Dagblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 25.10.1977, Blaðsíða 5
DACiBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 25. OKTOBER 1977. 5 Enn þokkalegt ástand íverzlunum Ástandið versnar ef verkfallið helzt út vikuna Enn er astand í verzlunum nokkuö gott og vöruskortur vegna verkfalls ekki orðinn verulegur a nauösynjavöru. En standi verk- fall út þessa viku gera kaupmenn rað fyrir því að fjöldi vöruteg- unda seljist upp, t.d. sykur og hveiti, erlendar korn- og pappírs- vörur. Þa eru bananar búnir og aðrir avextir víða a þrotum. Það er aiit kaupmanna að þótt verk- fall leysist bratt taki það a.m.k. 10 daga að jafna þennan skort því stórar heildsölur eru orðnar vöru- litlar og sumar viðkvæmar vöru- tegundir eins og bananar hafa ekki verið pantaðar og mun þær því skorta a næstunni. Sígarettur teknar að reskjast Tóbak mun nú víðast þrotið í verzlunum en a nokkrum stöðum er enn eftir píputóbak og tóbak til að vefja sígarettur, en sígarettur búnar. Það hefur þó gerzt að all- gamlar sígarettur hafa litíð dags- ins ljós og í söluturni einum fékkst í gær Chesterfield pakki og a honum var miði Landgræðslu- sjóðs en það er fjöldi ara síðan hætt var að selja sígarettur með þessum miðum. Væntanlega hafa þær veriö farið að þorna nokkuð og gæðin hafa líklega verið af skornum skammti. Verzlanir Siaturfélags Suður- lands skaru sig þó úr og attu nóg af sígarettum að undanskildum Winston sígarettum, en sjoppu- eigendur voru farnir að kaupa stóra skammta af sígarettum hja Siaturfélaginu, þannig að ekki er ljóst hve lengi birgðirnar endast þar. DB hringdi í nokkrar stórverzl- anir í gær og kannaði astandið þar. I verzluninni Hagkaup er tóbak a þrotum svo og bananar og aðrir avextir að verða búnir. Dropar fra ÁTVR eru einnig að kiarast og að sögn Ragnars Har- aldssonar þrýtur næst kex, kló- settpappír og eldhúsrúllur. Guðmundur Gestsson hja SS í Glæsibæ sagði að enn væri tölu- vert til af tóbaki því að keyptur hefði verið tvöfaldur skammtur fyrir verkfallið, en sjoppueigend- ur keyptu margir fyrir 50-100 þús- und kr. hver af sígarettum þannig að ekki væri gott að segja hvað þær entust. Það eina sem vantar eru bananar. I Víði í Starmýri vantar tóbak, Víðiskaffi, banana og fljótlega aðra avexti, sykur og hveiti. 1 Vörumarkaðinum er farið að bera a vöruskorti en mest a ónauðsynjavöru en að sögn Sigurðar Tryggvasonar verður astandið ljótt ef verkfallið stendur út vikuna. Þa mun vanta — Tóbaksleysi kvelur menn, sígarettur þó til ef vel er leitað hveiti, sykur, avexti, erlenda pappírsvöru og erlent þvottaefni. Ýmislegt drukkið Eins og skýrt hefur verið fra eru barir veitingahúsanna óðum að þorna og eitt veitingahús hefur þegar lokað. Þar sem opið var drukku gestir hinar furðulegustu blöndur og varð ekki öllum gott af þeim kokkteilum. Það fréttist af einum sem drakk apríkósulíkjör í kók og mun hann ekki mæla með þeirri blöndu í næstu kokkteila- keppni barþjóna. -JH. Chesterfield-pakkinn góði sem raunar ætti betur heima a minja- safni en í vasa reykingamanns. DB-mynd Sv. Þ. Hassmálið í Frakklandi: Pilturinn laus—stúlkurnar losna í næstu viku — pilturinn í Kanada laus gegn 2 milljón króna tryggingu Fangelsisvist íslenzku ung- mennanna þriggja, sem handtek- in voru og síðan dæmd fyrir hass- smygl í Frakklandi í mai sl., er nú um það bil að ljúka. Pijturinn — liðlega tvítugur Reykvíkingur — losnaði úr fangelsinu I Nimes skammt fra Marseilles í Frakk- landi í fyrradag en stúlkurnar tvær losna a miðvikudaginn í naéstu viku, 2. nóvember, skv. upplýsingum Péturs Eggerz. sendiherra. Upphaflega voru þau dæmd I allt að þriggja ara fangelsi og nær þriggja milljón króna sekt en síð- an tókst lögfræðingi þeirra að fa sektina verulega lækkaða og hafa aðstandendur ungmennanna greitt hana. Þar með féll mestur hluti fangelsisdómsins niður. Ungmennin þrjú hyggjast fara í stutt ferðalag um Evrópu aður en þau koma heim til íslands, en þau voru a leið til Norðurlanda þegar þau voru handtekin við komuna fra Marokkó til Frakk- lands 21. maí sl. Pétur Eggerz skýrði DB einnig millj. ísl. kr.). Er hann nú a íeið fra þvi að fslenzkur piltur, sem til meginlands Evrópu þar sem handtekinn var í Kanada um svip- hann hyggst dveljast um sinn. að leyti með talsvert magn af Það fylgir ekki frelsi þessara hassi í farangri sínum, hafi nú ungmenna að þau verði að snúa verið íatinn laus gegn 10 þúsund til slns heima þegar I stað, skv. kanadískra dala tryggingu (1,9 upplýsingum Dagblaðsins. -OV. Maison de Arret — fangelsið I Nimes í Frakklandi þar sem íslenzku stúlkurnar tvær hafa verið í rúma fimm mánuði. Þær losna eftir rúma viku — en pilturinn, félagi þeirra, losnaði úr prísundinni í fyrradag. Hann var í öðru miklu eldra fangelsi þar skammt frá. DB-mynd.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.