Dagblaðið - 27.02.1978, Qupperneq 1
• r
Veðurstofan:
„Klassísk
norðlenzk
stórhríð”
„Þetta er bara klassisk
norðlenzk stórhríð", sagði
Guðmundur Hafsteinsson,
veðurfræðingur í viðtali við
DB í morgun er við spurðum
hvort vonzkuveður það, sem
nú herjar á Vestur- og
>iorðurlandi væri eitthvað
óvenjulegt. „Þessu veldur
eins og venjulega hæð yfir
Grænlandi og lægð fyrir suð-
austan land og er mikill
þrýstingsmunur þarna á
milli. Snjókoman kemur af
hafi og það hefur snjóað frá
Vestfjörðum og austurúr í
nótt.“
Guðmundur sagði litlar
Hkur á því að snjókoman
bærist suður fyrir fjöll og
taldi ólíklegt, að snjóa
myndi í Reykjavík að svo
komnu. „Við fáum bara
norðan garrann og kuldann,
en sennilega ekki neina
snjókomu."
HP
„Eðlileg
norðanhríð
á Akureyri”
„Hér er bara ósköp eðlileg
norðan hríð, hefur verið
dálítið hvasst á köflum og 8
eða 9 stiga frost, en hér eru
allar götur færar,“ sagði
Akureyrarlögreglan í sam-
tali við DB í morgun. „En
það er kolvitlaust veður hér
fyrir utan. Það var nokkuð
mikill lausasnjór en hann er
nú eiginlega allur fokinn í
burt. Það er ófært í sveitun-
um i kringum bæinn og skól-
um aflýst bæði á Dalvík, og
Ólafsfirði." A.Bj.
Menn hlakka til að fara í vinnuna á olíukynta vinnustaðina
„Fjölskyldan hefur hafzt við
i einu herbergi í nótt við yl frá
einum rafmagnsofni og svipað
mun ástandið vera hér í
mörgum húsum," sagði Bjarni
Árnason, fréttaritari DB á
Siglufirði i viðtali við DB i
morgun.
Eftir að snjóflóð kaffærði og
skemmdi aðal- og varadælu-
stöðvar hitaveitunnar . í
hádeginu í gær hafa ibúðar-
hverfi bæjarins verið köld en
hins vegar víðast olíukynt á
vinnustöðum, svo Bjarni bjóst
við að menn hlökkuðu óvenju
mikið til að fara i vinnuna i
morgun.
Það er ekki bara að hita-
veitan hafi farið heldur hefur
norðan stórviðri með hrið
gengið yfir staðinn síðan á
föstudag og er þar nú orðinn
mikill snjór. Þar var 12 stiga
frost kl. 6.30 í morgun.
Reynt var að kanna
skemmdir í gær, og komu
könnunarmennirnir til
bæjarins í nótt. Bjarni vissi
ékki nákvæmlega um útkomu
nema hvað ástandið mun vera
slæmt og fyrirsjáanlegt er að
einhvern tíma tekur að lagfæra
skemmdir.
Vlða eru oliukynditæki enn
til i húsum og hafa menn verið
að koma þeim i gang eftir
föngum. Jarðýta hefur svo farið
fyrir oliubilum. Kunnáttumenn
á olíukyndingar hafa þó hvergi
nærri komízt yfir að ræsa öll
kerfi enn. Þá er hætta á að
frostskemmdir hafi orðið á
hitakerfum húsa, en ekki var í
morgun ljóst hvort mikil brögð
væru að þvi.
^kki var Bjarna kunnugt um
að neinar fjölskyldur hefðu
yfirgefið hús sin vegna kulda
en sagði það þó vel geta verið. í
gær var vérzlun Kaupfélagsins ,
opnuð og einnig rafbúðin, en
rafmagnsofnar voru á
boðstólum í báðum
verzlununum. Seldust þeir upp
á svipstundu.
„Það hefur ekkert reynt á
okkur f þessu sambandi, við
höfum bai-a fylgzt með,“ sagði
Hafþór Jónsson hjá Almanna-,
vörnum rikisins I morgun.
„Þeir eru með þetta allt undir
fullri stjórn á Siglufirði og við
höfum ekki verið beðnir um að
útvega neitt. Þarna er -
auðsjáanlega virk og góð al-
mannavarnarnefnd og svona
viljum við einmitt að staðið sé
að hlutunum." -G.S./-H.P.
Ekkibúiztvið
málsókná hendur
verkalýðsleiðtogum
— sjá bls. 6
Mikill meirihluti stendur
að ólöglegu aðgerðunurn
— en klof ningur samt
— sjá bls. 5
„Frábært—
nánast kraf taverk”
— um söfnun enska plötu-
snúðsins til styrktar van-
gefnum — bls.4
„Fjölskyldan hefst við
i einu herbergi við yl
frá einum rafofni”
Það er kuldalegt um að litast á Siglufirði þessa dagana. Eftir að
snjóflóðið eyðilagði dælustöð hitaveitunnar í gær er ekki aðeins
kuldalegt — það er ÍSKALT.
DB-mynd: BÁ, Siglufirði.
Þórdís stökk hæst en ísf irðingurinn sló í gegn!
Það stekkur enginn íslenzk
;kona hærra en Þórdís Gísla-
dóttir, ÍR. Á Meistaramóti
fslands í gær varð hún íslands-
meistari í hástökkinu. Stökk
yfir 1.71 m. með miklum tilþrif-
um eins og DB-mynd Bjarnleifs
sýnir vel. íslandsmet hennar
innanhúss er 1.73 m og utan-
húss 1.76 m. Þórdís stóð fyrir
sínu á mótinu en ungur mennt-
skælingur frá ísafirði, Jón
Oddsson, sló í gegn. Hann var
rétt við íslandsmetið í lang-
stökki — án nokkurrar æfingar
í þessari grein íþrótta og kunn-
áttan í alminnsta lagi. Jón, sem
verður stúdent í vor og er
kunnur knattsþyrnumaður í
liði ísfirðinga, sagði: „Ætli
maður haldi sig ekki við knatt-
spyrnuna þrátt f.vrir þennan
árangur." Sjá íþróttir bls. 15.
16 17 og 18.
Hríðog
gaddur
herjaá
hitaveitu-
lausan
Siglufjörð