Dagblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 23.02.1977, Blaðsíða 13
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1977. 13 Iþróttir_______________íþróttir____________________íþróttir íþróttir ) Liðunum frægu, Arsenal og Newcastle, hefur ekki gengið of vel í deildakeppninni ensku að undanförnu. Myndin að ofan var tekin í viðureign félaganna á Highbury í Lundúnum 4. desember — einum mesta markaieiknum i 1. deildinni i vetur. Arsenal sigraði með 5-3. Ekki var þó skorað í þessu tilviki. Jimmy Rimmer, enski landsliðs- markvörðurinn hjá Arsenai, varði skot Paul Cannell. ENN KOM JOHANNES CELHC Á SPORK)! Skoraði fyrsta mark Celtic gegn Partick ígærkvöld og Celtic sigraði 4-2 á útivelli. Jóhannes sendi knöttinn einnig f mark Celtic með „þrumuf leyg” Þetta var ákaflega auðveldur sigur hjá Celtic í gær gegn Partick Thistle á Firhillleik- vellinum í norðvestur hverfi Glasgowborgar. Celtic sigraði með 4-2 og var komið í 4-0 áður en Partick skoraði sitt f.vrsta mark í leiknum, sagði Jóhannes Eðvalds- son, þegar Dagblaðið ræddi við hann i morgun. — Ég skoraði fyrsta mark Celtic í leiknum fljótlega og það er í þriðja skipti í síðustu fimm leikjunum, sem ég skora fyrsta mark Celtic. En undir lok leiksins varð mér á að senda knöttinn í eigið mark, sagði Jóhannes enn- fremur. — Það var alveg furðulegt mark — sjálfsmark. Það var kom- ið mikið hvassviðri í lok leiksins og vindurinn stóð á Celtic-markið. Ég hrasaði í drullunni á vellinum, þegar ég hljóp að knettinum, og hann féll ..dauður" rétt hjá mér. Alan Hansen. framherji Partick kom aðvífandi og hætta var mikil — en mér tókst að teygja fram fótinn og sparka í knöttinn. Hann hófst á loft — en vindurinn greip hann. Fór í sveig og beint í ntark Celtic — efst í markhornið, sagói Jóhannes og hló við. — Þetta var ágætur leikur hjá Celtic-liðinu framan af og langt síðan skozki landsliðsmarkvörður- inn Rough í marki Partick Thistle hefur fengið á sig fjögur mörk. Ég skoraði það fyrsta — eins og ég sagði áðan — en síðan skoruðu þeir Joe Craig og George Aitken. Staðan í leikhléi var 3-0 fyrir Celtic. Síðan bætti Aitken við fjórða markinu áður en Partick skoraði sitt fyrsta mark. Það kom vegna mikils misskilnings milli Latchford markvarðar og Pat Stanton. Pat vissi ekki af Peter í úthlaupi og knötturinn hrökk af öxl hans, en Peter Latchford datt í drullusvaðinu. Markið opið qg Partick skoraði. í lokin svo óheppni mín, sagði Jóhannes að lokum. Eftir þennan góða sigur hefur Celtic nú sjö stiga forskot í aðal- deildinni skozku og stefnir greini- lega beint i skozka meistaratitil- inn. Næsta sunnudag leikur Celtic á heimavelli gegn Airdrie í skozku bikarkeppninni. Staða efstu liða inni er nú þannig: Celtic 22 15 4 2 Rangers 23 11 7 5 Dundee U. 21 12 4 5 Aberdeen 22 10 8 4 úrvalsdeild- Stærsti sigur Sund- erland í tuttugu ár! , Það er heldur betur kominn skriður á Sunderland í 1. deild- inni ensku. í gærkvöld sigraði Sunderl.W.BromwichAlbion fi-i á Roker Park í Sunderland og það er stærsti sigur Sunderland í 20 ár. Við sigurinn komst liðið loks úr neðsta sæti deildarinnar. Skauzt uppfvrir Lundúnaliðin West Ham og Tottenham. Hefur sama stigafjöida, en betri marka- tölu. Það var Bob Lee. sem kom Sunderland á sporið í gær. Skoraði fyrsta markið eftir aðeins 27 sekúndur. Síðan bætti hann við tveimur mörkum á 33. og 85. mín. Hin þrjú mörk Sunderland skoruðu Shaun Elliott. Mel Hold- en og Gary Rowell. Þessi sigur Sunderland er mjög athyglisverður. Liðið hefur nú skorað 11 mörk í þremur síðustu leikjunum, og sigrað í þeim öllum. en í 25 leikjum áður hafði liðið aðeins skorað 13 mörk. Aðeins fimm mörk áður á heima- velli áður en sigurgangan hófst. Nú 11 í þremur leikjum og Sund- erland hefur hlotið sjö stig af síðustu átta mögulegum. Staða liðsins er þó enn mjög slæm. Það sést bezt, þegar litið er á töpuð stig. Sunderland hefur tapað 39 stigum í 1. deilHinni. West Ilam og Tottenham 22 og Derby og Bristol City 28 stigum. Sunderland hefur leikið talsvert fleiri leiki en önnur lið, sem skipa neðstu sætin í 1. deild. Staðan þar er nú þannig: Bristol C. Derby Sunderland West Ham Tottenham 23 6 6 23 6 6 28 5 7 25 6 5 25 6 5 11 22-26 11 28-34 16 24-37 17 14 24-39 17 14 31-50 17 Heimsóknartíma lokið og Bommi er einn með hugsanir sínar... vegna þess að ég Kannski eru þau hrædd um að meiðsli mín séu alvarlegri en læknarnir segja. Kannski S f Jæja, hvernig líður 'X’ ' þér? Er verkurinn / Get ég leikið aftur, læknir? Ungur piltur sigraði tvo landsliðsmenn Hið árlega Unglingamót Boró- tennisdeildar KR fór fram sunnu- daginn 13. feb. í íþróttahúsi Seltjarnarness. Mótið var mjög; fjölmennt. Þátttakendur um 70 frá 7 félögum. Keppt var í 2 fiokkum, sveinaflokki 13-15 ára og drengjaflokki 15-17 ára. í drengjaflokki tóku þátt 4 leikmenn, sem eru í 2. flokki skv. punktum BTÍ og kom það þvt ekki á óvart að þeir uróu í 4 efstu sætunum. Annars varð röð efstu manna: 1. Tómas Guðjónsson KR Vann Hjálmtý 20-22, 21-14, 23- 21 2. Hjálmtýr Hafsteinsson KR 3. Sveinbjörn Arnarson, Erninum Vann Oskar 21-17, 13-21, 21-19 4. Öskar Bragason KR I sveinaflokki var um mjögj skemmtilega keppni að ræða, en þátttakendur í honum voru um 50. Þar kom á óvart ungur piltur úr KR, Tómas Sölvason. Hann hefur tekið miklum framförum í vetur og sigraði hann landsliðs- menn, sem 2 dögum áður þreyttu landskeppni við Færeyjar. Sigur hans var enginn heppnissigur þvt fyrst vann hann Þorvald Jónssorl Erninum í 8-liða úrslitum 21-11 og 21-10. Síðan vann hann Bjarna Kristjánsson í 4-liða úrslitum 21- 16 og 21-11. Hann réð síðan ekki við Gylfa Pálsson í úrslitaleik. Þessi helgi hefur verið erfið en árangursrík hjá Gylfa, fyrst landsleikur við Færeyjar á föstudag, þá opið mót á Akranesi á laugardag en þar vann hann 3 flokk og loks sigur í Unglingamóti KR á sunnuag. Annars varð röð efstu manna þessi: 1. Gylfi Pálsson Vann Tómas 21-9 og 21-12 2. Tómas Sölvason KR 3. Bjarni Kristjánsson Vann Hermann 21-16, 18-21 og 21-6 4. Hermann Kristjánsson. Nantes vann Fejenoord! Franska knattspyrnuliðið Nantes — liðið, sem Albert Guðmundsson gerðist fyrst at- vinnumaður hjá í knattspyrnunni — lék í gær vináttuleik við hollenzka liðið Fejenoord, Rotter- dam, í gær. Leikið var í Lorient í Frakklandi. Nantes er nú í efsta sæti í 1. deildinni frönsku, og átti ekki í erfiðleikum með að sigra hið fræga, hollenzka lið. Úrslit 2-0 eftir 1-0 í hálfleik. Reykjavíkur- mót í borðtennis Reykjavikurmeistaramótið í borðtennis verður haldið í Laug- ardalshöllinni sunnudaginn 27. febrúar n.k. og hefst kl. 13. Keppt verður í öllum aldurs- flokkum (old boys, 13 ára og yngri 13-15 ára og 15-17 ára svo og fullorðinna). Keppt veróur í einliða-, tvíliða- og tvenndarkeppni. Þátttaka tilkynnist formönnum horðtennisdeilda félaganna í Re.vkjavik eða í síma 81810 fyrir föstudagskvöld. A undan leik KA og Stjörnunn- ar léku UMSE og ÍS i 1. deild í blaki. Stúdentar unnu þennan leik með 3-0. F.vrstu hrinuna unnu þeir með 15-11, aðra hrinu með 15-12 og þá siðustu með 15 10. Samanlagt unnu þeir því með 45-33. Leikur þessi var nokkuð góður á köflum en datt ofan i meðalmennskuna á milli. Dómari var Gísli Ilaraldsson og skilaði því hlutverki vel.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.