Dagblaðið - 21.01.1978, Qupperneq 22
22
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1978.
9
GAMLA BIO
8
HÖRKUTÓL am'"47S
(The Outfit)
Spennandi bandarísk sakamála-
mynd með
Robert Duvall,
Karen Black
Endursýnd kl. 9.
Bönnuð innan 16 ára.
FLOTTINN TIL
NORNAFELLS
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
9
NÝJA BIO
8
Sími 1 J 544
Silfurþotan
íslenzkur texti.
Bráðskemmtileg og mjög spenn-
andi ný bandarisk kvikmynd um
allsögulega járnbrauiariestarferð.
Bönnuð innan 14 ára.
Sýnd kl. 5, 7.10 og 9.15.
9
HASKOLABIO
8
Sími 22 »40
Svartur sunnudagur
(Biack Sunday)
Hrikalega spennandi litmynd um
hryðjuverkamenn og starfsemi
þeirra. Panavision.
Leikstjóri: John Frankenheimer.
Aðalhlutverk: Robert Shaw,
Bruce Dern, Marthe Keller.
Islenzkur texti.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5 og 9.
Hækkað verð.
Þessi mynd hefur hvarvetna hlot-
ið mikla aðsókn enda standa
áhorfendur á öndinni af eftir-
væntingu allan tímann.
Síðasta sýningarhelgi.
19 000
salurA-
JÁRNKROSSINN
Stórmynd gerð af Sam Peckinpal
Sýnd kl. 7.45 og 10.30.
ALLIR ELSKA BENJI
Frábær fjölskyldumynd.
Sýnd kl. 3 og 5.
salur
FLÓÐIÐ MIKLA
Bráðskemmtileg litmynd.
Sýnd kl. 3.10, 5.05, 7.05, 9 og 11.
>salur
RADDIRNAR
Ahrifarik og dulræn.
Sýnd kl. 3.20. 5.10. 7,10, 9,05 og 11.
9
HAFNARBIO
8
SJmi'16444
UNDIR URÐARMÁNA
Hörkuspennandi Panavision lit-
mynd með Gregory Peck.
Bönnuð innan 14 ára.
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 9 og 11.15.
SIRKUS
með Chaplin.
Sýnd kl. 3, 5 og 7.
9
AUSTURBÆJARBÍÓ
8
íslenzkur texti.
Sími 11384
A9BA
ABBA
Stórkostlega vel gerð og fjörug,
ný, sænsk músikmynd í litum og
Panavision um vinsælustu hljóm-
sveit heimsins í dag.
Mynd sem jafnt ungir sem gamlir
munu hafá mikla ánægju af að
sjá.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hækkað verð.
9
STJÖRNUBÍÓ
8
Sími 1893JB
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Hækkað verð.
Bönnuð innan 12 ára.
FERÐIN TIL
JÓLASTJÖRNUNNAR
Sýnd kl. 3.
9
TÓNABÍÓ
8
Sínti 31182
Gaukshreiðrið
(One flew over the Cuckoos’
nest)
Gaukshreiðrið hlaut eftirfarandi
Öskarsverðlaun:
Bezta mynd áriris 1976.
Bezti leikari: Jack Nicholson.
Bezta leikkona: Louise Fietcher
Bezti leikstjóri: Milos Forman.
Bezta kvikmyndahandrit: Lawr-
ence Hauben og Bo Goldman.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Hækkað verð.
9
LAUGARÁSBÍO
8
Sír.ii 32075
AÐV0RUN -
2 MÍNÚTUR
91,000 People.
33 Exit Gates. One Sniper...
TWCMINUTE
RNING
Hörkuspennandi og viðburðarík
ný mynd um leyniskyttu og fórn-
arlömb.
Leikstjóri: Larry Peerce.
Aðalhlutverk:
Charlton Heston, John Cassa-
vetes, Martin Balsam og Beau
Bridges.
Sýnd kl. 5, 7.30 og 10.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
9
BÆJARBÍÓ
8
Simi,50184
SKRIDBRAUTIN
•2$» A UNIVERSAL PICTUBE
TECHNICOLOB® PANAVISION •
Mjög spennandi ný bandarlsk
mynd um mann er gerir
skemmdarverk i skemmtigörðum,
Aðalhlutverk: George Segal,
Richard Widmark, Timothy
Bottoms og Henry Fonda.
Islenzkur texti.-
Sýnd kl. 9.
Bönnuð börnum innan 12 ára
9
Utvarp
Sjónvarp
8
Útvarp í dag kl. 17.30:
Framhaldsleikrit fyrir börn og unglinga
Landnemar í
arínn: Bandaríkjunum
í dag kl. 17.30 byrjar flutningur
á nýju framhaldsleikriti
fyrir börn og unglinga í útvarpi.
Nefnist það Antilópusöngvarinn
og er eftir norska höfundinn
Ingebrikt Davik en byggt á sögu
eftir Ruth Underhill. Leikritið er
i 6 þáttum. Þýðinguna gerði
Sigurður Gunnarsson en íeik-
stjóri er Þórhallur Sigurðssop.
Með stærstu hlutverkin fara
Steindór Hjörleifsson, Kristbjörg
Kjeld, Hákon Waage, Jónina H.
Jónsdóttir, Stefán Jónsson, Árni
Benediktsson og Þóra Guðrún
Þórsdóttir.
Leikurinn gerist um miðja
síðustu öld. Landnemafjölskyldan
Hunt er á leiðinni til Kaliforníu,
þvert yfir Bandaríkin, til að finna
sér nýjan samastað. 1 fyrsta þætti
kynnumst við Hunt-hjónunum,
börnum þeirra tveimur og
frænku. Þau hafa slegið tjöldum í
Nevada-eyðimörkinni áður en þau
leggja á fjallgarðinn mikla sem
skilur þau frá gósenlandinu. Eins
og aðrir landnemar óttast þau
mjög indíána en þau órar auð-
vitað ekki fyrir hvað framtíðin
ber í skauti sínu.
Ingebrikt Davik er um fimm-
tugt og orðinn kunnur höfundur
barnabóka. A stríðsárunum
dvaldist hann á Islandi ásamt fl.
löndum sínum og stundaði m.a.
nám í Menntaskólanum á Akur-
eyri en fór heim að stríðinu
loknu. Frá 1959 hefur hann verið
fastur starfsmaður hjá norska út-
varpinu og séð þar um dagskrár
fyrir börn, einnig í sjónvarpi.
Tvær bóka hans hafa verið
þýddar á íslenzku: Ævintýri í
Mararþaraborg og Mummi og jólin
og hafa báðar verið fluttar hér i
útvarpinu í leikritsformi. Davik
hefur auk þess ort m’ikið af
ljóðum fyrir börn og gefið úl
hljómplötur þar sem hann spilar
bæði og syngur.
Höfundur segir sjálfur að
Antilópusöngvarinn sé eitt
skemmtilegasta viðfangsefni sem
hann hafi glímt við. Þó að hug-
myndin sé komin úr bók eftir
kanadíska konu hafði hann
frjálsar hendur um efnismeðferð
og bætti ýmsu nýju inn í sem
byggt var á eigin reynslu. Leikur-
inn gerist fyrir meira en öld í
annarlegu umhverfi en boð-
Ingebrikt Davik.
skapur hansei sígildur og á erindi
til okkar enn í dag.
Sjónvarp í kvöld kl. 21.10:
Dave Allen kominn aftur
Stundum rætast óskir manna
mun fyrr en þeir þorðu að gera
sér vonir um. Svo er um óskir
þeirrar, er þessa dálka ritar, um
að Dave Allen yrði ekki lengi
fjarri skjánum. Hann er strax
kominn aftur með sína írsku
kímni og hressilegt fas, engu lík-
ara en gamall vinur sé kominn í
heimsókn. Megi hann dveljast
sem lengst.
Fyrir nokkru kom hér í blaði
þýdd grein um Allen þar sem því
var haldið fram að hann væri í
sínu innsta eðli strangtrúaður
maður. Það finnst okkur sem
horfum á þætti hans ákaflega
ótrúlegt þar sem hann gerir að
fáu meira grín en einmitt þeim
trúuðu og er þá nokkurn veginn
sama hvaða trúflokki þeir fylgja.
En aldrei skyldi maður segja
aldrei, hvorki um það mál né ann-
áð.
Dave tekur fyrir anzi mörg
vandamal hins borgaralega sam-
félags og hæðist að öllum. Það
mun líklega öllum í fersku minni
hvernig hann í síðasta þætti gerði
grín að því mikla hundafári sem
geisar í Englandi og er að kæfa
allt og alla. Allir þurfa að viðra
hunda sína úti og þeir gera sín
stykki þar sem þeir eru staddir,
hvort heldur það er á gangstétt-
irnar eða gólfin á kránum. Það
var víst fréttaritari íslenzka út-
varpsins í Lundúnum sem fann
það út að ef kránum þar yrði
lokað legðist hundahald þar niður
að verulegu leyti. Menn hafa það
sér til afsökunar á kvöldin að fara
út að viðra hundinn sinn þegar
þeir raunar ætla á krána. En
þetta var nú útúrdúr.
Það er Dave Allen sem er aðal-
málið og hann birtist á skjánum í
litum klukkan 21.10.
- DS
Sjónvarp íkvöld kl. 21.55:
Dagbók stofustúlku
Morð í sveitinni
Það verður víst ekki á allt kosið
í henni veröld og fyrst glæný bíó-
mynd var á dagskrá sjónvarps
síðasta laugardag er víst ekkert
.hægt að segja þó að myndin í
kvöld sé komin nokkuð til ára
sinna. 1 kvöld fáum við að sjá
myndina Dagbók stofustúlku
(Diary of a Chambermaid) og er
hún bandarísk að gerð, frá árinu
1943. Myndin er byggð á skáld-
sögu eftir Octave Mirabeau.
Myndin fær þokkalega dóma í
kvikmyndahandbók okkar en
ekkert meira en það. Henni eru
gefnar 2 stjörnur og.hálf til við-
bótar og sagt að hún sé þrátt fyrir
nokkur athyglisverð atriði nokk-
uð óljós og flókin.
Sagt er frá Célestine sem er
metnaðargjörn stúlka. Hún ræður
sig sem stofustúlka hjá aðalsfjöl-
skyldu uppi í sveit. Það fólk er
nokkuð sérviturt og öðruvísi en
það sem Célestine hefur áður
kynnzt. I sveitinni gerast alls
kyns furðulegir atburðir og að
lokum er framið morð.
Frá þessu öllu er þó sagt i létt-
um dúr og er myndin það sem
kallað er á útlenzku comedy-
drama eða grátbroslegur leikur.
Nýir spyrjendur koma fram í
Gestaleik í kvöld í þetta sinn eru
það fimm menn af Suðurlandi
sem fá að spreyta sig á að þekkja
réttu mennina og að þekkja leyni-
gest. Fimmmenningarnir eru Þor-
steinn S. Árnason, sem
selur happdrættismiða
og tryggingar, Valdimar
Bragason prentari, Eygló Lilja
Leikstjóri myndarinnar er Jean
Renoir en aðalhlutverk eru í
höndum Paulette Goddard og
Burgess Meredith. Þýðandi er
Ragna Ragnars. Myndin sem
hefst klukkan 21.55 er rúmlega
klukkustundarlöng.
- DS
Granz húsmóðir og bankastarfs-
maður, Ketill Högnason tann-
læknir og Sigurgeir Hilmar Frið-
þjófsson kennari og áhugaleikari.
Stjórnandi þáttarins er Ólafur
Stephensen framkvæmdastjóri.
Stjórnandi upptökunnar, sem er í
litum, er Rúnar Gunnarsson.
- DS
Sjónvarp íkvöld kl. 20.30: Gestaleikur
5 menn af Suðurlandi spyrja