Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 31.10.1977, Qupperneq 31

Dagblaðið - 31.10.1977, Qupperneq 31
31 Útvarp íkvöld kl. 19.40: Um daginn og veginn Sjönvarp íkvöld kl. 20.30: íþróttir Eftirhreytur af Norðurlandamótinu „Nú þetta verður aðallega frá Norðurlandamótinu í handknatt- leik. Ég verð að vísu með fjóra tíma um helgina í það en það nægir mér engan veginn. Á mánu- daginn verða svona eftirhreytur,“ sagði Bjarni Felixson er hann var inntur eftir efni iþróttaþáttarins í kvöld. „Þetta efni frá Norðurlanda- mótinu verður aðalatriðið í þættinum. Svo ætla ég auk þess að sýna ýmislegt erlent sem mér hefur borizt eftir verkfallið. Þar má til dæmis nefna bíla- íþróttir, meðal annars rall. Og svo maraþonhlaupið í New York. Svo veit ég ekki hvort mér endist tími fyrir rneira," sagði Bjarni. Þegar þetta er skrifað (föstudag) voru úrslit Norður- landamótsins ekki ljós. tslending- ar leika í riðli með Norðmönnum og Dönum. t öðrum riðli eru svo Svíar, Finnar og Færeyingar. -DS. EINNIG MÁLM- 0G GLERLAMPA - LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL - Suðurlandsbraut 12 LJOS & ORKA Sími 84488 DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUH 31. OKTOBER 1977. Útvarp Sjónvarp „EINU SINNIUNGUR, ALLTAF UNGUR” — Þorsteinn Ö. Stephensen talar Grunnur Seðlabankahússins við Arnarhól. DB-mynd Ragnar Th. „Nei, blessuð vertu, elskan mín, ég er ekkert búinn að ákveða hvað ég ætla að tala um. Það er svo margt sem er ofarlega f hug mínum,“ sagði Þorsteinn ö. Stephensen er við hann var rætt um þáttinn Daginn og veginn. í honum ætlar Þorsteinn að tala í kvöld. „Eg hef ekki nema einu sinni talað um daginn. og veginn í út- varpinu og það var fyrir mörgum árum. En þá líka syndgaði ég mjög upp á náðina. Bæði talaði ég of lengi og f stað þess að ræða um mörg efni talaði ég nær eingöngu um eitt. Mig minnir að það hafi verið þegar byggja átti Seðlabanka- húsið niðri á Arnarhóli. Þá kom þarna fólk úr öllum áttum til að mótmæla. Mér er það ákafalega hugstætt því það er gaman að sjá fólk bregða svo snöggt við. Það er alltaf gaman þegar fólk tekur við sér. Þetta var árið sem VL undir- skriftirnar fóru fram. Og ég man að ég skrifaði borgarstjóra bréf með undirskriftarlista þeim sem gengið hafði manna á milli. Ég orðaði það svo að nú á þessum fimbulvetri undirskriftanna á tslandi og svo framvegis. Sjónvarp íkvöld kl. 21.15: Tennessee Williams HÖFUNDUR SPOR- VAGNSINS GIRNDAR —og annarra f rægra verka Fáir leikritahöfundar eru cins vel þekktir á tslandi og Banda- rfkjamaðurinn Tennessee Williams. Sjónvarpið helgar hon- um meira að segja sérstakan þátt nú í kvöld, þar sem við hann er rætt og hann les úr ljóðum sfnum. Einnig verða fluttir kaflar úr fimm leikritum eftir hann. í Brittannicu er þessar1 upplýsingar að finna um Tennessee Williams. Hann hét upphaflega Thomas Lanier og er fæddur árið 1914 f Bandaríkjun- um. Nánar tiltekið þann 26. marz í Columbus f Missisippiríki. Hann sótti skóla f Missouri og Washing- ton og skrifaði BA ritgerð sfna frá Háskólanum í Iowa 1938. Williams hóf að skrifa strax í æsku og hefur skrifað bæði skáld- sögur, ljóð og leikrit. Fyrst varð hann frægur árið 1945 fyrir lerkrit sitt the Glass Menagerie (Glerdýrin) sem gekk mjög vel Broadway. ilann vann verðlaun Þetta mál er mér svo sem ennþá hugleikið og það getur vel verið að ég tali eitthvað um það. Mér gremst svo öll þessi tvöfeldni og fals. Það var auðséð á fundin- um að fólkið vill ekki Iáta byggja þarna, allra sfzt banka. Þegar þeir sáu þetta sögðust þeir ætla að endurskoða málið. Ég átti von á þvf að þá myndu þeir hreinlega pakka saman sfnu dóti og fara. En f stað þess eru þeir enn þá að reyna að mjaka sér til á lóðinni. Ætli þeir haldi hreinlega ekki að ég og þessir sem ákafastir voru gegn þessu séu dauðir. En ég er sko ekki dauður, það eiga þeir eftir að sjá. Unga kynslóðin er lfka á móti þessu, það veit ég. Annars veit ég að maður á ekkert að vera að skilja að ungu kynslóðina og þá eldri. Það er eins og ég sagði við pilta sem komu hérna um daginn. Einu sinni skáti, alltaf skáti, er sagt. Má ekki allt eins segja: Einu sinni ungur alltaf ungur“? Og þegar Þorsteinn ö. er annars vegar held ég að allir fallist á þetta. -DS. NY ÞJONUSTA: 24 - STUNDA - FRAMKÖLLUN LITMYNDIRÁ KLUKKUSTUNDUM Hafnarstrætí 17 Simi 22580 inyndiðja n_ Suðuriands- braut 20 Sími 82733 BIAÐIÐ á ríkisstyrks NÝ SENDING MARMARALAMPA gagnrýnenda f New York þrisvar sinnum fyrir það leikrit og Spor- vagninn Girnd sem hér hefur verið sýndur og Cat on a Hot Tin Roof (Köttur á heitu blikkþaki). Verðlaun útgefanda fékk hann einnig fyrir tvö síðarnefndu verkin. Persónur Williams eru allar sjúkar á sálinni og geta ekki hegðað sér sjálfstætt, aðeins brugðizt við hegðun annarra. Þær eru flestar grimmar hver við aðra og innst inni eru þær grimm rán- dýr sem eyðileggja vilja náungann og sjálfar sig. Fyrir þetta fólk er ekki hægt að vona neitt og ekkert hægt að gera. Hér hafa verið sýnd eftir hann verkin Sporvagninn Girnd, Húm- ar hægt að kveldi, Sumri hallar, Tobacco Road, Glerdýrin og Köttur á heitu blikkþaki (bfómynd sem hér var sýnd og var einnig flutt í útvarpi). -DS.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.