Dagblaðið - 16.06.1977, Síða 24
24
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 16. JUNÍ 1977.
GAMLA BÍÓ
8
Sterkasti maður
heimsins
. 'Simi'114^^
HÁSKÓIABÍÓ
Simi 22140
Bandaríska stórmyndin
Kassöndru-brúin
Útvarp
Sjónvarp
i
Útvarp í kvöld kl. 20.05: Leikritið
WUIDIWEY
KHtUCIMMl’
‘uCau
SliRflBBESIi
Ný bráðskemmtileg gamanmynd
í litum — gerð af Disney-
félaginu.
ísienzkur texti
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
I
HAFNARBÍG
Le Mans
Hin spennandi kappakstursmynd
í litum og Panavision með Steve
McQueen.
íslenzkur texti.
Endursýnd kl. 1, 3, 5, 7, 9 og 11.15.
1
STJÖRNUBÍÓ
I
XY & ZEE
■ M/AIIIIi
WL€C
MIUiAEI
CÁINE
Pessi bráðskemmtilega kvikmynd
með Klizabeth Taylor og Michael
Caine. endursýnd kl. 6. 8 og 10.
Biinnuð inn 14 ára.
Endursýnd kl. 6, 8 og 10.
I
BÆJARBÍÓ
I
Lögregia rreð
lausa skrúfu
Harðneskjuleg og jafnframt
hlægileg bandarísk lögreglu-
mynd. Aðalhiutverk: Alan Arkin
og James Caan.
Sýnd kl. 9.
OPIO HUS - SINE
SÍNE heldur opið hús öll
mánudagskvöid í sumar kl.
20.00 í Félagsheimili
stúdenta við Hringbraut.
LÍN-málefni, starfshðpar,
umræður, spjaldskrárvinna
o.fl. Félagar og annað
áhugafólk um kjaramál
námsmanna velkomið.
Stjórn SÍNE.
(Cassandra-erossing)
Þessi mynd er hlaðin spennu frá
upphafi til enda og hefur alls
staðar hlotið gífurlega aðsókn.
Aðalhlutverk: Sophia Loren,
Richard Uarris.
Sýnd kl. ;5og 4.
Hækkað verð — sama verð á öll-
um sýningum.
Örfáar sýningar eftir.
I
LAUGARÁSBÍO
D
Frumsýnir
„Höldum lífi“
Ný mexíkönsk mynd er segir frá
flugslysi er varð í Andesfjöllun-
um árið 1972.
H.vað þeir er komust af gerðu til
þess að halda lífi — er ótrúlegt,
en satt engu að síður.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 9 og 11.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 7.
NÝJA BIO
D
Hryllingsóperan
Brezk-bandarísk rokk-mynd, gerð
eftir samnefndu leikriti, sem
frumsýnt var í London í júní
1973, og er sýnt ennþá. Bönnuð
innan 16 ára. Sýnd kl. 5, 7 og 9.
TÓNABÍÓ
I
.OIIMI J I I 04. .
Juggernaut
Sprengja um borð í Britannie
Spennandi ný amerísk mynd, með
Riehard Harris og Omar Sharif í
aðalhlutverkum. Leikstjóri:
Richard Lester. Aðalhlutverk:
Omar Sharif, Pichard Harris
David Hemmings, Anthony
Ilopkins.
Sýnd kl. 5,7, 10 og 9.15.
I
AUSTURBÆJARBÍÓ
D
Jainii ’l 1 384^
Drum -svarta vítið
Sérstaklega spennandi og mjög
viðburðarík, ný, bandarísk stór-
mynd í litum. Aðalhlutverk: Ken
Norton, (hnefaleikakappinn
heimsfrægi).
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9
Hækkað verð.
Akranes
Vegna sumarleyfa sér Amalía Pálsdóttir
Presthúsabraut 35
fyrst um sinn um afgreiðslu blaðsins.
Sími2261 á daginn og 2290 á kvöldin.
BIAÐIÐ
Aðeins er spurt
að leikslokum
— íslenzkt leikrit um mannleg samskipti
Leikritið sem er á dagskrá
útvarpsins í kvöld kl. 20.05
heitir Brimhljóð og er eftir
Loft Guðmundsson. Leikstjóri
er Baldvin Halldórsson.
Leikritið gerist í Vestmanna-
eyjum skömmu fyrir síðari
heimsstyrjöldina. Er sumar-
hátíð í Herjólfsdal þar sem
margt manna er samankomið
að venju. Þar er að vonum
margt sjómanna og einn þeirra,
Bryngeir, lendir í útistöðum við
Sighvat kaupmann út af stúlk-
unni sem hann elskar. Verður
það upphaf að rás mikilla
atburða.
Bakgrunnur þeirrar hrika-
legu baráttu sem hér er háð er
hafið í kringum Eyjar, sem er
bæði gjöfult og hættulegt i
senn.
Með aðalhlutverkin í leikn-
um fara Sunna Borg, Sigurður
Skúlason, Gísli Alfreðsson,-
Þóra Borg, Lilja Þórisdóttir,
Randver Þorláksson og Rúrík
Haraldsson.
Höfundur leiksins, Loftur
Guðmundsson, er fæddur árið
1906. Tók hann kennarapróf
árið 1931 og var við lýðháskóla-
nám í Svíþjóð í eitt ár. Var
hann kennari í Vestmannaeyj-
um 1933-45. Loftur hefur
fengizt við blaðamennsku frá
árinu 1947.
Loftur er kunnur leikrita-
höfundur og einnig hefur hann
samið mikið af gamanþáttum,
bæði fyrir útvarp og leiksvið.
Hann hefur samið skáldsögur
og barnabækur og gert dægur-
lagatexta og kvikmyndahand-
rit.
Leikritið, sem er á dag-
skránni i kvöld, hefur verið
sviðsett víða um land en var
frumsýnt árið 1937.
•A.Bj.
Sögur úr ástandinu
Nemendaleikhúsiö:
HLAUPVÍDD SEX
eftir Sigurð Pálsson
Leikstjóri: Þorhildur Þorleifsdottir
Tjöld og búningar: Messíana Tómasdottir
Músík: Sigurður Bjóla Garöarsson
Það er út af fyrir sig engin
aðfinnsla að efnisvali Sigurðar
Pálssonar í Hlaupvídd sex að
sp.vrja, hvað hann sé gamall. En
ef Sigurður er þrítugur að aldri
telst mér til að hann sé fæddur
árið 1947 — tveimur árum eftir
að stríði lauk. Svo mikið er víst
að Sigurður er áreiðanlega of
ungur til að muna sjálfur
stríðsárin, hernámið og
ástandið. En af hverju vill hann
þá endilega vera að yrkja um
þetta leikrit?
Sigurður Pálsson starfar í
svolitið skrýtnum kringum-
stæðum að leikritagerð, bæði í
ár og í fyrra.'.hann semur sem
sé leikrit eftir pöntun, til
afnota handa leiklistarskólan-
um nýja, þar sem hann sjálfur
er kennari. Nú mættu sjálfsagt
ýmsir áhugamenn öfundast yfir
þessum aðstæðum, að fá að
skrifa fyrir tiltækan leikhóp,
sjá verk sitt fært upp á leiksvið
jafnskjótt og það gengur fram
úr pennanum. En vitanlega
setja líka kringumstæðurnar
höfundinum ýmisleg takmörk.
Níu manns eru í leikhópnum í
ár, sjö þeirra konur og vita-
skuld verða hlutverkin að hæfa
hópnum, leikendur allir skóla-
nemendur að þreyta lokapróf
sitt og verða væntanlega að fá
sem best og jöfnust tækifæri á
sviðinu.
Það má vel vera að
kynskipting leikhópsins hafi
leitt huga hans og höfundar að
jafnréttismálum og kvenfrelsi,
en kvenréttindabaráttan aftur
beint honum að stríðsárum,
þangað sem rekja má undir-
rætur alls konar breytinga í
þjóðlífinu síðan. Eitthvað í
þessa áttina finnst mér Sig-
urður hafa verið að segja í
blaðaviðtölum um leikrit sitt að
undanförnu. En hvað sem þvi
líður held ég að ekki verði með
sanngirni sagt að Hlaupvidd
sex fjalli um kvenfrelsi, kynja-
Leiklist
baráttu eða jafnréttismál, né þá
heldur umbætingu þjóðlifs af
völdum hernámsins. Sigurður
lætur sér nægja að segja í
leikritinu nokkrar meir og
minna sorglegar lífs-
reynslusögur úr ástandinu, sem
gætu svo sem verið sannar, en
hafa þá að vísu allar margoft
verið sagðar áður með ofboð
svipuðum áherslum.
Maður saknar með öðrum
orðum persónulegrar kveikju i
leikritinu, einhverrar eigin
sýnar á efnið, eða minnsta kosti
aðferðar að því. Það er svo
annað mál að Sigurður hefur
alls ekki reynt það sem aftur á
móti kynni að vera hægt: að
semja raunverulega sann-
sögulegt leikrit um hernám
og ástand með einhvers konar
„dokúmentarískri" aðferð.
Leikurinn b.vrjar á síldar-
plani á Sigló í þann mund, sem
striðið er að hefjast, fylgir
síðan stúlkunum af síldar-
planinu eftir inn i og gegnum
ástandið, allt til stríðsloka. með
lítilsháttar viðkomu á borgara-
legu heimili í höfuðstaðnum.
Þar búa eins og gengur vondir
kapítalistar við valtan heimilis-
hag: Brímdals-hjónin, sem eiga
bæði sildarplan f.vrir norðan og
saurlifis-hótel í höfuðstaðnum
og höndla með fisk upp á stríðs-
gróða. En aðalefnið er sem sé
afdrif þeirra síldarstúlkna, og
eru 'reynslusögur þeirra felldar
í skáldlega umgerð draums eða
öllu heldur martraðar, sem
bæði byrjar og lýkur leikritinu.
Þær eru Vilborg, dóttir
Brímdals-hjóna, og stalla
hennar, Katrin, sem vildi verða
söng- og leikkona, og
stúlkurnar að norðan, Stella,
Elisabet, Nína, sem allar berast
inn í ástandið, hver með sínu
mótinu, og engin sér drauma
sína rætast. Enginn fær staðist
límans straum: Aslaug er alveg
á móti her og ástandi en
maðurinn hennar, 'Áslákur, at-
vinnulaus bílstjóri, berst
nauðugur viljugur með inn í
sollinn.
Leikrit Sigurðar Pálssonarer
að sönnu ekki nema smámunir
og má kannski ekki ætlast til
annars né meir af því en það
dugi til sins brúks — sem skóla-
verkefni, í æfinga- og reynslu-
skyni fyrir nemendur leik-
skólans. Að þessu leyti virðist
það allhaganlega samið, lætur
reyna á hvern og einn leikenda,
dregur allténd upp útlínur
hlutverka handa leikendunum
að vinna úr.
Og það er glöggt að
hæfileikafólk er i hópnum, þótt
kraftar hópsins í heild nýttust
betur í fyrri sýningu hans í vor.
t þetta fannst mér langmest
kveða að Guðrúnu Gísladóttur:
Katrínu Brynjúlfs, sem varð
mjög næmleg og lifandi per-
sónulýsing, en líka má nefna
Eddu Hólm: hina taugabiluðu
frú Brímdal, Lísu Pálsdóttur:
Stellu og Steinunni Gunnlaugs-
dóttur: Nínu, sem glöð og reif
gefur sig að saurlífinu.
I sviðsetningu Þórhildar Þor-
leifsdóttur held ég að vel hafi
nýst úrkostir leikritsins og
hvers og eins hlutverksins, þótt
maður eins og fyrr segir sakni
persónulegrar úrvinnslu úr
efninu. En sýningin fer allvel á
sviðinu í Lindarbæ. Inn í
atburðarásina fléttast fulltrúar
hinna stríðandi stórvelda, leik-
brúður í líkingu þeirra Hitlers,
Roosevelts og Churchills. þótt
ekki væri sá svipur sterkur, né
kæmu þeir atburðarásinni
mikið við. En þetta voru sniðug-
legar fígúrur, eins og líka leik-
mynd Messíönu Tómasdóttur
að öðru leyti.
OPINBER STOFNUN
óskar eftir að ráða ritara, helst vanan,
til starfa sem fyrst. Umsóknir með
upplýsingum um aldur, menntun og
fyrri störf sendist blaðinu fyrir 28.
þ.m. merkt ,,28“.