Dagblaðið - 27.02.1978, Síða 15
DAGBLAÐIÐ. MÁNIJDAC.UR 27. FEBRÍJAR 1978.
15
iBÍIfrrlÉWÉÍ
ilHrfrHr
Klukka tímavarða stöðvaðist
og FH-ingar náðu stigi
Hreint æðisleg barátta og
darraðardans var stigin loka-
mínútur viðureignar blkarmeist-
ara FH og nýiiða Armanns í 1.
deild Islandsmótsins í Hafnar-
firði í gærkvöid. Nýliðar
Armanns, einir og yfirgefnir á
botni 1. deildar náðu forustu, 22-1
20, þegar rétt rúm mínúta var til
leiksloka. Armenningar fengu
dæmt aukakast þegar nákvæm-
lega 1 mínúta og fimm sekúndur
voru til loka leiksins. Jón Viðar
brauzt inn úr horninu og skoraði
— 22-20. Leikmenn FH brunuðu
upp — og Guðmundur Arnf
Stefánsson fór inn úr horninu og
skoraði. En viti menn — nokkrir
leikmanna Armanns stóðu og
bentu á klukkuna, hún sýndi 1.03.
Dómarar leiksins, þeir Karl
Jóhannsson og Hannes Þ.
Sigurðsson, stöðvuðu leikinn —
og ákváðu eftir rekistefnu að
draga 10 sekúndur frá. Það hlýtur
að teljast umdeilt, tvö mörk á 10
sekúndum. Hvað um það — þá
voru álitnar 55 sekúndur eftir —
Ármenningar hófu miðju. Hörður
Kristinsson komst i dauðafæri en
Magnús Ölafsson varði skot hans
— skyndiupphlaup FH og Tómas
Hansson jafnaði 22-22. Þá voru
aðeins 11 sekúndur eftir og
Armenningum tókst ekki að nýta
þær — jafntefli, 22-22.
Það hlýtur að teljast umdeilt f
atvikinu í gærkvöld er klukkan
gekk ekki að tveir FH-ingar voru
við klukkuna. Ekki að þeir hafi
viljandi stoppað klukkuna —
einfaldlega gleymt sér í æsingn-
um. Aður hafa umdeild atvik
gerzt I Hafnarfirði í sambandi við
tímaverði. Það hlýtur að teljast
lágmarkskrafa að áhangendur
liðs séu ekki tímaverðir — það á
ekki aðeins við í Hafnarfirði,
heldur og f Reykjavík'. í
umdeildum atvikum eru slíkir
menn undir pressu — slikt hefur
alltof oft gerzt, bæði i Hafnarfirði
og Reykjavík, að stuðningsmenn
viðkomandi liða séu tímaverðir.
Handknattleiksráð viðkomandi
héraða ættu að sjá um, að slíkt
hendi ekki — hvergi.
Hvað um það — Ármann var
vissulega nálægt sigri gegn FH.
Bikarmeistarar FH höfðu þó
ávallt undirtökin í leiknum. Voru
yfir í leikhléi 13-9. í síðari hálf-
leik skildu 2-3 mörk — og þegar
10 mfnútur voru til loka leiksins
hafði FH yfir 19-16. En
Armenningar börðust mjög vel —
skoruðu næstu 5 mörk, breyttu
stöðunni í 21-19 — og aðeins þrjár
mfnútur til loka. Raunar gafst
Ármenningum færi á að auka
muninn — en þeir áttu skot í
þverslá af línu þegar aðeins hálf
önnur minúta var eftir. FH náði
Hraðaupphlaupi — sem endaði í
viti og Þórarinn Ragnarsson
minnkaði muninn í eitt mark. Jón
Viðar skoraði síðan 22-20 — og
aðeins mínúta eftir. FH tókst að
jafna, 22-22 — og sennilega hefði
engu liði nema Armanni tekizt að
missa slíkt forskot. Reynsluleysi
liðsins er slíkt.
Já, reynsluleysi Ármenninga er
liðinu fjötur um fót. Þeir eru þó
vissulega kjölfesta, ,,gömlu
mennirnir" Ragnar Gunnarsson,
Hörður Kristinsson og Björn
Jóhannsson. En leikmenn klúðra
Fram í fallhættu
— ef tir tapleik gegn Þór
Þór, nýliðarnir í 1. deild
Islandsmótsins f körfuknattlelk
unnu dýrmætan sigur gegn hinu
unga og efnilega liðl Fram i bar-
áttunni um tilverurétt i 1. deild á
Akureyri á föstudag. Þór sigraði
Fram 67-53 — og hefur nú hlotið
6 stig í 1. deild — en Fram er í
sjöunda sæti með 4 stig. Leikur
Þórs og Fram bar öll merki tauga-
spennu — enda til mikils að
vinna. Sigurvegarinn stigi þá
stórt skref í átt til öryggis í 1.
deild, hinir sigruðu nánast
dæmdir til að falla. Næsta ár
verður fækkað í körfunni —
úrvalsdeild með 6 liðum stofnuð
og tvö neðstu liðin falla niður.
Leikur Þórs og Fram bar öll
merki taugaspennu — var slakur.
Sárafáir áhorfendur mættu í
Iþróttaskemmuna á Akureyri á
föstudagskvöldið til að sjá upp-
gjör liðanna, sigur Þórs. Þór hafði
ávallt undirtökin I leiknum —
hafði yfir í leikhléi 34-22. Hittni
leikmanna var ákaflega léleg —
nánast ekki hitt langtímum
saman. Það voru ..útlending-
arnir" i liði Þórs sem tryggðu
norðanmönnum sigur. Reykvík-
ingarnir Jóhannes Magnússon og
Jón Indriðason, ásamt hinum
bandaríska þjálfara Þórs, Mark
Christansen. Þeir Jóhannes og
Jón skoruðu hvor 18 stig og Mark
16 stig — þar af 14 stig I fyrri
hálfleik, hitti aðeins einu sinni I
síðari hálfleik enda gæzla leik-
manna Fram ströng.
Hjá Fram var Símon Ólafsson
nánast einn í baráttu sinni við
ákveðna leikmenn Þórs —
skoraði 22 stig. Ármann er nú
þegar fallið í 2. deild, allar líkur á
að Fram fylgi — og að Þór
leiki við sigurvegara 2. deildar
um sjötta sætið í úrvalsdeild að
ári. Leikir sem áttu ekki að verða
leikmönnum Þórs erfiðir.
Staðan I 1. deild er nú:
KR 10 9 1 935-786 18
Valur 11 9 2 972-858 18
Njarðvík 11 9 2 956-843 18
IS 11 8 3 1012-945 16
IR 11 4 7 938-984 8
Þór 11 3 8 802-868 6
Fram 12 2 10 907-1021 4
Armann 11 0 11 867-1085 0 St.A.
knettinum iðulega ákaflega
klaufalega á mikilvægum augna-
blikum, þá vegna taugaspennu
eða skorts á sjálfstrausti.
FH hefur nú tapað 5 stigum úr
þremur síðustu leikjum sínum.
Gegn ÍR fyrst, síðan Val á
föstudagskvöldið, 20-21, og nú stig
til Armanns. Geir Hallsteinsson
hefur ávallt verið tekinn úr
umferð — og aðrir leikmenn hafa.
ekki náð að sýna það frumkvæði
sem j arf — því vissulega losnar
um aðra leikmenn þegar Geir er
tekinn úr umferð.
Björn Jóhannsson skoraði flest
mörk Armanns, 11, þar af átta úr
vltaköstum. Þeir Valur Marteins-
son, Pétur Ingólfsson og Jón
Viðar skoruðu 4 — og Hörður
Kristinsson 1 mark. Hjá FH
skoraði kornungur leikmaður,
Tómas Hansson 4 mörk og þeir
Janus Guðlaugsson, Þórarinn
Ragnarsson og Guðmundur Arni
Stefánsson skoruðu 3 mörk hver.
Geir Hallsteinsson og Júlíus
Pálmason skoruðu 2 mörk hvor.
Þeir Hannes Þ. Sigurðsson og
Karl Jóhannsson dæmdu leikinn
— og fórst það vel úr hendi. „Mér
fannst þeir dæma vel, nema hvað
að það hefði mátt vera meira
samræmi þegar Hörður Kristins-
Skoruðu tvfvegisá
lokamínútunni
son var í baráttu á línu — þá var
honum gefinn sjens — og
nokkrum sinnum tókst honum
ekki að skora eftir að brotið hafði
verið á honum. Hins vegar komu
svipuð atvik hinum megin — leik-
menn náðu að brjótast i gegn,
fengu færi á að skjóta. Heimir
Gunnarsson varði þá nokkrum
sinnum vel af línu — en engu
síður var víti dæmt. Þeir fengu
bæði sjensinn — og síðan vítið,“
sagði Davíð Jónsson liðsstjóri
Armenninga. Þar kejmur Davið
einmitt að viðkvæmum punkti —
þvi alltof mikið er um að leik-
menn fáði bæði sjensmn að skora
— og takist ekki sé vlti daemt.
ekki bara f gærkvöld. -H. Halls.
Látió draumum rætast...
NtÚtWLÍFm,
TiO
Nú býður Sunna upp á dagflug til allra efrirsóttustu sólarlandanna.
Hvergi í]ölbreyttara ferðaval.
ARENA
sund-
fatnaður
Sundbolir
Sundskýlur
Sundgleraugu
Sundhettur
Allar stærðir.
Póstsendum.
Sportvöruverzlun
Ingólfs Óskarssonar
Klapparstíg44—Sfmi 11783
r■
SPANN MALLORCA - COSTA DEL SOL - COSTA BRAVA -
KANARÍEYJAR
ÍTALÍA SORRENTO - KAPRÍ - RÓM
GRIKKLAND aþenustrendur - eyjarnar rhodos
OG KORFÚ - SKEMMTIFERÐASKIP
PORTÚGAL ESTORIL - LISSABON
Skrifstolur Sunnu á öllum dvalarstöðum með þjálfuðu íslensku starfsfólki veitir öryggi
og þjónustu. Barnagæsla og leikskóli með íslenskum fóstrum.
Fjölbreyttar skemmti- og skoðunarferðir. Dagílug með rúmgóðum þotum.
ÞÚSUNDIR ÁNÆ.GÐRA VIÐSKIPTAVINA VFLJA SUNNUFERÐ ÁR EFTIR ÁR
SVHIU
BANKASTRÆTI 10. SÍMAR 29322 - 16400 - 12070 - 25060