Dagblaðið - 21.01.1978, Blaðsíða 24
Kosningar til borgarst jórnar í sumar:
Háværar raddir um óháð
framboð f Breidhotti
— en forsvarsmenn vilja hvorki staðfesta né neita
„Þetta er ekkert fastmótaö
ennþá og alls ekki víst að af
neinu verði,“ sagði Gunnar
Eyjólfsson leikari er DB bar
undir hann sögusagnir um óháð
framboð nokkurra Breiðhylt-
inga í næstu borgarstjórnar-
kosningum í sumar. „Fram til
þessa hefur þetta ekki verið
nema á umræðugrundvelli
milli nokkurra manna. Ljóst er
hins vegar að það er sitt hvað
að kjósa til borgarstjórnar og
að kjösa til Alþingis,“ sagði
Gunnar.
Gunnar sagði að í
Breiðholti byggju nú nær 25
þúsund manns. Væri það
tvöfaldur fólksf jöldí á við
nokkra stærstu kaupstaði
landsins eins og t.d. Kópavog og
Akureyri. Ekkert væri
eðlilegra en að sterk rödd
heyrðist í borgarstjórn frá
fulltrúum íbúa í slíkum borgar-
hlutum.
Gunnar sagði vandamál
Breiðholtsbúa vera mörg.
Félagsleg aðstaða væri þar
lítil og samgöngur við borgina
væru í algeru lágmarki. Líkast
því væri að ekki hefði verið
gert ráð fyrir því að nokkur
íbúi Breiðholts eignaðist bíl en
fyrst svo væri orðið kæmi í ijós
að á annatímum tæki það lög-
reglu-, slökkvi- og sjúkralið óra-
tíma að komast til og frá
Breiðholti eftir örmjórri akleið
vfirfylltri af bílum.
I Breiðholti væri ekkert kvik-
myndahús og enginn mat-
sölustaður. Aðstæðurnar væru
svo ömurlegar, að hinn frægi
Lugmeier, sem þar hafói setzt
að, hefði orðið því feginn að
losna þaðan í þýzkt fangelsi
næstu 15 árin.
Gunnar kvað umræðurnar
um óháð framboð í Breiðholti
fyrst og fremst til komnar
vegna þess að borgarstjórnar-
fulltrúar lofuðu miklu fyrir
hverjar kosningar en gleymdu
svo efndum flestra mála þar til
að næstu kosningum drægi.
-ASt.
GUNNAR EYJOLFSSON
ekkert fastmótað ennþá.
Eftir hátíðina miklu:
NAMMI-NAMM!
Hk / ' í
Blaðamenn Dagblaðsins fengu
svo sannarlega fjörefni í
kroppinn í hádeginu í gær og
veitti svo sannarlega ekki af eftir
hina miklu stjörnumessu kvöldið
áður. Frá Múlakaffi voru trogin
borin til ritstjórnarmanna, hlaðin
hvers kyns góðgæti í hinum
gamla góða anda. Guðsgafflarnir
voru notaðir og bragðlaukarnir
höfðu ærinn starfa. Þannig
byrjaði fyrsti dagur þorra eins og
til er ætlazt. Og nú er um að gera
fyrir matgoggana að kýla vel
vömbina allan þorrann, þarna er
heilnáem og góð fæða ein’s og for-
feður okkar borðuðu á harðæris-
tímum þjóðarinnar.
Stundaði gluggagægjur í
Hlíðahverfi mánuðum saman
Játaði við handtöku miklu fleiri brot en kærð höfðu verið
Allþungu fargi er létt af ýms-
um íbúum Hlíðahverfis með því
að komizt hefur upp um mann
sem þar hefur hrellt íbúa með
gluggagægjum. Höfðu tvær
kærur borizt um síendurteknar
gægjur, en þegar maðurinn
loksins náðist játaði hann fleiri
afbrot á þessu sviði en kærð
höfðu verið.
Hinn seki gerði sig heima-
kominn við glugga margra
kjallaraíbúða þar sem gluggar
eru næstum niðri við jörðu.
Gáetti hann þess sem frekast
var kostur að gera íbúum ekki
ónæði en þó fór svo í ýmsum
tilfellum að hans varð vart.
Handtöku hans bar t.d að með
þeim hætti að maður, sem
vinnur vaktavinnu, sá glampa í
gleraugnagleri gægjumannsins.
Hafði „gluggagægir" oft gert
vart við sig við þetta hús áður
þá er húsbóndinn var á vakt og
húsmóðir ein heima.
Lögregla var kvödd til en er
hún kom á staðinn var glugga-
gægir horfinn en samtímis því
að fara á kærustað fór lög-
reglan að heimili mannsins sem
grunur hafði fallið á. Kom allt
heim og saman, för eftir skó
hans í snjó í húsagörðum, og
játaði maðurinn verknað sinn.
Mál mannsins er enn hjá
rannsóknarlögreglu en mun að
yfirheyrslum loknum verða
sent saksóknara til ákvörðunar.
-ASt
LAUGARDAGUR 21. JAN. 1978
Alþingisframboðin:
BjörnJónsson
forseti ASÍ í
4.
Björn- Jónsson, forseti
Alþýðusambands Islands, verður
í fjórða sæti á lista
Alþýðuflokksins til alþingis-
kosninga í Reykjavík, samkvæmt
heimildum sem DB telur áreiðan-
legar.
Fyrstu 6 sætin verða þá skipuð
samkv. sömu heimildum: Bene-
dikt Gröndal, Vilmundur Gylfa-
son, Jóhanna Sigurðardóttir,
Björn Jónsson, Bragi Jósepsson
og Helga Einarsdóttir.
Liklegt er að Eggert G. Þor-
steinssyni hafi verið boðið fjórða
sæti listans en hann ekki viljað.
Hins vegar kemur enn mjög til
greina að hann fari í efsta sætið í
Austurlandskjördæmi. Alþýðu-
flokksmenn á Austurlandi
telja sér mikinn feng að framboði
Eggerts þar og sækja á hann að
fara i það.
Jón Baldvin Hannibalsson fer
að öllum líkindum í 2. sæti í Vest-
fjarðakjördæmi, í samræmi við
niðurstöður prófkjörsins.
-BS.
Níu skip með
4000 tonn
Nú eru
veiðisvæðin tvö
Níu skip höfðu tilkynnt
lóðnuafla frá því á miðnætti
aðfaranótt föstudags til kl. sex í
gær. Fékkst aflinn á tveimur
svæðum norður af Vestfjörðum
og norður af Langanesi. Aflinn
dreifðist á löndunarhafnir:
Bolungarvík, Raufarhöfn, Vopna-
fjörð og Neskaupstað.
Skipin sem tilkynntu afla voru
þessi: Albert 100, Gísli Arni 550,
Oskar Halldórsson 400, Breki Ve
600, Börkur 800, Sandafell 250,
örn 400, Pétur Jónsson 380 og
Guðmundur RE 550.
-ASt.
Heildarlöggjöf um
ríkisbankana —
næstkoma lögum
einkabankana
„Frumvarp til bankalaga er í
prentun og verður lagt fram sem
stjórnarfrumvarp á Alþingi innan
tíðar,“ sagði Ólafur Jóhannesson
dómsmálaráðherra í viðtali við
DB í gær. Ráðherra kvað þetta
frumvarp, ef að lögum yrði, leysa
af hólmi núgildandi lög um hvern
einstakan ríkisbanka. Síðar er að
vænta nýrrar lagasetningar um
bankana sem reknir eru ;neð
hlutafélagsformi.
)
*
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i