Dagblaðið - 12.04.1978, Blaðsíða 1
4. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1978 - 76. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTl 11.— AÐALSÍMI27022.
Breytingar á kosninga-
lögum nú ólíklegar
„ Teljum orðið ofseint, ” segirBenedikt Gröndal
Litlar líkur eru taldar til þess, aö
kosningalögum veröi breytt á þessu
þingi, þótt ýmis frumvörp hafi komiÖ
fram um það. 1 viötali við Benedikt
Gröndal, formann Alþýöuflokksins, í
morgun kom fram, að stjórnarand-
stöðuflokkarnir telja orðið of seint að
breyta lögunum. Þar sem samstaða
verður þá ekki, má telja, að engar
breytingar verði gerðar.
„Við vöktum máls á því strax í
upphafi þings, að ríkisstjórnin ætti að
hafa frumkvæði að viðræðum um
breytingar á kosningalögum,” sagði
Benedikt Gröndal. „Forsætisráðherra
hafði lofað því í sjónvarpsþætti. En
rikisstjórnin hefur svikizt um þetta allt
þingið. Nú vakna samtöl um þetta um
helgina. Gunnar Thoroddsen ráðherra
kallaði fulltrúa flokkanna á sinn fund
á föstudaginn. Þá kom sú skoðun
fram, ekki aðeins hjá stjórnarand-
stöðunni, heldur einnig sumum
fulltrúum stjórnarflokkanna, að þetta
væri orðið of seint, sérstaklega vegna
þess að framboð væru mjög viða
komin fram. Hins vegar er alveg jafn-
ljóst og áður, að skapazt hefur
hroðalegt misræmi, sem verður að
leiðrétta,” sagði Benedikt.
■HHL
DB-mynd Hörður.
Sólin dýrkuð
Enda þótt hitamælirinn sýndi aðeins
2 stiga hita um miðjandagi gær dýrkuðu
menn sólina engu að siður enda var mun
hlýrra þar sem menn höfðu komið sér
vel fyrir á skjólgóðum stöðum. Heiti
lækurinn virðist njóta mikilla vinsælda
fólks I Reykjavik og nágrenni. Lækurinn
er eins konar Grjótagjá sunnanmanna,
en sá er munurinn að Grjótagjá er ekki
lengur hæf fyrir böð, orðin 51 stigs heit.
„Fáránlegur
tilbúningur”
— að égstyöjiþennan
lista, segir
JónasHaralz
„Þetta er fáránlegur tilbúningur,”
sagði Jónas H. Haralz bankastjóri, um
fréttir þess efnis að hann væri yfirlýstur
stuðningsmaður svokallaðs „sprengi-
framboðs” sjálfstæðismanna við bæjar-
stjórnarkosningarnar I Kópavogi f vor.
„Ég hef aldrei komið nálægt bæjar-
málefnum f Kópavogi og hef ekki hug á
að gera það,” sagði Jónas ennfremur.
-ÓV.
NOTKUN
RAFBÍLA
— sjá kjallaragrein
GuðmundarG.
Þórarinssonar
á bls. 10 og 11
Framboð Framsóknar íþing- og
borgarstjórnarkosningum í Reykjavík:
AÍfreð útaf listanum
Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi Guðmundur G. Þórarinsson, 3.
Framsóknar hefur hafnað þvi sæti á Þórarinn Þórarinsson, 4. Sverrir
framboðslistanum, sem honum bar sam- Bergmann, 5. Kristján Friðriksson, 6.
kvæmt prófkjörinu og fer hann út af Sigrún Slagnúsdóttir, 7. Jón Aðalsteinn
listanum. Helgi Hjálmarsson kemur inn Jónasson, 8. Geir Vilhjálmsson, 9.
í 6. sæti. Brynjólfur Steingrímsson.
Framboðslistar flokksins i þing- og Borgarstjórnarkosningar: 1. Kristján
borgarstjórnarkosningunum voru Benediktsson, 2. Gerður Steinþórsdóttir,
ákveðnir í gærkvöldi. Efstu sætum er að 3. Eiríkur Tómasson, 4. Valdemar K.
öðru leyti skipað samkvæmt prófkjörun- Jónsson, 5. Jónas Guðmundsson, 6.
um. Helgi Hjálmarsson arkitekt, 7. Björk
Niu efstu sæti listanna eru þannig: Jónsdóttir, 8. Páll R. Magnússon. 9.
Þingkosningar: 1. Einar Ágústsson 2. Knstinn Björnsson. -HH..
Urgur í strætisvagnstjórum:
Telja að um sig sé njósnað
- sjá bls. 9
Skákmótið á Lone Pine, Kaliforníu:
Haukur lagði gamla
kappann Reshevsky!
— Helgi Ólafsson á möguleika á að krækja í verðlaun á mótinu
Haukur Angantýsson vakti mikla
athygli í gær á skákmótinu í Lone
Pine, þegar hann lagði hinn gamla og
góða kappaReshevskynokkuð örugg-
lega. Með þessum góða sigri er
Haukur háflnaður með að ná alþjóð-
legum meistaratitli. Margeir er það
einnig eftir að hann gerði jafntefli við
alþjóðlega meistarann Commons.
Helgi Ólafsson er búinn að tryggja
sér þennan titil en í gærkvöldi
tapaði hann fyrir hinum sterka Ung-
verja Portisch. Jónas Pétur og Ásgeir
töpuðu sínum skákum.
Af öðrum skákum er það að segja
að Petrosjan og Polugajevskí tefldu
mikla baráttuskák en henni lauk með
jafntefli. Larsen lagði Steen meistara-
lega og nú eru Polu og Larsen efstir
með 6 1/2 vinning og berjast um 12
þúsund dala verðlaunin. Þá kemur
Laine, Bandaríkjunum með 6, Rogoff,
Bandarikjunum með 6, Petrosjan og
Polugajevskí með 5 1/2 vinning, en
Helgi er í hópi 5 manna með 5 vinn
inga. Á hann möguleika á að næla f
verðlaun, nái hann jafntefli á morgun,
en þá lýkur mótinu i Lone Pine. Er
það vel gert hjá Helga en hann
byrjaði fremur illa á mótinu, en hefur
sannarlega rétt sinn hlut. —
Así'í",bp- — sjábls.8