Dagblaðið - 12.04.1978, Blaðsíða 2
2
r
________DAGBLAÐIÐ. MIDVIKUDAGUR 12. APRÍL 1978.
Beit verkalýðshreyfingin á agn ríkis-
stjórnarinnar?
— upplausnin stjórninni í hag
Spekúlant skrifar:
Mikil ringulreiö ríkir nú í islenzku
þjóðlífi. Kosningar nálgast og
víðtækar verkfallsaðgerðir eru yfir-
vofandi. Ríkisstjóminni tókst svo
sannarlega að æsa upp launþega i
landinu með kjaraskerðingarlögunum.
Verkalýðsforystan skipulagði mót-
mælaaðgerðir, sem ríkisstjórninni
tókst svo að lama á grundvelli laga-
brots og hýrudráttar. Einnig hefur
áróðursvél stjórnarinnar tekizt að
sannfæra allflesta um að lög þessi hafi
verið islenzku efnahagskerfi lífs-
nauðsynleg. Stjórnarandstöðunni og
verkalýðshreyfingunni hefur mistekizt
að benda nægilega á aðrar leiðir svo
sem að stýra fjármagni rikisins
skynsamlegar og fara að innheimta
skatta hjá auðmönnum, svo tvö dæmi
séu nefnd.
Næsti leikur verkalýðshreyfingar-
innar var svo að boða útflutningsbanr
við lítinn fögnuð vissra launþega-
stétta svo sem sjómanna. Enn kemur
verkalýðshreyfingin klofin eða lömuð
til leiks og stjórnin notar sér stöðuna
og dregur fram hverja myndina á
fætur annarri um hin skelfilegu
skemmdarverk sem unnin verða með
sliku útflutningsbanni. Almúginn
gerist nú enn ringlaðri og hræddari.
Hann vill að staðið sé við gerða
samninga frá í fyrra, en jafnframt að
íslenzkum útflutningsiðnaði verði ekki
unnið tjón.
Ríkisstjórnin hefur líka æ ofan í æ
veifað svipu atvinnuleysisins í umfjöll-
un um afleiðingar bannsins. Það er
engu likara en eitthvert stórkostleg-
og flókrtasta herbragð stjómarflokka
hér á landi sé að takast, verkalýðs-
hreyfingin hafi bitið á agnið.
Hefði verkalýðshreyfingin haldið að
sér höndum fram yfir kosningar og
mætt þá óskipt til leiks, er hætt við að
núverandi stjómarflokkum tækist ekki
að hrista af sér óvinsældirnar I kjölfar
kaupskerðingarlaganna og annarrar
óstjórnar.
Þvert á móti hefur henni tekizt að
sannfæra þorra fólks um nauðsyn
aðgerða sinna og verkalýðsforystan er
I sárum.
Útkoman er svo augljós. Fólk óttast
enn frekari ringulreið ef nýir flokkar,
flokkar verkalýðsins, taka að verulegu
leyti við stjórn, þegar verkalýðs-
forystan hefur ekki staðið sig betur en
raun ber vitni.
Þegar fólk gerir svo loks upp hug
sinn við kjörborðið, er hætt við að það
leggi atkvæði sitt á vogarskálar stjórn-
arflokkanna af ótta við enn frek-
ari upplausn. Þetta er ekki sér íslenzkt
.fyrirbæri, heldur er þessi saga að
endurtaka sig um allan heim ár eftir ár
en er litt þekkt hér.
Hafa þeir hugsað upp eitt mesta stjðrnmálaherbragðið á íslandi til þessa? DB-mynd:
Hörður.
Láttu ekki happ úr hendi sleppa.
BIAÐIÐ
fijálst, áháð dagblað
Verðlaun í áskrifendaleik Dagblaðsins.
Bíður ham þín ?
Chevrolet Nova 1978 bíður afhendingar 15. apríl n.k.
Sértu áskrifandi, þá andaðu rólega.
Ef ekki, þá hringdu strax og pantaðu áskrift að Dagblaðinu í
síma 27022.
Sendibfl-
stjórar
eru ekki
burðar-
jálkar
Sendibílstjóri I Reykjavík, nr. 5173—
8209, skrifar:
Vegna frásagnar í Dagblaðinu á
laugardaginn um konu, sem er sendi-
bílstjóri í Kópavogi er full ástæða til
að láta það koma skýrt fram að
sendibílstjórar eru ekki burðarjálkar
og að i engum tilvikum er hægt að
krefjast þess af þeim.
Hins vegar hafa bílstjórar veitt þá
þjónustu að annast ýmsan burð fyrir
viðskiptavini. Konan í Kópavogi er
því fullgildur sendibilstjóri þó æskilegt
væri að hún kæmist upp á lag með að
skipta um dekk.
Óska ég henni til hamingju með
framtakið.
Karen Kristjánsdóttír, nýi kvensendi-
bflstjórinn I Kópavogi.
*