Dagblaðið - 03.02.1978, Side 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1978.
Kaupmannahöfn:
Burt með sukkið
úr Kristjanu
— úrskurður Hæstaréttar í Danmörku—íbúar héta
valdbeitingu ef við þeim vetður hreyft
Dagar Kristjaniu, athvarfs
eiturlyfjaneytenda og utan-
garðsmanna í Kaupmannahöfn,
eru nú sennilega taldir. Hæsti-
réttur hefur kveðið upp þann
úrskurð að þetta einangraða
800 manna ,,fríríki“ skuli rýmt
nú þegar. Þeir lifnaðarhættir
sem Kristjaniubúar hafa tekið
upp hafa vakið mikla athygli og
raunar hefur þar verið um
merka þjóðfélagslega tilraun að
ræða.
En þrátt fyrir ákvörðun
hæstaréttar sagði Anker
Jörgensen, forsætisráðherra
Danmerkur, á þingi í vikunni,
aðMbúar Kristjaniu yrðu ekki
fluttir á brott fyrr en málið
hefði veríð rætt á nýjan leik af
pólitískum aðilum. A síðasta
þingi ákvað meirihluti þing-
manna að þetta hverfi sem
hefur hneykslað sómakæra
borgara i áraraðir skyldi rýmt,
en það er í aðeins nokkur
hundruð metra fjarlægð frá
konungshöllinni. Það hefur þó
ekki komið til framkvæmda
enn vegna stuðnings margra
aðila við þessa þjóðfélagslegu
tilraun.
Nýlega hótuðu íbúar Kristja-
níu að lama samgöngukerfi
Kaupmannahafnar og landsins
alls ef þeir yrðu neyddir til að
flytja. Aætlun þeirra um að
^tálma umferð um brýr og flug-
velli og að yfirtaka fjölmiðla
var álitin af hernaðarsér-
fræðingum geta heppnazt.
Erlendar
fréttir
Sadat til Washington í dag:
VARAR CARTER
VIÐ ÓÞOLINMÆÐI
ANNARRA
ARABA
Sadat Egyptalandsforseti
kemur til Washington í dag til
viðræðna við Carter Banda-
ríkjaforseta. Samkvæmt heim-
ildum í Cairo mun Sadat vara
Carter við óþolinmæði sumra
Arabaleiðtoga, eins og t.d.
Hassans konungs, sem telur að
Bandaríkjastjórn hafi brugðizt
í stuðningi við friðarviðleitanir
Egypta.
í Washingtonför sinni mun
Sadat reyna að fá yfirlýsingu
þess efnis að búseta ísraels-
manna á hernumdu svæðunum
sé ólögleg, og aö fsraelsmenn
fari skilyrðislaust burtu þaðan.
A fundi þeirra Arabaleið-
toga, sem andstæðir eru stefnu
Sadats og nú er haldinn í Alsír,
réðst Houari Boumedienne, for-
seti Alsír, á friðarstefnu Sadats
og sagði að hún ræki fleyg í
fyrri samstöðu Arabaþjóðanna.
Hann sagði ennfremur að
Palestínumenn hefðu aldrei
veitt Sadat umboð til þess að
tala og semja fyrir þeirra hönd.
Smurbrauðstofan
BJORNINN
NjáUgötu 49 — Sími 15105
9555
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 9—
UM HELGAR FRÁ 13—17
AUSTURBERG, 95 FM
3ja herbergja mjög góð íbúð
+ bílskúr. (Jtb. 8-8,5 m.
HÖFUM KAUPENDUR
að ýmsum íbúðastærðum á
byggingarstigi.
SMÁÍBÚDAHVERFI
Fokhelt einbýli á 2 hæðum,
172 fm, sér 2ja herbergja
íbúð á jarðhæð. Bílskúr.
Fokhelt í maí.
SMÁÍBÚÐAHVERFI —
EINBÝLI
Mjög gott hús á 2 hæðum +
kjallari + hílskúr.
HÖFUM KAUPANDA
að góðri 3ja herbergja íbúð í
vesturborginni, þarf bíl-
skúr, góð útborgun.
HÖFUM KAUPANDA
að 3ja herbergja íbúð í
neðra Breiðholti.
HÖFUM KAUPANDA
að 4-5 herbergja íbúð í
austurborginni, helzt með
bílskúr.
HÖFUM KAUPANDA
að 4-5 herbergja íbúð í
norðurbænum í Hafnarfirði.
Útb. um 10 m.
HÖFUM FJÁRSTERKA
KAUPENDUR AÐ
einbýlis- og raðhúsum á
Stór-Reykjavíkursvæðinu.
Skoðum og verðmetum sam-
dægurs.
HÖFUM MJÖG FJÁR-
STERKAN KAUPANDA
að viðlagasjóðshúsi í Garða-
bæ eða Breiðholti.
Ný söluskrá ávallt fyrirliggjandi.
MikiS úrval eigna.
EIGNANAUST
Laugavegi 96 (við'Stjörnubíó) Slml 2 95 55
I SÖLUM.: Hjörtur Gunnarsson. Lárus Hclgason, Sigrún Kröyer.
LÖGM.: SvanuÝ Þór Vill)jálmsson hdl.‘
V-Þýzkaland:
Höfum engu öðni að
tapa en lífinu
— Banda vfskir hermenn í Þýzkalandi mótmæla
nifteindasprengjunni .
Bandarískir hermenn í V-
Þýzkalandi hafa safnað um 100
undirskriftum, þar sem mótmælt
er framleiðslu nifteindasprengj-
unnar og hugsanlegri notkun i
Vestur-Evrópu.
í texta sem fylgir mótmæla-
undirskriftunum og sendur
verður til Bandaríkjaþings, segir
m.a.: Vopn, sem drepur fólk en
skemmir ekki eignir kann að vera
heppilegt fyrir stóreignamenn, en
við sem eftir erum höfum engu að
tapa nema lífinu.
Einn af þeim sém stóðu fyrir
söfnuninni sagði að honum yrði
sagt upp störfum þar sem hann
stæðist ekki þær kröfur sem
NATO herdeild hans gerði til
hans. Þessi undirskriftalisti hefur
farið víða um herstöðvar í Þýzka-
landi, m.a. Mannheim, Heidel-
berg, Augsburg og K arlsruhe.
Bandaríkin:
SKYLAB GEIMSTÖÐIN
FELLUR TIL JARÐAR
SEINT Á NÆSTA ÁRI
Hin stóra geimstöð Banda-
ríkjamanna, Skylab, er smám
saman að fara út af braut sinni
og gæti fallið til jarðar seint á
næsta ári, að sögn Geimferða-
stofnunar Bandaríkjanna í gær.
Geimferðasérfræðingar eru
að rannsaka hvort reyna skuli
að koma þessu 85 tonna ferlíki
á annan sporbaug um jörðu,
eða hvort hún skuli látin falla í
sjóinn. Þá er möguleiki að
geimskutlan nýja verði notuð
til þess að fara með varahluti í
geimstöðina.
I geimstöðinni er ekki notuð
kjarnorka eins og var í sovézka
gervihnettinum sem hrapaði
fyrir skömmu yfir Kanada.
Ef geimstöðin heldur áfram
að hægja á sér á ferð sinni
umhverfis jörðina er Ijóst að
hún kemur inn í gufuhvolf
jarðar síðla árs 1979. Geimstöð-
in, sem er 30 metra löng er nú í
460 km fjarlægð frá jörðu.