Dagblaðið - 27.02.1978, Síða 6
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. FEBRIJAR 1978.
Hæstiréttur:
12 ára fangelsi fyrirmotó
Tæplega tvítugur Akureyr-
ingur, Úlfar Ölafsson, var á
þriðjudaginn dæmdur í Hæsta-
rétti til að sæta tólf ára fang-
elsisvist fyrir morðið á Guð-
birni Tryggvasyni aðfaranótt 4.
apríl 1976. Aður hafði Úlfar
verið dæmdur á Akureyri til að
sæta 16 ára fangelsisvist.
Gæzluvarðhaldsvist Úlfars
síðan 5. apríl 1976 komi til frá-
dráttar fangelsisvistinni.
Aðfaranótt 4. apríl 1976
brauzt Úlfar inn í verzlun á
Akureyri og stal þaðan m.a.
riffli og skotfærum. Síðar þá
sömu nótt banaði hann Guð-
birni heitnum á götu á Akur-
eyri með nokkrum hnitmiðuð-
um skotum. Úlfar var handtek-
inn daginn þar á eftir og játaði
strax og undanbragðalaust brot
sitt.
I dómi Hæstaréttar segir
m.a.: „Brot ákærða gegn 211.
gr. almennra hegningarlaga
bitnaði á vegfaranda, sem
ákærði átti ekki sökótt við, og
var unnið með styrkum og ein-
þeittum vilja og beitt skotvopni
við framkvæmd þess. Er óljóst,.
hvað ákærða gekk til verksins.
Ákærði var mjög ungur, nýorð-
inn 18 ára, þegar hann framdi
brot sfn, er hann gekkst hrein-
skilnislega og greiðlega við,
sbr. 4. tölulið 1. málsgr. 70. gr.
og 9. tölulið 1. málsgr. 74. gr.
almennra hegningarlaga. Þykir
refsing hans hæfilega ákveðin
fangelsi 12 ár.“
Einnig segir um það, sem at-
hugavert var við rannsókn
málsins: „Áður en úrskurður
gekk hinn 5. apríl 1976 um
gæzluvarðhald ákærða, kom
ákærði ekki fyrir dómara, að
því er gögn máls benda til, og
er það andstætt 65. gr. stjórnar-
skrár nr. 33/1944 og 66. gr. laga
nr. 74/1974. Þá staðfestu ýmsir
þeir, sem gáfu skýrslur fyrir
lögreglu, skýrslur fyrir dómi,
eftir þvf sem greint er f þing-
bók, án þess að þeir væru próf-
aðir sjálfstætt um sakarefni,
sbr. 1. málsgrein 77. gr. laga nr.
74/1974.“
Héraðdsóm kvað upp Freyr
Öfeigsson, héraðsdómari á
Akureyri, en Hæstaréttardóm-
inn hæstaréttardómararnir Ar-
mann Snævarr, Benedikt Sigur-
jónsson, Björn Sveinbjörnsson,
Logi Einarsson og Þór Vil-
hjálmsson.
-ÓV
Guðbjörn Tryggvason.
Kröflunefnd og Mitsubishi:
EKKERT OEÐULEGT
VIÐ VÉLAKAUPIN”
segir iðnaðarráðuneytið
„Það er því ljóst, að ásakanir
um að Kröflunefnd hafi haft
óeðlileg afskipti af vélakaupum
eða reynt að hafa áhrif á val
framleiðenda, hafa ekki við
neitt að styðjast," segir í frétta-
tilkynningu, sem DB barst frá
Iðnaðarráðuneytinu f gær-
kvöld.
Tilefnið eru ásakanir f kjall-
aragrein Vilmundar Gylfasonar
f DB í sfðustu viku, um að for-
maður Kröflunefndar hafi átt í
óeðlilegum viðskiptum við jap-
önsku söluaðilana.
Ráðuneytið segir að það hafi
verið tæknilegir ráðunautar
Kröflunefndar, Rogers Engi-
neering f San Francisco og
Verkfræðistofa Sigurður Thor-
oddsen hf. í Reykjavík, sem
mælt hafi með vélakaupunum.
Þrjú önnur ráðgjafafyrirtæki á
sviði véiaverkfræði hafi komizt
að sömu niðurstöðu, og hafi
Kröflunefnd sfðan samþykkt
einróma að „hlfta ráðum hinna
tæknilegu ráðunauta og ganga
til samninga við fyrirtækið
Mitsubishi."
-ÓV
Lá kjálkabrotinn
eftir árásina
Hjá rannsóknarlögreglu rfkisins
er nú til rannsóknar árásarmál
sem átti sér stað um síðustu helgi
við nætursölu BSH á Reykja-
víkurvegi í Hafnarfirði.
Við nætursöluna er oft annríki
mikið fyrri hluta nætur, einkum
um helgar. A sunnudagsnóttina
kom til stimpinga milli tveggja
manna og lauk þeim svo að 19 ára
piltur lá óvígur í valnum eftir og
reyndist m.a. kjálkabrotinn.
Árásarmaðurinn fór af staðnum
er hann hafði rotað mótherjann
ag hefur ekki fundizt sfðan að því
er Dagblaðið bezt veit. Ymsir
sjónarvottar voru að átökunum og
könnuðust ýmsir við árásarmann-
inn, þó ekki þekktu þeir nafn
hans.
- ASt.
Próflaus stórskemmdi
bíl föður síns
Sautján ára gamall piltur á
Akranesi tók nýja bílinn hans
pabba síns í óleyfi f fyrrinótt og
skemmdi hann mikið. Pilturinn
er próflaus — en átti að taka
ökupróf innan skamms, að sögn
lögreglunnar á Akranesi.
Það var um hálfsex á sunnu-
dagsmorguninn að lögreglu-
menn á eftirlitsferð um kaup-
staðinn sáu til piltsins, þar sem
hann ók um miðbæinn á Lödu
föður síns, árgerð 1977. Töldu
lögreglumennirnir sig vita, að
pilturinn væri próflaus óg
veittu honum eftirför. Honum
tókst þó að snúa þá af sér — en
skömmu síðar fréttu þeir að
bíllinn hefði farið út af þjóð-
veginum skammt innan við bæ-
inn.
Með ökumanninum, sem
grunur lék á að hafi verið undir
smávægilegum áhrifum
áfengis, voru þrjú ungmenni f
bílnum. Eitt þeirra, piltur,
skarst á höku við veltuna, en
önnur meiðsli urðu ekki. Þessi
þrjú hafði ökumaðurinn hitt á
„rúntinum" fyrr um nóttina og
boðið þeim með sér. Þáðu þau
boðið, enda gátu þau ekki
merkt að pilturinn væri ölv-
aður og þekktu hann lítið fyrir.
-ÓV
Allar
skemmdirnar
á toppnum
Toppurinn rifinn, beyglaður og
tættur, allt annað heilt og bíllinn
valt ekki. Hvernig má þetta
verða? Umferðaróhapp þetta varð
á Langholtsvegi í gærdag kl.
15.25. Þar var vörubíl bakkað út
úr stæði og í sama mund kom
þessi gljáfægða Datsun-bifreið
eftir götunni. Hvorugur öku-
manna áttaði sig á ferðum hins
fyrr en þessi ósköp höfðu orðið þá
er pallur vörubílsins fór yfir þak
fólksbifreiðarinnar. Hér varð
mikið tjón á nokkrum sekúndu-
brotum, þegar enginn taldí að
hætta leyndist á vegi bílanna.
- AST/ DB-mynd Sveinn Þormóðs
son.
— segirJónH. Bergs
„Nei, ég býst ekki við, að
höfðað verði mál gegn þeim for-
ystumönnum verkalýðsfélaga,
sem hvetja fólk til ólöglegra verk-
falla," sagði -Jón H. Bergs, for-
maður Vinnuveitendasambands-
ins, f viðtali við DB.
„Ég veit ekki enn, hversu um-
fangsmiklar þessar aðgerðir
verða, en greinilegt er, að ýmsir
munu ekki hlýða þeim,“ sagði Jón
um fyrirhuguð verkföll.
„Vinnuveitendur munu lfta á
fjarvistir sem skróp, nema menn
leggi fram vottorð um veikindi.
4t
Samningarnir undirritaðir í októ-
ber sl. Matthías Á. Mathiesen og
Kristján Thorlacius skrifa undir,
Halldór E. Sigurðsson horfir á.
Þá verður beitt launafrádrætti.
Þetta verður undir einstökum
vinnuveitendum komið, og vera
má, að sé um ítrekuð skróp úr
vinnu að ræða, þá komi til brott-
rekstrar hjá einhverjum."
Jón H. Bergs sagði, að enn væri
fremur lítið komið af uppsögnum
á kjarasamningum. Forystumenn
launþegasamtakanna hvetja til,
að félögin segi upp fyrir 1. marz,
þannig að samningar verði úr
gildi 1. aprfl.
„Það er tæplega hægt að tala
um þessar ólöglegu aðgerðir sem
félagslegar aðgerðir," sagði for-
Jón H. Bergs: „Tæplega hægt að
tala um þetta sem félagslegar að-
gerðir."
maður Vinnuveitendasambands-
ins og benti á, að samningar væru
hvergi lausir enn.
• HH
Ekki búizt við málsókn á
hendur verkalýðsforingjum