Dagblaðið - 30.12.1977, Side 23

Dagblaðið - 30.12.1977, Side 23
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 1977. 23 fæstir viljað neitt með hann hafa. I þrjá áratugi hafa flótta- mennirnir verið á framfæri Sam- einuðu þjóðanna og Banda- ríkjanna. Hafa þeir fengið húsa- skjól, fæði og nokkra menntun. Arabaríkin hafa ekki viljað taka þá til sín og þeir hafa krafizt þess og margir trúað á að í fyll- ingu tímans yrði Israelsríki þurrkað út af landakortinu eins og hver önnur skekkja og þeir fái að hverfa aftur til sinna gömlu heimkynna. Til þess eru litlar vonir nú. Egyptar, Jórdanir og leifar Líbanonríkis vilja viðurkenna Israel ef sæmiiega viðunandi friðarsamningar nást. Næstu vikur munu líklega skera úr um það, hvort þetta hrakta fólk fær varanlegt land fyrir sig og afkomendur sína. Þótt Sadat forseti hafi unnið mikið af- rek á alþjóðavettvangi að flestra dómi virðast honum mislagðar hendur í stjórn mála heima fyrir. % Sadat mislagðar hendur innanlands Mikil verðbólga er í Egypta- landi og í janúar urðu miklar óeirðir vegna þessa í Kairó og voru þá rúmlega þrjátíu manns drepnir. Ekki gengur vel að jafna tekjur manna í Egyptalandi og enn er mikið djúp milli hinna fátækustu og ríku. Stúdentar og aðrir framfara- sinnaðir hópar eru Sadat fremur andsnúnir og sérfræðingar telja hann mega gæta sín til að verða ekki of valtur í sessi heima fyrir. Drottning Husseins dóogCIA hætti að borga Hussein Jórdaníukonungur varð fyrir ýmsum áföllum á árinu. Alia drottning hans fórst í þyrluslysi 9. febrúar og nokkrum dögum síðar var upplýst að CIA leyniþjónusta Bandaríkjanna hafði haft konung á launaskrá siðustu tuttugu ár og greitt hon- um stórar fúlgur. Voru greiðslurnar ekki stöðvaðar fyrr en skömmu eftir að Jimmy Cart- cr kom til valda í byrjun ársins. Efnahagur Libanon er gjörsam- lega í rúst eftir nærri tveggja ára borgarastyrjöld milli kristinna hægri manna og múhameðskra vinstri manna (sem mun vera mjög ónákvæm skipting). Strax í byrjun ársins urðu óeirðir í Beirút eftir hlé, sem verið hafði að mestu frá miðjum nóvember á liðnu ári. Talið er að milli tuttugu og þrjátíu manns hafi fallið í þessum átökum i Beirút. Forustumaður vinstri manna, Kamal Jumblatt, var myrtur af óþekktum tilræðismanni 16. marz og þótti að honum mikill skaði. Var hann talinn sá maður sem hugsanlega gæti sameinað þegna Líbanons aftur eftir blóðbaðið I borgarastyrjöldinni kom hvað eftir annað í ljós að tsraelsmenn studdu kristna Líbanonsmenn meira og minna. Ef hægt er að telja einhverja sigurvegara úr þeim hildarleik sem f Líbanon hefur farið fram á undanförnum árurn, eru það kristnir hægri menri. Flestir telja að þeir hefðu aldrei náð þeirri stöðu án aðstoðar Israelsmanna. Framtíð Líbanons óviss Alls er óvist um fram- tið Líbanons og er þar sannarlega sköpum skipt, því að fyrir nokkr- um árum varþai namjög blómlegt viðskiptalíf, ferðamannaiðnaður mikill og Beirút nokkurs konar fjármálamiðstöð austursins. Gæðunum var aftur á móti mis- Napoleon Bonaparte átrúnaðar- goð hans gerði í byrjun desember. Gífurlegum fjármunum var eytt í athöfnina í þessu einu fátækasta ríki heims. Bágarfriðarhorfur íbyrjunársí Miðausturlöndum 1 byrjun ársins sáust þess lítil merki að friðvænlega horfði í Miðausturlöndum. Sumir töldu sig sjá fram á styrjöld milli Israels og Arabaríkjanna. Waldheim aðalritari Sam- einuðu þjóðanna lét meðal annarra hafa slíkt álit eftir sér í lok janúar. Um miðjan nóvember skipað- ist þó veður í lofti svo um munaði. Anwar Sadat forseti Egyptalands lýsti því yfir að hann væri fús til að fara til Israels til viðræðna við Menachem Begin forsætisráðherra og Knesset þing Israels. Kom þetta flestum á óvart og ekki sfzt leiðtogum annarra Arabaríkja. Alsír, Líbýa og Palestínumenn lýstu strax yfir andstöðu sinni ásamt Irak og Sýrlandi. Fordæmdu leiðtogar rikjanna Sadat harðlega og sögðu hann svíkja allt sem Aröbum væri heilagt. Sadat lét engan bilbug á sér finna og ítrekaði tilboð sitt. Israelsmenn létu ekki á sér standa og buðu forseta Egyptalands velkominn. ræddust þeir Begin og Sadat við í sumarhöll hins síðarnefnda í borginni Ismailia á bökkum Suez- skurðarins. Andstæðingar Sadats meðal Arabaleiðtoga héldu fund í Tripoli í byrjun desember Ekki náðist samstaða um aðgerðir gegn Egyptum en Líbýa, trak og Alsír hafa öll slitið stjórnmálasam- bandi við Egypta og fara fá hlý orð þar á milli um þessar mundir. JórdanirogSaudi Arabía bíða átekta Jórdanir og Saudi Arabía hafa farið sér hægar og einnig virðist svo sem Sýrlendingar séu að hugsa sinn gang, þó svo að þeir hafi lýst yfir andstöðu við stefnu Sadats gagnvart tsrael. Friðarhorfur hafa því tvímæla- laúst vænkast í þessu ófriðar- horni síðustu þrjá til fjóra ára- tugi. Egyptar og ísraelsmenn virðast hafa komizt að samkomulagi um Sinafskaga. • Helzta deiluefnið er vestur- bakki Jórdanár þar sem Palestínuflóttamenn búa. Egyptar hafa krafizt þess að sá skiki verði frjálst rfki Palestínu- manna. ísraelsmenn hafa látið af fyrri kröfum um algjör yfirráð yfir vesturbakkanum. Segjast þeir nú vilja veita Palestínumönnum nokkra heimastjórn. Eftirlit verði í höndum Jórdana og tsraels- manna, sem áfram verði með her til öryggisgæzlu á svæðinu. Elvis Presley rokkkóngur lézt í ágúst, fjörutíu og tveggja ára gamall. Gömlu lögin hans hljóma nu aftur af litlu minni krafti en þegar kappinn var upp á sitt bezta. jafnt skipt og til þess mun borgar- styrjöldin hafa átt rætur sfnar að rekja, f það minnsta að hluta. Rabin var forsætisráðherra Israels í byrjun ársins. I apríl kom í ljós að eiginkona hans átti reikning í bandarískum banka og var innistæðan á honum 18000 dollarar. Var reikningurinn sagður frá þeim tíma þegar Rabin var sendi- herra lands síns i Bandaríkjun- um. Inneign í erlendum banka er lögbrot að ísraelskum lögum og vildi Rabin segja af sér sam- stundis. Flokksbræður hans f Verkamannaflokknum vildu þó ekki samþykkja það og sat hann formlega í embætti forsætisráð- herra þar til kosningar fóru fram um miðjan maí. Þá tapaði Verkamannaflokkurinn og eftir nokkurt þóf við stjórnarmyndum tókst Menzchem Begin að mynda stjórn. Flokkur hans og hann sjálfur þótti til skamms tima mjög öfgasinnaður ef ekki hreinn lýð- æsingaflokkur á köflum. Virtist Begin ætla að fylgja þeirri stefnu áfram fyrst eftir að hann tók við forsætisráðherraembættinu. Begin veiktist illa af hjarta- sjúkdómi i október en virðist hafa náð sér aftur. Begin hefurgefið eftiraf kröfum Hefur hann gefið mikið eftir af fyrri kröfum Israelsmanna í friðarumleitunum við Egypta. Eru því jafnvel horfur á þvf að þessi fyrrverandi hryðjuverka- maður og eftirlýsti morðingi á valdatímum Breta f Palestínu fái það hlutverk að leiða þjóð sfna til langþráðs friðar. Ekki er þó hægt að fullyrða neitt um það að svo komnu máli. Akvörðun um stríð eða frið f Miðausturlöndum er algjörlega komin undir tsraelsmönnum og Egyptum. Þessar þjóðir hafa alltaf borið hitann og þungann af stríðsrekstrinum í þeim fjörum styrjöldum sem háðar hafa verið síðan 1947. Að vfsu geta Sýrlend- ingar haft einhver áhrif en þar er einkum um að ræða Golanhæð- irnar á landamærum Israels og Sýrlands. Vel heppnuð ísraelsferð Sadats I stuttu máli sagt varð Israels- ferð Sadats mjög vel heppnuð. Begin og Sadat kepptust við að lýsa yfir friðarvilja sfnum.Sadat ávarpaði Knesset og allir við- staddir þóttust skynja að mikil tfðindi væru í vændum. Ákveðið var að halda ráðstefnu I Kairo í byrjun desember og hefur hún starfað en einnig Fá Palestínuflótta- menn loks hæli? Þarna virðist hnífurinn standa f kúnni. Flóttamennirnir og af- komendur þeirra frá hinni gömlu Palestfnu, sem Gyóingar náðu undir sig f styrjöldinni 1947 - ’48, verða að fá eitthvert tryggt hæli. Sannast sagna hefur þessi hópur, rúmlega ein milljón manna, horfið f skuggann og Sadat Egyptalandsforseti kveður ísraelsmenn eftir velheppnaðan fund með forustumönnum þeirra í Tel Aviv í nóvember siðastliðnum Israelsmenn ætla að halda sínu í Gólanhæðum Israelsmenn munu ákveðnir í að láta ekki af hendi þann hluta •*

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.