Dagblaðið - 05.08.1977, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ KÖSTUDAÍJUK 5. AGUST 1977.
Vinsælasti
sund-
fatnaðurinn
á íslandi
nzka verzlunarfélagiö
Yfirvöld í S-Afríku: ^
LOKUM SKOLUM
Agreiningur virðist vaxa
milli yfirvalda í Suður-Afríku
og hörundsdökkra stúdenta.
Sífellt er að koma til átaka milli
lögreglu og stúdenta. Stjórn
landsins hefur hótað að loka
skólum ef stúdentar láti ekki af
þessari hegðun sinni.
Lögreglan notaði skotvopn og
sigaði hundum á blökkumenn í
gær þegar kom til átaka þeirra
á milli. Átök hafa verið tíð milli
lögreglu og stúdenta nú síðast-
liðnar tvær vikur og yfirvöldin
hafa ekki hikað við að skjóta á
unglinga með þeim afleiðingum
að nokkrir hafa látizt.
Unglingarnir henda grjóti að
Iögreglunni og bera eld að
bílum. Þeir vilja mótmæla því
skólakerfi sem þeir eiga við að
búa. Blökkumenn segja að
hvítir jafnaldrar þeirra fái
miklu betri menntun en þeir og
vilja með þessum aðgerðum
sínum mótmæla þessu.
Dómsmálaráðherrann James
Kruger sagði í gær að yfirvöld
myndu loka skólum blökku-
manna ef þeir létu ekki af ólát-
unum. Þetta væri aðeins gert i
þágu almennings, sagði Kruger.
Að minnsta kosti fjórir
blökkumenn hafa látið lífið i
óeirðunum síðustu vikurnar í
blökkumannahverfum
Jóhannesarborgar. Hundruð
unglinga hafa verið handteknU
Á síðasta ári þegar óeirðir voru
sem mestar í Soweto, týndu um
fimm hundruð manns lífi.
Kruger dómsmálaráðherra
sagði að lögreglan mundi halda
áfram stöðugu eftirliti í hverf-
um blökkumanna unz ungling-
ar létu af ólátum sínum. Hann
beindi því til foreldra að
fá þá ofan af ólátum sínum.
Nær að sekta
en stinga inn
Jimmy Carter forseti Banda-
ríkjanna lagði til að þeir sem
væru teknir þar í landi með lítinn
skammt af maríjúana á sér yrðu
sektaðir í stað þess að setja við'
komandi í fangelsi eins og lög
gera ráð fyrir nú. Carter forseti
kom með þessa tillögu þegar hann
ávarpaði þingið nýlega.
Carter ræddi um það að takast
þyrfti á við það vandamál að sí-
fellt fleiri Bandaríkjamenn
ánetjuðust eiturlyfjum. Hann
sagði einnig að það yrði að reyna
að fá niðurstöðu á því hvers
vegna sífelld aukning yrði á þess-
ari neyzlu ásamt áfengi og tóbaki.
Forsetinn sagði að þrátt fyrir
að refsing yrði vægari yrðu lögin
samt sem áður þannig úr garði
gerð að þau stuðluðu að minnk-
andi neyzlu. Carter sagði að það
væri óþarfi að Iíta á menn sem
segir Carter um þá
sem teknireru með
maríjúana ífórum
sínum
hefðu í fórum sínum lítið magn af
maríjúana sem glæpamenn sem
ætti að loka bak við lás og slá.
Hann sagði að miklu nær væri að
sekta fólk sem væri tekið með
nokkur grömm af efninu heldur
en að varpa því í fangelsi.
Tvö riki, Kalifornía, og Oregon
hafa þegar lagt niður fangelsis-
dóm, en sekta í stað þess þá sem
teknir eru fyrir að hafa
maríjúana i fórum sínum.
Þangað
leita viðskiptin,
semúnialið
ermest.
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
Þverholtill sími 2 70 22
Opið til kl.10 í kvöld
Portúgal:
Nýjar kosning-
ar segir Cunhal
—hann segir að flokkur hans, komm-
únistar, muni bæta við fylgi sitt
Leiðtogi kommúnista i
Portúgal, Alvaro Cunhal, fékk
góðar undirtektir hjá
stuðningsmönnum sínum þegar
hann sagði í gærkvöldi að eina
leiðin út úr ógöngum
þjóðarinnar væru nýjar
kosningar. Cunhal hélt ræðu í
þéttsetinni íþróttahöll í höfuð-
borginni Lissabon. Þessi tillaga
um nýjar kosningar kom flest-
um á óvart.
Stjórnarflokkarnir hafa lýst
sig mótfallna kosningum.
Cunhal segir að þeir séu allir
hræddir við kjósendur, nema
hans flokkur, kommúnista-
flokkurinn'í Portúgal.
Cunhal og flokkur hans hafa
stutt sósíalista á þingi. Nú
hefur orðið stefnubreyting
vegna þess að Mario Soares for-
sætisráðherra og flokkur hans
hafa ánetjast landeigendum,
viðskiptajöfrum og heimsvalda-
sinnum um of að sögn Cunhal.
Hann segir að sósíalistar hafi
færzt mikið til hægri á stjórnar-
tíð sinni.
Kommúnistar voru fjórðu i
röðinni samkvæmt atkvæða-
magni í kosningunum í
Portúgal i fyrra. Kosið er til
bingsins til fjöggurra ára í senn
nema að þing verði leyst upp
eins og Cunhal hefur lagt til.
Hann heldur því fram að
kommúnistar kæmu mjög vel
út úr kosningunum, ef þær
yrðu haldnar bráðlega, vegna
stefnu stjórnarinnar, m.a. í
landbúnaðarmálum.
Alvaro ('unhal formaðiir kominiinistaflokks Portúgal vill að þing
verði leyst upp og kosið verði á ný fljótlega.