Dagblaðið - 27.02.1978, Side 11

Dagblaðið - 27.02.1978, Side 11
vegna reksturs á allt of stórum fiskiskipaflota. Með öðrum orðum er verið að verja hluta af arði fiskauðlindanna til að halda uppi ónauðsynlegri at- vinnu. Fiskiskipin sjálf eru einnig fengin að láni að nokkru leyti erlendis frá. Sú atvinna, sem byggist á út- sæðisáti, ýktum reksturs- kostnaði og fram fer úti á lands- byggðinni með því að taka fisk frá öðrum getur ekki verið grundvöllur að byggðastefnu og er í raun afskræming. Aðeins uppbygging á varan- legum atvinnutækifærum úti á landsbyggðinni getur þjónað raunverulegri byggðastefnu, þ.e. atvinnu, sem er ekki háð því, að pólitíkusar úthluti skömmtunarseðlum að tak- mörkuðum fiskauðlindum eða sjóðum landsmanna. Nálægð margra fiskibæja við gjöful fiskimið er í sjálfu sér nægileg forsenda fyrir varanlegri byggðastefnu. Raunhæfasta byggðastefnan byggist því á tafarlausri fiskfriðun og sölu á veiðileyfum til þess að stjórna aðgangi í takmarkaðar auðlindir. LÍFID ER EKKI BARA SALTFISKUR Ljóst er, að verðmæti sjávar- afla verða ekki aukin nema að vissu marki með aukningu sjávarafla. Verulegt svigrúm til verðmætaaukningar felst aftur á móti í aukinni nýtingu og hækkun vinnslustigs á sjávar- afurðum. Verulegs misræmis hefur gætt á síðustu tveimur áratugum í fjárfestingum f fisk- veiðum og fiskvinnslu. Fisk- veiðiflotinn er orðinn of stór, en sorglega fáar nýjungar hafa orðið til f fiskvinnslu. Segja má, að vinnslustig á íslenskum sjávarafurðum hafi að meðaltali staðið f stað f sfðustu tvo til þrjá áratugi. Menn hafa trúað því allt fram til sfðustu stundar, að verðmæti sjófangs verði stöðugt aukið með þvf að kaupa ný fiskiskip. En það er með þróun á nýjum sjávaraf- urðum eins og almennan iðnað. Hún tekur langan tíma og krefst mikillar þekkingar og sérhæfingar á vinnuafli, svo og gffurlegs fjármagns. Vandamál ýmissa byggðarlaga er einmitt skortur á fjölbreytilegum at- vinnutækifærum. Allt ber því að sama brunni. Aðeins iðn- þróun og fjölbreytileg þjónusta eru forsendur að raunhæfri byggðastefnu, en til þess að svo megi verða, þurfa að myndast stærri byggðakjarnar með færri en stærri fiskvinnslu- stöðvum en nú er. Það er ekki unnt að byggja byggðastefnu á svæðisbundnum eða eyrna- merktum rétti til að selja náttúruauðlindir í lítið unnu ástandi úr landi. Menn geta lofsungið hefðbundnar fslenskar vinnsluaðferðir, en taka verður tillit til þess, að íslenskur sjávarútvegur býður nú ekki upp á nægilega fjöl- breytileg atvinnutækifæri né er nægilega arðsamur við núverandi aðstæður til þess að unnt sé að byggja upp ný at- vinnutækifæri f fiskiðnaði og almennumiðnaði. ÍSLENSKT ÞJÓÐFÉLAGS- KERFI OG FISKVEIÐIKERFI Ásgeir Jakobsson telur f „rabbi“ sínu, að nokkrir háskólamenn séu að byggja upp heil kerfi um fiskveiðar fram- tfðarinnar þrátt fyrir að nauðsynlega þekkingu vanti um „lífsskilyrði og lffkeðjuna" í sjónum til að byggja á. Ég er ekki 1 nokkrum vafa um, að Ásgeir skortir þessa þekkingu, og ennþá fremur skortir hann þekkingu til að meta það, hvort fiskifræðingar hafi sæmilega yfirsýn yfir lffið í sjónum eða ekki. Grein, sem gerir ekkert annað en að auglýsa þekkingar- skort höfundar, er að vfsu ekki til þess fallin að svara. En í greininni endurspeglast ákaf- lega skýrt nokkur grundvallar- vandamál, sem glima verður við. I fyrsta lagi sýnir höfundur mótþróa gegn upplýsingum fræðimanna á þeim grundvelli, að þekking þeirra sé tak- mörkuð. Þ.e. af því þekking sé ekki nægileg, er best að láta vanþekkinguna ráða. Þetta sjónarmið er alþekkt. í öðru lagi tekur Asgeir fyrir tvö af vafasömustu atriðum í hag- keðjuritgerð Kristjáns Friðrikssonar og reynir að nota þau til þess að gera málflutning annarra manna vafasaman. Þetta er hinn hefðbundni islenski útúrsnúningsháttur og rökþrot. Annars má segja, að almenn tregða af þessu tagi sé meginskýringin fyrir þvf, að á íslandi ríki tæpast nokkurt þjóðfélagskerfi, hvað þá fisk- veiðikerfi. Menn streitast af öllu afli gegn þvf, sem heitið getur skipulag eða kerfi, enda rfkir hérlendis nánast stjórn- leysi á flestum sviðum. Menn í sjávarútvegi vilja helst fá að athafna sig stjórn- laust og án afskipta hins opinbera. Til þess að mæta þessu er tekinn auðlinda- skattur af sjávarútvegi á dulbúinn hátt, þ.e. með rang- skráningu gengis. Gengið er fellt þegar fiskvinnslufyrir- tækin eru að fara á hausinn. Landbúnaðurinn vill fá að framleiða eins og honum sýnist og skulu afurðirnar með góðu eða illu ofan í neytendur. Enginn hefur vit á landbúnaði nema forystumenn bænda, þ.e. enginn má hafa áhrif á land- búnað nema sá hinn sami sé á snærum hans. Verslunin heimt- ar nú sjálftökurétt með frjálsri álagningu. Islenskt þjóðfélag er eins og fjölskylda af ribböldum, sem engin lög ná yfir. Er það furða þótt fulltrúar fyrir nýjar atvinnugreinar fái tæpast orðið hvað þá fjármagn til uppbyggingar. Dr. Jónas Bjarnason Tower of London og Tower brúin yfir Thamesá. Ferðamenn flykkjast í Tower of London, þar sem ímyndunaraflið nær tökum á þeim vegna sterkra áhrifa, sem menn verða fyrir er þeir skoða hinar merku minjar. Upprunalegur hluti Tower var byggður af Vilhjálmi hinum sigursæla fyrir 900 árum og minnast Lundúnabúar þess með ýmsu móti f sumar. Búizt er við fleiri ferðamönnum til Tower í ár en nokkru sinni fyrr, en þeir voru þrjár milljónir í fyrra. DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 27. FEBRUÁR 1978. Elizabet 1, 1533-1603, dóttir Hinriks áttunda og önnu Boleyn, vareinnig fangelsuðum tfma í Tower, áður en henni tókst að komast til valda. MERKT MINJASAFN En Tower verður ekki lengur vitni að slfkum ógnaratburðum, en sagan geymist og erlendir ferðamenn ganga á vit fortíðar- innar er þeir koma f heimsókn. Skrautmunir og gimsteinar brezku krúnunnar eru geymdir f Tower og ættu þeir að vera öruggir innan veggjanna, sem eru einn og hálfur metri að þykkt. Þessar gersemar eru stöðugt augnayndi og aðdráttar- afl ferðamanna. Umsjónar- maður Tower, Digby Raeburn, segir að ímyndunarafl ferða- manna lifni mjög við er þeir skoða hin sögufrægu mannvirki. Tower er vinsælasti skoðunarstaður ferðamanna í Bretlandi og e.t.v. f heiminum. Munnmælasögur geyma frásagnir af ýmsum brögðum, sem reynd hafa verið í Tower. Það eru sögur um flótta niður virkisveggina á reipi, sem bundið hefur verið saman úr lökum, eða ýmsum brögðum sem fangar hafa beitt til þess að afvegaleiða fangaverði eða tilraunum þjófa til þess að nálg- ast gersemar krúnunnar. Þá eru einnig viðhafðar ýmsar ævagamlar hefðir í Tower. Hrafnar verpa ár eftir ár f Tower og munnmæli herma að turnunum sé borgið á meðan hrafnarnir verpa. Ekki er vitað um upphaf þessarar sögu. Varðmenn í Tower, beefeat- ers, eru klæddir skrautlegum búningum, sem komnir eru frá valdatíma Tudor ættarinnar, en valdaferli hennar lauk árið 1603. GALGAHUMOR 1 frásögnum af tilraunum til þess að stela gei semum krúnunnar gætir oft töluverðrar kaldhæðni. Eitt tilfellið var á þann veg að leiðtogi þjófanna klæddi sig sem prestur ensku þjóð- kirkjunnar og rotaði vörðinn með krikketkylfu. Þá er húmorinn dálftið sjúkur í frásögninni af viðræðum Sir Thomas More og böðuls hans árið 1535. Sir Thomas á að hafa sagt við böðulinn: „Sjá þú um að koma mér örugglega upp á af- tökupallinn, og ég skal sjá um að komast niður af honurn." Þegar Anna Boleyn var send til Tower vegna hórdóms bauðst Hinrik áttundi til þess að uppfylla síðustu bón hennar fyrir aftökuna. Þar sem hún taldi, að enski böðullinn myndi óhreinka hennar netta háls, bað hún um færan franskan böðul — og fékk hann. Dick Thomas, sem stjórnar móttöku ferðamanna til Tower, hefur bent á tengslin á milli Tower og Norður-Ameríku t.d. f gegnum verk manna eins og Sir Walter Raleigh. Hann benti á að Walter Raleigh skrifaði „Sögu heimsins", þegar hann sat 12 ár f fangelsi f Tower, þar sem hann dreymdi um nýlendu- veldi handan hafsins. Með hálfbróður sfnum, Sir Humphrey Gilbert, reyndi Sir Raleigh að koma á fót búsetu í Ameríku, en Gilbert fórst í hafi. Arið 1584 sendi Sir Raleigh leiðangur til Norður- Karolínu, og þaðan kom fyrsta tóbakið og fyrstu kartöflurnar til Bretlands. Nýlendu sfna kgllaði Sir Raleigh Virginíu. JAFNVEL DYRAGARÐUR Fá mannvirki eiga sér eins merka sögu og Tower of London. Upphaflega var virki þetta byggt til verndar fbúum Lundúna, en hlutverkin hafa orðið æði mörg á liðnum nfu hundruð árum. Tower of London hefur verið notaður sem stjörnuskoðunarturn, konungleg peningasmiðja, almennt skjalasafn, auk þeirra hlutverka sem áður er getið. Þá má ekki gleyma þvf að fyrsti dýragarður f London var ein- mitt I Tower of London. reynd sé svokölluð byggða- stefna eitthvert hrikalegasta öfugmælahugtak seinni ára. Jafnframt þvf mun ég fjalla nokkuð um greinar hinna tveggja síðastnefndu heiðurs- manna. Mér væri það vissulega ánægjuefni ef ég gæti með þessum skrifum mfnum svælt nokkra melrakka út úr grenj- um sínum, svo dagsljósið megi f á að skina nokkuð á þá. HVAÐ ER RAUNVERULEG BYGGDASTEFNA? Ölafur Á. Kristjánsson reynir að gagnrýna málflutning minn og setur fram meira eða minna sundurlaus „tilfinninga- rök“ og blandar greinilega öllu saman. Það er reyndar engin furða, að hann hafi minnimátt- arkend gagnvart háskóla- menntuðu fólki. I grein'hans eru meira en tuttugu stórlega aðfinnsluverð atriði, svo ekki sé meira sagt. En sumt af því, sem hann segir, er þess eðlis, að rétt er að fjalia nokkuð um það. Ólafur segir: „Honum (þ.e. mér) virðist ókunnugt um, hvernig bæir og þorp með ströndum fram, allt í kringum landið, hafa risið upp úr dauðadái margra ára“. Sfðan lýsir Ölafur iðandi lffi og ánægju hjá fólki J ýmsum sjávarþorpum og sveitum landsins. Um þetta er eftirfar- andi að segja: 1. Olafur telur upp fiskibæi frá tsafirði um Norðurland og Austfirði að Hornafirði. Það er athyglisvert að Ólafur telur ekki upp Suðurland, Suðurnes og Faxaflóasvæðið. Benda má á, að hluti af þeirri atvinnu, sem rómuð er sérstaklega af greinarhöfundi, hefur byggst á ofveiði, og um leið á þvf að éta ötsæði. Sú atvinna í dag, sem byggist á því að draga úr at- vinnumöguleikum f fram- tíðinni, er þjóðhagslega neikvæð, þótt telja megi, að ein- hverjir hafi stundarhag af og í Kjallarinn Jónas Bjarnason skammsýni sinni lfti bjartsýn- um augum til framtíðarinnar. Sú atvinna f dag, sem byggist á þvf að veiða fisk og um leið á þvf að taka fisk frá öðrum, þýðir einfaldlega tilflutning á atvinnu frá einum stað til annars, og er í sjálfu sér ekki þjóðhagslega jákvætt atriði, nema fiskvinnsla og veiðar verði þar með hagkvæmari. Ólafur heldur e.t.v. að ástundun sjávarútvegs frá Suðurnesjum sé óhagstæð. I þessu sambandi má geta þess, að fiskifræðingar telja þorsk- stofninn geta borið allt að 500 þús. tonna veiði árlega til fram- búðar, ef nýting stofnsins fer fram með ákjósanlegum hætti. Þeir hafa nú lagt til, að þorsk- afli fari ekki fram úr 270 þús. tonnum á þessu ári. Það munar 230 þús. tonnum, og hver ætlar að taka á sig þá ábyrgð að sóa svona stórkostlega islenskum þjóðarhagsmunum? 2. Hluti af þeirri atvinnu, sem Ölafur rómar, er mögulegur

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.