Dagblaðið - 31.10.1977, Side 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 31. OKTOBER 1977.
Brutust inn í þrjá
sköla og
vörugeymslu
F’imm drengir, allir í
kringum 15 ára aldurinn, hafa
viðurkennt að hafa verið vaidir
að innbrotum á fimm stöðum í
Reykjavík. Brutust þeir inn í
þrjá skóla, Hagaskóla, Réttar-
holtsskóla og ölduselsskóla í
Breiðholti. Auk þess fóru þeir
tvívegis inn í vörugeymslu SÍS
austan Sundahafnar. Ekki
unnu piltarnir þessi verk allir
í hóp heldur saman á víxl, ýmist
tveir eða fleiri.
ASt.
HLUTI100 MILUÓN KR. HEILSUGÆZLUSTÖÐVAR
TEKINN í NOTKUN A HÖFN í HORN AFIRÐI
Heilsugæzlustöðin í Höfn — DB-
myndir Vígsteinn.
135 ÞUSUND KR.
GJÖF TIL SVFÍ
Frú Eiríka og Þorgrimur St.
Eyjólfsson útgerðarmaður í
Keflavfk hafa afhent Slysa-
varnafélagi tslands 135 þúsund
krónur frá Ásu Guðmunds-
dótti r Wright. Skömmu fyrir
andlát sitt ánafnaði frú Ása
ákveðinni peningaupphæð til
SVFÍ til minningar um
foreldra sína, læknishjónin frú
Arndísi Jónsdóttur og
Guðmund Guðmundsson, er
síðast var læknir í Stykkis-
hólmi.
SVFt þakkar gjöf þessa sem
verður varið til eflingar sjó-
slysavarna að ósk gefandans.
Merkum áfanga hefur nú verið
náð 1 heilsugæzlumálum Austur-
Skaftfellinga með þvi að heilsu-
gæzlustöð var formlega tekin i
notkun á Höfn í Hornafirði á
föstudaginn var. Framkvæmdir
við byggingu hófust seint á þjóð-
hátiðarárinu 1974 og er kostnaður
kominn í rúmlega 100 milljónir
króna. Enn er norðurálma
hússins ófullgerð en þar er gert
ráð fyrir aðstöðu fyrir tannlækni
og sjúkraþjálfará.
í heilsugæzlustöðinni, sem er
725 fermetrar að grunnfleti, er
aðstaða fyrir tvo lækna, auk sér-
fræðings. Þar er einnig rann-
sóknastofa og röntgenmynda-
stofa, aðgerðarstofa og eitt
sjúkraherbergi.
Arkitekt byggingarinnar er Jón
Haraldsson og verktaki fyrri
hluta verksins var Guðmundur
Jónsson byggingameistari.
Byggingafélagið Höfn h/f var
verktaki við tréverk og innrétt-
ingar. Hermann Hansson for-
maður bygginganefndarinnar
flutti ávarp og lýsti fram-
kvæmdum stöðvarinnar. Matthías
Bjarnason, heilbrigðisráðherra
flutti ræðu og afhenti stöðina til
SÁÁ hyggur á opnun afvötn-
unarstöðvar á Akureyri
Nú stenaur til aö SamtoK
áhugamanna um áfengismál,
SÁÁ, færi út kvíarnar til Akur-
eyrar. Þrír menn frá samtökun-
um, Hilmar Helgason, fram-
kvæmdastjóri, Pétur Sigurðsson
alþingismaður og Steinar
Guðmundsson skrifstofumaður,
auk þriggja Akureyringa sem
staðið hafa að undirbúningi
kynningarfundar á Akureyri
efndu til blaðamannafundar á
laugardag. Sunnanmenn lýstu til-
gangi og framtíðaráformum sam-
takanna en norðanmenn áhuga
sínum og áformum um að opna
upplýsinga og ráðgjafaskrifstofu
á Akureyri um áramót. Einnig var
rætt um afvötnunaraðstöðu fyrir
drykkjusjúklinga. Var sérstak-
lega þökkuð sú aðstaða sem for-
ráðamenn og læknar Kristnes-
hælis hafa látið I té, — þótt hún
hafi ekki verið fullnægjandi.
SÁÁ mun beita sér fyrir því að
þessi aðstaða verði stóraukin og
bætt með opnun afvötnunar-
aðstöðu og ráðningu starfsfólks
til hennar.
Sérstaklega var tekið fram á
fundinum að AA-samtökin á
Akureyri eru í heild ekki aðili að
samtökunum en flestir AA-menn
eru félagsmenn sem
einstaklingar. SÁÁ menn sýndu
mikinn áhuga á að kanna hvort
Laugaland í Eyjafirði hentaði
sem endurhæfingarstöð fyrir
drykkjusjúka, eftir að þeir hafa
verið í meðferð á afvötnunar-
deild.
Kom fram ósk um samstarf við
skólayfirvöld um fræðslu í skól-
um bæjarins um áfengisvanda-
málið og þær hörmulegu af-
leiðingar sem ofneyzla þess getur
haft I för með sér.
SÁA-menn þáðu hádegisverðar-
boð bæjarstjórnar Akureyrar og
voru málin reifuð þar. Kom fram
mikill áhugi bæjarstjórnarmanna
á málefninu og greinilegt að sam-
tökin vænta mikils af samstarfi
við Akureyrarbæ.
Klukkan 2 var haldinn
almennur útbreiðslufundur í
Borgarbíói og tókst hann mjög
vel. Að honum loknum áttu SÁÁ
menn viðræður við stjórn Lækna-
félags Akureyrar. Kom fram hjá
læknunum að mikil þörf er á
afvötnunar- og endurhæfingar-
aðstöðu á Akureyri. Æ fleíri
bætast í þann hóp sem til þeirra
leita vegna ofneyzlu áfengis eða
vegna veikinda sem rekja má til
hennar. Læknarnir lýstu fullum
stuðningi við þau áform sem SÁA
hefur uppi í þessum efnum.
Fax/abj.
SKÁTAR KENNÁ Á ÁTTA-
VITA 0G LANDABRÉF
Hjálparsveit skáta hefur i
hyggju að halda námskeið í
meðferð áttavita og landabréfa
fyrir rjúpnaskyttur og svo að
sjálfsögðu aðra er áhuga hafa á
að afla sér þekkingar um
meðferð slikra tækja.
Námskeiðin verða tvö —
hvort um sig stendur í tvö
kvöld og verðui' þátttökugjald
1000 krónur. Þá verða einnig
veittar upplýsingar um með-
ferð ferðabúnaðar svo og ferða-
fatnað. Námskeiðin verða
haldin í húsnæði hjálparsveit-
arinnar i Ármúlaskóla — og
verður síðara kvöldinu varið i
verklega æfingu.
Námskeiðin eru einkum
ætluð rjúpnask.vttum — en þó
alls ekki einhlítt. Allir þeir er
áhuga hafa á að læra um
notkun áttavita og landabréfs
eru velkomnir á námskeiðin —
enda getur góð kunnátta í með-
ferð áttavita og landabréfs
skipt sköpum hjá sérhverjum
ferðalangi á Islandi. landi
veðrabrigðanna.
rekstrar. Oskar Helgason oddviti
Hafnarhrepps er formaður
rekstrarnefndar Heilsugæzlu-
stöðvarinnar.
Héraðslæknirinn á Höfn er'
Kjartan Árnason. Hefur hann
starfaði í héraðinu óslitið í
tuttugu og sjö ár, síðan hann lauk
námi. Er hann eini læknirinn í
Höfn en stefnt er að því að fá
annan lækni til starfa við stöðina.
Ljósmóðir er Vilborg Einarsdóttir
og ráðsmaður Gísli Arason. Tveir
læknaritarar starfa við stöðina,
Ragnhildur Sigbjörnsdóttir oe
Hefna Hektorsdóttir.
mm
Læknirinn sagði 1 viðtali við
DB að fyrst í stað yrði hann að
notast við þau tæki sem til voru.
Lftið röntgentæki var meðal
þeirra áhalda sem til voru og er
allsendis ófullnægjandi. Sagði
læknirinn að tilfinnanlega
vantaði í stöðina gott röntgett
tæki.
Ibúar á Höfn f Hornafirði voru
1250 í fyrra en í Austur Skafta-
fellssýslu eru fbúar um 3000
talsins. Þar að auki þarf læknir-
inn i Höfn að sinna sjómönnum
og öðru aðkomufólki, sem alltaf
er nokkuð af á Höfn. Vígsteinn/abJ
Hermann Hansson kaupfélags-
stjóri og formaður byggingar-
nefndar.
Grindavík:
„EG VIL FA MER MANN”
Leikfélag Grindavikur æfir nú
af kappi leikritið Ég vil fá mér
mann, sem frumsýnt verður á,
næstunni. Höfundur leikritsins er
Philip King en þýðandi Sigurður
Kristjánsson.
Leikur þessi er fimmta verk-
efni félagsins og er Magnús Jóns- skytur það nokuð skökku við
son leikstjóri.
Hlutverk eru níu og er æft og
sýnt i gamla Kaupfélagshúsinu.
Enn hefur leikfélagið ekki fjár-
hagslegt bolmagn til þess að taka
félagsheimili sitt, Festi, á leigu og
upphaflega hugmynd sem liggur
að baki rekstri slíkra félags-
heimila.
Formaður félagsins er Guðveig
Sigurjónsdóttir.
HP