Dagblaðið - 09.08.1977, Qupperneq 1
3. ARG. — ÞRIÐJUDAGUR 9. AGlJST 1977 — 170. TBL.RITSTJORN SÍffUMÍJLA 12. AUGLVSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSÍMI 27022.
111 ár hef ur allt staðið
óhreyft
nema verðbólgan
Þegar síldin hvarf var lögð
niður síldarverksmiðja Kveld-
úlfs h.f. á Hjalteyri — eign
Thors-ættarinnar. Síðan eru
liðin 11 ár. Á þeim tíma hafa
mikil mannvirki á Hjalteyri
verið að grotna niður.
Uppgjöri Kveldúlfs er enn
ekki formlega lokið. Lands-
bankinn yfirtók þó allar eignir
félagsins og var þannig, að þvi
er ýmsir fróðir menn telja,
komið i veg fyrir opinbert
gjaldþrot Kveldúlfs. Á þeim
tima hefur skuld Kveldúlfs við
bankann staðið í stað en
matsverð eignanna fimmfald-
azt.
Nú hefur Landsbankinn aug-
lýst eignir sínar á Hjalteyri til
sölu. Hjalteyringar telja margir
hverjir að þeirra sjónarmið
hafi ekki verið tekin til greina
undanfarin ár. Fréttamaður DB
heimsótti Hjalteyri fyrir
skömmu og skyggndist undir
yfirborðið.
sjá fyrri grein bls. 4-5
Afhassmálum:
LOGREGLAN
VIRÐIST HAFA
KOMIZT í FEITT
Ffkniefnalögreglan telur sig
nú komna í „feitt mál“. Uppvíst
hefur orðið um smygl og
dreifingu á mörgum kílóum af
hassi og verulegu magni af
amfetamíndufti. Leikur grunur
á að hluti hassins hafi verið
seldur í Svíþjóð.
Snorri Sigurjónsson, lög-
regluþjónn í fíkniefnadeildinni
sagði fréttamanni DB í gær að
nú væri svo komið að ekki yrði
aftur snúið með enn frekari
rannsókn þessa máls. Væri hún
raunar vel á veg komin og fjall-
aði um innflutning og sölu á
kannabis-efnum og amfetamín-
dufti meira en heilt ár aftur í
timann. „Allt efnið var keypt í
Hollandi, eftir því sem við vit-
um bezt,“ sagði Snorri.
Við rannsóknina hefur
vaknað ákveðinn grunur um að
hluti af hassinu hafi verið
seldur beint frá Hollandi til
Svíþjóðar.
Einn maður hefur setið í
gæzluvarðhaldi vegna þessa
máls síðan um síðustu helgi.
Hefur sá við yfirheyrslur ný-
verið leiðrétt mjög framburð
sinn frá í febrúar sl„ er hann
sat inni vegna aðildar að „hass-
málinu mikla.“ Þá var honum
sleppt á grundvelli framburðar
hans sem nú er komið í ljós að
var rangur I veigamiklum at-
riðum. Virðist sem hann hafi í
framburði sínum frá í vetur
verið að „vernda" ákveðna
menn.
Annar þeirra var látinn laus
úr gæzluvarðhaldi fyrir helgina
og er það m.a. á grundvelli
framburðar hans, að uppvíst er
orðið um rangan vitnisburð
hins í vetur. Sá sem laus er
orðinn var handtekinn 1
Reykjavik fyrir rúmum mánuði
þegar í ljós kom að hann var
eigandi að VA kg af hassi sem
annar maður var gripinn með á
Keflavíkurflugvelli fyrr þann
sama dag.
Annar ungur maður situr í
gæzluvarðhaldi þessa dagana.
Sá var gripinn á Suðurnesjum
með svarta hasstegund sem
helzt er talið að hafi verið svo-
nefndur „Pakistan". Er talið að
þessi piltur hafi annazt
dreifingu á efninu. Þá er
heldur ekki talið útilokað að
hinn gæzlufanginn kunni ein-
hvern þátt þeirrar sögu.
-ÓV.
ORÐIN GRAUTFUL
í UPPVASKINU
— gerist háseti á Fossunum — bls. 8
BRETAPRINSI MOKAFLA — baksíða
)