Dagblaðið - 08.10.1977, Page 11

Dagblaðið - 08.10.1977, Page 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. OKTOBER 1977. miðla á rithöfunda gæti verið þegar Luise Rinser, kaþðlskur rithöfundur, 66 ára gömul, ætlaði að lesa upp úr verkum sinum fyrir nemendur kvöld- skóla eins nálægt Stuttgart. Héraðsyfirvöld töldu ekki útilokað að hættulegir rót- tæklingar myndu mæta á upplesturinn. Niðurstaðan varð sú að ákveðið var að af- þakka upplestur frú Rinser. Skoðun Carls Dieter Sprangl- ers, þingmanns Kristilega sósálístaflokksins, flokks Frans Josef Strauss, er talin dæmigerð fyrir ýmsa hægri- sinnaða stjórnmálamenn. Hann telur að hryðiuverk öfgahópa í Vestur-Þýzkalandi hefðu aldrei orðið svo mikil og ógnarleg ef fjöldi áhrifamikilla rithöfunda, stjórnmálamanna, heimspekinga og háskóla- kennara hefði ekki gert lítið úr hættunni af þeim áður fyrr. Gunther Grass, Hein- rich Böil og Willy Brandt eiga sökina Meðal þeirra sem hann vill telja í þessum hópi eru rit- höfundarnir tveir, — báðir í hópi virtustu manna í sinni stétt, þeir Heinrich Böll og Gunther Grass. Báðir heims- frægir fyrir ritverk sín og sá fyrrnefndi nóbelsverðlauna- hafi eins og áður sagði. Spranger þingmaður telur Willy Brandt fyrrum kanslara Vestur-Þýzkalands og foringja jafnaðarmanna einnig i hópi hinna andvaralausu. Aðgerðir hœgrisinna og öfgahópa leiða til sama ógnaróstandsins Gunther Grass sagði i viðtali að sá einstrengingsháttur, sem hægrisinnaðir fjölmiðlar og stjórnmálamenn sýndu gagn- vart skoðunum annarra væri mjög hættulegur. Hættulegur vegna þess að hryðjuverkamennirnir stefndu einmitt að slikum viðbrögðum stjórnvalda. Ef öfgahóparnir ná því marki að ráðandi öfl svari þeim sjálfum og jafnframt öllum, sem ekki séu algjörlega sam- mála stjórnarstefnunni með harkalegum aðgerðum, jafnvel lögregluaðgerðum af harðara tagi, er illa farið, segir Gunther Grass. — Þá hafa hryðjuverka- hóparnir sigrað. — Þá hafa þeir náð því marki, sem þeir stefna að. — Þá hafa þeir skapað það andrúmsloft óvissu og hræðslu í þjóðfélaginu, sem þeir gætu aldrei náð með beinu vopna- valdi eða öðrum aðferðum. eða óhagkvæmni kaupanna, ef af þeim verður, komi nokkru sinni fyrir almenningssjónir, um viðskipti sem eru dæmigerð um litinn vott af þjóðfélagsvirð- ingu og enn minni af sjálfsvirð- ingu. En nú kemur annað vers. 1 þann mund er forystumenn í stjórnmálum og þingliði láta í ljós skoðanir sínar um hugsan- leg kaup hins opinbera á Tré- smiðjunni Viði birtist á sjónar- hólnum einn aðaleigandinn að Hótel Borg og lætur hafa eftir sér i blaðaviðtali í Morgunblað- inu: „Athugandi að gera Hótel Borg að ráðhúsi Reykjavfkur!" En er eitthvað rangt við það að stjórnarformaður Hótel Borgar láti í veðri vaka í blaða- viðtali að fyrirtæki hans, sem er eina hótelið í miðborginni, sé heppilegt sem ráðhús eða „ann- ex“ við Alþingi? Auðvitað ekk- ert annað en það að Hótel Borg er eina bygging landsins sem er hönnuð sem hótel og hæfir engri annarri starfsemi en þeirri sem þar fer fram. Við skulum að þessu sinni láta liggja milli hluta allt tal um þjóðfélagsvirðingu og sjálfs- virðingu eða áhuga á að við- halda þeirri reisn sem fyrsti eigandi og byggingarmeistari gáfu húsinu. Fúrðulegast er þó þegar menn, sem láta hafa eftir sér ummæli opinberlega eins og Vettvangur umræðu um valkosti — Um nýtt listatímarit „Svart á hvítu” Það er öllum ljóst sem fást við eða hafa áhuga á listum hér á landi að lengi hefur skort vettvang fyrir alvarlega um- ræðu um hlutverk þeirra, markmið og þróun almennt. Síðasta áratug eða svo hefur nær öll umræða um slíka hluti farið fram í gagnrýnisdálkum dagblaðanna, en það gefur auga leið að ekki er þar ávallt rými til að fjalla um listir á þann hátt, sem þær verðskulda. Flest þau listatímarit sem við höfum átt (og eigum, Gudskelov) hafa einblínt á bókmenntir, þótt stöku grein um aðrar listir hafi fengið að fljóta með. Kannski hefur verið erfiðara að afla slíkra greina en bókmenntaum- fjöllunar. Þ6 hefur það sýnt sig að listatímarit á breiðum grundvelli hefur mátt selja. Líf og list forðum var ansi lífseigt fyrirtæki og hið besta þessara rita, Birtingur starfaði með sóma um langt skeið. Mér er tjáð að það hafi ekki liðið undir lok vegna áhugaleysis, heldur vegna þess að aðstandendur gátu ekki leyft sér þann munað að eyða allri sinni orku og tima í það að reka ritið án þess að hljóta fyrir það nokkra umbun, enda voru þeir allir í öðrum störfum. Framtak einstaklinga Þessi rit grundvölluðust þvi á framtaki fórnfúsra ein- staklinga sem ekki höfðu fjárhagslegan bakhjarl. Það er augljóst hve miklu hlutverki gott tímarit af þessu tagi getur gegnt í menningarþjóðfélagi og það getur haft áhrif bæði inn- an lands og út á við. Iceland Review hefur t..a.m. lagt mikið upp úr því að kynna íslenska myndlist útlendingum og því starfi getur ritið aðeins haldið áfram með stuðningi ríkis- valdsins. Kannski á það eftir að styðja við bakið á reglulega vönduðu riti um íslenskar listir og erlendar. Einnig mætti hugsa sér að eitthvert dagblaða okkar gæti staðið að útgáfu vikurits um list í dagblaðsformi sem gæti þá fylgt með blaðinu einu sinni í viku. En meðan við gefum okkur dagdraumum á vald, reynir einstaklingsframtakið að halda starfinu áfram. Lystræninginn býr nú í Þorlákshöfn og er sæmilega víðtækt rit, þótt ekki séu skrifin oft skemmtileg. Nú , er hins vegar komið út myndar- legt rit frá aðstandendum Gallerísins að Suðurgötu 7 er nefnist Svart á hvftu en ætlunin er að gefa það út fjór- um sinnum á ári. Konfektkassi Ritnefnd er hógvær í for- mála sínum, segir ritið eiga að vera „vettvang umræðu um valkosti", en segir þó að það sé ekki ætlað að vera „einskonar konfektkassi handa staðreynda- fiknum menningarneyt- endum“, — hvernig sem þær skepnur eru útlits. Alls kyns myndlist er þarna að sjálfsögðu á oddinum, en þó er ætlunin að leita fanga i allar fram- sæknar listgreinar. Bróðurpartur efnis er frum- saminn, þ.á m. grein eftir tvo unga listamenn sem minnst verður á siðar, ljóð eftir Sigurð Pálsson og Stéinunni Sigurðar- dóttur, löng grein um framúr- jazz, lofgjörð um framúrrit Einars Guðmundssonar svo og rækileg umfjöllun um rússneskan fútúrisma i skáld- skap. Af erlendu efni má nefna þýtt viðtal við Werner Herzog, grein eftir júgóslavneskan marxista og ljóð eftir Jacques Prévert og Klaus Rifbjerg. Þarna er sem sagt mjög vel farið af stað og ritið þegar orðið marktækt innlegg í umræðuna um menningarmál. „Að móla, sýna, selja“ Þeir Steingrimur E. Krist- mundsson og örn Jónsson rita fremst grein um Að mála, sýna og selja, — að mörgu leyti einlæg og skynsamleg úttekt á stöðu Islenskrar myndlistar f dag þótt stíll hennar flæki oft rökstuðning höfunda. I stuttu máli álita þeir að hér riki mál- verkið á kostnað annarrar myndlistar, — að myndlistin sjálf sé orðin of sérhæfð og höfði til of þröngs hóps og nauðsyn sé að losna úr viðjum sýningarsala og peningamats. I tillögum um úrbætur eru þeir félagar sannir afkomendur Duchamps og fylgismenn rót- tækra listamanna eins og Jos- eph Beuys (3 myndir í blaðinu eru tileinkaðar honum) sem vilja afmá skilin milli lifs: og listar, gera allt atferli ng allar athafnir að sköpun. Þetta er aðlaðandi útópía en ansi erfið í framkvæmd og sé hún rökrænt til lykta leidd þýðir hún stjórn- leysi, þar sem listamaður getur e.t.v. skorið menn á háls í þágu sköpunar. Mér hefur einnig sýnst að Beuys og fylgismenn hans hafi uppgötvað að það væri erfitt að lifa án einhvers konar markaðsfyrirkomulags, — teikningar hans og grafík seljast fyrir stórfé og sjálfur étur hann ekki svo fisk að hann ekki haldi beinunum til haga og selji árituð. Útvíkkun 6 persónufrelsi Ég hef enga patentlausn á þessum málum, en ég held að flest vildum við búa við ein- hvers konar siðferðilegt lýðræði, þar sem liúamenneru listamenn og stjórnmálamenn stjórnmálamenn, en hinir siðar- nefndu væru tilbúnir til að viðurkenna og taka tillit til þeirrar útvikkunar á persónu- frelsi sem felst 1 allri sköpun. Slikt andrúmsloft er ekki fyrir hendi hér á landi, það er alveg rétt. En það hlýtur að ein- hverju leyti að falla á herðar myndlistarmannanna sjálfra að sýna að aðrir ,,valkostir“ eru fyrir hendi heldur en þeir sem mest hefur borið á. Gagnrýnendur, stjórnendur sýningarsala og eldri limir i FÍM geta ansi lítil áhrif haft á þróun mála. Hlutverk a.m.k. hinna tveggja fyrstnefndu er að bregðast við því sem gerist, ekki að segja fyrir um það. Ég held að höfundar geri einnig of lítið úr myndlist sem ,sérgrein‘ og myndlistarskoðun sem „sér- athæfi". Sé um framsækinn og næman listamann (eða „skapanda...") að ræða endur- speglar hann eða bregst við um- hverfi sínu öllu á þann hátt sem honum er tamastur. Vart er hægt að hugsa sér yfirgrips- meira atferli. Áhorfandinn tengist siðan þeim niður- stöðum, sem skapandinn kemst að og til þess þarf hann þekkingu, ekki „sérþekkingu" á myndlist einni eins og höf- undar álíta, heldur á umhverfi sínu, þeim siðareglum er þar gilda og hvernig því er stjórn- að. Enginn bannar svo áhorf- andanum sjálfum að leggja sitt til málanna, en framlag hans stendur og fellur á því hver þekking hans og skilningur er, — ekki út frá „formlegu" sjónarmiði, heldur fyrst og fremst út frá siðferðilegum mælikvarða. Hvatning til listamanna Dómar um list grundvallast ekki á tækni og efni ein- vörðungu og hvernig er með þetta tvennt farið heldur ættu þeir að byggjast á skoðun á verkum i viðara siðferðilegra samhengi. Hitt er svo annað mál, að mörg eru blæbrigðin í slíku samhengi og ekki allir á eitt sáttir. En vonandi verður þessi ritgerð þeirra Steingríms og Arnar til þess að fleiri lista- menn láti i sér heyra. Af þeim fáu myndum sem ég hef séð eftir Werner Herzog, hefur mér fundist hann hálf- gerður leiðindapjakkur, — að Storszek undanskildu. Alltént er ég orðinn leiður á því moldviðri sem blásið hefur verið upp i kringum marga þessa þýsku leikstjóra. Má ég, biðja um úttekt á suður- ameriskum leikstjórum eða nokkrum þeim vesturlanda- mönnum.sem enn liggja óbættir hjá garði, t.d. Lindsay Anderson, Jansco o. fl. En greinin um Herzog er vel læsileg. Ljóð þeirra Steinunnar Sigurðardóttur og Sigurðar Pálssonar eru vel gerð og staldra við í huga manns. Skáldskapur og myndlist Grein júgóslavneska marxistans Ingniatovic er f tyrfnara lagi, en manninum er greinilega mikið niðri fyrir. Grein Nielsar Hafstein um Einar Guðmundsson sannfærði mig ekki um ágæti verka hans, þótt maðurinn sé hinn elskuleg- asti. I lokin skrifar Einar Már Guðmundsson um fútúrisma, en á þar aðeins við hina rúss- nesku útgáfu stefnunnar og þá eingöngu skáldskapar- hliðina. Saknaði ég þar ein- hverrar greinargerðar á sam- spili skáídskapar og myndlistar á þessum tíma, hvernig bau hafa áhrif á hvort annað og hvaðan og hvernig fútúriskar tilhneigingar komu til Rússiá, því ekki urðu þær til þar. Það er ekki annað en óska aðstandendum til lukku með gott rit og óska þeim og ritinu langlffis, en það er selt í Galleríinu að Suðurgötu 7 og sjálfsagt annars staðar. Verð kr. 500. Myndlist AÐALSTEINN INGÖLFSSON Kjallarinn Geir R. Andersen Aron Guðbrandsson lét hafa eftir sér i Morgunblaðinu hinn 8. sept. sl. um ágæti Hótel Borgar sem ráðhúss eða fyrir starfsemi Alþingis, gefa út yfir- lýsingu síðar um að þeir sem hafa vitir ummælin fari með fleipur! I lesendabréfi, sem Aron Guðbrandsson skrifar í Dag- blaðið 30. sept. sl., leggur hann áherzlu á að sá er þetta ritar hafi farið með fleipur f grein sem undirritaður skrifaði i Dagblaðið, en þar stóð m.a.: „Og nú hefur Hótel Borg verið boðin til sölu — helzt til hins opinbera — sem ráðhús eða „annex“ við Alþingi, sam- kvæmt uppástungu eins eigand- ans, þess sama og meitlað hefur i stein boðorðin um „aðstöðu- gjald" fyrir varnarliðið." Aron segir í lesendabréfi sínu að á stjórnarfundum sam- nefnds hlutafélags (þ.e. Hótel Borgar) hafi aldrei verið minnzt á að selja fyrirtækið og þess vegna hafi engum verið gefið umboð til þess að bjóða það neinum til kaups, hvorki ho’num né öðrum. Ekki skulu orð Arons ve- fengd né rangfærð. Hins vegar getur Aron vart sjálfsvirðingar sinnar vegna borið til baka um- mæli þau sem blaðamaður Morgunblaðsins hefur eftir honum orðrétt, svo sem: „At- hugandi að gera Hótel Borg að ráðhúsi Reykjavíkurborgar", og sem er haft sem fyrirsögn I viðtali við Aron í Mbl. 8. sept. sl., né þau ummæli Arons, að hann teldi rétt að annað hvort riki eða borg eignuðust húsið og það gert að ráðhúsi borgar- innar eða þá einhver starfsemi Alþlngis þangað fiutt (einnig úr sama blaði). Ennfremur segir Aron í nefndu blaðaviðtali m.a. „Við eigendur Hótel Borgar erum orðnir gamlir menn og fyrr eða síðar munum við selja húsið fagra við Austurvöll... það er okkur mikið kappsmál að húsið komist i hendur aðila, sem áhuga hafa á þvi og eru færir um að viðhalda þeirri reisn...“ o.s.frv. Siðan heldur Aron áfram að lýsa því hve heppilegt húsnæði Hótel Borgar sé fyrir ráðhús Reykjavíkurborgar, að það sé traustbyggt og hægt að innrétta í því skrifstofur á auð- veldan hátt. Ef slikar yfirlýsingar sem hér er vitnað til má ekki flokka undir áróður fyrir þvi að hið opinbera kaupi Hótel Borg, þótt ekki sé sett fram hin hefð- bundna auglýsing „Til sölu“, — þá dylst engum hvað vakað hefur fyrir stjórnarformanni hótelsins, þegar hann lætur hafa eftir sér ofangreind ummæli i blaðaviðtali. Þvi er það, að sá er þetta ritar telur sig ekki hafa farið með fleipur er hann tekur um- mæli og yfirlýsingar Arons um að ríkið eða borgin væri heppi- legur eigandi Hótel Borgar sem dæmi um þa menn eða samtök sem setja fram tillögur, sem i má merkja lítinn vott af þjóð- félagsvirðingu en engan af sjálfsvirðingu, tillögur sem miða að þvi að láta aðra rétta sér hlutina, — hið opinbera kaupi. Borgarstjóri sá ástæðu til þess að taka fram að hann teldi æskilegast að hótelrekstur héldi áfram í miðborg Reykja- vfkur og því hefur hugmynd Arons, að því er varðar sölu Hótel Borgar, verið kurteislega vísað á bug. Það skal hins vegar tekið undir öll þau ummæli stjórnar- formanns Hótel Borgar, sem miða að þvi að gera veg hótels- ins sem mestan, svo og að bygg- ing hótelsins hafi verið stór- brotin framkvæmd á sinum tíma og þvi sé honum (og flest- um er til þekkja) kappsmái að húsið komist i hendur aðila, sem hafa ahuga á þvf og eru færir um að viðhalda þeirri reisn og minningu þess fólks, sem að byggingu Borgarinnar stóð í byrjun, byggingameistar- ans, Guðjóns Samúelssonar, Jóhannesar Jósefssonar og konu hans. Slikri reisn verður hins vegar ekki viðhaldið með þvi að selja hótelið aðilum sem ekki geta notfært sér þá hagkvæmni sem felst I byggingarstil og inn- réttingu hússins sem hótels. Það er ekki áhorfsmál að meiri þjóðfélagsvirðing og sjálfsvirðing er fólgin i þvi að viðhalda Hótel Borg sem hóteli i miðborginni eins og það hús er byggt fyrir, heldur en hrópa „Til komi okkar rlki" þegar að sölu kemur. Geir R. Andersen.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.