Dagblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 1

Dagblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 1
Talið að það kosti ríkissjóð um einn milljarð króna Þaö var klukkan 7.20 í morgun að stjórn og samninga- nefnd BSRB greiddu atkvæði um sáttatillögu ríkisins eftir þrotlaust samningaþóf sem staðið hafði með hléum frá klukkan 21.30 í gærkvöldi. Atkvæði féllu þannig að 29 voru henni samþykkir en fimm voru á móti. í aðalatriðum er almenn hækkun launa ca 21%, en til glöggvunar má nefna að hækkunin í 1. fl. er 14.7%, í 5. fl. 14,2%, í 10. fl. 18,52%, í 15. fl. 20,19% í 25. fl. 12,8% og í 30 fl. 11%. 3% áfangahækkun kemur til framkvæmda 1. apríl 1979. Ríkið samþykkti að greiða fjögur þúsund krónur ofan á laun í september, október og nóvember f ár, en upphafleg krafa BSRB var 2000 kr. frá 1. ■M júli í ár. Þá var samþykkt að greiða persónuuppbót, sem verður að teljast verulegur sigur fyrir BSRB, sem ekki hefur haft slíka uppbót í sínum samning- um. Skal hún vera 40 þús. kr. eftir tíu ára starfsaldur og miðast við hann þannig að fólk sem kannski vinnur ekki nema hluta úr starfi hlýtur einnig uppbótina. Er þar um að ræða næstum því helming allra félaga í BSRB og verður upp- bótin greidd í desember. , Loks var klausa um gagn- kvæma kröfu á endurskoðun samningsins á samningstíma- bilinu, sem er tvö ár, samþykkt, en hún felur ekki í sér verk- fallsrétt á samningstímabilinu. Þá var samþykkt að greiða kaffitíma eftir að dagvinnu lýkur og eftirvinna hefst, en krafa BSRB um að fá a.m.k. tvo laugardaga inn i orlofs- greiðslur var felld. Það vakti athygli allra er við- staddir voru samningaviðræð- urnar í gær og í nótt að sáralítið hafði verið hreyft við málunum frá því að síðasta tillaga BSRB var lögð fram á laugardags- morgun. Hin fjölmenna samninga- nefnd hefði verið boðuð til furídar kl. hálfellefu, en í raun og veru var ekki haldinn fundur með henni fyrr en kl. 4.55. í nótt. Þá höfðu smærri nefndir unnið sleitulaust að því að reyna að samræma afstöðu deiluaðila, m.a. var horfið að því ráði að láta tvo fulltrúa BSRB, þau Valgerði Jónsdóttur og Harald Steinþórs- son ræða við Höskuld Jónsson og Þorstein Geirsson frá fjár- málaráðuneytinu um persónu- uppbótina en þeir ráðherrar, Matthías og Halldór, ásmt Kristjáni Thorlasíus fengu fri á meðan. Var heitt í kolunum um tíma og sást Höskuldur Jónsson ganga um röskum skrefum upp úr hálftvö og þá fóru hjólin að snúast. Fulltrúar Starfsmannafélags ríkisstofnana, sem töldu s:g ekki hafa fengið nægilego - kjarabætur, héldu með r fund skömmu áður en func r- inn með stóru samhinganefnd- inni var haldinn kl. 4.55 í nótt og var um tíma talið að þeir myndu leggjast eindregið gegn hvers konar samningum á þessu stigi málsins og jafnvel ganga af fundum. Til þess kom þó ekki, en skömmu eftir að fundurinn hófst var borin fram tillaga um að fresta umræðum til klukkan eitt I dag. Var hún felld en tekið til við að af- greiða málið, enda var aug- ljóst að flestir nefndarmanna voru orðnir þreyttir á þessu verkfalli, sem staðið hafði í hálfan mánuð. Um kl. hálfátta héldu þeir Haraldur og Kristján svo á fund ráðherra, þar sem þeim var kynnt niðurstaða fundarins ■jg rætt var um tæknilegar hhðar frestunar verkfallsins í viðurvist Torfa Hjartarsonar sáttasemjara. Samkomulagið verður svo undirritað formlega kl. 18.00. Verkfallinu var frestað til kl. 24 15. nóv. nk. en nú fer í hönd þriggja mánaða samningstíma- bil hjá félögunum, sem meðal annars felur í sér röðun í launa- flokka. HP 1 ig|pW® é ■ sfj plát Dagskrá Sjónvarps íkvöld 20.00 Fréttir og voöur. 20.25 Auglýsingar og dagskri. 20.30 Landkönnuöir. Leikinn. breskur heimildamyndaflokkur I 10 þáttum um ýmsa kunna landkönnuði. 2. þatt- ur. Chartas Doughty (1843-1926). Handrit David Howarth. Leikstjóri David McCallum. Aðalhlutverk Paul Chapman. Charles 21.20 Á vogarskálum. (L). t þessum þætti verdur m.a. fjallað vui likamsrækt og lýsir dr. Ingimar Jónsson gildi hennar. Umsjónarmenn Sigrún Stefánsdóttir og dr. Jón óttar Ragnarsson. 21.50 Morðið á auglýsingastofunni (L) Nýr, breskur sakamálamyndaflokkur í fjórum þáttum um ævintýri Wimseys lávarðar, byggður á skáld- sögu eftir Dorothy L. Sayers. Aðal- hlutverk Ian Carmichael, Mark Eden og Rachel Herbert. 1. þáttur. Auglýs- ingateiknarinn Victor Dean er nýlát- inn. Ilann cr talinn hafa látist af slys- förum. Fjöldi nýrra áskrifenda DB Gífurlegur fjöldi nýrra áskrifenda tilkynnti sig'til Dag- blaðsins í gærdag. Á þar ugg- laust stærstan þátt áskrifenda- leikurinn sem blaðið efnir til næstu mánuðina. 1 boði er glænýr CHEVROLET NOVA 1978, bíll sem kostar 3.3 milljónir króna. Vinningur sem sannarlega skiptir sköpum í fjárhag flestra fjölskyldna. Gamlir áskrifendur og þeir sem gerast áskrifendur fyrir næstu mánaðamó! verða með 6 miða í „pottinum" hjá okkur þegar dregið verður þann 10. apríl. Þeir sem byrja eftir mánaðamót fá fimm miða, þeir sem byrja eftir 1. desember verða með 4 miða o.s.frv. Að drætti loknum verður hinum heppna boðið, sér að kostnaðar- lausu, án tillits til hvar á landinu hann býr, að heim- sækja ritstjórn DB. Þar á hann að svara léttri spurningu: „Hver er ritstjóri Dag- blaðsins?" í morgun var unnið að þvi að kalla fólk út til vinnu i opinberar stofnanir. Utvarpið fór í gang kl. 9 og ríkið opnaði á slaginu og ættu þvi þyrstir að geta svalað þorsta sínum og reyklausir að fá sitt. Allt var gert klárt hjá Toll- gæzlunni og verða skipin toll- skoðuð og tekin inn i þeirri röð sem þau komu eða eftir óskum skipafélaganna. Lif fer því að komast i samt lag þó auðvitað taki nokkurn tíma að ná upp þeim töfum sem orðið hafa vegna verk- fallsins. JH ELDING EYÐILAGÐI AÐFLUGSUÓSIÐ Eldingu laust niður í flug- turninn á Keflavíkurflugvelli kl. 4.25 í nótt. Lenti eldingin í spenni aðflugsljósa vallarins og brann spennirinn. Slökkviliðið á vellinum var þegar kvatt á vettvang og réði það niðurlögum eldsins á skömmum tima. Beinn eldur varð aldrei mikill en reyk lagði um allan turninn. Spennirinn var aftengdur og fjarlægður að sögn Sveins Eirikssonar slökkviliðsstjóra. Síðan var reyk dælt úr húsinu og var slökkviliðið aftur komið i sínar stöðvar 40 mín. eftir útkallið. Sveinn taldi tjón óverulegt ef spennirinn, sem er dýr, væri undanskilinn. Skemmdir hefðu ekki orðið á öðrum tækjum og reykskemmdir væru Iitlar sem engar. Aðflugsljós vallarins er óvirk, en Sveinn taldi að viðgerð tæki stuttan tíma og lyki f birtu í dag. Sams konar eldur varð á vellinum fyrir nokkrum árum, þá eyðilagði elding allt kallkerfi turnsins. -ASt. . Nýttmet DBígær: 36.512 eintök Hassmálið í Frakklandi: PILTURINN LAUS, - STÚLKURNAR L0SNAí NÆSTU VIKU — bls.5 Milljónar- þjófnaður í Lambastekk Rúmlega milljón krónum, að mestu leyti í reiðufé var stolið úr íbúð að Lamba- stekk 9 í gær. Var^ þjófnaðarins vart er fólk kom heim i gærkvöldi. Auk peninganna er lltill hluti heildarverðmætisins i happdrættisskuldabréfum. Ekkert hefur enn fundizt sem bendir til hverjir voru þarna að verki en ibúð var mannlaus siðari hluta dags i gær. Á sunnudaginn var farió inn i aðra mannlausa fbúð i Garðabæ. Húsbóndi þar liggur i sjúkrahúsi. Þaðan var stolið 160 þúsund krón- um f reiðufé. Tveir 23 ára menn voru teknir f' sambandi við það rán og hafa játað verknaðinn. Gátu þeir skilað þýfinu, að u.þ.b. 30 þúsund krónum undan- skildum.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.