Dagblaðið - 31.10.1977, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 31. OKT0BER 1977.
15
i
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
og einnig að undirbúningi lands-
liðsins var áfátt fyrir keppnina
vegna utanaðkomandi aðstæðna.
Það breytir því ekki, að islenzka
liðið hefur of marga „farþega“
eins og áður sagði, leikmenn með
allt of litla reynslu. Leikmenn
sem ekki eiga enn erindi í lands-
lið.
Það vekur því furðu að lands-
liðsnefnd skuli ekki sjá ástæðu að
nota Pál Björgvinsson og Stefán
Gunnarsson. Þeir með sína miklu
reynslu mundu áreiðanlega
reynast drjúgur liðsstyrkur. Þvi
hefur verið borið við, að Páll sér i
lagi væri enn ekki i nógri æfingu
— en reynsla NM sýnir að ýmsir
leikmenn eru ekki í nðgri æfingu.
Menn ættu að minnast, að hinn
góði árangur í Austurriki var
fyrst og síðast að þakka mikilli
leikreynslu lykilleikmanna — hið
sama gildir einnig um Danmörku
ef árangur á að nást. Núverandi
landsliðskjarni er einfaldlega
ekki nógu góður.
Mörk Islands skoruðu — Jón
Karlsson 8 — 5 víti. Ölafur
Eiilarsson 7. Geir Hallsteinsson 5,
Þorbjörn Guðmundsson 3 og Árni
Indriðason 2.
Mörk Dana skoruðu — Anders
Dahl-Nielsen 8, Mikhael Berg 6,
svo og Thomas Pazy. Henrik
Jacobsgaard skoraði 3 mörk, Erik
Petersen, Bjarne Jeppesen og
Jesper Petersen skoruðu eitt
mark hver.
- h. halls.
Þrumufleygur Ólafs færði
íslandi stig gegn Dönum
—að loknum venjulegum leiktfma, Ísland-Danmörk 25-25. Margir Ijósir
punktar eftir vonbrigðin gegn Noregi
Islendingar hlutu nokkra upp-
reisn æru eftir ósigurinn gegn
Norðmönnum á NM i handknatt-
leik er ísland gerði jafntefli við
Dani, 25-25 á Iaugardag. Óiafur
Einarsson skoraði jöfnunarmark
tslands þegar venjulegum ielk-
tíma var lokið. fslenzku leik-
mennirnir fögnuðu jafntefli og
eins og svo oft áður stóð islenzka
liðið sig framar vonum þegar
hvað minnstu var búizt við af því.
En jafnteflið reyndist ekki nóg —
fsland varð að ieika við Færey-
inga um fimmta sætið á NM.
ísland hlaut því eitt stig úl úr
riðlakeppninni — en þrátt fyrir
það mátti vissulega sjá ánægju-
lega leikkafla til íslenzka liðsins
gegn Dönum, já hreint frábæra.
Eins og svo oft var Geir Hall-
steinsson maðurinn á bak við
— hreint óstöðvandi. Snilli hans
ásamt þrumuskotum Ölafs
Einarssonar skópu fimm marka
forustu Islands um tfma, 10-5, og
síðan 12-7 en þá hljóp allt í baklás
hjá íslenzka liðinu og Danir náðu
að minnka muninn fyrir leikhlé í
tvö mörk, 15-13.
Sá munur hélzt framan af
síðari hálfleik — þannig var
staðar. um miðjan síðari hálfleik
19-17 — þá komu hins vegar fimm
dönsk mörk og Danir virtust
stefna hraðbyri í sigur, 19-22,
síðan 21-24 — en Danir gáfu eftir
í lokin og Islendingar náðu að
bjarga leiknum, jafntefli 25-25.
Þrátt fyrir neðsta sætið í riðlin-
um sást ýmislegt ánægjulegt I
kring um leik íslenzka liðsins.
Snilldarleikur Geirs Hallsteins-
sonar í fyrri hálfleik — þrumu-
skot Ölafs Einarssonar þá — og
síðan kom Jón Karlsson sterkur
upp í síðari hálfleik, bókstaflega
bjargaði stigi í höfn.
íslenzka liðið þreyttist greini-
lega í síðari hálfleik, rétt eins og
leikmenn hefðu ekki nægt úthald.
Geir Hallsteinsson var ekki eins
áberandi í síðari hálfleik, þreytt-
ist, kanóna Ölafs Einarssonar
missti marks. Þá reyndist ekki
nóg breidd í íslenzka liðinu, jú,
Jón Karlsson með sína miklu
reynslu stóð upp úr. Þorbjörn
Guðmundsson og Arni Indriðason
stóðu fyrir sinu í vörninni og
drjúgir I sókn — skoruðu samtals
5 mörk — en aðrir leikmenn kom-
ust ekki á blað.
Þettta er ihugunarefni fyrir
landsliðsnefnd — aðeins 5 leik-
menn skoruðu mörk Islands, 25.
Allt of margir farþegar eru I is-
lenzka liðinu, virka nánast statist-
ar. Ihugunarefni, sem krefst
svara og þá kemur fyrst að kalla
verður einhverja „útlendingana"
heim. Gallinn er sá, að þeir geta
ekki tekið þátt í æfingapró-
grammi landsliðsins fram í des-
ember — en Island þarfnast að-
stoðar þeirra, það má hverjum
manni ljóst vera. Auð vitað var og
skarð fyrir skildi að Björgvin
Björgvinsson sér i lagi og Viggó
Sigurðsson gátu ekki leikið í NM
Olafur Einarsson sendir fallega á Arna Indriðason á línuna — og Arni skoraði. UB-mynd Bjarnleitur.
Þú byrfar daginn vel, ef þú drekkur
mjóljkurglas a<ð morgnl- i>ví ísköld
mjóikin er e'kM bara svalandi
d.rvkk;u.r. hektar fæóa.. sem inni-
h&lúur lifsnauðsymleg næringar-
efni í riku.m m.æli. svo s.em
k k.alk.. prótín og vítamín.
Mjólkurglas að rnorgni gefur
þér forskot á góðan dag.
9 Miolk og
nijolkuiTtiimiir
orkulind okkar og
heilsugjaS
ÚrslitáNM
Crsiit leikja í A-riðli á
NM urðu:
Svíþjóð-Færeyjar 34-15
Færeyjar-Finnland 17-20
Svíþjóð-Finnland 33-15
Lokastaðan í A-riðli var
því:
Svíþjóð 2 2 0 0 67-30 4
Finnland 2 1 0 1 35-50 2
Færeyjar 2 0 0 2 32-54 0
Urslit leikja í B-riðli
urðu:
Ísland-Noregur 17-18
Noregur-Danmörk 15-20
Island-Danmörk 25-25
Lokastaðan í A-riðli varð:
Danmörk 2 1 1 0 45-40 3
Noregur 2 1 0 1 32-38 2
fsiand 2 0 1 1 42-43 1
Orslit um 1. sætið:
Danmörk-Svíþjóð 21-20.
Um 3. sætið
Noregur-Finniand 25-20
Um 5. sætið:
Island-Færeyjar 27-18
Mjólk inniheldur kalk,
motín,vítanim og