Dagblaðið - 21.01.1978, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. JANUAR 1978,
7
r
\i
Launahækkanirnar 1977:
Alþingismenn fengu mesta
hækkun að eigin ákvörðun
Þingmenn hækkuðu ílaunum um 78,3%, BHM-menn um allt að 76%, BSRB-menn um allt
að 76,45% ogbankamenn um tæp 67% “naun. —„,976-<,0^,977.
" ^ ■ BHM BSRB
Laun alþingismanna hafa
hækkað mest allra launa á tíma-
bilinu frá því í desember 1976
þar til í desember 1977. Á þessu
tímabili hækkuðu þingmenn
laun sín um 78,30%. Næst-
mesta launahækkun hafa
bankastjórar fengið en á sama
tímabili nemur launahækkun
þeirra 77.10%. Laun hæsta-
réttardómara hafa á sama tíma-
bili „aðeins“ hækkað um
72.40%.
Frá þessu segir i fréttatil-
kynningu sem Bandalag há-
skólamanna sendi frá sér í gær.
Er tilk.vnningin send út vegna
blaðafrétta um 78.3% hækkun
á launum alþingismanna og
þeirrar fullyrðingar að þau séu
miðuð við þr.iðja hæsta launa-
flokk BHM. Segir í tilkynning-
unni að ætla hefði mátt að laun
ríkisstarfsmanna innan BHM
hefðu hækkað jafnmikið á sl.
ári. Því gr mótmælt og sagt að
• hækkun launa ríkisstarfs-
manna innan BHM sé frá
73,77% ul 75.99%. BHM birtirí
fréttatilkynningunni saman-
burð á launum BHM-fólks,
BSRB-fólks og bankamanna. Er
hann sem hér segir:
Lfl. 105 75,99% Lfl. 6
Lfl. 109 73.87% Lfl. 10
Lfl. 115 73,73% Lfl. 13
Sagt er að skýring á tneiri
hækkun til þingmanna en al-
mennt gerist innan BHM séu
ákvæði samninga um að þeir
sem eigi 15 ára starfsaldur að
baki skuli hækka um einn
launaflokk. Samkvæmt þessu
ákvæði hefur rúmlega þriðj-
ungur opinberra starfsmanna
fengið tilfærslu milli flokka og
launaflokkum var végna þessa
ákvæðis fjölgað um einn. Allir
72,09% Lfl. 6 66,87%
73,38% Lfl. 9 66,59%
76,45% Lfl. 12 66,52%
Itingmenn þjóðarinnar fengu
launaflokkshækkunina þar sem
þeir miða laun sín við þriðja
hæsta flokk.
í fréttatilkynningu BHM er
því mótmælt að opinberir
starfsmenn njóti svipaðra eða
meiri hlunntnda en þingmenn
hvað varðar dagpeninga, húsa-
leigustyrk, bílastyrk o'.fl. Segir
að fullvrðingar þar um séu svo
fráleitar að ekki taki að svara
og ekki sé við hæfi að alþingis-
menn fari með slíkt fleipur.
Rætt er um ástæður hinna
miklu launahækkana á sl. ári
og sagt að á árunum 1974-6 hafi
kaupmáttur launa rýrnað mjög
en tekizt hafi að koma horum
i svipað horf á sl. ári og htinn
var 1973. Ríkisstarfsmenn
urðu, að því er segir i tilkynn-
ingunni, að þola meiri kaup-
máttarrýrnun en aðrir og kaup-
máttur launa þeirra nú er um
95% af því sem hann var í
árslok 1973 enda þótt þjóðar-
tekjur á mann séu talsvert
hærri 1977 og 1978 en á hinu
svokallaða ,,metári“ 1973. - ASt.
✓
Kjarvalsmyndir í eigu borgarinnar
á sínum stað í Kjarvalssal
„Myndirnar á sýningunni eru
allar í eigu Reykjavikurborgar og
fáeinar hafa ekki verið sýndar
áður,“ sagði Alfreð Guðmundsson
forstöðumaður Kjarvalsstaða i
samtali við DB. Tilefnið var að á
morgun verður opnuð sýning í
Kjarvalssal á Kjarvalsstöðum á
fimmtíu og níu málverkum eftir
listamanninn. Eru það bæði olíu-
málverk, rauðkritarmyndir,
blekteikningar, vatnslitir og vax-
litir. Þá er einnig á sýningunni
lítíll en ákaflega snotur steinn
sem meistarinn málaði á mynd af
engli. Ekki er vitað hve gömul
þessi mynd er.
Á sýningunni eru líka sýnis-
horn af þeim listaverkabókum um
Kjarval sem út hafa komið. Eru
þær fjórar og kom sú fyrsta út
1938. Sýningin er opin kl. 14-22
um helgar, 16-22 þriðjudaga til
föstud. en lokað er á mánudögum.
Bæði sýningarskrá og aðgangur
er ókeypis.
-A.Bj.
Fyrir utan málverkin í sýningunni er steinn sem Kjarval málaði engil á. en steinninn er-gjöf frá Karitas
Bjargmundsdöttur. DB-mvnd Ragnar Th. Sig.
Gerður Steinþórsdóttir kennari:
Borgarstjórnarfulltrúar
mega ekki einskorða
sig við einstök verkefni
„Eg vil auka hlutdeild kvenna í
nefndum innan Framsóknar-
flokksins og leitast við samstarf
við þá menn sem þar starfa fyrir,“
sagði Gerður Steinþórsdóttir
kennari í viðtali við Dagblaðið.
Hún er einn frambjóðenda til
prófkjörs innan Framsóknar-
flokksins vegna borgarstjórnar-
kosninganna í vor. Prófkjörið fer
fram núna um helgina eins og
greint er frá annars staðar í
blaðinu.
„Það er einnig nauðsynlegt að
borgarfulltrúar flokksins
einangri sig ekki við einstaka
málaflokka helóur verða þeir að
re.vna að fylgjast með á sem flest-
um sviðum."
Gerður sagði að henni væru
hugleikin málefni eins og
uppbygging dagvistunarheimila,
að enn betur væri hlúð að öldruðu
fólki og að eins væri nauðsynlegt
að skapa jafnvægi milli aldurs-
hópa í hverfum borgarinnar.
„Það er hins vegar ijóst að at-
vinnumál borgarbúa verða eitt
aðalvandamál þeirra sem sitja í
borgarstjórn næstu ár," sagði
Gerður ennfremur.
Fiskverðið:
Hætt við fund
yfirnefndar
Til stóð að yfirnefnd reyndi
enn einu sinni í gær að halda
fund til að ákvarða fiskverð en
hætt var við fundinn. Aðilar
eru sammála um að boltinn sé
hjá ríkisstjórninni og er beðið
einhvers konar ákvarðana
hennar til að gera kleift að
komast að niðurstöðu.
Yfirnefnd' ætlar að halda
fund í dag.
-HH.
Verðlaunaljóð
á tónleikum
Atli Heimir Sveinsson hefur
gert lög við sex ljóð eftir Ölaf
Jóhann Sigurðsson úr Norður-
landaverðlaunabók hans, Að lauf-
ferjum og brunnum, er hann
nefnir Litlar ferjur. Verk þetta
verður flutt á tónleikum Tón-
listarfélagsins í kvöld kl. 19.00 í
Austurbæjarbíói.
Söngflokkurinn Hljómeyki
flytur ljóðin en undirleik annast
Guðný Guðmundsdóttir, fiðla,
Monika Abendroth, harpa, Jónas
Ingimundarson, píanó, Reynir
Sigurðsson, víbrafónn og slag-
verk, og Atli Heimir Sveinsson
sem leikur á selesta og stjórnar
hljómleikunum.
t Hljóme.vki eru Aslaúg Ölafs-
dóttir, Elin Sigurvinsdóttir, Guð-
finna Dóra Ólafsdóttir, Kristin
Ólafsdóttir, Ruth Magnússon,
Sigurður Bragason, Guðmundur
Guðbrandsson, Halldór Vilhelms-
son og Rúnar Eiriksvnn
Þetta eru sjöundu tónleikarnir
fyrir styi ktarlélaga si •■rt: múi;
inn 1977-78. - A.B j.
CAT. 966C hjólaskófla
árgerð 1975
1500 vinnustundir. Ný dekk. Ný 3,5
rúmm skófla. Vél í sérflokki. Hagstætt
verð ef sainið er strax.
Vagnhöfða 3, Reykjavík, sími 85265.
Vörubifreiða- og þungavinnuvélasala.
-HP.