Dagblaðið - 30.12.1977, Page 20
20
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1977.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1977.
I
21
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
D
Búiðaðvelja
f jórar sterkustu
þjóðirnaríHM?
Ummæli Jose Havelange, hins brasilíska
forseta FIFA, Alþjóða knattspyrnusam-
bandsins, þar sem hann gaf í skyn að þegar
væri búið að velja fjögur lið er talin væru
sterkust í HM í Argentínu á næsta ári, hafa
vakið mikla athygli.
Havelange lét hafa eftir sér að þær fjórar
þjóðir, sem búið er að velja, séu gest-
gjafarnir, Argentína, Brasilía, heimsmeistar-
ar V-Þýzkalands — og ftalíu. Þetta hefur
vakið mikia athygli í knattspyrnuheiminum
og reiði — það er að ftalir skuli vera látnir í
hóp f jögurra sterkustu þjóðanna.
italir komust iítið áleiðis í V-Þýzkaiandi,
voru slegnir út af Argentínu og Póllandi. Og
í ár komust þeir til Argentínu aðeins á betra
markahlutfalli en Englendingar.
Enn er ekki Ijóst hvort i raun, sé búið að
veija þessi f jögur lið — sem forðast þvi hvert
annað í riðiakeppninni. Margir eru
sáróánægðir — og þá ekki sízt Hoilendingar,
silfurliðið frá síðustu HM-keppni. Sú þjóð er
sigraði með hvað mestum yfirburðum í und-
ankeppninni í sínum riðli.
Stórsigur Vestur-
Þjóðverja á Dönum
A piltamótinu í knattspyrnu í Tel Aviv
vann Vestur-Þýzkaland stórsigur á Dan-
mörku í gær 8-0. Þá sigraði Grikkland fsrael
með 1-0. Grikkir eru því efstir á mótinu með
4 stig. Vestur-Þjóðverjar og ísrael hafa tvö'
stig en Þjóðverjarnir aðeins ieikið einn leik.
Vestur-þýzka knattspyrnuliðið Köln„ sem
er í efsta sæti í Bundeslígunni, gerði í gær
jafntefii við iandslið fsrael í Tei Aviv.
Ekkert mark var skorað í leiknum. Strax á
eftir sigraði franska iiðið Olympigue Lyons
Jerusalem Betar 1-0. Leikið var á Blumfield-
ieikvanginn. Ahorfendur 20 þúsund.
Muller og Maier
heiðraðir
Tveir leikmanna Bayern Munchen — þeir
Sepp Maier, markvörður iandsliðsins v-
þýzka, og Gerd Muiler, mestu markaskorar
v-þýzkrar knattspyrnu, hafa verið sæmdir
einu æðsta heiðursmerki þýzka sambands-
lýðveldisins fyrir frammistöðu sina í knatt-
spyrnu. Þe.ir félagar urðu heimsmeistarar
með V-Þýzkalandi 1974 í Munchen.
Aðeins þrír aðrir knattspyrnumenn hafa
áður hlotið þetta sæmdarheiti — þeir Fritz
Walter, fyrirliði 1054, Uwe Seeler, einn
skæðasti sóknarleikmaður v-þýzkrar knatt-
spyrnu, og félagi þeirra Muller og Maier hjá
Bayern, Franz Beckenbauer en hann ieikur
nú að sjáifsögðu með New York Cosmos.
Iran ekki til
Argentínu?
Hugsanlegt er að fran, er tryggði sér sæti i
úrslitum Heimsmeistarakeppninnar í Argen-
tínu fái þrátt fyrir allt ekki að taka þátt í
úrslitakeppninni. Astæðan — FIFA krefst
þess að meðlimir FIFA í Asíu dragi til baka
brottrekstur Taiwan og ísrael úr Knatt-
spyrnusambandi Asiu. Asíuþjóðir sam-
þykktu að veita Kína inngöngu en reka fsrael
og Taiwan, sem samkva>mt fréttum frá
Ziirich brýtur í bága við reglur FIFA.
FIFA ætlar að senda aðildarþjóðum sinum
í Asíu bréf þar sem lagt verður að þeim að
taka ákvarðanir sínar til baka, að öðrum
kosti eiga þær á hættu að FIFA setji bann á
þær, jafnvel hrottrekstur, og þjóðunum
verður meinað að taka þátt í keppni á vegum
FIFA.
Knattspyrnusambandið hefur gefið Asíu-
þjóðum frest til 12. janúar til að svara — og
þá verða teknar frekari ákvarðanir.
íþróttir
„Aðstaðan í Laugardal er góð
— hana hef ég þegar skoðað — og
eiginleikar íslenzkra frjáls-
íþróttamanna til að ná árangri
eru góðir, reiðubúnir til að leggja
mikið að sér til að ná árangri,“
sagði Bobrov ennfremur.
„Við leggjum út í ráðningu hins
sovézka þjálfara okkar af bjart-
sýni — hindranir eru margar.
Eins og stendur vantar alla
breidd í starf okkar. Það byggist
of mikið upp á fáum afreksmönn-
um. Með komu Bobrov vonumst
við til að vinna meiri breidd —
því eru allir velkomnir til okkar,
svo starf Bobrov megi nýtast sem
bezt,“ sagði Björn Blöndal vara-
formaður frjálsíþróttadeildar KR
í gær.
„Mitt fyrsta verkefni verður að
kynnast þeim íþróttamönnum
sem eru í KR og síðan vinna að
æfingaprógrammi með þeim.
Ölymipuleikarnir í Moskvu verða
1980 — og ég teldi nauðsynlegt
íslenzkum íþróttamönnum að
kynna sér aðstæður þar — finna
andrúmsloftið með þátttöku í
íþróttamótum þar.“ sagði Bobrov,
hinn geðugi sovézki þjálfari enn-
fremur. Hann hefur starfað við
háskólann í Leningrad, þaðan
sem margir frægir íþróttamenn,
margir ólymípuhafar, hafa fengið
þjálfun sína. Bobrov er yfirmaður
íþróttadeildar háskólans vissu-
lega hámenntaður maður er KR-
ingar hafa fengið til Iiðs við sig.
Aðstæðumar í Laugar-
dal em með ágætum
— sagði Bobrov, hinn nýi þjálfari f rjálsíþróttadeildar KR
„Ég veit í raun ekki enn hvaða
ávöxt starf mitt hér á Islandi ber.
Enn hef ég hitt fáa af íþrótta-
mönnum KR en það er greinilega
bjartsýni i KR og allir staðráðnir
í að reyna að gera sitt bezta.
Hvort ég hef með afreksfólk KR
eingöngu að gera eða hvort hægt
verður að vinna upp starf i KR á
breiðari grundvelli verður að
koma á daginn — vissulega
vonast ég til að sameina þessa tvo
þætti,“ sagði Bobrov Michail
Michailovitch — hinn nýi sovézki
þjálfari frjálsíþróttadeildar KR.
Bondorov, hinn nýi sovézki þjálfari KR-inga. DB-mynd Hörður
Vilhjálmsson.
Islenzkur ósigur í
Njarðvík í körfu
Luther College sigraði fslenzka landsliðið 82-78 í gærkvöld
Bandaríska skólaliðið frá
Luther College sigraði í gærkvöld
íslenzka landsliðið í körfuknatt-
leik í Njarðvík að viðstöddum
w
111
(m
N
m)
Nýárs-
kvöld
Hátíðarmatseöill
Graflax með sinnepssósu
Uxahalasúpa
Steiktar rjúpur með waldorfsalati
Piparmyntuís
Skemmtiatriði
^ Guörún Á.
H Símonar
w
Opið til kl. 2.
Borðpantanir í síma 2-33-33 og 2-33-35 milli kl. 1-4.
Spariklœðnaður
fjölda áhorfenda, eins og raunar
ávallt er í Njarðvík, þéttsetinn
salur. Luther College sigraði 82-
78 — hafði ÖII ráð ísl. liðsins
í hendi sér. Staðan í leikhléi var
40-39 lslandi í vil. Raunar hefði
íslenzka liðið átt að vera með
mun fleiri stig í pokahorninu í
fyrri hálfleik — en mörg hraða-
upphlaup liðsins misheppnuðust,
ævintýralegar sendingar er höfn-
uðu í höndum bandarísku
stúdentanna.
Burðarásar í íslenzka liðinu
voru þeir Þorsteinn Bjarnason og
Jón Sigurðsson — allt spil mæddi
sem oftar á Jóni Sigurðssyni en
Þorsteinn Bjarnason hefur sýnt
dæmalausar framfarir í vetur og
er nú þegar að verða einn af
burðarásum íslenzka landsliðsins.
I raun má segja að þrír leik-
menn bandaríska liðsins, þeir
Phil Finanger, Rich Schmiz og A1
Tettshorn hafi skilið á milli
liðanna. Sér í lagi reyndist Phil
Finanger íslenzku leikmönnunum
erfiður, snöggur og leikinn leik-
maður.
Leikskipulag bandaríska
liðsins var allt mun fastara í
skorðun en hins íslenzka — en
margir leikmenn bandaríska
liðsins virkuðu þungir og seinir.
tslenzka landsliðið mætir Luther
College í Hagaskóla í kvöld.
Stig íslenzka liðsins skoruðu —
Þorsteinn Bjarnason 30, Jón
Sigurðsson 13, Símon Ölafsson 9
— en hann gerði marga laglega
hluti. Gunnar Þorvarðarson
skoraði 8 stig fyrir Island. -emm.
Axel Axelsson í kröppum dansi. DB-mynd Hörður Vilhjálmsson.
Einar Magnússon hefur náð að brjótast í gegnum vörn norska liðsins
og skorar annað mark tslands. DB-mynd Hörður Vilhjálmsson.
Island sýndi gamla snilldar-
takta og sigurgegn Noregi
—22-20 eftir hroðalega byrjun þarsem Norðmenn komustí 10-4.
Dýrmætursigur fyrirþann erfiða æfingakafla erfhönd fer
„tsland hefur á að skipa betra
liði en Norðmenn, það er
sannfæring mín, við eigum betri
einstaklinga. En við erum nú í
miðju ströngu æfingaprógrammi,
höfum æft ákaflega stíft undan-
farið. Þetta ásamt öllum þeim
tilraunum sem við höfum orðið að
gera á landsliðinu í leit að réttum
kjarna gerði muninn ekki meiri
en raun varð á — ósigur í fyrri
leik þjóðanna, sigur nú, 22-20,“
sagðí Birgir Björnsson, formaður
landsliðsnefndar eftir ákaflegan
þarfan sigur fslands gegn Norð-
mönnum í gærkvöld, 22-20 i Laug-
ardalshöll.
„Sigur okkar var dýrmætur í
þeim skilningi að hann lyftir
undir mannskapinn fyrir það
langa æfingatímabil sem nú fer í
hönd,“ sagði Birgir ennfremur.
„Eftir hina slæmu byrjun settum
við nýja leikmenn inn — þá Pál
Björgvinsson og Þorberg Aðal-
steinsson — leikur þeirra var
mun frískari og léttari þar sem
þeir komu bókstaflega óþreyttir
inná. Sfðan vorum við búnir að
ákveða fljótlega í síðari hálfleik
að skipta Geir inná — einfalda
leikskipulagið í 4-2 — aðeins tvo
menn fyrir utan. Þetta höfum við
oft notað, enda ákaflega einfalt að
grípa til. Þetta ásamt því að við
tókum einnig tvo leikmenn
Norðmanna úr umferð sneri
leiknum okkur í vil — og sigur
vannst,“ sagði Birgir.
mistök, staður varnarleikur ásamt
nánast engri markvörzlu. Eftir 8
mínútna leik var staðan 2-2. Arni
Indriðason hafði skorað eftir góða
línusendingu Einars Magnús-
sonar — og Einar sjálfur brauzt í
gegn og skoraði — 2-2. En sfðan
kom 10 mínútna leikkafli — og
ekkert mark. Norðmenn breyttu
stöðunni í 7-2 — síðan 10-4. Von
um sigur virtist rokin út I norð-
vestan kaldann — en þá setti
Birgir Björnsson þá Axel
Axelsson, Þorberg Aðalsteinsson
og Pál Björgvinsson í stað þeirra
Einars, Geirs og Jóns Hjaltalín.
Nýr ferskleikablær kom á leik
íslenzka liðsins, Axel byrjaði að
vísu illa — en Þorbergur
Aðalsteinsson sýndi mjög góðan
leik — ásamt Páli, sem var
drjúgur — átti 2 línusendingar er
gáfu mörk, auk þess sem hann
fékk vítakast. Og tsland
hraðminnkaði muninn — úr 4-10 í
tvö mörk fyrir leikhlé, 9-11.
ísland missti Janus Guðlaugs-
son útaf skömmu fyrir leikhlé —
hann hafði strangar gætur á
Grislingaas — en átti í erfiðleik-
um í fyrri hálfleik. En byrjunin í
síðari hálfleik var ekki jafn góð
— íslendingar einum færri og
Norðmenn juku muninn I 14-10.
Þá komu þeir Geir og Árni
Indriðason inn fyrir Pál og Þor-
berg skipt um leikskipulag I 4-2
— og eftir 10 minútna leik hafði
ísland náð að minnka muninn I
eitt mark, 13-14.
Áhorfendur voru nú með á
nótunum, hvöttu leikmenn
dyggilega þar sem baráttan sat nú
í fyrirrúmi, bæði í sókn og vörn.
— En Norðmenn náðu að auka
muninn I þrjú mörk, 17-14 eftir 17
mlnútna leik. Hingað og ekki
lengra, var svar íslenzku leik-
mannanna — næstu 6 mörk voru
íslands, staðan breyttist úr 14-17 I
20-17 — sigur nánast í höfn.
Áhorfendur kunnu sannarlega að
meta takta þá er sáust — faileg
mörk Axels, stórkostlegar linu-
sendingar hans, mörk Geirs — og
kraft og harðfylgi Janusar
Guðlaugssonar — og í markinu
varði Gunnar Einarsson vel loka-
kaflann — Islenzkur sigur, 22-20.
Já, íslenzkur sigur — 22-20
sigur sem I raun setur enn fleiri
spurningamerki yfir hverjir 16
fara til Danmerkur. I raun má
segja að 10 leikmenn séu nokkuð
öruggir — en vissuiega hlýtur að
vera umhugsunarefni að aðeins
Axel Axelsson af „útlendingun-
um“ átti góðan leik I gærkvöld.
Og þá eftir mörg slæm mistök I
fyrri hálfleik. Sannar enn, að
ákaflega erfitt er að koma svona
inn og leika landsleik hér heima.
Jón Hjaltalin byrjaði hroðalega
—hann hefur aðeins náð að sýna
sínar réttu hliðar I fyrsta leik
slnum, gegn Ungverjum. Einar
Magnússon hefur og ekki náð sér
á strik — og eins hefur alla ógnun
vantað I leik Gunnars Einarsson-
ar. Vissulega vonbrigði — en I
raun erfitt að dæma þar sem þess-
ir fjórir hafa nánast verið settir
upp við vegg — sýnið góða hluti,
eða... Landsliðsnefnd mun velja
16 leikmenn nú um áramótin —
vissulega verður fróðlegt að sjá
hvernig val hennar verður.
Hvernig finna megi hið rétta jafn-
vægi hínna fjölmörgu stórskyttna
og hinna er spil snýst I kringum
— og þá einnig með tilliti til
varnarleiksins.
Landsliðsnefnd er vissulega I
erfiðri aðstöðu — hún þarf að
hafna 6 leikmönnum af þeim 22
er I landsliðshópnum eru.
Mörk íslands skoruðu — Jón
Karlsson 5 — öll úr vltaköstum.
Þorbergur Aðalsteinsson, Janus
Guðlaugsson, Geir Hallsteins-
son og Árni Indriðason
skoruðu 3 mörk hver — og Árni
átti vissulega góðan leik, hvort
heldur I vörn eða sókn. Axel
Axelsson skoraði 2 mörk,
Björgvin Björgvinsson, Bjarni
Guðmundsson og Einar Magnús-
son skoruðu eitt mark hver.
Ole Gundem og Trond Inge-
brightsen skoruðu 5 mörk hvor
fyrir Norðmenn — Geir Rose 2,
aðrir leikmenn eitt mark.
Hinir a-þýzku dómarar höfðu
mjög góð tök á leiknum — en rétt
eins og I fyrri leiknum voru þeir
helzt til fljótir að stöðva hann,
dæmdu of snemma. h. halls.
„Útlendingar” gegn
„innfædum” á morgun
A morgun, gamlársdag,
klukkan 2 fer fram að mörgu
leyti áhugaverður leikur í
handknattleik, viðureign
„útlendinganna" — það er
þeirra íslenzku leikmanna sem
leika með liðum erlendis — og
þeirra er leika hér heima.
Leikurinn fer fram I Laugar-
dalshöll.
Það verður því fróðlegt að sjá
þá Einar Magnússon, Jón
Hjaltalín, Gunnar Einarsson og
Axel Axelsson — en þeir eru
allir I íslenzka landsliðshópn-
um. Þeir fá til liðs við sig þá
Viðar Símonarson, Guðjón
Magnússon og Hörð Harðarson
en þeir þrír leika I Svíþjóð.
Allt valinkunn nöfn — og I
fslenzka liðinu verða, með Geir
Hallsteinsson I broddi fylk-
ingar, ekki síður kunn nöfn —
vissulega efni I athyglisverðan
leik.
Þessi leikur verður þvl kær-
komið tækifæri fyrir landsliðs-
nefnd að sjá I síðasta sinn
íslenzku landsliðsmennina I
leik áður en hún velur þá 16
leikmenn er fara til Dan-
merkur — val er allir hand-
knattleiksunnendur bíða með
óþreyju.
Já, vissulega leit út fyrir annan
ósigur tslands eftir hroðalega
byrjun — íslenzku leikmennirnir
hófu leikinn I Laugardalshöll eins
og hinn fyrri. Sömu þreytu-
mörkin voru og I fyrri leiknum —
íþróttir
Flugeldamarkaður Fram
Landsins mesta úrval af flugeldum og Mysum.
7stæröir af fjölskyldukössum.
Útsölustaöir: Félagsheimiliö v/Safamýri — Miðbær
v/Háaleitisbraut 58 Opið 2-10 Gamlársdag frá 9-4
Handknattleiksdeild Fram ^