhildi Sveinsdóttur: hattagerðarkonu. Það er ógrynnis starf sem nemendur inna af höndum i sýningu sem þessari og áreiðan- lega „jákvæðari vinna“ en margt annað sem við er borið i skólum. Sjálfsagt tengist hún þeim visi að leiklistarkennslu sem upp er komin isumumskól- um og sanngjarnt virðist að hún sé á einhvern hátt metin til skólastarfs. Hitt er aftur annað mál hvaða erindi skólaleikir eiga eða geta átt við almenna áhorfendur, óvandabundna skólunum. Er ekki næga áhorf- endur að finna meðal skóla- fólksins sjálfs, aðstandenda nemenda og skólanna og jafn- aldra þeirra í öðrum skólum og úti í bæ? En eigi að vera leik- sýning þarf að sönnu áhorfend- ur. það var sem sé gaman að koma í Hamrahlíð í þetta sinn. Drekinn er móralskur leikur, með „jákvæðum boðskap" sem svo er nefndur. Drekinn er igildi hins eilífa einræðisvalds, innra með mönnum engu síður en hið ylra og vaxa á hann þrjú ný höfuð fyrir hvert sem höggv- ið er af. Þá á nú aumingja Lanselot bágt. Hvað verður um hann? Drekinn endar ,,vel“ að hætti ævintýra: Lanselot stend- ur uppi sigurvegari og brúð- gumi í leikslokin og harðstjórn- arvaldinu hnekkt. Þvi miður eru í leiknum sjálfum engin rök merkjanleg fyrir öðru en með valdatöku hans sé enn einn harðst.iórinn kominntil, sá þriðji og versti af þeim öllum. En út í þá sálma var svo sem ekki farið í Hamrahlið. ÓLAFUR JÓNSSON Bók menntir kannski hafa meiri vandfýsni til að bera á efni og efnismeð- ferð. Þá má sem sé láta sér nægja hina einföldu, glaðlegu og ein- att' broslegu atburðarás sög- unnar um kerlinguna og strák- inn og kynni þeirra, hænurnar í skúrnum, hálfkarað húsið og heilsulausan karlinn og krakk- ana þeirra kerlingar, kunn- ingja hennar á vinnustað og ferðir í bæinn. En ekki þarf sérlega athugulan lesanda til að sjá að miklu meira efni felst undir niðri eða á milli hinna hversdagslegu atburða og fólks í sögunni. Kannski bæði kerl- ingín og strákurinn séu i ver- unni svo sem aukapersónur í frásögninni? En það er hin orð- vara, rauntrúa frásagnaraðferð sem gefur þessari „sögu á bak við söguna" líf í augum les- anda. gæðir frásögnina nýrri efnislegri vídd. Smámsaman kynnist sögu- kona Markúsi litla nánar: þá teiknast um leið upp alveg ljós- lifandi barnslýsing í frásögn- inni. Markús er þá móðurlaus, alinn upp hjá ömmu sinni sem komin er að fótum fram, horf- inn þaðan í skjól frænku sinn- ar, en þaðan heimtir móðir hans hann til sín að sögulokum. Fer þá ekki allt vel? Er ekki Markús litli best kominn með mömmu sinni? Það er vonandi. En það veit það enginn. Honum hafði vel gefist það traust sem hann fann í gamalli ömmu og einmana frænku. En hver verða afdrif hans eftir að því sleppir? Enginn veit. Sjálf lýsir sagan að vísu miklu trausti á mátt lífsins sjálfs, lífsmáttinn eins og hann birtist í fari Markúsar litla sjálfs og erfiðiskvenna af al- þýðustétt sem sagan lýsir beint og óbeint, Stínu i vinnunni og gömlu konunnar í kjallaranum, Rikku frænku og ömmu gömlu, ungra stúlkna í strætó og á vinnustað, og ekki síst sögu- konu sjálfrar, í og af frásögn hennar. En um mömmu Mark- úsar og framtíð sjálfs hans seg- ir hún ekki par. Enda er Markús ekki bara barn í sögu, þótt hann sé þar lifandi kominn, og endanleg örlög hans skipta kannski ekki mestu máli. Líka er saga Mark- úsar dæmi upp á miklu víðtæk- ara vandamál sem saga eins barns aldrei fær lýst til hlítar, hvernig sem hún fer: allra þeirra óskilgetnu barna, barna getinna af börnum, sem alin eru á vergang þótt þau aldrei svelti né skorti þá aðhlynning sem barnavernd og skóli láta í té. Hvað verður um öll þessi börn? Það kann að vera tímabært, og þó fyrr hefði ver- ið að leiða hugann að því efni eftir fréttir af öllum vitfirrtum sakamálum fólks á unglings- aldri árið sem leið. En þannig séð er Kerlingarslóðir Líneyjar Jóhannesdóttur sannarlega tímabær saga, og hefur meir að segja en mörg ærustufull „ádeilan", þótt ekki hafi mér vitanlega verið mikið orð á sög- unni gert á við annað á hinum glaumsama metsölumarkaði jólanna. Að því efni beinist hvert haust mikil eftirtekt í blöðum og útvarpi, hvaða bækur seljist nú best, þótt „metsalan" sé að mestu heimatilbúin og ákveðin fyrirfram af forsjálum útgef- anda sem vel þekkir smekk les- enda sinna og mátt auglýsinga. Ekki veit ég hvaða bækur seld- ust best í haust, en varla hafa þær allar veriðmikils verðar. Til þess á meðal annars að vega á móti þessu markaðs- gengi bókmennta var fyrir nokkrum árum reynt á vegum dagblaðanna að tilnefna árlega „bestu bók“ hvers liðins árs og veita þeim nokkra viðurkenn- ingu. Það féll niður þegar Morgunblaðið taldi það ekki Iengur samkvæmt hagsmunum sínum að eiga hlut að slíkri verðlaunaveitingu. En hver skyldi hafa verið ,,besta“ bókin í fyrra. Það veit auðvitað eng- inn. Og ekki veit ég hvernig Kerlingarslóðum hefði farnast í atkvæðagreiðslu gagnrýnenda um bókmenntaverðlaun blað- anna. En ætli það hafi samt margar miklu betri bækur komið út í fyrra? Ekki held ég það.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.