Dagblaðið - 01.02.1978, Page 15

Dagblaðið - 01.02.1978, Page 15
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 1. FEBRUAR 1978. 15 Hljómsveitin Blues Companý starfar af fullum kraftí „Bluesinn lifir góðu lífi hér* segirMagnús Eiríksson gítarleikari Hljómsveitin Blues Companý hefur verið vakin upp frá dauðum, — loksins. Það var á árunum í kringum 1970 sem Companýið starfaði af hvað mestum krafti. Þá var blues í tízku jafnt hér á landi og erlendis og allir, sem vildu vera menn með mönnum, hlustuðu á gamla bluesleikara jafnhliða hljómsveit John Mayall og Cream, svo að tvö vinsæl nöfn þess tíma séu nefnd. „Við höfum leikið talsvert í framhaldsskólum í Reykjavík og nágrenni að undanförnu og hvarvetna við mjög góðar undirtektir," sagði Magnús Eiríksson gítarleikari Blues Companýs, er DB ræddi við hann um starfsemina. „Við höfum til dæmis haldið kons- erta í Keflavík og á. Laugar- vatni og á morgun eigum við að vera á Bifröst. — Það kemur mér eiginlega á óvart hve góðu lífi bluesinn lifir, þó að lítið beri á honum á yfir- borðinu." I kompanýi með Magnúsi eru þeir Pálmi Gunnarsson bassaleikari, Sigurður Karls- son trommari og Guðmundur Ingólfsson, sem leikur á píanó. Lagavalið hjá Blues Companýi er vel bíandað, bæði erlend tónlist og innlend, blues og jazz. „Við erum ekki með neina framúrstefnu á dag- skránni,“ sagði Magnús Eiríks- son. „Það má meira að segja finna þar bæði íslenzk og sænsk þjóðlög.“ — Alls tekur prógramm kvartettsins um hálfa aðra klukkustund í flutn- ingi. Er Mannakornsplatan I gegnum tíðina kom út seinni partinn á síðasta ári lét Magnús Eiríksson hafa það eftir sér í viðtali, að hann væri alvarlega að hugsa um að gera jazz- og bluesplötu. Hann var Meölimir Blues Companýs hafa hljóðritað dálitið efni ásamt Halldóri Pálssvni saxófónleikara, en vilja þó ekki tala um plötu á þessu stigi. Meðlimir kompanýsins eru Guðmundur Ingólfsson, Pálmi Gunnarsson, Magnús Eiríksson og Sigurður Karlsson. inntur eftir því, hvort það verk væri að komast á rekspöl. „Við skulum ekki tala um plötu á þessu stigi,“ svaraði hann. „Við höfum jú hljóðritað dálítið efni, hálfa klukkustund til þrjú korter. Á þessum hljóð- ritunum eru að mér finnst margir ljósir punktar. Aftur á móti held ég að við verðum að hljóðrita miklu meira til að velja úr, áður en við getum farið að hugsa fyrir plötu.“ Halldór Pálsson saxófónleik- ari lék með Blues Companýi í stúdíói á meðan hann dvaldi hér heima fyrir nokkru. Hann er nú aftur farinn til starfa sinna ytra. Þar sem Blues Companý hefur fengið jafn góðar við- tökur á skólahljómleikum og raun ber vitni, þótti til hlýða að spyrja Magnús, hvenær hljómsveitin myndi byrja að leika á opinberum skemmtun- um. „Við höldum áreiðanlega opinbera hljómleika áður en langt um líður,“ svaraði hann. „Það er nú liðið hálft annað ár síðan blueskvöld var slðast haldið í Reykjavík, svo að það ætti að vera kominn tími til. Við höfum góð orð fyrir því að fá inni á Hótel Loftleiðum þegar við viljum og ætlum að sjálfsögðu að notfæra okkur það.“ - AT- BOB DYLAN AÐ LEGGJA UPP f HUÓMLEIKAFERD Haft er eftir áreiðanlegum heimildum, að Bob Dylan sé nú sem óðast að búa sig undir langa hljómleikaferð um víða veröld. Ferðin mun hefjast í Japan 20. febrúar þar sem Dylan kemur fram á nokkrum hljómleikum. Ef allt fer sam- kvæmt áætlun þar er ætlunin að fljúga til Ástralíu í b.vrjun marz. Ekki ætlar Dylan þó að eyða sumrinu í hljómleikahald ein- göngu. Þá tekur hann sér frí til að vinna að nýrri kvikmynd, sem hann mun ekki vera byrj- aður á að ráði ennþá. Þegar haustar að heldur ferðin áfram og þá um Bandaríkin. Það verður síðan, samkvæmt áætl- uninni, um vorið 1979, sem ■ stjarnan kemur við í Evrópu. Á meðan Dylan fer þessa miklu hljómleikaferð, hyggst hann jafnframt vinna að nýrri plötu. Öll lög á hana eru nú tilbúin, en Dylan hefur enn ekki fundið hljómsveit til að leika með sér í stúdíóunum. Bob Dylan hefur fleira í tak- inu en hljómleikaferðina til- vonandi. t næsta mánuði verður frumsýnd kvikmynd hans, Renaldo and Clara, — fjögurra klukkustunda langt stykki, sem meistarinn hefur nýlega lokið við. t myndinni koma fram auk Dylans sjálfs Sara fyrrverandi eiginkona hans, Joan Baez, og söngvar- arnir Ronee Blakely og Ronnie Hawkins. Renaldo and Clara skiptist eiginlega í tvennt. í öðrum hlutanum fara leikararnir í goðsögulega leit að uppruna sínum en hann er síðan rofinn með innskotum frá Rolling Thunder Revue hljómleika- ferð Dylans árið 1976. Bandaríska blaðið Rolling Stone átti fyrir stuttu smávið- tal við Dylan um Renaldo and Clara, en meistarinn brá ekki fyrri vana sínum, heldur svaraði út úr og flækti um- ræðuefnið með mótsögnum og alls kyns bulli. Úr ROLLING STONE Asgeir Oskarsson hætti við fyrirhugaða Svíþjóðarför til þess að setjast við trommurnar í Haukum. Ásgeir Óskarsson ogPétur Hjaltested gengnirf Hauka Ásgeir Óskarsson trommu- leikari er genginn i hljómsveit- ina Hauka. Opinberlega tekur hann við af Ingólfi Sigurðs- syni, sem hætti á 2. í jólum. 1 millitíðinni lék Ragnar Sigur- jónsson þó með Haukum sem afleysingamaður. En það hafa orðið fleiri breytingar í Haukum en að- eins trommuleikaraskiptin. Pétur Hjaltested er orðinn hljómborðsleikari hljóm- sveitarinnar. Hann hefði að öllu forfallalausu átt að byrja að leika með Brimkló á föstu- daginn kemur, en skipti fyrir- varalaust um hljómsveit. Eftir- maður hans i Brimkló er eng- inn annar en Guðmundui^ Benediktsson, sem hafði starfað með Haukum frá því í nóvember fram yfir síðustu helgi. Það er ekki ofsögum sagt, að mannabreytingarnar gerist snögglega i íslenzkum hljómsveitum. Samkvæmt nákvæmustu talningum eru þeir Ásgeir og Pétur Haukameðlimir númer 68 og 69. Hljómsveitin er kunn fyrir tíðar mannabreytingar með þeirri undantekningu, að Gunnlaugur Melsteð er þar fastráðinn meðlimur. Guðmundur Benediktsson er ekki alveg ókunnugur með- limum Brimklóar. Hann lék með hljómsveitinni á ferð hennar um landið í fyrrasum- ar. - AT-

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.