Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 09.08.1977, Qupperneq 23

Dagblaðið - 09.08.1977, Qupperneq 23
23 DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 9. AGÚST 1977. I Utvarp Sjónvarp Útvarp í kvSld kl. 19.35: íslenzku hreindýrin VEIÐAR OG BÆNDUR I útvarpinu í kvöld klukkan hálf átta flytur Baldur Snær Ólafsson erindi um íslenzk hrein- dýr. Fyrir nokkrum árum ótt- uöust menn að þessar fögru skepnur væru aö deyja út sökum ofveiði, því bæði var að skinnið af þeim er mjög gott til að vinna úr og eins er kjötið afskaplega bragðgott. Hreindýrin voru því friðuð um nokkurra ára skeið og stofninn náði sér á strik. í ár hefur aftur verið heimiluð veiði og má nú veiða 1500 dýr á ári. Ahugi manna hefur hins vegar minnkað á veiði á þessum dýrum og þau fá mikið að vera í friði. Bændur, sérstaklega á Héraði og í grennd, eru þó ekki alltof ánægðir með það því dýrin sækja niður í byggð á vetrum og er þá oft af þeim nokkurt ónæði, auk þess sem þau spilla beit fyrir blessuðum bústofninum. -DS. Sjónvarp kl. 20.45: Ellery Queen Þeir feðgar kannski eitthvað fyrir aðdáendur Agöthu gömlu Útvarp í kvöld kl. 23.00: Saga eftir Sundman samin upp úr Hrafnkels sögu Freysgoða — áhljóðbergi Björn Th. Björnsson listfræðingur hefur nú um nokkurra ára skeið séð um þáttinn A hljóðbergi. I þættinum í kvöld verður lesið úr nýlega útkominni sögu eftir Per Olof Sundman, verðlaunahafa bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Bókina samdi Sundman með Hrafnkels sögu Freysgoða I huga og byggist upp á svipuðum efnisþræði og saga Freysgoðans. Ellery Queen, sakamála- myndaflokkurinn i sjón- varpinu, fær misjafna dóma hlustenda.* Þeir feðgar lögreglu- foringinn sem alltaf er í vand- ræðum og sonur hans saka- málarithöfundurinn eru þar höfuðpaurar. Nýtt form er notað í þessum þáttum, þannig að áhorfendum eru í byrjun sýnd þau atriði sem mikilvæg eru til lausnar gátunni. Með því að hafa at- "hyglisgáfuna vakandi, á því áhorfandinn að geta komizt að sömu réttu niðurstöðunni og „junior" kemst ávallt að. Það getur því verið að þeir sem gaman hafa af að lesa t.d. Agöthu sálugu Christie fái út úr þessu nokkra skemmtun, því maður veit ekki fyrir hver sökudólgurinn er. Þó eru þættir þessir mjög mismunandi að gæðum, sá er sýndur var síðasta þriðjudag má t.d. teljast til þeirra skárri. -SG. Kvartmílu- klúbburinn: Vegna fyrirhugaðrar co-kart keppni biður kvartmiluklúbburinn alla co-kart eigendur að hafa samband við klúbbinn í síma 53221 eftir kl. 7 í kvöld og næstu kvöld. STJÓRNIN

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.