Dagblaðið - 31.10.1977, Qupperneq 12
12
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 31. OKTOBER 1977.
Svokallað „Flateyrardæmi”
Fyrir réttum hálfum mánuði
(þegar þetta er ritaö) birtust í
Dagblaðinu þrjár greinar um mál-
efni Flateyrarhrepps.
Ekki hafði ég hugsað mér að
standa í opinberum blaðaskrifunt
um málefni minnar heimasveitar,
en að athuguðu máli og sam-
kvæmt ábendingu tel ég þó rétt að
koma á framfæri nokkrum
athugasemdum þótt síðbúnar séu.
Ég geri greinunum í heild ekki
skil. Taldi raunar að þær dæmdu
sig sjálfar. Sá sem læsi þær
opnum augum sæi að heimildar-
maður eða -rhenn blaðamanns-
ins fóðruðu hann ekki hlut-
drægnislaust.
Öhætt er að fullyrða, að hér er
ekki um að ræða neinn aðal-
manna í hreppsnefnd Flateyrar-
hrepps.
1 gerðabók hreppsnefndar eru
færð þau mál, sem tekin eru á
dagskrá, tillögur og niðurstöður,
Ennfremur bókanir sem einstakir
hreppsnefndarmenn óska eftir,
og fyrirspurnir þeirra, en
umræður yfirleitt ekki. Hygg ég
að þetta sé í samræmi við það sem
almennt gerist. Tilvitnanir í ein-
stakar bókanir hreppsnefndar
gefa því ekki viðhlítandi heildar-
mynd, nema rétt sé fyllt í eyð-
urnar.
Ýmis atriði, sem fram koma í
greinunum eru því miður rétt,
önnur beinlínis röng, og í heild er
frásögnin villandi.
Um vinnubrögð
blaðamannsins
Um þau vil ég aðeins segja
þetta. Ef hér er á ferðinni sú
tegund blaðamennsku, sem nefnd
hefur verið rannsóknarblaða-
mennska þá rís greinarflokkur-
inn ekki undir nafni. Skal ég
nefna um það dæmi.
Með tyrstu grein er birt mynd
af Suðureyri og hún sögð af Flat-
eyri, en með síðustu grein er birt
rétt mynd af Flateyri.
t fyrstu greininni fór blaða-
maðurinn vestur og kannaði
vandamálið, en í athugasemd með
síðustu grein kom fram, að hann
fór hvergi.
1 fyrstu grein er innheimta
talin 51,1% árið 1974, en síðar
mun hafa verið leiðrétt að hún
hafi verið rúm 90% það ár.
Ruglað er saman nöfnum á núver-
andi sveitarstjóra og fulltrúa
S.F.V. í hreppsnefnd. Villandi er
frásögnin um aðgerðir og gang
mála varðandi hreppsnefnd —
sýslumann og ráðúneyti.
Virða verður blaðamanni það
til vorkunnar, að hann telur sögu-
mann eða -menn sína svo örugga
heimildarmenn, að ekki þurfi að
leita staðfestingar einhverra aðal-
manna í hreppsnefnd eða
annarra, sem vel þekkja til mála.
Það voru mistök og öllum geta jú
orðið á mistök.
Það skal hins vegar við hann
virt, að allar greinarnar bera með
sér yfirbragð endursagnar og
hann forðast að leggja sjálfur
dóm á málin eða fella órökstudda
sleggjudóma.
Staða hreppsins
1 myndatexta segir, að sveitar-
félagið standi á brauðfótum.
Lesa má út úr greinunum að
hreppsnefndin sé óábyrg og
aðgerðalaus og aðeins einn maður
komi þar inn öðru hvoru og tali
af viti, þ.e. formaður verkalýðs-
félagsins og varamaður S.F.V. í
hreppsnefnd.
Þessu skal öllu mótmælt og
mjög ómaklegt er, ef þeir sem
lesið hafa greinarnar mynda sér
þá skoðun.
YDKIFX RAnMINTANQPAnAR
— svaroddvita
Kjallarinn
Gunnlaugur Finnsson
Rekstur,
fjórreiður,
bókhald
Þrír ofangreindir þættir eru að
sjálfsögðu nátengdir hver öðrum
og öruggt bókhald undirstaða
þess að hægt sé að fylgjast með
fjárreiðum sveitarfélagsins. Eg
mun þó fara nokkrum orðum um
hvern þátt fyrir sig.
Framkvœmdir
og rekstur
I upphafi kjörtímabilsins biðu
hreppsnefndarinnar mörg knýj-
andi úrlausnarefni. í tíð fyrrver-
andi hreppsnefndar hafði verið
brotið í blað að því er varðar
frumkvæði hreppsins í húsnæðis-
málum. Breytt atvinnuástand og
hugur ungs fólks til að setjast að í
sveitarfélaginu kallaði á vaxandi
aðgerðir af hálfu þess, enda hefur
tekist að snúa vörn í sókn, árlegri
fækkun íbúa um iangt árabil
breytt í fjölgun 1. des. 1975 til 1.
des. 1976, og er þess að vænta að
svo verði áfram. Vinna þurfti að
skipulagi nýs byggðarhverfis og í
tengslum við það að holræsa- og
gatnagerð, hafnargerð og malbik-
un í takt við önnur sveitarfélög á
norðanverðum Vestfjörðum árin
'1974 og 1975. Var þá annaðhvort
að hrökkva eða stökkva.
Hreppsnefnd gerði sér þess
glögga grein, að þessi ár var bogi
framkvæmdanna spenntur til
hins ýtrasta, en að draga þyrfti
seglin saman á síðari hluta kjör-
tímabilsins.
Svo hefur og orðið raunin, enda
þótt enn sé unnið að mikilvægum
framkvæmdum, bæði að því er
varðar húsnæðismál sem og við
byggingu íþróttahúss og sund-
laugar, en þar hófust fram-
kvæmdir í sumar. Ég tel, að fyrr-
nefndar framkvæmdir hafi
gengið mjög vel undir yfirstjórn
fyrrverandi sveitarstjóra og tel
rétt að það komi fram. Það þurfti
þvt engum, sem til þekkti, að
koma á óvart, þótt lausafjár- og
greiðslustaða hrepp’sins yrði
erfið, einkum á árinu 1976 og
yfirstandandi ári.
Fjórreiður
I greinarflokknum eru ræki-
lega tíunduð vanskil hreppsins og
skal það ekki afsakað hér né
annars staðar. Aðeins skal á það
bent, að dráttarvextir eru
túlkaðir sem beint tap. Vitanlega.
er beina tapið mismunur dráttar-
vaxta og útlánskjara viðkomandi
lánastofnunar. Auðvitað er odd-
vita ekki síður en öðrum hrepps-
nefndarmönnum raun að greiðslu
dráttarvaxta, sem og að í
nokkrum tilvikum kom til inn-
heimtukostnaðar, sem reiknast að
sjálfsögðu beint tap. Það væri vel,
ef Flateyrarhreppur væri eina
sveitarfélagið, sem lent hefði í
greiðslu dráttarvax,ta.
Hins vegar má það vel koma.
fram, sem sögumaður — eða
-menn hafa sennilega vandlega
þagað yfir.
í árslok 1975 hafði verið staðið
við allar greiðslur vaxta og af-
borgana af föstum lánum, bæði
þeim sem féllu í gjalddaga á þvi
ári og ógreitt var frá fyrra ári.
Ennfremur greidd upp skuld við
rlkisábyrgðasjóð f.f. ári. Sömu
sögu er að segja 1976 með einni
undantekningu auk ríkisábyrgða-
sjóðs.
Bókhald —
reikningar
Hér er komið að þeim þættin-
um sem fyrst og fremst hefur
gefið tilefni til þessara blaða-
skrifa. Ekki hvarflar að mér að
draga fjöður yfir það, að hér kom
upp sú staða, sem óviðunandi er
hverri sveitarstjórn.
Hreppsnefnd er sökuð um að-
gerðaleysi og sofandahátt í
þessum málum. Eg tel rétt að
rekja í tímaröð helstu atriði er
varða þennan þátt.
Á fyrsta ári sveitarstjóra 1975
skilaði hann reikningum fyrir
1974 það tímanlega, að þeir voru
afgreiddir á sýslufundi það sumar
með þeim fyrirvara, að sjóðsupp-
gjöri var þá enn ólokið. Þegar
tillaga fulltrúa S.F.V. um upp-
sögn sveitarstjóra var tekin fyrir
og afgreidd í byrjaðan nóvember
1975, lá fyrir endanlegt sjóðsupp-
gjör undirritað og unnið af öðrum
hinna kjörnu endurskoðenda.
Upplýst var á þeim fundi að
búið væri að færa bókhald
hreppsins allt upp til þess tíma.
Þótti þeim sem greiddu atkvæði
gegn tillögunni ekki forsendur
fyrir því að segja sveitarstjóra
upp.
Þegar hann 2'/í mánuði síðar
sendi uppsögn sina (þá er hann
síðar dró til baka) var ekki annað
vitað en að reikningar gætu verið
tilbúnir á eðlilegum tíma, miðað
við það sem að ofan segir. Hins
vegar kom i ljós um vorið og
sumarið, að svo var ekki.
Gátu þeir ekki komið til af-
greiðslu sýslufundar, sem hald-
inn var í ágúst 1976.
8. okt. samþykkti hreppsnefnd
ráðningu fyrrverandi sveitar-
stjóra (Þ..G.) og skyldi hans starf
fyrst og fremst fólgið í því að ná
endum saman og færa bókhaldið
upp til þess dags, sem hann lyki
störfum.
Ætlað var að þessu verki yrði
lokið í sfðasta lagi í desember.
Þær vonir brugðust, bæði vegna
anna Þ.G. við önnur störf sem og
að umfang verksins reyndist
meira en það upphaflega var talið
vera.
Oddviti fullyrti aldrei hvenær
r. eikningar yrðu tilbúnir, en
þegar það bar á góma greindi
hann frá því, hver væri spá Þ.G.
um lok verksins.
Rétt er sagt frá uppsögn
sveitarstjóra, og rann uppsagnar-
frestur og starfstími út 1. ágúst
s. l.
í júlíbyrjun óskaði sveitarstjóri
eftir að verða leystur frá störfum
þ.e. hann ætti inni sumarfrí. Ekki
hafði þá tekist að ráða nýjan
mann til starfans.
Það er fyrst hálfum mánuði
fyrir starfslok sveitarstjóra, að
fulltrúi S.F.V. ber upp tillögu um
að „lyklarnir verði teknir af
Kristni“.
Eg tel að sú tillaga hafi verið
borin upp vegna misskilnings, og
reisi þá skoðun mína á samtali við
flutningsmann og Þ.G. eftir þann
fund.
Hreppsnefnd féllst ekki á
tillöguna.
Þess er að vænta að þessu bók-
íialdsmáli ljúki áður en næsta
mánuði lýkur og verði afgreitt
heima í héraði áður en jólahátíð
gengur í garð.
Ég tel mig ekki hafa dregið
fjöður yfir þau mistök sem orðið
hafa og tvö dagblöð hafa tíundað
fyrir þjóðinni.
Ég hefi í þessari grein minni
heldur ekki tekið upp hanskann
fyrir - fráfarandi sveitarstjóra.
Vilji hann telja það fram sem
honum kann að vera til málsbóta
er hann einfær um það, sýnist
honum svo.
Þess er að vænta, að þeim
hægist nú sem svo grandvarlega
eru þenkjandi.'að það særði sam-
visku þeirra, ef slíkt mál kæmist
ekki inn í umræðu þjóðmála-
blaða.
Þess er líka að vænta, að þeir
láti ekki sverð réttlætis og heiðar-
leika síga, hvar þar sem mönnum
er trúað fyrir almannafé, vörslu
þess og ráðstöfun.
Gunnlaugur Finnsson
alþingismaður.
Vikan
Sölubörn óskast Uppl.ísíma 36720
í eftirtalin hverfi á Seltjarnarnesi og f Reykjavík
Hverfi 2:
LÁTRASTRÖND
FORNASTRÖND
SELSTRÖNI)
SKÖLABRAUT REST
MELBRAUT REST
SUÐURBRAUT
l'NNARBRAUT
BAKKAVÖR
Hverfi 8:
SELJAVEGUR
FRAMNESVEGUR
HOLTSGATA
VESTURGATA
BREKKUSTÍGUR
SJAFNARGATA
BAKKASTÍGUR
HRINGBRAUT AÐ
HOFSVALLARGÖTU
VESTUR AÐ
BRÆÐRABORGARSTÍG
Hverfi 9:
BRUNNSTÍGUR
MÝRARGATA
NÝLENDUGATA
R.4NARGATA
BARUGAÍA
STÝRIMANNASTÍGUR
UNNARSTÍGUR
MARARGATA
HRANNARSTÍGUR =
ÖLDUGATA = ÆGISGATA
Hverfi 11:
SUÐURGATA
STURLUGATA
ODDAGATA
ARAGATA
LÖUGATA
ÞRASTARGATA
FALKAGATA
SMYRILSVEGUR
GRÍMSIFAGI
LYNGHAGI
STARHAGI
Hverfi 12:
EINARSNES
GNITANES
B Al'GANES
AlSTURNES
SKILDING ANES
I ÁFNISNES
SKELJANES
SIIELLSTÖDIN
.PM1
Hverfi 13:
BALDURSGATA
VÁLASTÍGUR
NÖNNUGATA
HAÐARSTÍGUR
FREYJUGATA
BRAGAGATA
FJÖLUGATA
SÖLEYJARGATA
Hverfi 17:
SÆTUN
steintun
BORGARTUN
SKULATUN
HÖFÐATUN
LAMBTUN
miðtUn
hatun
Hverfi 18:
STAKKHOLT
MJÖLNISHOLT
BRAUTARHOLT
NÖATUN
SKIPHOLT AÐ
NOTATUNI
STANGARIIOLT
STÓRHOLT
FLÓKAGATA
MEÐALHOLT
EINIIOLT
ÞVERHOLT
IIATEIGSV. AÐ
LÖNGUHLÍÐ