Dagblaðið - 21.01.1978, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 20. JANUAR 1978.
............. ' " V
Er himnaríki hérna megin?
Útvarp:
I LJÖSASKIPTUM
Leikrit eftir Ævar R. Kvarati
Ekki er ég viss um að rétt sé
sem sagði hér í blaðinu á dög-
unum, að það væri makalaus
nýjung hjá Ævari Kvaran að
láta útvarpsleikrit sitt á
fimmtudagskvöld ske handan
við landamæri lífs og dauða.
Fjórði þátturinn í leikriti
Einars Kvarans um Hallstein
og Dóru gerist sem kunnugt er
eftir dau'ðann, og er enn óleyst-
ur vandi að tengja saman jarð-
neskt og yfir-jarðneskt efni
leiksins, baðstofu- og sveitalifs-
lýsingu fyrri þáttanna við yfir-
skilvitlegt tilverusvið lokaþátt-
arins. Skyldi vera tilvinnandi
að reyna? Á kannski Einar
Kvaran, og andatrúin íslenska,
það inni að slík tilraun verði
einhvern tíma í alvöru gerð?
En fyrir utan Hallstein og Dóru
kemur í hugann annað leikrit
sem hér varð vinsælt og marg-
leikið á fyrri tíð, Á útleið nefn-
ist það, og gerist reyndar á leið-
inni burt úr jarðneskum tára-
dal til betri vista.
Nema hvað. Þiótt leikrit
Ævars Kvarans vissulega gerist
í öðrum heimi var þar engum
skilum hins jarðneska og himn-
eska fyrir að fara i líkingu við
Hallstein og Dóru. Þar voru
aftur á móti rakin i flatneskju-
legum orðræðuni ýmis fræði
spíritista um líf handan líkams-
dauðans. Þau vandamál og við-
fangsefni sem fólkið reifaði í
leiknum voru að vísu öll af því
tagi að þau væru betur leyst
hérna megin. Kannski himna-
rlki sé hér ef rétt er á lífinu
haldið?
En leikurinn greindi frá
hjónum nokkrum, Ásdísi og
Hannesi, prófessor í bókmennt-
um við háskólann, og syni
hjóna, Pétri. Hannes er hygg-
inn maður, forsjáll og velvilj-
aður, en orðinn ósköp leiður á
starfi sínu og langar að lesa
eitthvað staðbetra í lífsins og
náttúrunnar miklu bók. Frú
Asdís hefur elsku mikla á blóm-
um og blómarækt, en er annars
ósköp kvenleg, viðkvæm og ráð-
laus, og stendur I óbættri sök
við manninn sinn. Hún hefur
sem sé á sínum tfma látið keppi-
naut hans um prófessorsstöð-
una, Brand nokkurn, barna sig
í hefndarskyni fyrir að
Brandur beið lægri hlut fyrir
Hannesi. Þannig varð nú
Pétur til. Fyrir æðri hand-
leiðslu tekur Ásdís það ráð að
játa öll þessi ósköp fyrir manni
slnum. En hann vissi þetta þá
allt fyrir, löngu búinn að fyrir-
gefa frúnni, ráðinn I því að láta
ekki Brand, þann skrattakoll,
spilla fyrir sér fjölskyldulífinu
og heimilishamingjunni, og
Pétur elskaði hann eins og sinn
eigin skilgetinn son. Nú átt þú
bara eftir að fyrirgefa sjálfri
þér, heillin góð, sagði hann við
konu sína, eða önnur orð í þá
áttina, og við svo búið lauk leik-
ritinu.
En hitt var ekki útskýrt af
hverju fór eins og fór fyrir
Pétri og frá sagði fyrr í leikn-
um. Hann lenti í drykkju og>
dópi og endaði á að hengja sig.
Kannski eitthvað hafi verið at-
hugavert við heimilishamingj-
una og fjölskyldulífið hjá hans
góðu foreidrum sem betra hefði
verið að ráða fram úr í tíma?
En á æðra tilverustigi er Pétur
enn að reyna að ná sér upp úr
sinni fyrri eymd, og gefur sig í
því skyni að hjálparstarfi við
aðra sem svipað er ástatt um og
sjálfan hann, líkt og gert mun
vera í AA-samtökum, Freeport-
klíkunni og hinum nýstofnuðu
samtökum áhugamanna um
áfengismál.
Undravert má það heita um
þrautreyndan leikara eins og
Ævar Kvaran, sem auk þess
hefur mikið fengist við ritstörf,
að honum virtist með öllu ósýnt
um að skrifa lifandi leikhæfan
texta, koma fram frásagnarefni
eða láta fólk tjá sig í trúverð-
ugri orðræðu. Allir I leiknum
töluðu í staðinn upp úr einni og
sömu kokkabók hinna spírit-
isku fræða.
Rúrik Haraldsson lék Hannes
prófessor, Sigriður Hagalin frú
Asdísi, Hjalti Rögnvaldsson
veslings Pétur. Að auki var Gísli
Halldórsson: Arni, einfaldur al-
þýðumaður sem fengist hefur
við garðyrkju og var til þess
settur að halda I hönd með
hinni bágstöddu prófessorsfjöl-
skyldu hinum megin. Það var
helst á leiknum að skilja að
honum mundi um síðir takast
að koma þeim öllum nokkuð á
Höfundur leikritsins 1 ljósa-
skiptum, Ævar R. Kvaran
leikari.
leið til þroska og ljóss f þeirri vor allra bíði handan við gröf
pénu, borgaralegu tilveru sem og dauða.
f/ÁJÖgÉk'i
Listá
Lauga-
veginn:
KLAUSTURHÓLAR
BYGGJA STÓRHÝSI
„Skáksambandið hefur keypt
þriðju hæðina I húsinu og flytur
inn nú á næstunni. Sölvi Öskars-
son verzlunarmaður hefur keypt
aðra hæð fyrir skrifstofuhúsnæði
og á neðstu hæðinni verður
Ulrich Falkner gullsmiður og
opnar hann sennilega í mánuðin-
um, Klausturhólar verða einnig á
fyrstu hæðinni og I kjallaranum,'1
sagði Guðmundur Axelsson
uppboðshaldari í Klausturhólum í
samtali við DB. Guðmundur hefur
byggt stórhýsið að Laugavegi 71
en byggingaframkvæmdir hófust
í nóvember 1976. Byrjað var að
innrétta húsnæði Klausturhóla
fyrir nokkrum dögum. —
Ætlunin er að á efstu hæðinni
verði íbúðarhúsnæði og er verið
að selja þá hæð þessa dagana,"
sagði Guðmundur.
„Ætlunin er að halda málverka-
og bókauppboðin þarna I fram-
tíðinni," sagði Guðmundur.
Klausturhólár halda átta bóka-
uppboð og tvö til þrjú málverka-
uppboð árlega. Ekki vissi Guð-
mundur hvenær fyrirtæki hans
gæti flutt í nýja húsnæðið en
síðustu uppboðin I maí í vor hafa
verið auglýst á Sögu og í Tjarnar-
búð, þannig að það verður ekki
fyrr en 1 fyrsta lagi I haust, sem
hann getur haldið uppboð á nýja
staðnum.
Arkitekt nýja hússins við
Laugaveg er Hrafnkell
Thorlacius.
-A.Bj.
Vélhjólasendlar
óskast nú þegar
BLADIB
Þverholti 11- Sími27022
Þetta er hús Klausturhóla við Laugaveginn. Þar verður Skáksamhand Islands til húsa í framtióinni. —
DB-mynd Sigurjón.