Dagblaðið - 21.01.1978, Page 5
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. JANUAR 1978.
5
Áhugi á áfengismálum sjaldan verið meiri en nú:
FREEPORT-REGLAN GOJHR
Á „HÓTEL HAPPINESS” í
REYKJADAL í MOSFELLSSVEIT
„Reksturinn á afvötnunarstöð
Samtaka áhugafólks um áfengis-
vandamálið hefur gengið alveg
frábærlega vel. Stöðin, sem er til
húsa í Reykjadal i Mosfellssveit,
var opnuð 7. desember," sagði
Hilmar Helgason formaður SAA í
sanitali við DB. „Alls hafa sjötíu
manns verið bókaðir inn. Miðað
er við að hver sé eina viku í
Reykjadal, sem gárungarnir kalla
Hótel Happiness. Mikil áherzla er
lögð á að láta renna af mönnum
og einnig hjálpum við þeim til
þess að staðsetja sjúkdóm sinn.
Frá okkur fara menn annaðhvort
á Vífilsstaði eða Freeport.
Með þessari nýtingu verður full
nýting allt árið og þá fara 900
marins á ári í gegnum okkar pró-
gram. Alltaf eru mun fleiri sem
vilja komast að-en fá inni,“ sagði
Hilmar.
— Hvað þarf að gera til þess að
komast inn?
„Til þess að sjúklingurinn fái
ekki tíma til þess að skipta um
skoðun þarf ekki læknisvottorð til
þess að komast inn. Algengt er að
menn samþykki kannski að kvöldi
að fara inn en síðan hafa þeir
skipt um skoðun næsta morgun.
Það þarf ekki annað en að hringja
til okkar. Helzt viljum við að
einhver náinn kunningi eða ætt-
ingi fylgi viðkomandi til okkar.
Langbezt er að fá einhvern AA-
mann til þess að vera hjá þeim
innlagða í tvo til þrjá tima á
meðan hann er að róast. Við
störfum eftir sömu reglu og Free-
SMJÖR EÐA SMÉR
Ohm 3 pf
Hvort sem menn eru að kaupa
smér eða smjör, þá er um einn og
sama hlutinn að ræða, og raunar
jafnréttilega að orði komizt að
sögn málfræðinganna. Utsalan á
þessari ágætu landbúnaðarafurð
undanfarna daga hefur greinilega
mælzt vel fyrir. Fólk hefur keypt
smjör i stórum stil og ætlar
greinilega að eiga nóg fyrir sig og
sína næstu mánuðina á miklu
betra verði en búast má við að
taki gildi að lokinni þessari
óvenjulegu útsölu. Myndin er úr
einni af kjörbúðum borgarinnar.
Og þar er það smjörið sem selst.
Fjórir bátar á
rækju í Húnaflóa
„Rækjuveiðin hefur gengið
alveg framúrskarandi vel,“
sagði Karl Sigurgeirssön frétta-
ritari DB á Hvammstanga.
Fjórir bátar eru gerðir út á
rækju frá Hvammstanga. Fara
um 200-230 stykki af rækju í kg.
Bátarnir róa yfirleitt fjórum
sinnum í viku og
vikuveiðiskammtur á bát er um
7 tonn. Vinnslugeta
rækjuvinnslunnar í landi er um
30 tonn á viku.
„Með sama áframhaldi og
svipuðum gæftum virðist vera
að við klárum veiðiskammtinn
okkar um mánaðamótin
febrúar-marz.
AIls vinna þrjátíu manns hjá
rækjuvinnslunni og tiu
sjómenn eru á bátunum og
verður þetta fólk atvinnulaust
þegar búið verður að veiða
rækjuna,“ sagði Karl.
Meðálnýting í rækju-
vinnslunni er 22-23%. Er
nýtingin dálítið misjöfn eftir
því hvort rækjan er full af
hrognum eða ekki.
Rækjuhrognin eru ekki nýtt en
þau geta verið allt að 15% af
rækjunni sjálfri. Sagðist Karl
vera viss um að nýta mætti
þessi hrogn og gera .þau að
herramannsmat.
Rækjan frá Hvammstanga er
fiutt til Svíþjóðar, Englands og
Þýzkalands.
-A.Bj./KS.
port, það er öllum í sjálfsvald sett
hvort þeir labba út eða eru kyrrir.
Það eru engar dvr læstar hjá
okkur og hingað til hefur enginn
farið.
— Hvað hafa margir Islend-
ingar farið á Freeport?
„Tvö hundruð og fjörutíu ts-
lendingar hafa verið á Freeport
og aldrei verið meiri aðsókn
þangað en núna. Við búumst við
að þeir verði yfir 200 þetta árið.
Nú þegar eru farnir tuttugu frá
áramötum. En við megum ekki
senda of marga í einu og höfum
ekki ótakmarkað pláss. Við höfum
svona fjögur til fimm pláss á
viku,“ sagði Hilmar.
— Hver greiðir Freeportdvöl-
ina?
„Sjúkrasamlagið greiðir kostn-
aðinn, en hann er töluvert minni
en dvalarkostnaður á Kleppsspít-
ala og Vífilsstöðum. Þetta er ein-
hver bezta fjárfesting sem hægt
er að hugsa sér. En sjúklingurinn
sjálfur verður að borga 180 þús-
und, sem er fargjald fyrir hann
sjálfan og vasapeningar," sagði
Hilmar.
— En ef sjúklingurinn á ekki
fyrir fargjaldinu? Verður hann
þá að hætta við að fara?
„Það er sennilega 'erfitt að
finna nokkurn mann sem svo er
ástatt fyrir að enginn hafi trú á
honum og vilji hlaupa undir
bagga með honum. Þó hefur
komið fyrir að fólk hefur átt í
erfiðleikum en það er þá vegna
þess að svo mikið hefur legið á að
komast út. En því hefur alltaf
verið bjargað á síðustu stundu.
Nú erum við að vinna að því að
koma upp sjóði til þess að mæta
svona útgjöldum."
— Hvernig gengur fjáröflun-
in?
„Okkur hefur nú nýlega borizt
,100 þúsund króna framlag frá
Landssambandi sjálfstæðis-
kvenna sem við erum ákaflcga
þakklátir fyrir. Er það ekki sízt
hinn móralski stuðningur sem
okkur er sýndur með slíkum
framlögum. Að minnsta kosti
tuttugu eða þrjátíu fyrirtæki hafa
gefið okkur þá upphæð og sum
hærri. Endanleg tala félags-
manna í samtökunum liggur ekki
fyrir því enn er verið að vinna úr
gögnum utan af landi. Við send-
um öllum félagsmönnum óút-
fyllta glróseðla og meðalframlag,
sem okkur hefur borizt, er 2700
krónur," sagði Hilmar Helgason
formaður SAA.
- A.Bj.
■B
■
fei > ’
þettaaeriéa
fyrirþig
Aðstoða við að orða auglýsingu þína,
ef þú óskar. Svara í síma fyrir þig.
Veiti fyrirspyrjendum upplýsingar
um það sem þú auglýsir og
tek við tilboðum sem berast.
Njóttu góðrar þjónustu ókeypis.
Opið til kl. 10 í kvöid.
H®
Dagblaöiö, smáauglýsingaþjónusta. Afgreiösla Þverholti 11, sími 27022