Dagblaðið - 12.04.1978, Qupperneq 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1978.
ER STJORN-
IN ORÐIN
HRÆDD?
Gunnar Bender nemi skrifar:
Greinilegt er að næsti mánuður á
eftir að verða mjög sögulegur. ASÍ er
nú loksins farið að sýna vald sitt. (Ekki
seinna vænna). Morgunblaðið er
greinilega með á nótunum, fyrir Geir
vin sinn. Morgunblaðið vonar hitt og
þetta, sem á sér enga stoð í raun-
veruleikanum. Árásir blaðsins á ASÍ
eru hafnar af fullum krafti.
Jón H. Bergs segir útflutningsbann
ákaflega ógeðfellda aðferð. Mér er þá
spurn: er árás á láglaunafólk ekki
ógeðfelld aðferð við fólk, sem rétt
hefur ofan sig og á? Ætli Morgun-
blaðið sé hrætt við að verkafólk sé að
taka völdin?
Þá hefur það skeð að Albert
Guðmundsson hefur sýnt sitt rétta
andlit með þingsályktunartillögu sinni
í kjölfar boðaðs útflutningsbanns
Verkamannasambandsins. Hann vill
banna verkföll og gera þau þar með
ólögleg.
Þarna opinberar Albert bezt
hugsun sina í garð íslenzks verkafólks.
Það er orðið anzi hart ef menn mega
ekki lengur fara í verkfall, aðeins til að
ná umsömdu kaupi. Verkfallið er lög-
legt og mun verða framkvæmt þrátt
fyrirallt.
Rikisstjórnin er greinilega búin að
glata trausti fólksins og má þar benda
á skoðanakönnun DB sem leiddi í Ijós
að 70 af hundraði eru andvigir
aðgerðum ríkisstjórnarinnar.
Það er óhætt að segja að
kosningarnar i sumar verði sennilega
kosningar aldarinnar þar sem mjög
hart verður barizt um hvert atkvæði
Hvert er meinið?
Hvernig stendur á að allt stefnir
niður á við þessa dagana? Mörg
fyrirtæki hafa lýst yfir að þau verði
innan tíðar gjaldþrota, ef ekki komi
einhver fyrirgreiðsla til strax. Ekkert
fyrirtæki virðist bera sig þessa dagana
nema fyrirtæki Geirs Hallgrimssonar,
tslenzkir Aðalverktakar og stærsti
auðhringur landsins, Sambandið.
Og það nýjasta af þessu öllu saman
er svo járnblendiverksmiðjan að
Grundartanga, mesta áhætta sem
nokkur rikisstjórn hefur tekið.
Þetta er verksmiðja sem engan
veginn getur staðið undir sér næstu
árin. Járnblendi hleðst nú upp I
heiminum og einn góðan veðurdag
verður sjálfsagt að bjóða allt draslið
upp og kemur mér ekki I hug hver á þá
að bjóða í það.
Nei, svona á ekki að stjórna. Það
Spörum
gjaldeyri
— styðjum Baldur
Brjánsson tilkukl-
lækninga hér heima
Sparsöm kona hringdi:
' Mér varð hugsað til þess er ég
horfði á Baldur Brjánsson fram-
kvæma svonefnda skurðaðgerð með
berum höndum að við gætum sparað
okkur stórfé í gjaldeyri með að nýta
þennan mann og koma upp stofu fyrir
hann. Fjöldi lslendinga hefur þegar
farið til Filippseyja til samskonar
„lækna” með ærnum kostnaði fyrir sig
og þjóðarbúið. Baldur gefur þeim
ekkert eftir nema síður sé og vitna ég
til þess að hann hreinsaði út eggja1
stokk konunnar svo ekki varð um
villzt.
verður að stöðva sóun á fjármunum
okkar. Hvert mannsbarn skuldar nú í
erlendum lánum a.m.k. 700 þús.
krónur og enn hlaðast upp erlend lán.
Hvernig verður hægt að greiða þau
þegar að skuldadögunum kemur.
Kannski með nýjum lánum eins og nú
er gert?
Svo má nefna Kröflu, sem ekki
framleiðir n.ema 6 megavött. Hvert
megavatt kostar sem sagt tvo
milljarða. Dágóð fjárfesting það?
I ljósi þessa er víst að rikisstjórnin
mun ekki fá mikinn stuðning
verkafólks. Ofan á allt bætist svo að
spilling hefur aldrei verið meiri en nú.
Sem dæmi má nefna Landsbanka-
málið og innistæður manna svo sem
Jóns G.Sólness I erlendum bönkum.
Sem sagt: Nú er það þitt, kjósandi
góður, að velja hvort þessi auðvalds-
stjórn situr áfram eða ekki, — eða ný
stjórn taki við og geti ef til vill bjargað
þessu öllu. — Hver veit?
!
. V/RIC
ís Oaef^jj »r í miil|ona » um alten
Er verkalýðurinn að taka völdin? Myndir: Gunnar Bender
Raddir
lesenda
Spurning
dagsins
II!
íííííí
m
m
m
:.*
m
m
wiíii;
Gjörbylting í nýtingu
TELEXTÆKJA
Nú geta fyrirtæki og stofnanir sameinast um
nýtingu telextækja á ódýran og hentugan hátt.
Telecoder, nýja strimiltækið frá Skrifstofuvélum
h.f., tengist beint við hvaða IBM kúlurafritvél sem
er.
Telecoder strimiltækið er algjörlega óháð
telextækinu.
Telecoder tryggir þér villulaust handrit af telex-
skeytum þínum, — og fullfrágenginn telexstrimil,
sem er tilbúinn til útsendingar þegar í stað.
Telecoder er tilvalinn fyrir deildir stærri fyrir-
tækja, — og þá ekki síður fyrir einstök fyrirtæki,
sem geta þannig sparað stórfé með því að sam-
einast um leigugjald á einu telextæki.
RITVEL
TELECODER
TELEX
SKRIFSTOFUVELAR h.f.
V. + = -r
+ -1c “ vS? Hverfisgötu 33
^ Sími 20560
Ætlar þú að ferðast
eitthvað innanlands í
sumar?
Jóhann Jónsson, tala við þig þessa
stundina: Ég er ekki búinn að leggja á
ráðin um það. Ég hef ferðast hingað og
þangað um landið. Þarf litið að fara ein-
hverja ferð án fyrirheits.
. Ingrid Oddsdóttir húsmóðir: Eg bara
^ veit það ekki og geri ekki ráð fyrir þvi.
Ingi G. Jóhannsson nemi: Nei, sennilega
ekki. Ég ætla að ferðast um Norðurlönd-
■ ineðafaratilSpánar.
Jón Eyjólfsson nemi: Ég bý í Borgarfirði
og reikna ekki með að fara í neitt frí, það
er nóg að gera við búskapinn.
Sæbjörn Guðfinnsson sölumaður: Já,
það ætla ég að gera. Feröinni er heitið til
Vestmannaeyja, þangað hef ég aldrei
komið og er vist kominn tími til.
Ólöf Eliasdóttir húsmóðir: Já, ég vonast
til að ég komist yfir Sprengisand. Það
hefur alltaf verið minn draumur.