Dagblaðið - 09.08.1977, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 09.08.1977, Blaðsíða 8
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. AGUST 1977. Nánar gætur hafðará skjálftum möguleiki á að segja til um náttúruhamfarir með landsneti skjálftamæla Eins og landsmenn urðu áþreifanlega varir við þá fór fram mikil rannsókn á jarð- fræði tslands í síðasta mánuði og var ríkisútvarpið notað mikið til þeirra hluta. A.m.k. tvisvar á dag voru send út skila- boð á ensku. Voru það skilaboð til vaktmanna víðs vegar um landið sem lágu þar í tjöldum og höfðu þann starfa að fylgjast með jarðskjálftamælum. Ellefu stúdentar sem störf- uðu á vegum Raunvisindastofn- unarinnar voru víða um landið að fylgjast með spreng- ingunum sem Kanadamenn og Bandaríkjamenn framkvæmdu með skipinu Meteor þar sem það lá suður af Reykjanesi. Var sprengt á þremur stöðum í áttina til Vestmannaeyja, lengst í burtu um 400 km suður í hafi en næst alveg uppi við landgrunnið. Forsprakkarnir að . spreng- ingum þessum eru jarðfræði- deildir jjýzku háskólanna í Fránkfurt og Miinchen, en auk þess voru í liði með þeim Austurríkismenn. Rússar sem voru hér við rannsóknir um sama leyti notfærðu sér einnig tækifærið og hlustuðu eftir sprengingunum i Eyja- firðinum. Var fyrst hlustað eftir sprengingunum inni í landi úr suðri, en seinna var leigður fiskibátur og sprengt norður í hafi. Niðurstöðurnar bornar saman í apríl 1978 Stóðu rannsóknir þessar yfir í tíu daga og munu þær hafa tekizt þokkalega. í apríl á næsta ári er síðan ætlunin að allir þeir sem að rannsóknun- um stóðu, Rússar, íslendingar, Bandaríkjamenn, Þjóðverjar og Austurríkismenn komi hingað til lands og skiptist þar á niður- stöðum. Heldur síðan hver til síns heima með gögn hinna og síðan eftir e.t.v. tvö ár má búast við að komi í ljós einhverjar niðurstöður af athugununum. Vonazt er til að rannsóknirnar gefi einhverja mynd af jarð- skorpunni niður á talsvert dýpi og veiti einhver svör við því hvernig gerð úthafshryggjanna sem liggja um öll höf sé háttað. Erfitt er yfirleitt að komast að hryggjum þessum, nema á íslandi, því ísland er ekkert annað en hár toppur á úthafs- hrygg sem stendur upp úr sjónum. Skjólftamœlar til almannavarna Af íslands hálfu hafa mest unnið við rannsóknir þessar aðiljar frá Orkustofnun og Raunvísindastofnun. Hafa þessar stofnanir unnið að því að koma upp um allt ísland jarðskjálftamælum, svonefndu landsneti skjálftamæla. Er nú þegar búið að setja upp 36 mæla og lesið af þeim reglulega og skýrslur sendar suður. Eru það bændur, prestar og fólk úr öllum stéttum sem les af mælum þessum, svipað e- af mælum Veðurstofunnar. Lands- net skjálftamæla nær yfir 6us- belti landsins og skjálftasvæði svo talsvert öryggi er af þessu ef til náttúruhamfara kemur, möguleiki er þá á að hægt sé að vara við þeim nokkru áður. Hafa sprengingar útlending- anna að undanförriu veitt Orkustofnunarmönnum tals- verða æfingu og reynslu við notkun skjálftamælanna og öll samvinnan við erlendu vísinda- mennina verið íslenzkum rann- sóknarmönnum lærdómsrík og ánægjuleg. BH Laust embætti —er forseti íslands veitir Embætti ráðuneytisstjóra í fjármála- ráðuneytinu er laust til umsóknar. Embættið veitist frá 1. nóvember 1977. Umsóknarfrestur er til 10. september 1977. Fjármálaróðuneytið, 8. ágúst 1977. Haraldur Magnússon, viðskiptafræðingur. Sigurður Benediktsson, sölumaður. Til sölu hæð og ris við Öldugötu, á hæðinni eru 2 stofur, herb., eldhús, búr og snyrting. í risi 4 herb. og bað ásamt góðu geymsluplássi sem mætti innrétta. Nánari uppl. á skrifstofunni. Kvöldsími 42618. Fjölbrautaskólinn á Akranesi Frestur til að skila umsóknum um skólavist rennur út 15. ágúst. Þej,r sem sóttu um skólavist í vor, skulu einnig staðfesta umsóknirnar eigi síðar en 15. ágúst. Skriflegar umsóknir skulu sendar Fjölbrautaskólanum á Akra- nesi. Einnig er tekið við umsóknum í síma 93-1672 (Gagnfræðaskólinn) frá kl. 10—12 og 14—16 alla virka daga. JŒZBQLLöttQfxÓLI BÓPU, Dömur athugið líkamsrækt N V. líkofii/mkK if Opnum aftur eftir sumarfr! 15. ágúst ! if Ukamsrækt og roegrun fyrir dömur A öllum aldri. , if 3 vikna némskeið ( if Morgun-dag og kvöldtlmar. if Tlmar tvisvar eða fjórum sinnum I viku. ! if Sérstakir matarkúrar fyrir þær. sem eru i mergrun. if Sturtur. sauna. tæki, Ijós, NÝTT — NÝTT | if Nú er komið nýtt og fullkomið sólarium . Hjá okkur skin sólin allan daginn, alla daga. Upplýsingar og innritun i sima 83730, frá kl. 1 — 6. | JdzzBaLLettskóLj Bórxj Kona háseti Slei4á hjá Eimskip uppvaski DB-mynd Hörður. Sigrún Edda Aðalsteinsdóttir háseti. „Það er nú ekki komin reynsla á þetta, en ég vona að ég standi mig,“ sagði Sigrún Edda Aðal- steinsdóttir brautryðjandi kvenna í hásetastarfi hjá Eimskipafélaginu. Sigrún Edda 22 ára nemandi í meinatækni byrjaði í gær sem háseti á Reykja- fossi, eða viðvaningur eins og það nefnist i byrjun. Sigrún Edda er þó enginn viðvaningur á sjó| því hún byrjaði sem þerna á gamla Herjólfi sumarið 1974 og hefur verið þerna á skipum síðan, m.a. eitt sumar á norsku skipi. „Tækifærið kom skyndilega upp i hendurnar á mér og ég var orðin hundleið á þessu þernu- starfi, eilifu uppvaski og þess háttar. Ég lækka í kaupi til að byrja með, en ég fæ meiri eftir- vinnu, þannig að ég vona að ég fái meira upp úr þessu. Starfið er fólgið í því að sjóbúa, ryðberja og mála og allt sem gert er á dekki. Annars væri nær að spyrja strák- ana að því, þetta er jú fyrsti dagurinn hjá mér. Þeir segja strákarnir að þetta sé ógurlega erfitt, en ég held að þetta sé aðal- lega lagni." Hvernig taka strákarnir á skipinu þessu? „Þeir voru mjög þverir og hneykslaðir fyrst þegar þetta kom til tals. Þeir sögðu að ég fengi aldrei að fara á dekk. ekki hjá Eimskip. En þeir hafa verið almennilegir, a.m.k. í dag.“ Þá gall við í einum félaga Sig- rúnar Eddu: „Það er sjálfsagt að leyfa henni að prófa, annars er kvenfólk ekki til annars en vaska upp og sofa hjá því. En maður verður að fara að hugsá um djobb- ið, ef kvenþjóðin kemst í þetta. Maður gæti hreinlega misst at- vinnuna." „Já, þeir eru með mikla for- dóma gagnvart mér,“ sagði Sigrún Edda, en þá er bara að sýna þeim að þeir fara villir vega. Þetta er ekki verri vinna en hvað annað. Maður fær alla vega tæki- færi til að sjá sig um.“ JH

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.