Dagblaðið - 27.02.1978, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 27. FEBRUAR 1978.
Klofningur um ólöglegu aðgerðirnar:
Mikill meirihluti
stjórnanna stendur
að verkfallinu
Talsverður klofningur er kom-
inn upp I röðum stjórnenda
verkalýðsfélaganna um þátttöku i
ólöglegu aðgerðunum 1. og 2.
marz. Þó stendur mikill meiri-
hluti stjórnenda sambandanna að
þessum aðgerðum. Þær voru sam-
þykktar með 10 atkvæðum gegn
einu i stjórn BSRB og höfðu áður
verið heimilaðar með 58 at-
kvæðum gegn tveimur á for-
mannaráðstefnu BSRB, að sögn
Kristjáns Thorlacius, formanns
bandalagsins. Æðsta stjórn ASÍ,
um tuttugu menn, samþykkti að-
gerðirnar með öllum atkvæðum
nema hvað þrír sátu hjá, að sögn
Snorra Jónssonar, sem gegnir for-
setastarfi í ASÍ.
Launamálaráð Bandalags há-
skólamanna stendur að ólöglegu
aðgerðunum og telur sig hafa um-
boð til þess fyrir hönd bandalags-
ins, að sögn Jóns Hannessonar,
formanns ráðsins. Jónas Bjarna-
son, formaður bandalagsins,
kveðst hins vegar fyrir hönd
stjórnar þess ekki hvetja
háskólamenn til ólöglegra
aðgerða.
BÚIZT VIÐ LÍTILLI
ÞÁTTTÖKU SJÓMANNA
Forseti Farmanna- og fiski-
mannasambandsins, Ingólfur
Ingólfsson situr f samráðsnefnd
launþegasamtakanna, sem mælir
fyrir um verkfallið. í stjórn sam-
bandsins hefur komið fram á-
greiningur um, að hve miklu leyti
forsetinn geti komið fram fyrir
hönd -sambandsins f málinu.
Óskar Vigfússon, forseti Sjó-
mannasambandsins, fylgir ólög-
lega verkfallinu og tekur þátt f
undirbúningi þess. Hann telur sig
hins vegar ekki geta skuldbundið
sjómenn til þátttöku og sat hjá við
afgreiðslu málsins f stjórn ASl.
Mun mest velta á afstöðu ein-
stakra skipstjóra, hver þátttaka
sjómanna verður, en helzt er
búizt við, að hún verði lítil.
Þá stendur Verzlunarmanna-
félag Reykjavíkur ekki að verk-
fallinu, og það nýtur ekki stuðn-
ings formanns Landssambands
verzlunaFmanna. Bankamenn
verða heldur ekki með.
. A einstaka stöðum kann verk-
fallið að verða skemmra en tveir
dagar.
Hins vegar stendur mikill
meirihluti stjórnenda verkalýðs-
félaga að þessum aðgerðum, eins
og fram kom í byrjun þessarar
fréttar.
HH
Mörg hundruð lítrum af
bensíni stolið
— úr tönkum bfla á Akranesi
Tveir ungir menn sitja nú inni
á Akranesi vegna gruns um aðild
að mörgum þjófnuðum sem átt
hafa sér stað á Akranesi að
undanförnu. Þjófnaðirnir eru
aðallega f sambandi við tóbak,
sælgæti og ýmislegt smávegis úr
söluturnum og lfkum verzlunum.
I öðru lagi hefur orðið uppvíst um
stuld á mörg hundruð lítrum af
bensfni úr bensfntönkum bifreiða
víðs vegar um bæinn.
Ekki er enn ljóst hvort margir
eru viðriðnir þessi mál eða fáir en
rannsókn er f fullum gangi.
ASt.
Styður ÞU
á réttu hnappana?
Þetta er mikilvæg spurning fyrir alla
sem veita sérverslunum, matvöruverslunum
og þjónustufyrirtækjum forstöðu.
ÖÞessir hnappar tilheyra DTS 100.
\DTS er greiðslureiknir.
MHLj DTS 100 sýnir sjálfvirkt (með því að styðja
á réttan hnapp) hve mikið gefa skal tii baka.
DTS 100 léttir afgreiðslustörf.
DTS 100 hefur öruggan leiðréttingarbúnað.
DTS 100 sýnir heildarsöluverð fjögurra vöruflokka
samtímis.
DTS veit nákvæmlega hvaða upphæð á að vera
= \ í skúffunni. — (Meira að segja þegar vörum
er skiiað og greitt er úr kassa.)
DTS 100 hefur sjálfvirkan margfaldara.
DTS 100 er greiðslureiknir.
DTS er sannarlega nafni sínu
samkvæmur.
Með DTS 100 styður þú á hugvitsamlega hnappa.
Skrifstofutækni hf.
Tryggvagötu — Reykjavík
Box 454 — Sími 28511
,Með DTS 100 styður þú á réttu hnappana*
~ C/ LITSJÓNVARPSTÆKIN FRÁ
9/ GENERAL ELECTRIC x
TOPP FRAMLEIÐSLA Á FRÁBÆRU VERÐI
22”...............KR. 359.000,
26”................KR. 425.000,
26” M/FJARSTÝRINGU KR. 467.000,
1 árs ábyrgð
Sölustaðir:
TH. GARÐARSSON H/F
Vatnagörðuni 6
Sími 86511 (2 línur)
UTVARPSVIRKJA
MEISTARI
o HN0TUKASSI
o IN-LINE-MYNDLAMPI
o KALT EININGAKERFI
o SNERTIRÁSASKIPTING
o SPENNUSKYNJARI
Staðgreiðsluafsláttur
S10NVARPSVIRKINN
Arnarbakka2
Simar 71640 -71745
9
C