Dagblaðið - 03.09.1977, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 3. SEPTEMBER 1977.
Í5
RlOskemmtir
íWinnipeg:
Gamall
draumur
aðleika
aftur
íKanada
Þ6 að hljómleikaferð
Ríós sé löngu lokið er samt
einn konsert eftir — í
Kanada. Ríóhópurinn
leggur loft undir fót á
þriðjudaginn og flýgur til
menningarbæjarins
Chicago og þaðan til
Winnipeg í Kanada. Þar
verða haldnir einir
tónleikar á laugardag.
Að sögn talsmanns Ríós
hefur það staðið til á
hverju ári síðan 1973 að
leika í Winnipeg. Húsið,
sem leikið verður f, nefnist
Winnipeg Playhouse, og
þar hélt Ríó einmitt hljóm-
leika sumarið ’73.
Meginuppistaðan í
tónleikum Ríós vestra
verður prógrammið sem
leikið var í landreisunni í
sumar er hópurinn hitti
fólk. Kynningar verða
samt allar á ensku. Með í
förinni verða þeir Tómas
Tómasson bassaleikari og
Nikulás Róbertsson hljóm-
borðsleikari. Trommu-
leikara ætlar Ríó að ráða
á staðnum. -AT-
nikulAs róbertsson
slæst í hópinn ásamt
Tómasi Tómassyni.
öðru hvoru að undanförnu
hefur heyrzt í útvarpinu hressi-
legt rokklag sem nefnist Barra-
cuda. Hljómsveitin, sem flytur
þetta lag er svotil algjörlega
óþekkt hér á landi en er nú
óðum að öðlast frægð I Kanada
og Bandaríkjunum. Hún heitir
Heart.
Meginuppistaða Heart eru
tvær systur, Ann og Nancy Wil-
son. Þær semja alla tónlist
hljómsveitarinnar. Reyndar
fær aðalgftarleikarinn, Roger
Fisher, einnig að leggja eitt-
hvað til málanna öðru hvoru.
Ann sér auk þess um nær allan
sönginn og leikur lítillega á
flautu. Nancy raddar með
systur sinni og leikur á fjölda
hljóðfæra. Aðrir meðlimir
Heart eru Steve Fossen,
Michael Dorosier og Howard
Lesse.
Heart var upprunalega
stofnuð í Vancouver í Kanada.
Aðeins tveir stofnendanna eru
eftir — þeir Roger Fisher og
Steve Fossen. Fljótlega fluttist
hljómsveitin yfir til borgarinn-
ar Seattle í Bandaríkjunum þvf
að meira var að gera þeim meg-
in landamæranna.
Fyrsta plata Heart bar nafnið
Dreamboat Annie. Hún hlaut
góðar viðtökur í Kanada og
Bandaríkjunum og gullplötu í
Astralíu. Viðtökur nýjustu plöt-
unnar, Little Queen, eru enn
betri. Á henni er Barracuda
aðallagið.
A þessum tveimur plötum er
tónlistin sambland rólegra laga
þar sem mandólín og kassa-
gítarar eru mikið notaðir og
kröftugra rokklaga með sér-
kennilegu, persónulegu yfir-
bragði, eins og reyndar öll tön-
list Heart. Stærsti galli platn-
anna í heild er hversu sundur-
leit tónlistin er. Gagnrýnendum
kom yfirleitt saman um að
hljómsveitin verði að velja aðra
hvora tónlistartegundina sem
aðalefni á næstu plötu.
Filma með Heart
er á leiðinni
Lfkast til verður rokkið fyrir
valinu. Fyrir þá tónlist er
hljómsveitin þekktust. Sviðs-
framkoman þykir einnig mjög
góð og fá íslenzkir sjónvarps-
áhorfendur væntanlega að sjá
það sjálfir áður en langt um
lfður þvi að sjónvarpsfilma með
hljómsveitinni er á leiðinni að
utan. Þar flytur hljómsveitin
lagið Barracuda. Vissara er
fyrir áhugasama að vera vet á
verði því að þessi dagskrárliður'
verður tæplega auglýstur
frekar en annað uppfyllingar-
efni sjónvarpsins.
Wilsonsysturnar sjá um að
semja alla texta við lögin á
Heartplötunum. Þar er hug-
myndaauðgin mikil og ber því
vitni að báðar hugðust syst-
urnar verða rithöfundar áður
en þær sneru sér að tónlistinni.
Ann lagði jafnframt fyrir sig
myndlist og fær nú útrás við að
hanna sviðsfatnað hljóm-
sveitarinnar.
Hljómleikar annan
hvern dag í 10 mónuði
A sfðasta ári var Heart í tíu
mánuði á hljómleikaferðalagi
og lék á alls 150 konsertum. Þá
var hún reyndar upphitunar-
hljómsveit fyrir til dæmis
Beach Boys, Loggins And
Messina, Jefferson Starship,
Doobie Brothers og fleiri
hljómsveitir. Nú er Heart aðal-
atriðið á hljóinleikunum, en
aðrir verða að sjá um upp-
hitunarverkin. . AT -
HEART — frá vinstri eru Howard Lesse gítar- og hljómborðaleikari, Nancy Wilson, Michael Derosier trommari, Ann Wilson,
Steve Fossen bassaleikari og Roger Fisher gítaristi. — Islenzkum sjónvarpsáhorfendum gefst væntanlega kostur ð að sjá Heart I
kassanum sínum innan skamms.
Vaxandi hljómsveit
á alþjóðavettvangi
KANNSKIEITT-
HVAÐ FYRIR
OKKUR HÉR?
Það væri kannski eitthvað fyrir
islenzku húsmæðrafélögin að
reyna eitthvað svipað og
húsmæðrafélag eitt I Ann Arbor í
Michigan í Bandarfkjunum gerði
á dögunum.
Konurnar voru lengi búnar að
furða sig á því hvers vegna eigin-
menn þeirra fengu svona mikið út
úr því að horfa á fatafellur. Þeim
datt í hug að reyna að fá sína
eigin fatafellu á fund tii sin.
Þær fengu fönguiegan krafta-
karl frá Las Vegas til starfans. En
það voru alls ekki neinar frygðar-
stunur sem heyrðust frá konun-
um þegar pilturinn tíndi af sér
hverja spjörina á eftir annarri og
stóð loks í Adamsklæðum einum
saman. Þær skemmtu sér aftur á
móti hið bezta og hlátrasköllin
heyrðust um allt nágrennið.
Hudson kominn
í nýtt hlutverk
■
Hvað er að tarna? Er ekki
gamli góði Angus Hudson
kominn með skammbyssu f
hönd eins og hver annar bófi?
Hudson hefur nú sagt skilið
við starf hins fullkomna þjóns á
Eatontorgi og lagt leið sína í
veröld njósnaranna, þar sem
ákveðnir menn hafa bæði leyfi
til þess að bera byssu og bana
með henni.
Hann er sem sé búinn að fá
hlutverk í nýrri sjónvarpsmynd
sem nefnist The Professionals
og er væntanleg á markaðinn
frá BBC í haust.
t þessu nýja hlutverki sínu
lendir Hudson í tuski og slags-
málum. Þykir hann sýna
frækni í hlutverkinu og margir
honum yngri gætu verið stoltir
ef þeim tækist jafnvel upp og
Hudson karlinum.
Leikarinn sem fer með hlut-
verk Angusar Hudson í
Húsbændum og hjúum er
fimmtfu og fjögurra ára gamall
og heitir Gordon Jackson.