Dagblaðið - 21.01.1978, Qupperneq 12
12
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. JANUAR 1978.
JackieBisset:
ff
Ekki lengur hrædd við karlmenn
ff
„Ég er ekki lengur hrædd
við karlmenn," sagði
Jacqueline Bisset í nýlegu
blaðaviðtali. Hún mælti þessi
orð þar sem hún.var að vinna
við leik í myndinni „Einhver
er að drepa hina miklu kokka
Evrópu“ (Someoneis :Killing
the Great Chefs of Europe)
þar sem George Segal er mót-
leikari hennar.
Bisset leikur matreiðslu-
mann sem er sérfræðingur i
ábætisréttum. Hún flækist
inn í ráðagerð um að koma
öllum helztu kokkum Evrópu
fyrir kattarnef. Segal leikur
fyrrverandi mann hennar,
sem er nákvæmlega sama um
alla eftirrétti, jafnvel logandi
pönnukökur.
„Jackie verður að halda
myndinni algerlega uppi,“
segir framleiðandi hennar,
William Aldrich.
Kokkamyndin er þriðja
stóra myndin í röð sem Jackie
leikur í. Fyrst kom Djúpið,
sem nú er sýnd hér 1 Reykja-
vík, þá Gríski harðstjórinn
sem er að sögn fróðra manna
sem næst ævisaga annarrar
Jacquelinar.
Myndin um morðin á
kokkunum var meðal annars
tekið í hinum margrómuðu
frönsku eldhúsum í París.
Byrjað var löngu fyrir dögun
til þess að trufla ekki hina
venjulegu starfsemi. Eftir að
hafa verið heila nótt við vinnu
í neðanjarðareldhúsi, sem
nefnt er Lido, veitti Jackie
blaðamönnum viðtal.
Bisset og Nick Nolte í róman-
tík í Djúpinu.
K
Jackie með sambýlismanni
sinurn, Victor Drai.
„Hið ánægjulega við frama
er að þú færð að ráða ein-
hverju. Ef ég geri tillögur um
senuna núna hlustar fóík.
Þannig á það að vera með
samstarf. Fyrr á ferli mínum
vann ég með leikstjórum sem
kærðu sig ekkert um ráð, allra
sízt frá konum.
Ég verð að viðurkenna að
karlmenn vöktu ugg með mér.
Ég tel það stafa af uppvexti
mínum i Énglandi. Faðir
minn var tákn valdsins og litl-
ar stúlkur áttu bara að vera
sætar og láta vera að spyrja
spurninga. Ég er ekki að
ásaka föður minn með þessu
því ég dái hann mjög. Það var
bara svona í Englandi í þá '
daga.“ i
Hún segist hafa verið svo
hrædd við karlmenn að hún
þorði aldrei að mótmæla
-
„ .... •..................................... . ....