Dagblaðið - 27.02.1978, Blaðsíða 16
16
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. FEBRliAR 1978.
^ írafdeild ^
Ýmsargerðir rafljósa
fVegg-
r fóóurog
stakar /
gólf-og t
veggfMsar
íþróttir
Bþróttir
íþróttir
Iþróttir
130-50°/
afslætti
I teppadeild
Ýmsarstærdirog
gerdiraf teppabútum,
einnig margargerðir
afalullarteppum
húsió
JON LOFTSSON HF.
HRINGBRAUT121 - SlMI 10600
Dankersen
féllíUng-
verjalandi
— Við náðum einum okkar
albezta leik á keppnistímabilinu
gegn Honved i Búdapest í
Evrópukeppni meistaraliða en
töpuðum samt ieiknum 24-20. Við
hjá Dankersen gerum okkur þó
góðar vonir um að komast í
undanúrsiit keppninnar, þegar
liðln leika á ný i Hannover næsta
sunnudag, 5. marz, sagði Axel
Axelsson, þegar DB ræddi við
hann seint í gærkvöld en hann
var þá nýkominn heim frá Búda-
pest.
— Vítaköstin voru afgerandi
þáttur í leiknum en það er nokk-
uð, sem maður verður að gera ráð
fyrir á útivelli. Sovézkir dómarar
dæmdu 13 vítaköst á okkur og
Honved skoraði 10 mörk úr þeim.
Hins vegar fékk Dankersen ekki
nema fimm vítaköst, sem gáfu
fjögur mörk.
Leikurinn var lengstum mjög
jafn. Dankersen komst þó 1 8-6 en
jafnt var i hálfleik 11-11. Allar
jafnteflistölur voru upp í 14-14 en
siðan komst Dankersen í 17-15 og
18-16. En þá kom mjög slæmur
kafli hjá okkur. Honved skoraði
næstu sjö mörk og breytti stöð-
unni í 23-18. Þá fór mörg góð færi
Dankersen til spillis m.a. eitt vita-
kast. Lokatölur urðu svo 24-20 og
það ætti að vera möguleiki á að
vinna upp þennan fjögurra marka
mun í Hannover, sagði Axel enn-
fremur.
Ólafur H. Jónsson átti sinn
bezta leik með Dankersen á leik-
tímabilinu. Var mjög góður og
skoraði fimm mörk. Waltke var
markhæstur með 6 mörk — eitt
víti. Axel skoraði fjögur — þrjú
viti, Kramer og Buddebom tvö
hvor, og von Oepen eitt.
Gummersbach lék við Frank-
furt an Oder i Austur-Þýzkalandi
og tapað 17-13. Siðari leikur lið-
anna verður í Dortmund og þar
rúmast 12 þúsund áhorfendur.
Uppselt er á leikinn — og á leik
liðanna i Frankfurt I gær var upp-
selt fyrir löngu. Þetta eru leikir í
keppni bikarhafa.
t Wroclaw í Póllandi léku Slask
og Fredericia KFUM í meistara-
keppninni. Pólska liðið sigraði
með átta marka mun, 26-18 eftir
að staðan var 12-10 i hálfleik fyrir
Sla.sk. Samkvæmt fréttum
Reuters í gær er Slask komið i
undanúrslit keppninnar á betri
markatölu.
Finninn Tapio Raisanen kom mjög á óvart,
þagar hann varð heimsmaistarí i skíðastökki af
90 m paili í Lathi i gar. Hlaut 256.6 stig en
Austurríkismaðurínn Upburger var rétt á eftir
meö 256.3 stig. Weisspflog, A-Þyzkalandi,
þriðji með 255.8 stig og fjórði var Mathias
Buse, A-Þýzkalandi, með 251.1 stig. Gifurtega
hörð keppni. Weisspflog, stökk lengst —
114,5 metra.
i siðustu grein heimsmeistarakeppninnar i
nonenum greinum, 50 km skiðagöngu, sigraði
Sviinn Sven-Ake Lundback. Gekk vegalengdina
á 2:46.43.06. Annar varð Jevgeni Belyayev,
Sovétrikjunum, á 2:47.34.48 og þríðji — mjög
á óvart — Frakkinn Jean-Paul Pierrat á
2:47.52.27. I fjórða sssti varð Finninn Matti
Pitkanen og fimmti Norðmaðurínn Lars Erík
Eríksen.
Skipting verðlauna í keppninni.
Sovétríkin
Fkinland
A-Þýzkaland
Sviþjóð
Pólland
Austurríki
Noregur
Frakkland
- I hinni óopinberu stigakeppni hlaut Sovét-
ríkin 75 stig. Finnland 66 stig. A-Þýzkaland 42
stig, Sviþjóð 19 stig, Pólland 11 stig, Noregur
10 stig, Austurríki 8 stig. Frakkland 4 stig,
Tékkóslóvakía 2 stig ofl V-Þýzkaland eitt stig.
Halldór Matthíasson keppti i 30 km skiða-
göngu á mótinu og varð nr. 61 af rúmlega 80
keppendum.
FH sigraði Vai, 13-10 í 1. deild
Islandsmótsins í handknattieik
kvenna í Hafnarfirði. Baráttan í
1. deild er því nú í hámarki — FH
og Vaiur hafa tapað 4 stigum og
Islandsmeistarar Fram 6 stigum.
Aðeir.s þessi þrjú lið koma til
greina i baráttunni um Islands-
meistar: tign.
FH fékk fljúgandi start gegn
Val í gærkvöld — komst í 4-0 og
staðan í leikhléi var 8-4 FH í vil.
Þessi forustu FH hélzt, Valur
komst að vísu í 12-10 en FH átti
siðasta orðið og sigraði auðveld-
lega, 13-10.
Kristjana Aradóttir skoraði
mest fyrir FH, 5 mörk, og hjá Val
var Harpa Guðmundsdóttir
drýgst, skoraði 5 mörk.
Landsliðsmarkvöióur Hauka
varði víti rétt fyrir leikslok
— og tryggði liði sínu bæði stigin gegn KR í handknattleiknum
Gunnar Einarsson, landsliðs-
markvörður Hauka, var hetja liðs
síns í gærkvöld er Haukar
sigruðu KR, 23-22 í 1. deild.
Gunnar bjargaði báðum stigun-'
um í hús fyrir Hauka er hann
varði vítakast Sfmonar Unndórs-
sonar aðeins 9 sekúndum fyrir
leikslok — Haukar hlutu þvf bæði
stigin og félagar Gunnars fögn-
uðu honum innilega — tvö dýr-
mæt stig til Hauka í hinni hörðu
baráttu um Islandsmeistaratign.
Já, Haukar hlutu tvö dýrmæt
stig — en tæpt \jar það. KR hafði
lengst af frumkvæðið I leiknum.
KR hafði yfir stærstan hluta
fyrri hálfleiks, eitt til tvö mörk,
eftir að Haukur Ottesen hafði
skorað fyrsta mark leiksins fyrir
KR. KR komst í 3-1, síðan 5-3 —
en Haukar náðu að jafna 6-6. KR
komst síðan I 9-7, 10-8 og staðan í
leikhléi var 12-11 KR í vil.
Það var ekki fyrr en á 12.
mfnútu síðari hálfleiks að Haukar
náðu forustu í fyrsta sinn í leikn-
um. Þá komust Haukar í 16-15,
sfðan 17-15 en KR náði að jafna
18-18 og 19-19 — en það var í
siðasta sinn er jafnt var. Haukar
skoruðu næstu þrjú mörk — 22-19
og síðan 23-20. Með mikilli
baráttu tókst KR að minnka
muninn í eitt mark er rúm minúta
var til leiksloka, með tveimur
vitum Sfmonar. Þegar 15
sekúndur voru til loka leiksins
misstu Haukarnir knöttinn —
KR-ingar brunuðu upp. Sfmon
Unndórsson stökk upp talsvert
fyrir utan punktalfnu — Haukar
reyndu að stöðva hann, hvað þeim
raunar tókst, en mjög vafasamur
vftadómur fylgdi f kjölfarið.
Raunar brutu Haukarnir á
Símoni eftir að hann hafði verið
lentur — en þá hafði Sfmon lika
tekið of mörg skref. Hvað um það
— annars mjög góðir dómarar
leiksins dæmdu vltakast, sem
Gunnar gerði sér lítið fyrir og
varði — en áður hafði Sfmon
skorað af öryggi úr þremur vftum.
Það var ferskleiki yfir leik
Hauka og KR — bæði lið Ieika
léttan og skemmtilegan hand-
knattleik. Haukar hafa komið
fram með nýja og skemmtilega
leikmenn f vetur — þar hafa
blómstrað þeir Andrés Kristjáns-
son og Ólafur Jóhannesson.
Hvorugur mikill fyrir mann að
sjá — en bráðsnjallir leikmenn.
Ólafur hefur yfir mikilli knatt-
meðferð að ráða — góðum skotum
og útsjónarsemi. Margar
linusendingar hans voru hreint
gull af sendingum, á þá Andrés og
Ingimar Haraldsson. Þá hefur
Þorgeir Haraldsson verið vaxandi
leikmaður f nýrri stöðu — leikið
fyrir utan — en Hauka skortir
mjög langskyttur. Elfas Jónasson
reyndist Haukum dýrmætur loka-
kaflann eftir að hafa átt heldur
slakn fyrri hálfleik. Barátta, sam-
vinna og Ieikgleði einkennir
Haukana.
Haukur Ottesen var hreint
óstöðvandi fyrir KR í fyrri hálf-
leik, skoraði þá sex ágæt mörk.
Honum tókst ekki að fylgja þvf
eftir — ef til vill varla von —
hann meiddist f sfðari hálfleik þó
hann kæmi inná aftur.
Hjá Haukum voru þeir Andrés
Kristjánsson og Þorgeir Haralds-
son markhæstir með 6 mörk en
þeir Elfas Jónasson og Ólafur
Jóhannesson skoruðu 4 mörk
hvor.
Haukur Ottesen skoraði 6 mörk
fyrir KR — öll i fyrri hálfleik.
Sigurður Páll Óskarsson skoraði 4
og þeir Símon Unndórsson og
Ólafur Lárusson skoruðu 3 mörk.
Agætir dómarar leiksins voru
þeir Ólafur Steingrímsson og
Gunnar Kjartansson — ef til vill
að mátt hafi deila um vftakast-
dóminn í lokin.
-H.Halls.
Staðan í 1. deild Islandsmótsins
er nú:
Víkingur 6 4 2 0 129-99 10
FH 7 4 1 2 143-138 9
IR 7 3 3 1 145-133 9
Haukar 6 2 3 1 115-113 7
Valur 7 3 1 3 134-127 7
KR 7 2 1 4 141-149 5
Fram 7 1 2 4 143-165 4
Ármann 7 1 1 5 131-154 3
/ byggingar-
voru-
kjördeild
Utiðgölluö
borðstofuhúsgögH
teak og pallisander,
stakir stólar, sófar,
sófaborö o.m. fL
Við seljum
íþessari viku
ýmsarvörurmeð