Dagblaðið - 27.02.1978, Blaðsíða 21

Dagblaðið - 27.02.1978, Blaðsíða 21
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 27. FEBRUAR 1978. 21 Magnás Kjartansson: „Skiljum hvítu bux- umareftír heima” — ný hljómsveit Magnúsar tekin til starfa Hljómsveit Magnúsar hljómsveitin er til og þegar Kjartanssonar. Bara nokkuð búin að leika á tveimur dans- frumlegt nafn, svei mér þá! En leikjum. Meðlimir? Jú, þeir eru auk Magnúsar sjálfs, Birg- ir Karlsson, Pálmi Gunnarsson og Sigurður Karlsson. Þessi hljómsveit er fyrst og fremst stofnuð til að leika á svonefndum Sunnukvöldum i vetur. Magnús Kjartansson sagði, er Dagblaðið ræddi við hann fyrir verkfall, að hljóm- sveitin myndi þó taka að sér að leika á öðrum dansleikjum. „Við leikum að meðaltali tvisvar i viku fyrir ferðaskrif- stofuna Sunnu vfðsvegar um land,“ sagði Magnús. „A þessi Sunnukvöld koma allar teg- undir af fólki og þar af leið- andi þurfum við að vera með HLJÓMSVEIT MAGNÚSAR KJARTANSSONAR — Afslöppuð tónlist aðallega á dagskránni. Meðlimir hljóm- sveitarinnar eru Birgir Karlsson, Sig- urður Karlsson, Pálmi Gunnarsson og Magnús Kjartansson. M.vndin var tekin á fvrstu æfingu, nokkr- um dögum fvrir verk- fall. DB-mynd Ragnar Th. Sigurðs- son. allar tegundir af tónlist, jafnt fyrir bæjarstjórana sem alla hina.“ Magnús bætti þvi við að ætlunin væri að leika fremur afslappaða tónlist og þar af leiðandi að skrúfa ekki mjög upp í mögnurum. „Þetta er engin rokkhljóm- sveit," sagði hann. „Við erum ekki með mörg tonn af hljóð- færum eins og áður og sömu- leiðis höfum við allir skilið hvftu buxurnar okkar eftir heima." Ekki vildi Magnús Kjartans- son segja neitt um hvort hljómsveit hans ætti eftir að starfa áfram eftir að Sunnu- kvöldunum sleppir. Þrfr af meðlimum Hljóm- sveitar Magnúsar Kjartans- sonar eru poppáhugafólki að góðu kunnir. Sá fjórði, Birgir Karlsson, gftarleikari, hefur lengst af starfað með Magnúsi Ingimarssyni, alltaf þegar hann þarf á gítarleikara að halda, eins og Birgir orðaði það sjálfur. Hann er jafnframt skrifstofumaður hjá Ferða- skrifstofunni Sunnu. at Grammyverö laununum spreðaó Hljómsveitin Eagles hlaut Grammyverðlaunin fyrir beztu plötu ársins 1977 f Bandarfkj- unum. Verðlaunin voru afhent í Los Angeles þann 22. þessa mánaðar og hlutu Eagles einnig viðurkenningu fyrir beztu útsetningu ársins á lag- inu New Kid In Town. Bezta LP plata síðasta árs Debby Boone skaut þeim Shaun Cassidy og Andy Gibb ref f.vrir rass og var útnefnd bezti nýi skemmtikraftur ársins 1977. Hún á laginu You Light Up My Life þann titil að bakka. var hins vegar valin Rumours með Fleetwood Mac. Platan sú var 31 viku i efsta sæti banda- rfska LP plötulistans, en þok- aði nú nýlega fyrir plötunni Saturday Night Fever. Barbara Streisand hlaut tvenn Grammyverðlaun. Hún var valin söngkona ársins og jafnframt lagahöfundur ársins. Seinni titilinn hlaut hún fyrir lag sitt, Evergreen, úr kvikmyndinni A Star Is Born. Debby Boone, nítján ára gömul dóttir söngvarans Pat Boone, hlaut titilinn bezti nýi skemmtikrafturinn á árinu. Hún kom fram í sviðsljósið á sfðustu mánuðunum f fyrra og sló f gegn með laginu You Light Up My Life. Tveir karlmenn veittu Debby Boone harða sam- keppni um titilinn. Annar var Shaun Cassidy, 22ja ára gamall bróðir táningastjörnunnar Davids Cassidy, sem nú hefur reyndar dregið sig út úr glaumnum og gerzt bóndi. Hinn var jafnaldri Debby, Andy Gibb, bróðir Gibbbræðr- anna þriggja f Bee Gees. James Taylor - hlaut Grammyverðlaunin sem bezti söngvari sfðasta árs. Hann vann til þeirra fyrir lagið Handy Man. Tónlistin úr vísindakvik- þrenn Grammyverðlaun. Tón- myndinni Star Wars hlaut listin er eftir John Williams og það er Sinfónfuhljómsveitin f London sem flytur hana. Ki'uter Ronald Biggs, sá i bröndóttu sundskýlunni, ásamt Paul Cook, Steve Jones og leikaranum Jim Jetter (í nasistabúningi). Þeir eru þarna staddir á ströndinni í Copaeabana og ræða gerð kvikmyndar til að auglýsa stofnun hljómsveitarinnar sem hezt. UPI-mynd Lestarræningi í hljómsveit Eagles hlutu tvenn Grammyverðlaun — fyrir beztu plötu ársins og beztu útsetningu, á laginu New Kid In Town. Frægasti ræningi veraldar hefur tekið höndum saman við tvo af meðlimum ræflarokk- hljómsveitarinnar Sex Pistols og bandarískan leikara um að stofna hljómsveit. Ræninginn er auðvitað eng- inn annar en Ronald Biggs, og hann á að verða söngvari nýju hljómsveitarinnar. Trommu- leikari verður Sex Pistols- limurinn Paul Cook og félagi hans Steve Jones sér um bassa- Ieik. Bandarlski leikarinn Jim Jetter ér sfðan fjórði maður bandsins, en ekki er vitað hvaða hljóðfæri hann leikur á. Ronaid Biggs náði mikilli frægð, er hann rændi lest f Englandi árið 1963. Upphófst síðan mikill eltingaleikur lögreglunnar við Biggs, sem lauk í Brasilíu, þar sem hann fékk hæli. Hljómsveitin Sex Pistols leystist upp að loknu hljóm- leikaferðalagi um Bandarfkin, sem hófst í byrjun ársins. Ekki er kunnugt um, hvað tveir þekktustu meðlimir hljóm- sveitarinnar, Johnny Rotten og Sid Vicious, hafa tekið sér fyrir hendur, en hinir tveir virðast sem sagt vita hvað þeir eru að gera.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.