Dagblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 23
ÐAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRUAR 1977. 23 c Utvarp Sjónvarp D Sjónvarp íkvöld kl. 21.50: Lokaþátturinn um Maju á Stormey Lokaþáttur myndarinnar um Maju á Stormey er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl. 21.50. Þátturinn nefnist Leiðin frá Stormey. Við höfum fylgzt með Maju og fjölskyldu hennar undan- farnar vikur og þeim ótrúlegu raunum sem hún hefur len't í. Myndin gerist á einni af Alands- eyjum og kemur alltaf greinilega í ljós hve innilega trúað fólkið er. Það tekur mót- lætinu eins og hverju öðru sem Skaparinn leggur á það. í síðasta þætti sagði frá því er Maja og fjölskylda hennar fluttist aftur út í Stormey vorið eftir að húsið þeirra brann. Janni var fljótur að reisa nýtt hús. Ekki var þátturinn alveg án rauna, því kýrin Huppa, sem fylgt hafði Maju allan hennar búskap, fótbrotnaði og varð Janni að lóga henni. Álendingar voru fiskimenn og í lok síðasta þáttar sagði frá því, er verið var að kenna þeim nýjar veiðiaðferðir, sem kröfðust þess að fiskimennirnir urðu að sækja iengra út á haf en áður. Þetta gaf meiri afla en ekki var þetta hættulaus veiði og vinur Janna kemur ekki aftur úr einni veiðiferðinni. Þessi finnski framhalds- myndaflokkur er ein af þeim fáu myndum, sem sendar eru út í lit og er myndin einstaklega falleg. Allir leikararnir sem koma fram eru áhugaleikarar, en myndin er byggð á sögu eftir álenzku skáldkonuna Anni Blömqvist. Þýðandi er Vilborg Sigurðar- dóttir. nA.Bj. Útvarpið íkvöld kl. 19.35: Ný viðhorf í efnahagsmálum —breyttar aðstæður í líf keðjunni við íslandsstrendur FÍSKAFL! VIÐ Í5LAND 15 Aj-Li: Chevrolet Blazer 72, grár, sanseraður, 8 cyl. sjálfsk. Göð klæðning. Mjög fallegur bíll. Verðkr. 1950þús. Skipti á ódýrari bíl. Bílamarkaðurinn Grettisgötu 12-18, sími 25252. H tt 76 So 90 MN 4> 50 66 10 $0 $0 >0 lo 90 iO SO 60 Tto 9» *» Itoo 1900 1700 Til leigu í miðbænum 150fermhæð (salur og 2 herb.). Tilvalið fyrir teiknistofur, skrifstofur o.fl. Uppl. í síma 25252 og 20359 á kvöldin. Fiskafli við ísland 1646-1900 samkvæmt annálum. Þetta er linurit sem Kristján Friðriksson hefur gert og vísar til í erindi sínu. teiknimyndaflokkur. Þýðandi og þulur Ragna Ragnars. 18.15 Gamla húaið. Norskt ævintýri um húsin við Jörgen Moesgötu, en hún. heitir eftir norska skáldinu og fræði- manninum Jörgen Moe, (1813-1882), sem kunnur var fyrir skráningu þjóð- laga og ævintýra ásamt Peter As- björnsen. Þýðandi og þulur Hallveig Thorlacius. (Nordvision — Norska sjónvarpið). 18.40 Miklar uppfinningar. Sænskur fræðslumyndaflokkur í 13 þáttum um ýmsar þýðingarmestu uppgötvanir mannkynsins á sviði tækni og vísinda. 2. þáttur. Hjólið. Þýðandi og þulur Gylfi Pálsson. Hle. 20.00 Fróttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Hringekja lífsins. Síðari hluti bandarískrar teiknimyndar, sem byggð er á kenningum sálfræðingsins Eriks H. Eriksons um þroskaferil mannsins. Þýðandi Heba Júliusdóttir. 21.05 Vaka. Þáttur um bókmenntir og listir á líðandi stund. Umsjónarmaður Magdalena Schram. Stjórn upptöku Andrés Indriðason. 21.50 Maja ó Stormey. Finnskur fram- haldsmyndaflokkur. Sögulok. Leiðin fró Stormey. Efni fimmta þáttar: Veturinn 1859-60 er ákaflega harður, og úlfarnir leita til byggða. Maja og Janni geta ekki flust að nýju út í Stormey fyrr en í maí. Nú hendir það óhapp. að kýrin .góða fótbrotnar, og verður að lóga henni. Um sumarið lærir Janni reknetaveiðar sém geta gefið mikið af sér. En fiskimennirnir verða að sækja lengra út á haf en áður. og það er ekki hættulaust i opn- um bátum. Þýðandi Vilborg Sigurðar- dóttir (Nordvison — Finnska sjón- varpið). 23.10 Dagskrárlok. „Þetta verða 3 erindi sem ég flyt um ný viðhorf í efnahags- málum. Það fyrsta, sem verður f kvöld, heitir Breyttar aðstæður f lífkeðjunni við Island,“ sagði Kristján Friðriksson iðnrekandi. í fyrsta lagi minnist Kristján á stækkun landhelginnar en aðal- efnið er að sýna fram á, hve geysileg breyting hefur orðið f sambandi við selamergð sem kom upp að Norður- og Austurlandi á öldinni sem leið. Þetta var vöðu- selur og kom hingað til þess að' fita sig. Hann gjöreyddi stundum öllum fiski við ísland. Nú hefur þessi selur verið drepinn. „Eg' gizka á að ekki sé eftir af honum, nema 3-6% af því sem áður var,“; sagði Kristján. Þá ræðir hann einnig um hversu lffsskilyrði loðnu og þorsks hafa br’eytzt mikið og stendur það sennilega mikið í sambandi við hvali. Þeim hefur fækkað afar mikið, þeir lifðu á sömu átu og loðna og síld. „Þetta er nú eiginlega undirbúningur undir aðalerindi mitt, sem ég flyt 9. marz, en það nefnist 60 milljarða tekjuaukning f þjóðar- búið,“ sagði Kristján. -EVI. Maharishi Mahesh Yogi KERFIÐ INNHVERF ÍHUGUN TRANSCENDENTAL MEDITATION PROGRAM Almennur kynningarfyrirlestur verður haldinn í dag, 23. febrúar, kl. 20.30 að Hverfisgötu 18 (beint á móti Þjóðleik- húsinu) Öllum heimill aðgangur tslenzka íhugunarfélagið T íBIAÐIÐ Umboðsmann vantará Blönduós Upplýsingar hjá Sœvari Snorrasyni, Hlíðurbraut 1 Blönduósi, sími 95-4122 og afgreiðslunni í Reykjavík, sími 22078. Suðurnesjamenn Nýkomið mikið úrval af: Járnum — saumaðir strammar, klukku- strengir og rokkokkóstólar. Einnig mikið úrval af grófum púðum og klukkustrengjum. — Smyrnamottum og púðum o. m. fl. Hannyrðaverzlunin Rósin Hafnargötu 35 — Sími 2553

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.