Dagblaðið - 03.09.1977, Page 24
f ' .....
Deila verkf ræðinga og borgarinnar harðnar:
BJOÐUM 44 ÞUSUND KRONA
LAUNAHÆKKUN Á MÁNUÐi
frfálst, úháð daghlað
LAUGARDAGUR 3. SEPT. 1977.
- á meðan aðrir fengu aðeins 18, þúsund segir launamálanefnd Reykjavíkur
- gagnrýnir talsmenn verkf ræðinga fyrir að skýra ranglega f rá staðreyndum
Talsmaöur verkfræðinga,
sem eiga í launadeilu við
Reykjavíkurborg, skýrir rang-
lega frá staðreyndum, brýtur
vinnulöggjöfina og telst vægast
sagt vafasöm heimild.
Svo telur launamálanefnd
borgarinnar sem ýmislegt
hefur við túlkun verkfræðinga
á kjaradeilunni að athuga.
Þeir hafi fullyrt að tilboð
Reykjavíkurborgar sé aðeins
um 7,5% hækkun á launum.
Nefndin segir það rangt.
Miðað við launabreytingar á
almennum vinnumarkaði í júlí
síðastliðnum segir launamála-
nefndin að tilboð hennar sam-
svari 24,32% hækkun.
í krónum bjóðist verk-
fræðingum hjá borginni tæp-
lega 44 þúsund króna launa-
hækkun á mánuði að meðaltali
á sama tima og launahækkun i
júlísamningunum hafi verið
18.000 auk sérkröfuprósentu.
Laun verkfræðinga mundu
samkvæmt tilboðinu hækka um
tæpar 9 þúsund krónur á
meðan laun almennt hækka um
3.500 krónur í september.
Er það vegna þess að vísitölu-
bætur til verkfræðinga hækk-
uðu eftir prósentum en um
krónutölu samkvæmt samning-
Það er ekki laust við að dálitið
Sandbúðir:
Veturinn hefur þegar
gert vart við sig
— rabbaðvið
hjón sem
nýlega hafa
byrjaðstörf
þar
Ung hjón, Vilmundur Þ.
Kristinsson lögregluþjónn og
Lísbet Sigurðardóttir, sem
vann á auglýsingadeild Dag-
blaðsins, vildu komast úr ys og
þys borgarlifsins og sóttu því
um veðurathugunarstarfið í
Sandbúðum. Þau fengu starfið
og lögðu í útlegðina fyrir
hálfum mánuði.
Dagblaðið hafði samband við
Vilmund í gær og lét hann vel
af sér og sinni konu. Nú væru
þau þó komin i rólegheitin.
Hann sagði að veturinn væri
strax búinn að gera vart við sig
þar efra og hvítt var yfir að líta
í gærmorgun og 5 stiga frost við
jörðu. Starf þeirra væri fyrst og
fremst fólgið í veðurathugun-
um og þegar lengra liði á vet-
urinn tækju einnig við snjó- og
ísmælingar. Þær mælingar eru
gerðar á vegum Orkustofnunar
og eiga þær að sýna hvar beztsé
að leggja rafmagnslínu norður,
þ.e. hinn fræga „hund“.
Vilmundur sagði að nóg væri
að gera og því yrðu tómstundir
ekki of marpar en h3u hefðu
reyndar birgt sig vcl upp áður
• en þau fóru oghöfðu in.a. með
sér 80 bækur að láni lrá Borgar-
bókasafninu. Þá hafa þau með
ýmislegt til handavinnu o.fl.
I útlegðinni sakna þau eðli-
lega ættingja og kunningja en
ekki svo mikið að orð sé á ger-
andi. I>au hefðu oft samband
erfitt sé að komast að þessu húsi
sem er nr. 102 við Hringbrautina.
Þarna hefur hreinlega verið neglt
fyrir hliðið og íbúi hússins, sem
er áttatíu og tveggja ára gömul
kona, verður að fara yfir girð-
ingu, að vísu lága, sem er á milli
garðanna, og ganga síðan yfir
garð nágranna síns til þess að
komast út á götu.
Þarna er vatnsveitan að grafa
og koma fyrir nýjum leiðslum.
Skiljanlegt er að ekki er hægt að
standa i vegi fyrir framkvæmdum
en er ekki nokkuð harkalega að
verki staðið, þegar fólk er
hreinlega „neglt inni“ á lóð sinni?
Þetta var eina húsið sem ekki
hafði „einkabrú" yfir skurðinn
þarna á Hringbrautinni. Beint
fyrir framan hliðið, sem neglt
hafði verið fyrir, var djúp gryfja
og i henni mikið vatn. -A.Bj.
1»
Myndin sýnir gjörla hvernig
konunni voru allar bjargir
bannaðar þegar hún vildi komast
frá heimiii sinu í gær.
DB-mynd Sv. Þorm.
Mynd þessi var tekin af Vilmundi í nokkuð óvenjuiegu starfi hjá Arbæjarlögreglunni sem sífellt á í
vandræðum með hross sem leita inn í ibúðahverfið. Óneitanlega minnir hann nokkuð á hinn fræga
McCloud úr sjónvarpinu. DB-mynd Sv. Þorm.
við þá og þeim iiði vel. Vil- kveðjur til þeirra sem þau kærar kveðjur til auglýsinga-
mundur bað fyrir sérstakar } þekkja og Lísbet bað fyrir deildarinnar á Dagblaðinu. - JH
ÖLDRUÐ K0NA „NEGLDINNI” í HÚSI
SÍNU
Tveirfrá
íslandi hjá
INTERP0L
— hvorugurþó
lögreglumaður
Alþjóðlegt þing dóms- og lög-
gæzlumanna allra þeirra landa,
sem aðild eiga að Interpol, er
haldið þessa dagana í Stokkhólmi.
Fulitrúar Islands á þinginu eru
þeir Jón Thors deildarstjóri hjá
dómsmálaráðuneytinu og Hjalti
Zóphóníasson fulltrúi sama
ráðuneytis.
Athygli vekur að enginn lög-
reglumaður sækir þingið héðan.
-HP.
Lögreglu-
menn
íhreinsunar-
störfum
Lögreglumenn í Reykjavlk
hafa orðið að taka að sér óvenju-
leg störf undanfarna daga. Meðal
verka sem þeir hafa verið sendir í
er að hreinsa opinberar bygging-
ar af áróðursplöggum, sem
einhver hópur þjóðfélagsþegna
hefur útbíað byggingar með. A
þessum spjöldum standa slag-
orðin Island úr NATO og herinn
burt eða eitthvað álíka. Er slíkt
látið afskiptalaust, nema þegar
opinberar byggingar eiga I hlut.
Þá eru jafnvel lögreglumenn
sendir út til aðstoðar hreinsunar-
deild Reykjavíkurborgar.
-ASt.
Alvarlegt
umferðar
slysá
Fjögurra ára drengur
varð fyrir bifreið um miðjan
dag í gær. Átti slysið sér stð
miðja vegu milli Reykja-
vegarog Gullteigs.
Litli drengurinn hlaut
alvarleg meiðsli á höfði.
Varð hann að gangast undir
aðgerð í gær og var ekki
vitað hvernig honum reiddi
af, er blaðið fór í prentun.
_________________ -ASt.
Stjórnsýsluhúsá
ísafirði:
Fógeti, banki
og sýslu-
maður undir
sama þaki
Sameiginlegt stjórnsýsluhús
fyrir bæjarfógeta, bæjarskrif-
stofur og Utvegsbanka tslands á
Isafirði er nú í athugun.
Er uppkast að samningi um
byggingu tilbúið hjá fjármála-
ráðune.vti og munu aðilar ræða
saman á næstu dögum og taka
ákvörðun um hvort úr verður.
Kom þetta fram á þingi
Fjórðungssambands Vestfjarða,
sem haldið var á Isafirði 27. og 28.
ágúst. -öG.