Dagblaðið - 30.12.1977, Page 11
D&GgLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1977.
11
Spánn:
Fangamir fengu
ekki jólafrí og
gerðu uppreisn
Lögreglan á Spáni beitti
gúmmíkylfum og táragasi til aö
bæla niður uppreisn fanga í
fangelsi í borginni Alicante í
gær. Upptök ólátanna mun hafa
verið óánægja nokkurra fanga
með að fá ekki leyfi til að
hverfa til síns heima yfir jóla-
helgina. Um það bil átján
hundruð föngum í spænkum
fangelsum var veitt jólaleyfi að
þessu sinm.
í fangelsinu i Ahcante hófust
óeirðirnar með því að nokkrir
fanga kveiktu í dóti á gólfi
klefa síns. Komust þeir síðan
upp á þak fangelsisins og
gryttu verði sina með
þakskífum.
Mikið hefur verið um óróa og
óeirðir í fangelsum á Spáni
undanfarna mánuði. Hafa þar
að sögn aðallega verið að verki
fangar sem dæmdir hafa verið
eftir almennum hegningar-
lögum. Eru þeir sagðir
sáróánægðir með þá skipan
mála að þeim hafa ekki hlotnazt
náðanir í jafnmiklum mæli og
föngum, sem dæmdir voru eftir
lögum, sem sneru að ýmiss
konar pólitískri starfsemi.
SkákiníBelgrad:
Einvígid í óvissu,
Kortsnoj farinn
Fjórtándu einvígisksák Kort-
snojs og Spasskýs hefur verið
frestaó fram á mánud'ag að kröfu
Kortsnojs. Þá hefur hann sett
skipuleggjendum mótsins í
Júgóslavíu úrslitakosti og heldur
því aðeins áfram keppni að keppt
verði i lokuðu herbergi þar sem
aðeins verður skákborð og stólar,
klukka og einn eða tveir dómarar.
Kortsnoj vill útiloka áhorf-
endur frá þeim 7 skákum, sem
enn eru eftir í einvíginu, en
staðan er nú 7'A gegn 5V$ vinningi
Kortsnoj í vil. Hann þarf þrjá
vinninga í viðbót til að sigra, en
Spasský hefur unnið þrjár síðustu
skákirnar. Kortsnoj er nú farinn
frá Belgrad og dvelst einhvers
staðar annars staðar í Júgóslavíu
og framtíð einvígisins er því mjög
ótrygg. Spasský fór einnig frá
Beif.rad í gær og vill ekkert láta
hafa eftir sér um málið.
Hegðun Spasskýs í einvíginu
hefur gert það að verkum að Kort-
snoj er undir mjög þungri sál-
fræðilegri pressu. Spasský
stendur þegar upp frá borðinu
eftir leik og fylgist með á
sýningarborði, sem er í salnum.
Kapparnir eru hættir að takast 1
hendur fyrir hverja skák og óska
ekki hver öðrum til hamingju
með sigur í skák.
Styðjió okkur-stuðlið að eigin öryggi
pjLi\ Hjálparsveit skáta
\Æ/ Reykjavík
, OKKAR.
IREYKJAVIK
Skátabúðin, Snorrabraut
Volvosalurinn, Suðurlandsbraut
Fordhúsið, Skeifunni
Alaska, Breiðholti
Við Straumnes, Breiðholti
Seglagerðin Ægir, Grandagarði
Hagabúðin, Hjarðarhaga.
Við Kjötmiðstöðina, Laugalæk
Við Hreyfilsstaurinn, Árbæjarhverfi
Tryggvagata, gegnt Tollstöðinni
Stórt framfaraspor...
Landsýn og Samvinnuferðir hafa tekið upp samstarf og
leggja nú saman starfskrafta sína og sambönd til þess að
geta veitt sem greiðasta, ódýrasta og fullkomnasta íslenska
ferðaþjónustu, um allan heim. Þessar ferðaskrifstofur eru
reknar af tveimur stærstu almenningssamtökum í landinu,
samvinnufélögunum og launþegasamtökunum. Enginn vafi
er á því að með þessu samstarfi ferðaskrifstofanna er stigið
eitt stærsta framfaraspor í íslenskum ferðamálum. Með
samstarfi sínu standa Landsýn og Samvinnuferðir ólíkt
betur að vígi en áður til að veita landsmönnum betri og
ódýrari ferðaþjónustu.
Framvegis sem hingað til annast skrifstofurnar hvers
konar ferðaþjónustu, auk skipulagðra ferða útlendinga til
landsins og fyrirgreiðslu við þá.
Samvinnuferöir
Fastar hópferðir verða farnar á næsta ári reglulega til:
KANARÍEYJA, COSTA DEL SOL, JÚGÓSLAVÍU,
ÍRLANDS, LONDON, NORÐURLANDA.
Þar sem hagsýni og hagkvæmni eru fyrir hendi, eiga
nútíma vinnubrögð og tækni að geta gert fólki kleift að
ferðast áhyggju- og óþægindalaust. Góðar ferðir eiga að
geta verið öllum viðráðanlegar ef þær eru skipulagðar rétt
og með hliðsjón af efnum og ástæðum.
Landsýn og Samvinnuferðir óska félagsmönnum
verkalýðs- og samvinnuhreyfingar og öllum öðrum
viðskiptavinum sínum gleðilegs nýárs og þakka samstarf og
samfylgd á liðnu ári.
AUSTURSTRÆTI 12 REYKJAVIK
H LANDSYN
m/Ai AwAnrM in-rí^ r-%r-v ^
SKOLAVORÐUSTÍG 16 REYKJAVÍK