Dagblaðið - 31.10.1977, Side 7

Dagblaðið - 31.10.1977, Side 7
7 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 31. OKTOBER 1977. Endurskinsmerki eru líftrygging íslæmu skyggni: SÉRSTAKUR ENDUR- SKINSMERKJADAGUR í GRUNNSKÓLUNUM Kjörorðið er: Allir með.endurskinsmerki, bæði ungir og gamiir. DB-mynd Sveinn Þormóðsson. ,,Á sl. ári var dreift um 60 þús- und endurskinsmerkjum og telst það nokkuð mikið. Notkun endur- skinsmerkja hefur farið mjög vaxandi meðal fullorðins fólks og barna. Það eru aðallega ungling- arnir 13—14 ára sem ekki nota endurskinsmerki. Notkun merkj- anna hefur farið í vöxt hjá menntaskólakrökkum,“ sagði Guðmundur Þorsteinsson náms- stjóri umferðarfræðslu umferðar- ráðs í samtali við DB. ,,Nú er ætlunin að hafa sérstak- an endurskinsmerkjadag ein- hverntíma fyrst i nóvember. I til- efni af því var öllum skólastjórum grunnskólanna skrifað bréf og þeir beðnir um að gangast fyrir fræðslu um endurskinsmerki í skólanum. Einnig að fræða börn- in um umferð í slæmu skyggni. Skólastjórunum var einnig bent á að tilvalið væri að efna til keppni milli einstakra bekkjardeilda eða árganga um notkun endurskins- merkja." — Heyrzt hafa kvartanir þess efnis að flíkur hafi skemmzt undan næluendurskinsmerkj- unum og límmerkin hafi skilið eftir merki á fötunum. „Já, en það er hægastur vand- inn að sjá við því. Límmerkin má líma á skólatöskur barnanna og nælumerkið má t.d. næla innan í vasafóður og kippa því upp úr vasanum þegar skyggja tekur. Annars mælum við með saum- merkjum á úlpur barnanna. Nú hefur endurskinsmerkjum verið dreift í alla mjólkursölu- staði þannig að mjög einfalt er að nálgast þau. Við viljum eindregið hvetja foreldra til þess að fræða börn sín um gildi endurskins- merkjanna og hengja þau á börn sín í bak og fyrir,“ sagði Guð- mundur Þorsteinsson. - A.Bj. FLAUELS- BUXUR 3 SRIfl — 6LIT»R # MUSSUR PEYSUR SKYRTUR PILS FL Blaðburðarböm óskast strax við HRINGBRAUT — MEISTARAVELLI BIAÐIÐ KAMRÍEYJAR eyjar hins eilífa vors MALLORKA Vitið þér að Mallorca er eftirsótt vetrarparadís fyrir milljónir norður Evrópubúa. Þar er sölríkt og yndislcgt vetrarveður, dags- hitinn oftast 20-28°, enda falla appelsínurnar af trjánum á Mallorca í janúarmánuði, og sítrónuuppskeran er í febrúar. m Tti wi "a jirrT \ t BESTU HÓTELIN OG ÍBÚÐIRNAR SEM VÖL ER Á Sunna býður upp á bestu hótelin, íbúðirnar og smáhýsin, sem fáanleg eru á Kanaríeyjum. Corona Roja, Corona Blanca, Koka, Rondo, Sun Club, Eugenia Victoria, Los Salomones, Atindana bungalows og Don Carlos íbúðir í Las Palmas. Sunna býður upp á vinsælt dagflug á laugardögum. Hægt er að velja um 1, 2, 3 eða 4 vikna ferðir. Brottfarardagar: 5., 26. nóv. 10., 17., 29. des. 7., 14., 28. jan. 4., 11., 18., 25. feb. 4., 11., 18., 25. marz. 1., 8., 15., 29. apríl. Pantið snemma meðan ennþá er hægt að velja um brottfarar- daga og gististaði. Látið drauminn rætast . . . Til suðurs með Sunnu. JÓLAFERÐ MALLORCA 18. des. - 4. jan. Beint dagflug. Dvalið á eftirsóttum íbúðum og hótelum, s.s. Royal Magaluf, Portonova, Hótel Barbadon, Guadalupe og Helios. ÓDÝR LANGTIMA VETRARDVÖL Brottfbr 4. janúar. Dvalið í 10 vikur með fullu fæði á Hótel Helios. Öll herbergi með baði og sólsvölum, glæsilegir sam- komusalir, dansað á kvöldin, sundlaug í garðinum, rétt við bað- ströndina. Verð aðeins kr. 159.000. Flugferðir, hótel og fullt fæði allan tímann. y Munið ódýru Lundúnarferðirnar. Brottfarir alla þriðjudaga. KRMSKRIFSTOMN SUHRA UEKJtRGÍTU 2 SfMAR 16400 12070

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.