Dagblaðið - 21.01.1978, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 21.01.1978, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1978. 11 N þingmaður 1948 og sigur sinn i þeirri kosningabaráttu átti hann fyíst og fremst and- kommúnískri baráttu sinni að þakka. Seinna sigraði hann hinn illræmda Joe Mc Carthy með því að leggja fyrst fyrir þingið frumvarp þar sem kommúnistaflokkur Banda- ríkjanna var bannaður. Með harðfylgi útilokaði hann einnig verkalýðsfélög sem voru undir stjórn kommúnista. Hann átti einnig frumkvæði að því að al- ríkislögreglan FBI fékk aukið vald til þess að kanna hollustu og löghlýðni borgaranna. VELFERÐARRÍKIÐ Humphrey stuðlaði að auknu iðnaðar- og hernaðarveldi en hann gleymdi þó ekki þeim sem verst voru settir i þjóðfélaginu. Efnahagur Bandaríkjanna leyfði bæði víg- búnað og félagslegar umbætur. Arangurinn varð sá að umsvif hins opinbera jukust að mikl- um mun. Hann var einnig meðal frum- kvöðlanna að ákveðinni gerð sjúkratrygginga, betri menntunarmöguleika og friðar- deilda. Fáir börðust harðar fyrir lagasetningu um borgara- réttindi á sjötta áratugnum en hann. Humphrey var valinn vara- forsetaefni demókrata með Johnson forseta árið ’64. Fram- boð þeirra var mjög sterkt enda unnu þeir stórsigur á fram- bjóðendum repúblikana þar sem Barry Goldwater galt mikið afhroð. Samvinnu þeirra fyrir kosningarnar var þannig lýst: „Það er ekki aðeins það að þeír ríku haldi upp á Johnson og þeir fátæku upp á Humphrey. Þeir eru orðnir eins og síamstvíburar. Johnson fer krossferð gegn fátæktinni á meðan Humphrey kitlar undir- hokur þeirra ríku. Þegar tvi- burinn til vinstri hreyfir sig til hægri, hreyfir tvíburinn til hægri sig til vinstri. Hvernig á aumingja Goldwater að ráða við slíkt? Víetnamstríðið Sem varaforseti Johnsons forseta lenti Humphrey í því að vera sá sem varði stríðs- reksturinn í Víetnam hvað ákafast gegn gagnrýni vinstri- aflanna í Demókrataflokknum. ýkja mikið á milli stjórnvalda og „háttvirtra kjósenda". Hin fullyrðingin að íslend- ingar þurfi að hlíta vinnu- þrælkun er heimska sem fyrir löngu hefði átt að vera búið að kveða niður. Auðvitað eru sumir atvinnu- vegir þess eðlis að ekki verður komist hjá skorpuvinnu. A stuttu sumri verður að ná inn heyjum og erfitt er að tak- marka vinnutíma sjómanna ná- kvæmlega. Vinnuþrælkunin byggist heldur ekki á sérþörf- um þessara atvinnuvega. Vinnuþrælkunin byggist ekki á nauðsyn meiri afkasta. I afar mörgum tilfellum aukast afköst ekki við langan vinnutíma. Þvert á móti minnka þau við stöðugan langan vinnutíma. Enda eru afköstin ekki for- senda þrælkunarinnar. Orsökin er sú, að vegna kolvitlausrar stefnu í kjaramálum verður þessi blekking að viðgangast til þess að launþegar fái oní sig og í mörgum tilfellum til þess að fullnægja stöðugt nýjum gervi- þörfum sem neysluþjóðfélagið ungar út. ÁRALANGT SKULDAFANGELSI Grunnþörfum fólks verður að fullnægja. Síðan í heims- styrjöldinni hafa allir íslend- ingar haft nokkurn veginn næg matvæli. Þó hefur alltaf verið nokkur hluti fólks sem búið hefur við þröngan kost. Meira að segja í mesta lífsgæðakapp- hlaupinu undanfarin ár hafa vissir hópar fólks gleymst. Þetta eru þeir sem búa við hreina skömmtun samfélagsins. Þetta fólk hefur hvað eftir ann- að komist að hungurmörkun- Seinna iðraðist hann þessarar varnar sinnar og hélt því fram eins og margir aðrir að hann hefði alltaf efazt um réttmæti stríðsrekstursins. En á árunum fram til 1968 hafði það verið mjög áberandi i málflutningi að verja stríðs- reksturinn í Víetnam og í for setakosningunum það ár náði Humphrey aldrei að sannfæra kjósendur um fyrri framfara- stefnu sína. Hann tapaði kosn- ingunni fyrir Richard Nixon og alvarlegur klofningur varð í Demókrataflokknum. Humphrey hvarf af sjónar- sviðinu um stund og átti bitrar minningar úr embætti varafor- setans. Hann lýsti þvi svo að það væri eins og að vera nakinn úti í snjóbyl og enginn kæmi til þess að bjóða þó ekki væri nema eina eldspýtu til þess að hlýja sér á. En árið 1970 var hann aftur kosinn [ öldungadeildina. En tímarnir voru breyttir. Hann hafði orðið til þess að drepa hugmyndafræðina í bandarísk- um stjórnmálum. Tími frjáls- hyggjunnar var liðinn. Astand efnahagsmálanna leyfði ekki bæði vígbúnaðarkapphlaup og velferðarríki. Með efnahags- kreppunni og strangari fjár- málastjórnun datt grund- völlurinn undan þeirri einingu er ríkt hafði á milli launþega og atvinnurekenda. Þegar Carterstjórnin varð fyrir gagnrýni af hálfu verka- lýðssamtakanna og ýmissa minnihlutahópa leitaði Hvíta húsið ráða hjá fornvini þessara hópa, Hubert Humphrey, sem náði því þannig á síðustu ævidögum sínum að verða aftur áhrifamikill í bandarisku stjórnmálalifi. um. Heilsufari hins hluta þjóðarinnar hefur verið stefnt í voða vegna ofáts. Kjallarinn Hrafn Sæmundsson Þegar kemur að hinni aðal- frumþörfinni eru málin í allt öðru og verra ástandi. Þar er átt við þá nauðsyn manna að hafa húsaskjól. Ástand þeirra mála er eins vitlaust og hugsast getur. Fjárfesting í íbúðarhús- næði er vafasöm, svo að ekki sé meira sagt. Þar er annars vegar um að ræða hömlulausa og óhefta fjárfestingu í lúxushús- næði og hins vegar skipulags- litla fjárfestingu í almennu íbúðarhúsnæði. Þó að almenn- ingur geri ekki miklar kröfur um íbúðarhúsnæði, þá er mögu- leikinn til að fullnægja þeim að verða útilokaðpr við núverandi aðstæður. Ef eitthvað þarf að rífa — því þá ekki Moggahúsið? Þau ótíðindi hafa nú borist úr borgarráði, að þarlendir hyggist láta rífa öll hús við Hótel íslandsplanið, til að þar megi rísa af grunni einn gler- kassinn í viðbót. Ég segi þar- lendir, því það er ekki eins og forráðamenn þessarar borgar eigi upphaf sitt og rætur í henni, heldur minnir fram- koma þeirra á óuppdreginn ræningjaskríl sem veður um borgina, rífandi niður allt það sem minnir á upphaf hennar, og þó einkanlega ef það getur á einhvern hátt talist siðuðu fólki til augnayndis. Þannig sendu þessir þokkapiltar sveina sína út af örkinni um daginn þeirra erinda að rífa niður húsin við Lækjartorg, vitanlega svo ein- hverjir braskarar gætu reist þar Mammonskassa úr gleri. Annars hef ég hvorki tíma né taugar til að telja upp þau spjöll, sem unnin hafa verið á miðbæ Reykjavíkur í þágu ný- ríkrar og siðlausrar borgara- stéttar. Það er staðre.vnd, að umhverfisvernd er ekki sinnt. eingöngu vegna þess, að það kemur sér illa fyrir óuppdreg- inn braskaralýð, sem best væri geymdur á jöklum uppi, þar sem hann flæktist ekki fyrir vel uppöldu fólki. Hverjir eru spurðir leyfis, þegar fremja á spjöll á miðbæn- um? Ekki Siggi hálofta og ekki Öddi Karls, og veit ég þó ekki til að þessir vinir mínir eigi nokkuð minna í Reykjavík heldur en B.vrsleifur og Berti Kjallarinn Pjetur Lárusson Gvendar og allir þeirra nótar. Það er eins og þeir menn, sem borgarbúar hafa í fáfræði sinni kjörið til forystu, geri sér ekki grein fyrir því að borgin, og þá ekki sist miðbærinn, er sam- eign okkar sem hana byggja. Hún er ekki aðeins umhverfi okkar, heldur einnig lífæð. Með slika hluti leyfist engum að ráðskast i krafti auðs og valda. sem hvort 'veggja er auk þess fengið nteð vafasömum hætti, an það er kapituli út af fyrir 'ig. Árásina á húsin við Hótel ís- landsplanið, eða Hallærisplan- ið, eins og það er kallað verður að stöðva. ef ekki á að bre.vta nafni borgarinnar í Hallæris- borg. Ef endilega þarf að rífa ein- hver hús í miðbænum, þá leyfi ég mér að benda á Moggahúsið. Bæði er að það spillir umhverf- inu, og svo hitt, að þar er sterk- asta vígi þeirra niðurrifsafla, sem pkkert er heilagt utan aur- arnir einir. Og meðal annarra orða, hvar eru Torfusamtökin nú? Pjetur Lárusson rithöfundur Ungt fólk, sem í bjartsýni æskunnar ætlar að hefja búskap, rekur sig á óyfirstígan- lega hindrun í þessum efnum. Skipulag þessara mála er þannig, að það kostar ekki minna en áralangt skuldafang- elsi að komast í húsnæði þegar best lætur. Þetta er eitt af versta óréttlætinu sem ungt fólk býr við í þjóðféiaginu. í stað þess að njóta þeirra ára, sem best eru, verður nú allt í einu að segja skilið við þjóðfélagið. Frá því að hafa búið við verulegt frjálsræði í uppvexti er nú lokað fyrir félagslegt samneyti ungs fólks. Mjög mikill fjöldi verður úti í þessari orrahríð. Það er vafa- samt að eldri kynslóðin og ráða- menn geri sér raunhæfa grein fyrir þessu. HRETIN DREPA LÍFSÞRÓTTiNN Fyrstu áratugir ævinnar'eru það tímabil sem ungt fólk er opnast og hefur mesta mögu- leika á að þroskast. Á þessum árum er lagður grunnur að allri ævi. A þessum árum er ungu fólki eðlilegt að glima við áhugamál sín og hljóta þá lífs- fyllingu og þroska sem mannin- um er eðliiegt að ná gegnum stöðuga endurnýjun. Heil- brigðu ungu fólki er það eðli- legt, eins og hliðstæðu úr ann- arri náttúru, að blómstra. Að njóta lífsins hvern dag. Það ætti að vera siðferðisskylda hvers þjóðfélags að skapa aðstæður fyrir því að þetta vor manneskjunnar geti liðið án þess að hretin drepi niður eðli- legan lífsþrótt. Þannig er þessu ekki varið hér á fslandi. MARTRÖÐ NEYSLUKAPPHLAUPS Áður var minnst á almennan vinnuþrældóm fólks og sú full- yrðing sett fram, að hann hefði áhrif á næstu kynslóðir. Það unga fólk, sem nú slítur barns- skóm, er afkvæmi þessa tíma- bils. Það er óreiknað dæmi, hvernig búið hefur verið að þessari æsku hvað innri upp- byggingu snertir. Meginþorri unga fólksins er fæddur og uppalinn í neyslu- kapphlaupi sem á sér enga hlið- stæðu hér á landi. Síðasti ára- tugur hefur verið óhugnanleg martröð hvað þetta snertir. Það takmarkalausa frelsi sem ríkt hefur er nú búið að setja þjóð- ina niður á stig siðleysis. Til að viðhalda þessu yfirþanda neysluþjóðfélagi hefur eigna- rétturinn verið afnuminn að stórum hluta. Vissir þjóðfélags- hópar hafa fengið óáreittir að fl.vtja til ómælda fjármuni í þjóð félaginu innan ramma laga og utan þeirra. Þetta blasir hvar- vetna við. Meginþorri almenn- ings hefur tapað öllum áttum og hefur engan siðferðislegan grunn að standa á. ÞRÓUN Í BLAÐAMENNSKU Vegna þróunar í blaða- mennsku hefur allra síðustu ár verið hróflað við ýmsu sem áður var falið í samtr.vggingar- þögn. Vegna tilkomu Dag- blaðsins, sem flutti blaða- mennsku út úr messuforminu. fór almenningur aftur að opna skilningarvii sín og velta hlut- unum fyrir sér. Sú óskaplega tregða, sem dagblöðin hafa sýnt gagnvart þessari reynslu, sýnir það hve mikil nauðsvn var fyrir þjóðfélagið að hafa fjölmiðil sem hafði aðstæður til að halda opnum umræðuvettvangi. í sambandi við þjóðmálaum- ræðu er það yfirþyrmandi. hve dagblöð og stjórnmálamenn eru blind fyrir þeim breytingum, sem orðið hafa. Vegna þróunar þjóðmála undanfarin ár og þeirrar reynslu sem almenn- ingur hefur fengið af stjórn- málamönnum og blöðum þeirra þá lokast öll skvnfæri fólks þegar farið er að messa í gamla messuforminu. Sú þjóðmálaum- ræða, sem er á umræðustigi barnaheimila, nær ekki lengur til fólks. Þau slagorð sem hjakkað hefur verið á um ára- tugi eiga aðeins heima á minja- safni viss stjórnmálatimabils. Sérstaklega er það grátlegt að röttækir aðilar, sem vilja vel, skuli ekki sjá þessa einföldu staðreynd eða ganga út úr fíla- beinsturninum og heyra hana af vörum fólksins. Undanfarið hafa nokkur mál úr hinum siðlausa undirheimi fjármálalífsins komið upp á yfirborð. Þetta hefur orðið þess valdandi að fólk hefur orðið dálítið hissa. Vegna reynslunn- ar hafa fáir trú á því að þetta sé upphaf á einhverju endurmati á rotnuðum þjóðarlíkama. Það þarf meira til þess. Engu að síður er fyrir hendi hrevfing og þrýstingur sem leitt gæti til hvers sem er. Það stendur hins vegar eftir að það unga fólk sem nú vex úr grasi og gert hefur verið að umræðuefni hér að framan. á eftir að leysa margan vanda frá tímum þess svartagáldurs sem gengið hefur yfir þjóðfélagið. Ilrafn Saomindsson prentari ✓

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.