Dagblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 13

Dagblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 13
Dinamo Kiev ef st í Sovét Dinamo Kiev, mótherjar ÍA í Evrópu- keppni meistaraiiða fyrir tveimur árum, stefnir nú í sovézka meistaratitilinn. Dinamo Kiev frá Kænugarði hefur nú fjögurra stiga forustu eftir ósigur Dinamo Tiblisi nú um helgina. Tiblisi tapaði fyrir Torpedo Moskvu í Tilblisi, 2—3. Dinamo Kiev sigraði hins vegar Neftchi frá Baku við Svartahaf 2—0. Eftir 27 umferðir er staðan efstu liða í deildakeppninni i Sovétríkjunum. Dinamo Kiev 27 12 14 1 45-12 38 Dinamo Tiblisi 27 11 12 4 40-26 34 Torpedo Moskva 27 11 10 5 25-19 32 Dinamo Moskva 27 8 15 4 32-20 31 Locomotiv Moskva 26 9 13 4 26-21 31 Athyglisverð eru hin mörgu jafntefli lið- anna svo og hve lítið virðist skorað í sovézkri' knattspyrnu. Aðeins Dinamo Kiev og Dinamo Tibiisi eru þar undantekning — þó í sjálfu sér skori þau ekki mörg mörk. Manch. Utd. vann íran Manch. Utd. lék í gær í Teheran við lands- lið íran og sigraði 2—0. Þeir Steve Coppell og Chris McGrath skoruðu mörk United. Iran hefur mesta möguieika landanna í Asíu og Eyjaálfu að komast í úrslitakeppni HM í Argentínu næsta ár. íran hefur fimm stig eftir þrjá leiki í úrslitakeppninni — eina landið, sem ekki hefur tapað leik. A Iaugar- dag gerðu Suður-Kórea og Astralia jafntefli 1-1 í Seoul og eftir þau úrslit eru möguleikar Astraliu að komast í úrslitin nánast úr sög- unni. HM íbridge: Bandarísku sveitirnareruefstar Heimsmeistarar USA-1 tryggðu stöðu sína á HM í bridge í ManiIIa í gærkvöld með afgerandi sigri gegn Taiwan, 20-0. USA-1 hefur nú afgerandi forustu eftir sjö umferðir í Manilla þrátt fyrir tap, mjög óvænt tap gegn USA-2 í sjöttu umferð, 9-11, eftir að USA-2 hafði fengið mínus stig í fyrstu umferð. Hins vegar töpuðu Evrópumeistarar Svía fyrir Astralíu 14-6 — og þvi stefnir í úrslit USA-1 og USA-2 þó baráttan sé enn í algleymingi. USA-2 tapaði í gærkvöld fyrir Argentínu þannig að annað sætið er enn opið. Svíar spila í dag við báðar bandarísku sveitirnar og þurfa að standa sig vel ef þeir ætla sér að koma í veg fyrir úrslit USA-1 og USA-2. Staðan eftir sjö umferðir — þrjár umferðir eftir er nú: 1. USA-1 106.75 2. ÚSA-2 76.75 3. Svíþjóð 70.75 4. Argentína 63.00 5. Astralía 50.00 6. Taiwan 42.75 Valur mætir Horvet — FH til A-Þýzkalands — Valsmenn mæta ungversku meisturunum Horvet, FH mætir a-þýzku bikarmeisturunum f rá Frankf urt Í3. umferð Evrópukeppninnar „Ég er ánægður með að hafa fengið ungversku meistarana Horvet. Það þýðir að við stöndum jafnt í byrjun, við eigum alveg jafnmikla möguleika og þeir á að komast í 3. urnferð," sagði Þórður Sigurðsson, formaður handknatt- leiksdeildar Vals eftir að fréttist að Valur hefði dregizt gegn ung- versku meisturunum Horvet. Bikarmeistarar FH fengu hins vegar öllu erfiðari mótherja, a- þýzku bikarmeistarana frá Frankfurt við Oderfljót. Vissu- lega erfiður leikur Geirs Hallsteinssonar og félaga. V-' þýzku bikarmeistararnir, Gumm- ersbach mæta gamla liðinu hans Bjarna Jónssonar, Aarhus KFUM, í 2. umferð — einna at- hyglisverðasti leikurinn í 2. um- ferð Evrópukeppni bikarhafa. Leikirnir fara fram á tímabilinu 8.-20. nóvember. Annars er i raun aðeins einn stórleikur í 2. umferð — þá mæia v-þýzku bikarmeistarnir Gummersbach gamla liðinu hans Bjarna Jónssonar, Aarhus KFUM. Lugi, liðið hans Jóns Hjaltalíns í Svíþjóð, mætir VIF Dimitrov frá Búlgaríu. Annars varð drátturinn í 2. umferð Evrópukeppni bikar- hafa í handknattleik: Hapoel, Israel—Radnicki, Júgóslavíu, Njarðvíkingar léku tvo leiki í 2. deila Islandsmótsins í handknatt- leik í Vestmannaeyjum um helg- ina, við Tý og Þór, í nýju íþrótta- höllinni. Þar sem ekki var flogið tóku Njarðvíkingar sér far með Herjólfi klukkan tvö og voru komnir til Eyja um sex-leytið. Þrátt fyrir magaólgu og flökur- leika gekk þeim allvel í fyrri leiknum gegn Tý, alveg þar til undir lokin, að þeir misstu niður tveggja marka forskot, þegar rúm Hermes, Holland — Strojanry, Tékkósióvakíu, Gummersbach, V- Þýzkaland — Aarhus KFUM, Danmörku, Szegedi, Ungverja- landi — Barcelona, Spáni, Anilana Lodz, Pólland — Zurich, Sviss, Lugi, Svíþjóð — VIF, Dimitrov, Búlgaríu.Norsku bikar- meistararnir frá Stavangri mæta Metz frá Frakklandi. minúta var til loka, en á þeim tíma tókst heimamönnum að jafna, 20:20. I seinni leiknum gekk allt á afturfótunum hjá Njarðvíkingun- um þar til 10 min. voru Iiðnar af seinni hálfleik. Þórsarar sem höfðu haft leikinn alveg í hendi sér og náð 7 marka forskoti, glopruðu öllu niður og urðu að sætta sig við tap, 19:20, svo að Njarðvíkingar fóru með þrjú stig heimleiðis frá Eyjum. emm Geir Hallsteinsson og félagar úr FH fá erfiða andstæðinga í 2. umferð, a-þýzku bikarmeistarana. fta/ia - skipar sér aftur á bekk beztu knattspym —eftir vonbrigði HM fV-Þýzkalandi líta menn nú til ítalfu aftur - og þaðan kemur ferskleikasvipur sóknarknattspymu „ítölsk knattspyrna er ekki það sem hún var, viðhorf Itala gagn- vart knattspyrnu hefur gjörbreytzt,“ sagði Helmut Schöen landsliðseinvaldur V- Þjóðverja nýlega eftir sigur heimsmeistaranna gegn ítölum, 2-1 í Berlín. Leikur V-Þjóðverja og Itala þótti framúrskarandi skemmtilegur—leikur ákaflegra jafnra iiða. ítalir sóttu mjög í fyrri hálfleik og það var alveg JUOO iyriiinariiániskei^ hefst I- nóv. nk. Japanski þjálfarinn Yoshihiko Yura kennir. Innritun og uppl. í síma 83295 alla virka daga frá kl. 13—22. JÚDÓDEILD ÁRMANNS Ármúla 32. gegn gangi leiksins að V- Þjóðverjar skoruðu. En V- Þjóðverjarnir náðu sér betur á strik í siðari hálfleik þrátt fyrir nauman sigur, 2-1. Það sem Schöen átti við, að ítölsk knatt- spyrna væri ekki þar sem hún var, er að í stað stífrar varnar- knattspyrnu leika Italir nú opna sóknarknattspyrnu — landslið þeirra er nú á þröskuldi úrslita HM í Argentínu. Italska landsliðið er byggt upp af þröngum kjarna leikmanna frá liðum iðnaðarborgarinnar Torinó við rætur Alpafjalla, meisturum Juventus og Torino. Siðan Enzo Bearzot tók við stjórn landsliðsins 1975, fyrst í samvinnu við Fluvio Bernadini, og nú síðast einn, hefur stíll ftalska landsliðsins breytzt mjög. Það kom berlega i ljós í Berlín, það kom enn skýrar fram nýlega í HM-leiknum við Finnland þegar eldsnöggir og liprir framherjar Italíu, með Bettega í fararbroddi, gjör- sigruðu Finna 6-1 i Torinó. Italir eru því á þröskuldi úr- slita HM í Argentfnu — nánast aðeins formsatriði að ljúka þeim leikjum sem eftir eru í riðlinum. Þar á meðal er síðari leikur Itala við Englendinga á Wembley. Eng- lendingar, heimsmeistararnir frá 1966, hafa nánast enga möguleika á að komast i úrslit HM. Enzo Berzot er, þrátt fyrir velgengni undanfarið, ekki of bjartsýnn: „Við eigum enn tals- vert í land. Áður en við höldum ti^ Argentínu, munu menn einblina á V-Þjóðverja og Hollendinga, jafnvel^ Skota. En við erum á réttri leið.“ Italía sigraði England 2-0 í Róm í fyrri leik þjóðanna í HM — raunar sá leikur sem opnaði hlið að úrslitum HM. En þrátt fyrir það segir Bearzot, „var ég ánægðari með leik okkar við Englendinga í New York á síðasta ári. Við leikum hreint stórkost- lega í fyrri hálfleik og höfðum yfir 2-0 í leikhléi — aðeins til að tapa 3-2, fengum þrjú mörk á okkur á 5 mínútum. Sá leikur veitti mér meiri ánægju vegna hins góða leiks okkar, en sigurinn i Róm, þó mikilvægur væri. Leik- urinn i New York sannaði að við vorum á rétti leið." Enzo Bearzot, eftir sigurinn gegn Englendingum í Róm, 2—0. Italir eru nú að rísa upp aftur sem stórveldi á knattspyrnu- sviðinu — eftir niðurlægingu siðustu heimsmeistarakeppni. Italir komust í úrslit — en ekki átta-liða úrslit í V-Þýzkalandi. ítalir áttu í mesfu erfiðleikum með að sigra Haiti, voru raunar undir á tímabili.í síðari hálfleik. Síðan tap gegn Póllandi og jafn- tefli gegn Argentínu — og HM draumurinn búinn. Argentínu- menn sigruð Haiti 4-1 og komust áfram á betri markatölu. En draumurinn var búinn — en það sem meira var, orðstír ítalskrar knattspyrnu var f rúst. Jú, Italir þóttu leika ákaflega neikvæða knattspyrnu. Þeir hugsuðu meir um að verjast marki en að skora. Síðastliðin ár hafa Torinó- risarnir Juventus og Torino einokað ítalska knattspyrnu. Torinó varð ítalskur meistari 1976 eftir lægð margra undan- farinna ára — en Juventus hreppti titilinn í vor eftir mikla baráttu við Torino — sem tapaði aðeins einum leik allt keppnis- tímabilið. Juventus hefur nú tekið forustu í 1. deildinni á Ítalíu, eftir fimm umferðir—hefur hlotið sjö stig. Um helgina vann Juventus stórsigur, sigraði Fiorentina 5-1 í Torínó. Nágrannar þeirra, Torinó, töpuðu hins vegar 1-0 gegn Foggia. Annars urðu úrslit á Italíu um helgina Atlanta-Napoli 1-1 Bologna-Perugia 2-3 Foggia-Torino 1-0 Genúa-Verona 2-2 Inter Milanó-Lazio 1-1 Juventus-Fiorentina 5-1 Vicenza-Pescara 1-1 Roma-AC Milanó 1-2 Staða efstu liða eftir fimm umferðir á Italíu er nú Juventus 5 3 1 1 13-6 7 Genúa 5 2 3 0 8-5 7 AC Milanó 5 2 3 0 9-6 7 Perugia 5 3 1 1 9-8 7 Atlanta 5 1 4 0 5-4 6 ísland mætir Noregi á NM í Reykjavík! —á f immtudag. ísland í riðli með Dönum og Norðmönnum Svíar mæta Færeyingum og Finnum Norðurlandamótið í handknatt- leik hefst í Reykjavík á fimmtu- dag með leik íslands og Noregs í Laugardalshöll. Síðan leika Islendingar við Dani, and- stæðinga sína í HM í Danmörku. Arangurs íslenzka liðsins er beðið með mikilli eftirvæntingu — raunverulega eru helztu fyrstu marktæku Iandsleikir íslands eftir B-keppnina í Austurríki. Nú þegar verkfalli BSRB er lokið er ekkert spurningarmerki yfir HM í handknattleik — af því verður. Island er í riðli með Dönum og Norðmönnum, Svíar fá hins vegar létta leiki, Færeyinga og Finna. Fyrsti leikur NM verður á fimmtudag, þá mætast í Laugardalshöll Færeyingar og Finnar. Að loknum þeim leik mæta íslendingar Norðmönnum. Síðan leika íslendingar við Dani á laugardag — og úrslit NM verða á sunnudag. Til stóð að ljúka fjórum umferðum fyrir NM í Reykjavik. En vegna verkfalls BSRB tókst það ekki — aðeins KR hefur lokið fjórum leikjum. íþróttir Allar líkur eru á að tslands- mótinu verði frestað framyfir HM i Danmörku. Fjórir leikir eru eftir af þeim fjórum umferðum sem fyrirhugaðar voru — það er, Haukar-Armann, FH-Valur, ÍR- Fram og Víkingur-FH. Þó er ekki endanlega gengið frá því — en næsta vfst að leikir risanna þriggja, Vals, Víkings og FH, verði frestað. Eftir NM í Reykjavík mun ísienzka liðið halda til V- Þýzkalands, leika þar tvo lands- leiki við V-Þjóðverja. Þeir verða 4. og 5. nóvember. Þá verður haldið í æfingabúðir í Póllandi — þar tekur landsliðsþjálfarinn, Janusz Czerwinski við stjórn — og tveir landsleikir verða við Pól- land. Þá verður farið til Svíþjóðar og leikið 16. og 17. nóvember við Svía, sigurvegarana frá B- Björgvin Björgvinsson, íslena- ingar munu sakna hans í NM. keppninni í Austurriki. Þá loks koma landsliðsmennirnir heim úr löngu ferðalagi — og í desember verða landsleikir við Frakka eða Hollendinga og Ungverja.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.