Dagblaðið - 16.06.1977, Qupperneq 7
DACBLAÐIÐ. FIMMTUDACUR 16. JUNl 1977.
7
Ár liðið frá óeirðunum í Soweto:
Sprengjutilræði í morgun —
Lögreglan við öllu búin
Tvær öflugar sprengingar
ollu miklum skemmdum á járn-
brautarlögnum í blökkumanna-
bænum Soweto í S-Afríku í
morgun, þegar rétt ár var liðið
síðan alda blóðugra óeirða gekk
yfir landið.
Að sögn lögreglunnar í
Jóhannesarborg virtist ekki
vera óeðlilega mikið um fjar-
vistir blökkumanna frá vinnu,
þrátt fyrir hvatningu stúdenta-
Erlendar
fréttir
REUTER
Kosningar
á írlandi
Irar ganga í dag að kjör-
borðinu og kjósa nýtt þing. í
Dublin á sú skoðun vaxandi
fylgi að fagna að samsteypu-
stjórn Fine Gael og Verka-
mannaflokksins missi meiri-
hluta sinn á þingi.
Tvær milljónir kjósenda eru
á kjörskrá. Atkvæðatalning
hefst í stærstu borgunum á
morgun. Reiknað er með að
endanleg úrslit liggi fyrir seint
á laugardaginn.
leiðtoga um að blökkumenn
hættu að vinna í tvo daga til að
minnast þeirra rúmlega 500
sem létu lífið í átökunum í
fyrra.
Lögreglan sagði að spreng-
ingarnar hefðu aðeins valdið
einum lögreglumanni meiðsl-
um, hann hefði orðið fyrir gler-
brotum sem þeyttust í allar
áttir.
Um allt landið er lögreglan
nú viðbúin því að til tíðinda
dragi. Mest er spennan í
Soweto, blökkumannahverfi
Jóhannesarborgar. Þar virðast
stúdentar hafa náð öllum
völdum. Sl. mánudag hættu
þeir að sækja tíma í skólum
Soweto fyrir réttu ári:
óeirðirnar breiddust út um allt
land og áður en yfir lauk lágu
nær 600 í valnum.
New York:
r
KROA TARNIR
ÁKÆRÐIR
FYRIR MORÐ-
TILRAUN
Króatarnir gáfust upp fyrir lög-
reglunni eftir að hafa haldið
sendiráðinu á því fína 5. Avenue í
tvo klukkutíma. Dreifðu þeir
þaðan bæklingum, þar sem
krafizt var sjálfsstjórnar Króatíu
og Slóveníu, tveggja sambands-
lýðvelda Júgóslavíu.
Yfirvöld í Júgóslavíu for-
dæmdu þremenningana, sem eru
23, 28 og 30 ára, sem fasista og
glæpamenn, og hafa krafizt þess
að þeir fái makleg málagjöld
þegar í stað.
Króatarnir þrír eru félagar í
sömu samtökum og rændu flugvél
í New York í fyrra og komu m.a.
við á Keflavíkurflugvelli á leið til
Parísar.
Þrír króatískir þjóðernissinnar,
sem brutust með skothríð inn á
skrifstofu sendinefndar
Júgóslavíu hjá Sameinuðu
þjóðunum í New York og lýstu
því yfir að þeir væru reiðubúnir
að deyja fyrir málstað sinn, voru í
gær ákærðir fyrir morðtilraun.
Dómari neitaði þremenningun-
um um að ganga lausum gegn
tryggingu. Var þeim þess í stað
gert að mæta fyrir búakviði
sakaðir um morðtilraun, líkams-
árás, ólöglegan vopnaburð og
innbrot. Það var í fyrradag; sem
þeir réðust inn í skrifstofur
júgóslavnesku sendinefndar-
innar. Bflstjóri nefndarinnar
fékk skot í magann.
sínum og síðan þá hefur komið
til daglegra átaka við lögreglu.
Beitir lögreglan óspart táragasi
til að dreifa hópum ungmenna
sem ráðast gegn hvítum
lögreglumönnum með grjót-
kasti, að sögn hvíts sjónvarps-
fréttamanns sem var í Soweto í
fimm klukkustundir í gær.
Lögreglan setti upp vega-
tálmanir á öllum leiðum til
Soweto f gær og leitað var á
öllum blökkumönnum á leið
inn í Jóhhnnesarborg.
Luxembourg er friösæll töfrandi ferðamanna-
staöur, mótaöur af frönskum og þýskum
menningaráhrifum — þar sameinast franska
glaölyndiö og þýska nákvæmnin. Þar sem landið
er lítið, er stutt aö skjótast til ýmissa stórborga
í nágrannalöndunum.
Þannig er 25 mínútna akstur til borgarinnar
Trier í Þýskalandi og klukkustundar akstur til
Koblenz, sem stendur þar sem frægustu fljóta-
héruö Evrópu sameinast, á mótum Mosel og
Ránar.
Luxembourg — einn fjölmargra
staða í áætlunarflugi okkar.
/«ílnfG LOFTtWIR
ISLANDS