Dagblaðið - 27.02.1978, Side 4
4
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 27. FEBRÚAR 1978.
1
I Enskur plötusnúður safnar fyrir sundlaug handa vistmönnum á Kópavogshæli:
„ÞETTA ER ALVEG FRABÆRT
NÁNAST KRAFTAVERK
ff — segiryfirlæknir
K
„Hvað ertu að segja, heldur
þú virkilega að við fáum sund-
laugin? Það er alveg dásam-
legt,“ sagði frú Ragnhildur
Ingibergsdóttir yfirlæknir á
Kópavogshæli þegar DB sagði
henni þau gleðitíðindi að söfn-
un diskótekarans John Lewis
væri nú komin svo langt að
hægt verður að kaupa sundlaug
fyrir hælið.
„Mér finnst þetta alveg frá-
bært,“ sagði Ragnhildur. „Við
höfum svo sannarlega þörf
fyrir sundlaugina. Það hefur
verið draumur okkar í mörg ár
að koma henni á laggirnar. Mér
þykir þessi piltur hafa sýnt al-
veg frábæra frammistöðu. Það
er nánast kraftaverk ef tekst að
safna svo miklu fé á ekki lengri
tíma.
En hvað fólk er örlátt þegar
leitað er til þess. viltu skila
innilegu þakklæti frá okkur til
allra sem syðja þessa söfnun,"
sagði Ragnhildur yfirlæknir.
Kópavogshæli hefur nóg
landrými fyrir laugina, sem
sett verður upp í vor. Enn
vantar þó herzlumuninn á að
búið sé að safna nóg fyrir upp-
setningunni. Það væri óneitan-
lega dálítill bjarnargreiði að
gefa einhverjum sundiaug,
pakkaða inn í gjafapappír með
slaufu utan um, því uppsetning
svona laugar kostar einnig
mikiðfé. - A.Bj.
Sundlaugin sem keypti verður er frá Gunnari Asgeirssyni. Hún er
12 metrar á iengd 6 metrar á breidd og einn og háifur meter á dýpt.
Hún er með hreinsibúnaði og einum stiga.
John Lewis lyftir söfnunarkassanum, sem verið hefur i anddyri
Óðals undanfarna daga. — DB- mynd: Hörður.
Rúm milljón hefur saf nazt:
„HREYKINN AF AÐ ÞEKKJA
ÞESSAR STÚLKUR”
— segirJohn Lewis um stúlkurnar, sem gengu með honum til Keflavíkur
„Stúlkurnar voru alveg stór-
kostlegar, — alveg stórkost-
legar. Eg er handviss um að
einhver „þarna ofan frá“ hefur
líka verið með okkur í göng-
unni, þvi veðrið var alveg
dásamiegt," sagði John Lewis,
enski diskótekarinn í Öðali sem
gengizt hefur fyrir söfnun fyrir
vangefna og fór í „góðgerðar-
göngu“ til Keflavíkur á mið-
vikudaginn var.
„Með fjárframlögum og lof-
orðum, sem greidd verða núna
um og eftir mánaðamótin er
söfnunin komin vel yfir millj-
ón,“ sagði John.
Mörg fyrirtæki hafa sýnt
mikinn skilning á málefninu og
eftirtalin fyrirtæki og starfs-
fólk þeirra hafa þegar lofað
fjárframlögum: Almennar
tryggingar, — Ford, Adamsson
sportfatnaður, Hagkaup, Faco,
Fálkinn, Penninn, Rolf Johan-
sen, Stefánsblóm, Bilaleigan
Falur, Landsbankinn, Útvegs-
bankinn, Héðinn, Asbjörn
Ólafsson, Coca-Cola, Tropicana,
Sesar, Togaraafgreiðslan, Öðal,
Samvinnutryggingar, Flug-
leiðir, Hótel Loftleðir, Hótel
Esja, Dagblaðið.
Nokkrir af þessum aðilum
hafa þegar greitt sitt framlag,
eins og t.d. starfsfólk Asbjarnar
Ólafssonar og starfsfólk hjá
Togaraafgreiðslunni. Auk þess
hefur almenningur komið með
framlag sitt til afgreiðslu Dag-
blaðsins og gestir á Öðali hafa
einnig verið örlátir. Þar hefur
ve: íð feiknastór söfnunarkassi
i anddyrinu sem tekið hefur á
móti framlögum. í ráði er að
kassinn verði tekinn niður um
næstu helgi og fyrir þann tíma
þarf helzt að vera búið að safna
nægilegu fé til þess að greiða
fyrir sundlaugina og uppsetn-
ingu á henni.
Endanleg tala liggur því ekki
fyrir fyrr en eftir næstu helgi.
Nú viljum við skora á þá sem
vilja ljá þessu máli lið að taka
sig til og safna á vinnustöðum
sínum. Hafa má samband við
annaðhvort John Lewis sem
hefur bækistöð á Óðali, Hrafn-
hildi Sigurðardóttur í spari-
sjóðsdeild Landsbankans, aðal-
banka, eða undirritaðan biaða-
mann Dagblaðsins.
- A.Bj.
Göngufólkið þurfti ekki að svelta á leiðinni. Bæði höfðu stúlkurnar
tekið með sér svolitið nesti,— en fransk' matrciðslumaðurinn á
Óðali, sem reyndar tók þessar myndir sáþeim fvrir mat, sem
eigendur Óðals sendu göngufólkinu. Auk þess komu aðrir færandi
hendi.
Starfsf ólk Landsbankans gefur hálfa milljón: _ segir ein stúlknanna, sem
„SVONA GÖNGUR ALGENGAR ERLENDIS snúðnum til Keflavfkur í
EN LANDINN DAÚTíÐ LENGIAÐ KVEIKJA” %'SSr
„Jú, auðvitað vorum við
þreyttar enda óvanar að ganga
svona. Annars var ég eiginiega
sú eina sem hafði verulegar
áhyggjur af þvi að komast ekki
alla leið til Keflavíkur,“ sagði
Hrafnhildur Sigurðardóttir
starfsstúlka i Landsbanka ís-
lands í samtali við DB. Hrafn-
hildur var ein af fjórum
stúlkum sem tóku þátt í Kefla-
vikurgöngu diskótekarans John
Lewis til styrktar fyrir van-
gefna á miðvikudaginn var.
Hrafnhildur var sú eina sem
komst heilu og höldnu á leiðar-
enda. Hinar stúlkurnar sem
þátt tóku í göngunni voru
Bjarnfríður Arnadóttir og
Ragnheiður Guðjónsdóttir
báðar í Landsbankanum og
Jóna Árnadóttir sem vinnur í
Útvegsbankanum.
„Við fengum frf í vinnunni á
miðvikudaginn,“ sagði Hrafn-
hildur, „Bæði yfirmenn okkar
og samstarfsmenn studdu
okkur mjög vel. Við erum
einnig búnar að láta samskota-
lista ganga bæði í aðalbankan-
um og í öllum útibúunum. Þeir
eru ekki allir komnir til baka
en ég held að ég megi fullyrða
að upphæðin sem safnazt hefur
sé komin yfir 500 þúsund kr.
Það er í rauninni miklu meira
en ég hafði þorað að reikna
með.
Mér leizt strax mjög vel á
þessa hugmynd John Lewis
sem ég þekkti erlendis frá. En
þar er algengt að hópar taki sig
saman og fari i „góðgerðar-
göngur“, eða „Sponsored
walks“ eins og það heitir
á ensku. Hin ýmsu fyrirtæki og
einkaaðilar takast þá á hendur
að greiða ákveðið verð fyrir
kilómetrana sem gengnir eru.
Ég tók hins vegar eftir þvi að
fólk hér var dálítið lengi að
kveikja á sér, en þessi ganga
hefur vakið talsverða athygli,"
sagði Hrafnhildur.
„Við lögðum af stað frá Hótel
Loftleiðum á Reykjavíkurflug-
velli klukkan 9 um morguninn.
Við gengum sem leið lá til
Keflavfkur og fórum i gegnum
hliðið á vellinum á mínútunni 8
um kvöldið. Það tók hópur af
fólki á móti okkur við hliðið og
meðal annarra fulltrúi frá
Kiwanisklúbbnum á flugvellin-
um. Hann sagði að Kiwanis-
menn hefðu mikinn áhuga á
söfnun okkar. Ég lét hann fá
eins lista og við sendum f bank-
ana og væntum við góðs þegar
sá listi kemur til baka.
Við höfðum útbúið okkur
með svolítið nesti en ýmsir
aðilar sáu um að okkur skorti
ekkert meðan á göngunni stóð.
Þeir Davíð Gunnarsson, Skúli
Einarsson og Eric Paul Calmon,
franski matreiðslumaðurinn á
Öðali, komu með mat handa
okkur, heita súpu, kakó, sam-
lokur og ýmislegt góðgæti. Þá
kom kona með kaffi og smurt
brauð og ein stúlka úr bankan-
um kom um hálfsjö leytið með
kaffi og brauð. Skúli og Eric
fylgdust náið með því að við
héldum áfram og ekkert amaði
að okkur. Þeir tóku lfka stelp
urnar upp í síðasta spölinn
þegar þær voru alveg búnar að
vera af þreytu," sagði Hrafn-
hildur Sigurðardóttir.
- A.Bj.
Bankameyjarnar gönguglöðu ásami John Lewis plötusnúð á
leiðinni tii Keflavikur á miðvikudaginn. Hrafnhildur
Sigurðardóttir er önnur frá vinstri með hvitan trefii.