Dagblaðið - 05.08.1977, Síða 4

Dagblaðið - 05.08.1977, Síða 4
4 DAGBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. ÁGtJST 1977. Prófkjör Alþýðu- flokksins í Reykjavík: Mestur áhugi á minnsta flokknum Fjörbrot—eöa merki um nýja sókn kratanna Ætlar Gylfi að hœtta þingmennsku? Fer Vilmundur í annað sœti í Revkjavík Gylfi Þ. Gíslason er sagður orðinn þreyttur á þingmennsku og reiðubúinn að víkja sæti, ef farið verði að hans ráðum um eftirmann. Gylfi hefur setið á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn frá því 1946 eða í rúmlega 30 ár. Hann gegnir nú embætti prófessors við Háskóla Islands. Gylfi er einn af sárafáum þingmönnum, sem vel má flokka undir það að vera full- trúi fyrir hið gamla „andans aristókrati" i höfuðborginni Enda þótt önnur og þriðja kyn- slóð þeirrar stéttar hafi um flest veraldlegra yfirbragð en feður hennar og afar, hefur Gylfi Þ. Gíslason aldrei veríð annað en gáfaður mennta- maður með listamannsæð. Það virðist einhver mótsögn i við- skipta- og hagfræðimenntun Gylfa og því, sem áður greinir. Menn tengja þau fög fremur við kaldrifjaða auðhyggju en fagrar listir og víðáttur andans. Kennsluhæfileikum Gylfa er fylgisaukningu í næstu Alþingiskosningum. Talsvert rót verður þó á framboðum stjórnarflokkanna sem Benedikt gæti notfært sér til að auka fylgi sitt í kosningum. Þar er hann þó ekki einn um hituna og alltof mikil óvissa um það, hvernig til kann að takast. Sennilega óttast Bendikt ekki að falla út af þingi með framboði í Reykjavík. Ef honum tækist að auka fylgi flokksins í höfuðborginni gæti hann gert tilkall til annarrar stöðu en forstöðu við Fræðslu- kvikmyndasafn menntamála- ráðuneytisins, sem honum leiðist einhver ósköp að hafa farið í. Þannig gæti ráðagerð um að Gylfi dragi sig í hlé og Benedikt fari 1 hans sæti, orðið að veruleika án átaka, ef ekki kæmi til andstaða Eggerts Þor- standa fast við framboð Benedikts í efsta sætið. Vilmundur er ekki einn um að bíða fœris. Björgvin, Sigurður E. og dr. Bragi Prófkjor Álþýðuflokksins í Reykjavík er ákveðið 12. og 13. nóvember. Framboðsfrestur rennur út 15. október. Hljóti frambjóðandi 20% eða meira af fylgi flokksins i síðustu Alþingiskosningar við prófkjör er það bindandi. Hins vegar er það kjördæmisráð sem gengur frá endanlegum framboðslista. Hér í Reykjavík er kjördæmis- ráð og fulltrúaráð Alþýðu- flokksfélaganna eitt og hið sama. Hver sem er má vera í fram- boði en 50 flokksbundna með- mælendur þarf til að það sé gilt Gylfi, — fulltrúi fyrir hið gamla „andans aristókratí, Benedikt. — leiður á að þreyta laxinn í pólitískum leysingja- vötnum Vesturlandskjördæmis við brugðið. Njóta sín vel í stól prófessorsins þekking og næstum að segja listræn tjáning samfara óvenjulegum skipulagshæfileikum. Sagt er að Gylfi geti-vel unnt Benedikt Gröndal að taka sæti sitt á Alþingi, ef Vilmundur sonur hans verði í öðru sæti. Örugglega skortir Gylfa ekki metnað fyrir frama Vilmundar á vettvangi þjóðmálanna. Hins vegar er líklega nokkuð al- mennt gert of mikið úr afskipt- um Gylfa af væntanlegum stjórnmálaferli hans. Auk þess er það ekki Vilmundi að skapi, að hægt verði að segja um hann að faðir hans eða fjölskyldu- tengsl hafi komið honum á þing. Honum ætti þó ekki að vera vandara um en æði mörgum þingmönnum fyrr og síðar. Það heyrir til undantekn- inga að menn fari á þing af eigin afli einu saman rétt eins og í hlýjustu sætin í embættis- kerfinu íslenzka. Benedikt vill breyta til — Eggert víkur ekki fyrir honum Benedikt Gröndal er orðinn leiður á þvi að þreyta laxinn í pólitískum leysingavötnum Vesturlandskjördæmis. Enda þótt Benedik.t sé vel látinn þar og vinsæll af alþýðu, eru menn alltof skorðaðir fastir við flokka til þess, að hann geti gert sér vonir um teljandi Eggert G„ — vill Benedikt ekki fyrir ofan sig. sess. steinssonar. Hann viðurkennir alls ekkert að sjálfsagt sé, að Benedikt Gröndal skjótist upp fyrir hann í Reykjavík. Ef Gylfi vilji hætta, eigi hann þ.e. Eggert, forgangskröfu í sætið. Ef Benedikt býður sig fram í efsta sæti listans í Reykjavík er sennilegt að Eggert bjóði sig fram á móti honum. Stærsta tromp Eggerts er sú staðreynd, að smátt og smátt hafa sniðizt af Alþýðuflokknum hver af öðrum þeir forystumenn sem eru vaxnir úr launamannastétt eða verkalýðshreyfingu landsins. Þetta er höfuðverkur flokksins, sem reynt er að hylja eða gera lítið úr út á við en er snöggur og viðkvæmur blettur á flokki með þessu nafni. Þessu kann að verða svarað með því að tefla Vilmundi fram í annað sætið í prófkjöri en Vilmundur, — maður að alþýðuskapi. Björn — í efsia sælio til að setja niður metinginn? Sigurður E„ — finnst hann hafa beðið nógu lengi. hér í Reykjavík. Frambjóð- endur geta annað tveggja boðið sig fram: 1) I ákveðið tilgreint sæti, eða 2) hvaða sæti sem er á listanum eftir fvlgi samkvæmt atkvæðamagni. Flokksbundnir menn og utanflokka mega kjósa í prófkjöri. Enda- þótt hér hafi aðeins verið rætt um fjóra menn, er víst að fleiri koma til greina. Vitað er að Björgvin Guðmundssyni borgarfulltrúa þykir tími til kominn, að ganga hinn troðna stig frá borgar- stjórn inn á Alþingi. Þá er einnig víst að Sigurði E. Guðmundssyni fram- kvæmdastjóra Húsnæðismála- stofnunarinnar finnst hann hafa beðið nógu lengi eftir þingsæti. Hann hefur ætíð stefnt að því að fara beint í öruggt sæti til kjörs á Alþingi eða a.m.k. varaþingmanns. Auk þeirra sem að framan eru taldir er full ástæða til að nefna dr. Braga Jósepsson blaðamann. Að sögn hefur hann þegar hafið kosningabar- áttu sína með svipuðum hætti og gerist í dreifbýliskjördæm- um og prestskosningum í þétt- býli. Er hann sagður ganga í hús og kynna sig og kynnast. Minnir þetta nokkuð á „handar- bands“-aðferðina amerísku. Hún var í miklum metum og þykir vel nothæf ennþá þar vestra. Auðvitað er aðferðin vel þekkt hér frá fyrri tíð en þykir ef til vill úrelt. Fróðlegt verður að sjá árangurinn nú. Birni Jónssyni forseta ASI hefur enn ekki verið skipað í sæti til framboðs. Fram hjá honum verður ekki gengið. Hann á gífurlegt persónufylgi í Norðurlandi eystra. Það jaðrar við fylgi Hannibals á Vest- fjörðum. Sennilegt er að Björn kæri sig þó ekki um að láta reyna á það I framboði fyrir Alþýðuflokkinn. Handbragð lista- mannsins segir til sín Sennilegra er að honum verði tefltfram annars staðar . Þarf þá ekki lengi um að svipast. Reykjavík er eina kjör- dæmið annað sem til greina kæmi. Naumast yrði Birni boðið upp á annað en efsta sætið. Líklega er Björn eini maðurinn sem Eggert Þor- steinsson gæti sætt sig við í því sæti að Gylfa frátöldum. Björn er sterkt framboð og Alþýðu- flokknum mikill styrkur, þótt sjónarsviftir sé að Gylfa Þ. Gíslasyni og vandfyllt sæti hans á Alþingi og í flokknum yfir- leitt. Ef Gylfa er alvara í því að láta af þingmennsku gæti skipan Björns í efsta sætið sett niður meting og deilur meðal kappgjörnustu og grónustu flokksmanna. Slík ráðstöfun er ekki ólik handbragði lista- mannsins með skipulagsgáf- una. önnur sæti eru ekki alveg sjálfskipuð. Spurningin er eftir sem áður sú hvort Vilmundur ógnaði Eggerti í prófkjöri eða kysi að bíða enn eitt kjörtíma- bil. Benedikt færi þá fram í sínu gamla kjördæmi. Enda þótt fylgi Alþýðu- flokksins hafi farið rénandi undanfarinn hálfan annan ára- tug, er þar ennþá nóg af mönnum sem hafa trú á sér og stefnu flokksins. Víst er og að prófkjörin í Alþýðuflokknum, einkum í Reykjavík, verða engu .síður áhugaverð en kosningar, bæði til sveitastjórna og Alþingis á næsta ári. Mönnum kann að sýnast það skjóta skökku við að meira líf er nú í þessum flokki en flest- um hinna stærri. Eru það fjör- brot eða merki um nýja sókn I íslenzkum stjórnmálum? BS

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.